Vísir - 17.01.1975, Blaðsíða 4

Vísir - 17.01.1975, Blaðsíða 4
4 Vísir. Föstudagur 17. janúar 1975. Geir R. Andersen: r SKEMMTANALIF SAMNINGAFUNDA ER AÐ HEFJAST Nú eru byrjaöir hinir árvissu og skemmilegu „samningafundir” milli aðila vinnumarkaöarins og lifga þeir alltaf dálitið upp á and- rúmsloftiö i skammdeginu, sér- staklega þegar þeir hefjast rétt eftir hátiöarnar og geta veriö eins konar framhald mannfagnaða og skemmtana þeirra, sem þeim eru tengdar, og firra aöila samninganefndanna þeim snöggu umskiptum, sem annars eru alltaf viö þaö að skera snögglega á hátiðleika gleðilegrar jóla og nýárs. Tökum það rólega 1 einu dagblaöanna mátti nýlega sjá „samninga- nefndirnar” á fyrsta fundi sinum, ekki færri en 24 menn alls (engar konur sjáanlegar, enda kvenna- ár, og engin ástæða til að reikna meö miklu álagi á þær, fyrr en 1. jan. 1976), sitjandi umhverfis hringborö mikið — allir glaðir og bjartsýnir á svip og með sinn kaffihitabrúsann uppstilltan viö sjötta hvern mann. Ef dæma mætti eftir svip samningamanna á þessum fyrsta fundi, skyldi maður halda, að samningar yrðu létt verk og fljót- lega yrði staðið upp, hafandi höndlaö hinn gagnkvæma skilning á ástandi og horfum I hinu islenzka þrota...., nei, af- sakið, þjóðarbúi. En ekki má víst láta glepjast af andlitssvipnum einum saman, heldur mun af blákaldri reynslu fyrri ára dregin sú ályktun, að margir fundir muni líða, áður en sannleikurinn um ástand þjóðar- búsins rennur upp fyrir samningsaðilum — og ekki einu sinni þá verði sætzt á viðhorfin, heldur muni þjóðinni verða gefið enn eitt tækifæri til ærlegs verk- falls, sem gæfi fólki, almennt, kærkomið svigrúm til þess að þurfa ekki að fara með jafnmikl- um hraða út i atvinnulifið eftir jóla- og nýárshátiðina og gert er annars staðar, t.d. hjá vanþróuöum þjóðum, úti i heimi. Þetta hefur ekki verið nokkru lagi likt að hella þjóðinni út i at- vinnullfið, strax á annan I nýári, og þaö þegar þjóðarbúskapnum er spáð rýrnun hvort eð er! Þeir Kanarieyjafarar höfðu þó vaðið fyrir neðan sig og fóru úr landi fyrir hátiöar og höfðu viö orð að koma ekki aftur, fyrr en að loknu verkfalli og samningum. Það er þvi engin ástæða fyrir samningamenn að hafa hraðar hendur, fremur venju, varðandi hinar augljósu niðurstöður af nú- verandi kröfugeröum, sem allir vita að eru ótlmabærar og óuppfyllanlegar. Nú er fyrir öllu að hafa marga fundi og langa til „skrafs og ráöagerða”, til að meta upplýsingar um „úttekt á þjóðarbúinu,” kjósa „undir- nefndir” innan samninga- nefndarinnar, o.s.frv. o.s.frv. Aðalatriðið er, að sem flestir geti notið góðs af samningafund- unum, sem slikum. „Samböndin borga, ma’r, ekki þú,” var haft eftir einum, sem átt hefur vissan sess á þessum maraþonfundum gegnum árin. Alla vega er það haft fyrir satt, að sala á spilum og manntöflum stóraukist alltaf, fyrir hina árvissu samningafundi, sem oft eru langir og strangir — og „eitt er vlst, að alltaf verður, ákaflega gaman þá”, — og engin ástæða til annars en að „taka það bara rólega”. Öryggið umfram allt En svo vikið sé af braut hinna háðhverfu málbragða og til hinna raungildari, þá er freistandi að athuga nánar, hvernig flestar meiriháttar samningaviðræður eiga sér stað. Nú er það svo, að I orði halda launþegasamtökin því hátt á lofti, að þau eigi að halda rétti sínum til Frjálsra samninga við viðsemjendur slna, og þar eigi engir aðrir