Vísir - 20.01.1975, Blaðsíða 20
vísm
Mánudagur 20. janúar 1975.
Mikil hálka á
Keflavíkurveginum:
Átta
flugu
útaf
Atta bílar flugu út af Eeykja-
nesbraut i nótt, vegna mikillar
hálku þar.
Bílarnir voru ýmist á leið til
eða frá Keflavfk.
Mikil hálka var á köntum
steypta vegarins. Virðast-bil-
stjórarnir ekki hafa áttaö sig á
henni. Þegar þeir lentu út i
köntunum á mikilli ferð, gátu þeir
ekki hamið bilana. önnur orsök
var sú, að bflarnir fóru út úr hjól-
förunum sem hafa mvndazt á
veginum.
Engin slys urðu i þessum ,,flug-
ferðum”. Einn bilanna valt, en
hinir lentu allir á hjólunum.
—ÓH
Skótar fundu
kind í svelti
Kind fannstf svelti i hraungjótu
suðvestur af Fossvallarótt ofan
viö Lækjarbotna á laugardags-
kvöldið. Viröist hún hafa hrakizt
þar ofan i og gat enga björg sér
veitt.
Það voru skátar á æfingu, sem
römbuðu á kindina undir mið-
nætti á laugardagskvöldið. Þeir
gerðu lögreglunni i Arbæ viðvart,
og hún bjargaði kindinni.
Skepnan virtist hafa verið lengi
I gjótunni, því hún var orðin æði
soltin. Eitthvað hefur hún reynt
að bjarga sér, þvi hornin á henni
voru orðin núin af veggjum gjót-
unnar.
Kindinni var komið til vörzlu-
manns borgarinnar, og sótti eig-
andinn hana þangað á sunnu-
dagsmorguninn.
—SH
Ók tvisvar ó
lögreglubílinn
— en vissi ekki
af honum
Lögreglumönnum, sem voru á
vakt við Klúbbinn á laugardags-
kvöldið, þótti ökulag eins
bflstjórans, sem þaðan ók, með
þeim hætti að vissara væri að
kanna það nánar. Lögðu þeir af
stað á eftir honum og ætluðu að
hitta manninn að máli.
Maðurinn ók hins vegar ýmsa
hringi um bæinn og fór stundum
anzi greitt. Lögreglumennirnir
reyndu hvað eftir annað að stöðva
hann en kom fyrir ekki, meðal
annars lét hann sig hafa það aö
aka utani lögreglubilinn á Mikla-
torgi, en ekki nam hann staðar
við það. Loks tókst að króa hann
af á Njálsgötu, en ekki lét hann
stöðvast fyrr en á lögreglubiln-
um.
Á eftir bar hann, að hann hefði
ekki vitaö um eftirför lögreglu-
bílsins né orðið hans á nokkurn
hátt var, fyrr en hann komst ekki
lengra fyrir honum. Lögreglu-
billinn varþómeð rauð blikkandi
ljós og tdhevrandi hljóðmerki.
Maðurinn mun hafa verið i fylgd
með Bakkusi. SH.
SNJÓTROÐARINN
FÓR YFIR BÍL
Snjó hefur verið
mokað dag og nótt á
Akureyri, siðan unnt
var að hefja snjó-
mokstur á miðviku-
daginn var. öll tiltæk
ruðningstæki hafa ver-
ið notuð, og vaktaskipti
um stjórn þeirra. Talið
er, að þessari lotu linni
eftir daginn i dag.
Eitthvað mun um það, að
bílaeigendur hafi ekki merkt
bfla sina sem skyldi, og einhver
ökutæki hafi skrámazt við
snjóruðninginn. Þá kom það
fyrir á Akureyri, að maður
nokkur hafði gengið af bil sinum
á miðri götu, þegar hann komst
ekki lengra. Þar fennti bilinn i
kaf, og var hann ekki merktur.
Þessi bill kom svo ekki i
leitirnar fyrr en snjótroðari
hafði ekið yfir hann, án þess
nokkur vissi. Einhverjar
menjar troðslunnar munu hafa
sézt á bilnum.
