Vísir - 24.01.1975, Blaðsíða 16
VÍSIR
Föstudagur 24. janúar 1975.
5-10
tonna
bjarg
flout
inn yfir
hafnar-
garðinn
t óveörinu fyrir rifri viku
skoiaöist 5-10 tonna bjarg, sem lá
utan viö varnargaröinn I Njarö-
vfkurhöfn, yfir garöinn og iagöist
upp undir ytri hafnargaröinn. Af.
þessum sökum var auglýst, aö
höfnin væri varasöm, og var ekki
vitað, hve mikiö haföi borizt inn
fyrir.
Að sögn hafnarstjórans var
auglýsingin birt af varasemi, þvi
ekki voru aðstæður til að kanna
málin fyrr en að nokkrum dögum
liðnum. Þegar fært var að kafa I
höfnina kom hið rétta i ljós, og
var bjargið fært á sinn stað aftur.
Svo virðist sem bjargið hafi
skolazt yfir varnargarðinn án
þess að koma við hann, þvi hann
er hvergi skemmdur, að sögn
hafnarstjórans. Hins vegar hefði
bátum getað stafað hætta af
bjarginu i höfninni, og þótti þvi
ástæða til að birta viðvörun.
— SH.
CkkT
er nú
spáin
góð
Spað er vondu veðri alls
staðar á landinu, en I morgun
klukkan 9 var ennþá stillt og
bjart veður viðast á Norður-
og Austurlandi.
A Suður- og Vesturlandi er
vaxandi austanátt, og snjó-
koma á vfð og dreif á þvi
svæöi. Vindhraðinn var mest-
ur I Vestmannaeyjum, 10
vindstig.
Frost var aö kalla um allt
land, en farið aö nálgast núllið
þar sem austanáttarinnar var
farið að gæta. A Reykjanes-
vita var hitinn nákvæmlega 0
stig. Mest frost á landinu var
11 stig á Sauðárkróki og 13 stig
á Egilsstöðum.
Vonda veðrið stafar af lægð,
sem er að ná'igast landið, og
töldu veðurfræðingar bezt að
spá sem minnstu um hegðun
hennar, umfram það, að hún
kemur til með að valda vondu
veðri.
— SH.
SKYLDUSPARNAÐUR OG
INNFLUTNINGSGJOLD
sagði við-
KOMA TIL GREINA íS"-
Skyldusparnaður og
innf lutningsgjöld á sumar
vörutegundir koma til
greina sem ráðstafanir í
ef nahagsmálum. Svo
sagði ólaf ur Jóhannesson
dóms- og viðskiparáð-
herra á fundi Fram-
sóknarfélags Reykja-
víkur i gærkvöldi.
Ölafur sagði, að þær aðgerðir,
sem núverandi stjórn hefur
gripið til, hafi haldið atvinnu-
vegunum gangandi. Þær voru
þó ekki fullnægjandi og að sin-
um dómi þyrfti að gera frekari
aðgerðir á næstunni. Erfitt væri
að taka ákvörðun um þær,
meðan allt væri á huldu um
fiskverð og kjarasamninga.
Ólafur nefndi nauðsyn á sam-
ræmdum aðgerðum i peninga-
og lánamálum. Draga þyrfti úr
einkaneyzlunni, og ef til vill yrði
ekki hjá þvi komizt að draga úr
framkvæmdum.
Hann taldi að betur horfði nú,
ef tillögur vinstri stjórnarinnar i
fyrravor hefðu verið
samþykktar þá. Þar var meðal
annars gert ráð fyrir skyldu-
sparnaði manna með tekjur yfir
ákveðnu lágmarki.
Viðskiptahallinn I fyrra varð
15.3 milljarðar, sem voru 11,5
prósent af þjóðarfram-
leiðslunni, en árið áður var
hallinn 2,6 milljarðar, sem voru
2,8 prósent af framleiðslunni.
Gjaldeyris,,sjóðurinn” svarar
nú aðeins til 2-3 vikna
innflutnings. 1 honum eru tæp-
lega tveir milljarðar, sem er að-
eins fimmti hluti þess, sem var
fyrir ári, reiknað á sama gengi.
„Gjaldeyrisforðinn er þvi i
raun þorrinn,” sagði
ráðherrann.
Viðskiptakjör versnuðu I
fyrra um 9 prósent. Urðu miklar
hækkanir á innfluttum vörum,
en verð féll á ýmsum fiskafurð-
um, sem við flytjum út.
-HH.
Ffkniefnadómur geröi marijúanamagniö upptækt og mun væntan-
lega eyöileggja þaö allt, aö undanteknu smá sýnishorni, sem geymt
veröur. Ljósm. BG.