nærri að koma. En á borði er það þó svo, að ekki eru fyrstu viðræður milli. samnings- aðila hafnar, fyrr en þess er krafizt, raunar samþykkt af báðum aðilum, að „rlkið”, hin al- sjáandi og mikla forsjá íslenzkra borgara, hafi hönd I bagga með viðræöunum og raunar leiði þær að mestu eða öllu leyti. „Launþegar ganga á fund rlkis- stjórnarinnar”, — „vinnuveit- endur ganga á fund rlkisstjórnar- innar til skrafs og ráðgerða”, sögðu fréttirnar um sl. helgi. Og hvað skyldi svo vera „skrafað” og hvað „ráögert” á þessum einkafundum beggja aöilanna með rlkisstjórn hverju sinni? Jú, það er eingöngu verið að leita eftir upplýsingum um, hve langt rlkisstjórnin muni geta gengið til stuðnings hvorum aðilanum fyrir sig, og er þá aðal- lega átt við beinan fjárhagslegan stuöning, úr rlkiskassanum, sem rlkisstjórnin treysti sér til að innheimta með einum eða öðrum hætti frá skattborgurunum, öll- um landslýð, þ.á m. þeim sem I vinnudeilunum standa. Um þetta er rætt fram og til baka, þar til nokkurn veginn er útséð, hver úr- lausnin verður, — og þá, en ekki fyrr, en loks setzt niður til þess að ræða raunverulega skiptingu á úthlutuninni. Það er svo sam- komulag innan hvors hóps deilu- aðilanna, hve lengi skuli setið og streitzt viö aö ná sem mestu af þeim hluta, sem rlkisstjórnin hef- ur lofað að leggja fram til hins aðilans. Það hefur komið æ betur I ljós á siðustu árum, og allt fram á þennan dag, að tilhneigingin til þess að hafa rlkisvaldið I bak- höndinni I hvers kyns samninga- málum, leita til rlkisvaldsins I sérhverju smámáli meö aðstoð i formi styrkja, lána og annarrar fyrirgreiðslu, sem á að tryggja framgöngu málsins er orðin rót- gróin meðal alls almennings. Olíuríkin fó fjór- veitingu Bahrain, Oman, Qataer og fleiri Arabaríki, allt saman olíuframleiðsluríki, eru meðal tiu „tekjulítilla landa", sem í gær hlutu 83,5 milljón dollara fjár- veitingu til tækniaðstoðar. Það er þróunarsjóður Sameinuðu þjóðanna, sem leggur þessa styrki til, en hann er stærsti aðili heims, sem lætur slíka tækniaðstoð til sin taka. Er hann uppbyggður af frjálsum fram- lögum þjóða, og leggja stærstan skerf I hann ýmis oliuneyzluriki, eins og t.d. Bandarikin — íslend- ingar hafa notið góðs af þessum sjóði. Af þessum 83,5 milljónum doll- ara fær Sýrland 9 milljónir til oliuborana og leitar. Olían — ruslið menga hafið Fiekinn „Siðasta kynslóöin” kom til hafnar I Trinidad I morg- un og þriggja manna áhöfn hans heil á húfi eftir að hafa siglt yfir Atlantshafiö á 81 degi. Leiöangursmenn, sem lögöu upp frá Safi i Marokko i október i haust sem leiö, ætiuöu aö kanna mengun hafsins. Hinn 36 ára gamli leiðangurs- f stjóri, Belginn Alfonso Cerle- mans, sagði fréttamönnum við komuna til Trinidad, að leiðang- urinn hefði afsannað þá trú haf- fræðinga, að Atlantshafið væri einungis mengað við strendur landa. tJti á þvi miðju héldu menn, að sjórinn væri tær. „Það reyndist ekki vera svo”, sagði Berleman. „Úti á miðju At- lantshafi flýtur olían um allt og úrgangsrusl, rétt eins og upp við landsteinana.” Myndin hér við hliðina sýnir flekann við komuna i morgun til Trinidad eftir 4000 milna siglingu. Sá t.v. á myndinni heitir Raoul de Boel, en Cerlemans er sá á sund- skýlunni. AUGLVSINOASTOfA KRISTINAR V-=W 3.29 miólk og mjólkurafuröir orkulmd okkar og heilsubrunnur Mjólkurdagurinn 1975

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.