Annar klagaði undan þvi, að
vélsleða hefði hvað eftir annað
verið ekið af ráðsettu ráði yfir
toppinn á bilnum hans, þar sem
hann gægðist upp úr snjónum.
— sem skilinn
hafði verið eftir
ómerktur á
miðri götu og
fennt yfir
Ekki er vitað, hver var þar að
verki,enda er mikið af vélsleð-
um á Akureyri. Þeir eru
óskráðir, og þarf ekki ökupróf á
þá. Að sögn lögreglunnar stafar
töluverð hætta af gálausri og
þekkingarlausri meðferð á vél-
sleðunum. Nýlega slasaðist
þannig unglingspiltur á hand-
legg, er hann festist i vélbúnaði
sleða, sem vélarhlifarnar höfðu
verið teknar af. -SH
Annar billinn — sá rússneski — endaði á garðvegg, sem hann
braut að nokkru. Ljósm. VIsis: BG.^^
Árekstur stórveldcmna
Fulltrúar stórveldanna, i
formi bifreiða, skullu harkalega
saman I gærkvöldi.
Rússneskur fólksbíll og
ameriskur fólksbill rákust á á
horni Lönguhliðar og Háteigs-
vegar. Rússneski billinn
kastaðist á garðvegg, og
brotnaði annað hjólið undan
honum. Ameriski fólksbillinn
gjöreyðilagðist við áreksturinn
og kastaðist nokkra leið, þangað
til hann stoppaði á staur.
Fimm manns I báðum bilun-
um hlutu nokkur meiðsli, aðal-
lega á höfði.
ÓH.
Norðfiarðqrsöfnun; Rýmar 23 ItlÍlljÓllÍr tlOfO SOfliaZt
Stöðugt er safnað i snjóflóða-
söfnunina svokölluðu og er nú bú-
ið að safna 23 milljónum og 60
þúsundum samtals.
Grimsey hefur gefið 130 þús-
und. Frá Elliheimilinu Grund
komu 100 þúsund. Frá Höfn i
Hornafirði komu 378 þúsund. Þor-
steinn RE 303 gaf 100 þúsund. Frá
Húsavik voru komnar 634 þúsund
og 500 en til viðbótar við það hafa
komið 167.108,00. Þetta samsvar-
ar þvf að hver ibúi á Húsavík hafi
gefiö 380 krónur.
—EA
Landsþekktur brezkur
„lœknir" til íslands
— Upton verður gestur á landshátíð Anglia
Brezkur „læknir”,
sem allir íslendingar
þekkja, er væntanlegur
i heimsókn til íslands
um 20. febrúar. Hér er
á ferðinni Dr. Michael
Upton — sem raunar er
ekki læknir i daglegu
lifi, heldur leikari og
heitir Barry Evans.
Prófessor Alan Boucher sagði
VIsi i morgun, að hann hefði
sent Mr. Evans skeyti og boðið
honum að koma hingað á lands-
hátíð Anglia, sem haldin verður
22. febrúar. Upton læknir — Mr.
Evans —- tók vel í boðiö, en eftir
er að ganga frá smáatriðum
varðandi ferð hans hingað.
Barry Evans er örugglega öll-
um kunnur fyrir leik sinn i
myndaflokkunum tveim, sem
gengið hafa i sjónvarpinu hér
um Lif og fjör I iæknadeild og
siðar Læknir á lausum kili.
Hann er þó ekki siður þekktur i
heimalandi sinu, þar sem enn
fleiri sjónvarpsmyndaflokkar
hafa gengið, og jafnframt raðir
útvarpsleikrita um sömu per-
sónur.
Búast má við, að margir vilji
sjá þennan fræga lækni og jafn-
vel ræða við hann um krank-
leika sinn, en ekki er vist, að
tóm gefist til þess, þvi Mr. Ev-
ans kemur hingað aðeins I stutta
vitjun — heimsókn — og tekur
tæplega á móti sjúklingum.
Prófessor Boucher kvaðst ekki
búast við að hann hefði hér
lengri viðdvöl en rétt yfir helg-
ina, en það færi eftir verkefnum
hans heima fyrir. *•
Þvi má svo bæta hér við, að á
laugardaginn kemur sjáum við
hann I siðustu myndinni úr
Læknir á lausum kili — en hver
veit, nema við fáum svo sfðar
aö sjá Læknir til sjós....