Fluttu inn
387 grömm
af marijuana
— fengu 35—40 þúsund króna sektir
Fjórir piltar voru
dæmdir i 35-40 þúsund
króna sektir hjá fíkni-
efnadómstólnum ný-
lega. Játuðu þeir á sig,
að hafa skotið saman fé
til innkaupa á 387
grömmum af mjög
sterku marijuana.
Sendingin kom til landsins frá
Bandarikjunum I nóvember og
voru piltarnir handteknir, eftir
að fylgzt hafði verið með þeim
veita sendingunni móttöku og
prófa innihald hennar.
Vinkona piltanna, stödd I
Bandarikjunum, sá um inn-
kaupin fyrir þá og sendi hún
pakkann I pósti til íslands.eins
og skýrt var frá i Visi á slnum
tima.
Þáttur stúlkunnar er nú I nán-
ari athugun.
„Þessi dómur er byggður á
þeirri forsendu, að piltarnir
höfðu skotið saman i þetta
marijuana magn fyrir sjálfa
sig, en ekki ætlað það til sölu,”
sagði Asgeir Friðjónsson hjá
fikniefnadómi.
Aðeins einn piltanna hafði
orðið uppvis að svipuðu máli áð-
ur. Auk sektanna var hið mikla
magn af marijuana gert upp-
tækt. Asgeir var spurður að þvi,
hvað gera ætti við þetta magn.
„Fyrr eða siðar verður það nú
eyðilagt. Ef um einhverjar aðr-
ar ráðstafanir á þvi verður aö
ræða, er allt slikt bókfært hjá
okkur. Sennilega verður til
dæmis örlitið brot af þvi geymt
sem sýnishorn,” sagði Asgeir
Friðjónsson.
—JB
Mikill snjór í
Vestmannaeyjum
— götur ófœrar og skólum aflýst
„Hér er snjór og bylur og ófærð,
óþverraveður og ekkert hægt að
komast um,” var okkur sagt I
Vestmannaeyjum I morgun.
„Verið er að moka göturnar, en
kennslu hefur verið aflýst.”
t Vestmannaeyjum var hvass-
ast á landinu I morgun, og skóf
mikið. Agætis veður var þar I
gær, en hvessti og fór að snjóa um
miðnættið.
Þykir það heldur tiðindum sæta,
þegar mikill snjór er I Vest-
mannaeyjum, þvi þar er alla
jafna mjög snjólétt.
— SH.
Air Viking i
ferðum
Bankok
Stór svissnesk feröaskrifstofa,
sem beitt hefur sér fyrir feröum
til fjarlægra heimsálfa, hefur
gert samning viö flugfélagiö Air
Viking um tvær feröir milli
Zurich og Bankok, sem er 12 tima
fiug meö millilendingu i Karachi I
Pakistan.
Fyrri ferðin verður farin 12.
febrúar og komið aftur þann 18.
Að sögn Guðna Þórðarsonar, for-
stjóra Air Viking, er sennilegt, að
framhald verði á þessum flutn-
ingum. Alislenzkar áhafnir, flug-
menn og flugfreyjur.verða I þess-
um ferðum.
tíl
önnur þota Air Viking er nú i
ferðum fyrir Sunnu til Kanaríeyja
og Austurrikis, en hin vélin var i
flutningum frá Þýzkalandi til
Kanarieyja I desember og fram i
janúar.
Sú vél er nú i skoðun hér heima,
en heldur til Sviss fyrir ferða-
skrifstofuna þar að skoðun lok-
inni. Að sögn Air Viking eru ýmis
verkefni framundan hjá Air Vik-
ing og stendur til að ráða fleiri Is-
lenzka flugmenn á þotur félags-
ins.
—JB
Festist í fangalínu
og fótbrotnaði
Skipverji á Alsey frá Vest-
mannaeyjum fótbrotnaöi I gær, er
hann festist I fangalinu bátsins.
Aisey var aö koma aö landi, er
þetta geröist, og var veður þá
nokkuð tekið að versna.
Maðurinn var fiuttur á sjúkra-
hús, þar sem gert var að meiösl-
um hans.
— SH.
„Hrœddastur við
„hitabylgju""
— sagði bœjarstjórinn ó Akureyri
„Þaö sem við óttumst mest
er „hitabylgja” eins og stund-
um verður hérna á veturna.
Þá kæmi flóð, sem gæti vaidið
mjög miklu tjóni,” sagöi
Bjarni Einarsson bæjarstjóri
á Akureyri i morgun.
„Viö ökum hér eftir giíjum
og gljúfrum, sem snjórinn
myndar. Helzt þurfa allar göt-
ur að vera einstefnuaksturs-
götur, þvi að ekki er hægt að
mæta bíl.”
„Þetta getur verið fallegt, i
hófi.”
— HH.