—SH
„Ógjörningur
oð œfa inn í
hlutverkin"
— Sýningar Iðnó féllu
niður vegna veikinda
Gísla Halldórssonar
„Við getum ekkert annað gert
en aðfella niður sýningar. Þetta
eru það stór hlutverk, að það er
ógjörningur að æfa inn i þau,”
sagði Guðmundur Pálsson hjá
Leikfélagi Reykjavíkur, þegar
við ræddum við hann I morgun
vegna forfalla Gisla Halldórs-
sonar leikara.
Gisli var fluttur á sjúkrahús á
laugardaginn, og við rannsókn
kom I ljós, að það voru nýrna-
steinar, sem ollu veikindum
hans.
GIsli var fluttur á sjúkrahús á
laugardaginn
GIsli hefur gengizt undir
aðgerð, og sagði Guðmundur að
vonazt væri til að þetta lagaðist
i vikunni, þannig að sýningar
gætu orðið á föstudag og laugar-
dag.
Tvær sýningar hafa fallið
niður vegna þessa. A laugardag
átti að sýna Dauðadansinn og i
gær átti að sýna Fló á skinni.
-EA.
Bridgekeppninm í London lokið
Bandaríkjamennirnir sigruðu
— Símon og Stefón í 11. sœti
Frá Stefáni
Guðjohnsen, London i
morgun.
Ungu bandarlsku atvinnu-
spilararnir, Alan Sontag og
Peter Weichsel, sigruðu á
bridgemótinu mikia, sem
Sunday Times gekkst fyrir — og
er það I annað skipti, sem þeir
sigra I mótinu. tslenzku
k e p p e n d u r n i r . Slmon
Símonarson og Stefán Guðjohn-
sen, urðu i 11. sæti með 165 stig.
112. umferðinni spiluðu Simon
og Stefán við Bandarikja-
mennina og töpuðu 7-13 (12-20
impstig). 1 13. umferð unnu
þéir Teixeira og Debonnaire,
Portúgal, með 13-7 (20-4). í 14.
umferðinni töpuðu þeir fyrir
Flint og Rose með 2-18 (7-32) og
töpuðu fyrir Reese-Dixon i 15.
umferð með 7-13 (15-21). 1 16.
umferð unnu þeir Simon og
Stefán Sviana Nilsland og
Anderson með 17-3 (24-4) og i 17.
og siðustu umferðinni unnu þeir
Evrópumeistarana frönsku,
Svarc og Boulanger með 12-8
(23-18).
Lokastaðan i mótinu var
þannig:
1. Sontag-Weichsel, USA, 204
• 2. Möller-Werdelin, Danm. 191
3. Derry-McNeil, Irland, 187
4. Coyle-Silverstone, Skotl. 185
5. Ortiz-Bernasconi, Sviss, 181
6. Thompson-Reardon,
Engl. 179
7. Teixeira-Debonnaire, P. 174
8. Shapiro-Delmouly, E/FR 173
9. Flint-Rose, England, 171
10. Svarc-Boulanger, Frak’kl. 167
11. Simon-Stefán, Islandi, 165
12. Priday-Rodrigue, Engl. 164
13. de Palco-Burgay, ítaliu, 163
14. Chagas-Assumpaco,
Bras. 161
15. Stampf-Swartz, ísrael, 155
16. Amor-Slavenburg, Mar. 152
17. Reese-Dixon, Engl. 147
18. Nilsland-Anderson, Sviþ. 141
Þannig var skeyti Stefáns i
morgun. Fararstjóri þeirra,
Þórarinn Sigþórsson, er kominn
heim og sagði, að þeir Flint og
Rose hefðu heldur betur haft
heppnina með sér gegn Simoni
og Stefáni. 1 tveimur siðustu
spilunum gegn þeim fóru þeir i
tvær slemmur, sem ekkert
annað par i keppninni hreyfði
við. Legan var svo ótrúlega
hagstæð að báðar unnust, og
náðu Englendingar við það
sigri i leiknum. -hsim.