Vísir - 18.02.1975, Blaðsíða 2

Vísir - 18.02.1975, Blaðsíða 2
2 Vísir. Þriðjudagur 18. febrúar 1975. Tísnsm: Dregur þú úr vín- og tóbaksneyzlu við hœkkunina? Þór Erlendsson, verkainaður: — Ég held ég geti það tæpast. Stefán Kristmannss., rannsókn- armaður: — Ég reyki nú ekki og ekki er hægt að hætta að drekka. Ég drekk nú ekki mikið, en kannski má draga eitthvað úr þvi. Ég veit það svei mér ekki, hvað vínið þyrfti að hækka mikið, til að maður segði alveg stopp. Þorbjörn Stefánsson, íæknanemi: — Ég smakka nú ekki mikið, en reyki, og ég á eftir að ákveða hvort ég hætti þvi. Ætli það endi ekki með þvi samt. Haraldur Einarsson: — eftir að reyna á það. Það á Valgeir Benediktsson: — Ekkert frekar. A meðan vikukaupið hrekkur fyrir einni flösku er allt i lagi. En þegar flöskuverðið er komið mikið yfir 8000 krónur, má fara aö hugsa sig um. Ilrefna Þorvaldsdóttir, húsmóð ir: — Ég hugsa aö ég drekki bara i hófi, eins og áður. Ég held ég minnki varla við mig. LESENDUR HAFA ORÐIÐ Nýja kerfí SVK er ekki endilega hið eina rétta!" Karl Árnason, forstöðumaður Strœtisvagna Kópavogs, svarar spurningum frá lesanda Jón H. Gunnarsson sendir eftirfarandi spurningar, sem öllum er beint til Strætis- vagna Kópavogs. Fara spurningarnar og svör- in hér á eftir, en það var Karl Árnason, for- stöðumaður SVK, sem varð fyrir svörum: — Er leiðakerfið og fyrir- komulag það, sem nú hefur ver- ið tekið upp hjá Strætisvögnum Kópavogs, ætlað til frambúðar eða er um tilraun að ræða? — Við erum alltaf opnir fyrir hugmyndum að breytingum, sem bætt geta leiðakerfið. Um þessar mundir er starfandi nefnd, sem vinnur að þvi að grandskoða kerfið, og á sú nefnd að skila áliti sem fyrst. Hefur m.a. verið unnið að könnunum á farþegafjölda og öðru sliku, sem leitt getur i ljós kosti og galla nýja leiðakerfisins. — Væri ekki hægt að semja við útgerðarmenn Hafnarfjarð- arvagnanna um miðaskipti? — Það gæti reyíizt nokkuð erfitt að koma á skiptimiðakerfi milli SVK og Hafnarfjarðar- vagnanna, þó að slikt hafi veriö mögulegt á milli SVK og SVR. Hafnarfjarðarvagnarnir eru nefnilega einkafyrirtæki, en hin tvö bæjarfyrirtæki. — Verður ekki sett skýli á Borgarholtsbraut, rétt vestan við brúna? — Hvað það snertir má geta þess, að SVK eru loksins búnir að fá leyfi til að flytja biðskýlið við bensinstöðina austur fyrir brúarendann að sunnanverðu. Það er beint þar á móti, sem skiptistöðin er núna. Farþeg- arnir koma þvi til með að ganga yfir brúna í stað þess að fara eins langt og þurft hefur til þessa. — Verður ekki auglýst eftir breytingartillögum? — Við höfum verið að hugleiða það, hvernig haga megi slikri könnun þannig, að þeir, sem ferðast mest með vögnunum, láti álit sitt i ljós, en ekki fyrst og fremst þeir, sem ferðast ekki nema endrum og eins með vögnunum. Hinir siðarnefndu hafa gjarnan viljað vera hávær- astir. Annars er nú ekki nema eitt til eitt og hálft ár siðan við gerðum siðast könnun á meðal farþega vagnanna, og þá jafnvel lika munnlega. Við spurðum mikið og fengum mörg svör og marg- ar ábendingar, sem að gagni hafa komið. Nýja leiðakerfið er að stórum hluta árangur þeirrar skoðanakönnunar. Það er nú aldrei hægt að gera svo öllum liki, en við álitum, að núna þjónum við meginhluta okkar farþega. Nú, og ekki hvað sizt með þvi aðbjóða upp á skiptimiöaskipti við Strætis- vagna Reykjavikur. — Væriekkihægt að aka niður i miðbæ Reykjavlkur einu sinni á hverri klukkustund? — Með einmitt skiptimiða- notkuninni gefst farþegum okkar kostur á að komast frá Hlemmi og niður i bæ oftar en einu sinni á klukkustund — án frekara endurgjalds. Og með skiptimiðunum komast þeir i enn fleiri borgarhluta. — Væri ekki hægt að fjölga ferðum á laugardögum? Það ferðast iiklega ekkert færri með vögnunum þá daga en aðra virka daga vikunnar. — Með þessa spurningu i huga m.a., er einmitt verið að gera áðurnefnda könnun á farþegafjölda vagnanna á hinum ýmsu timum. Að lokinni könnun nefndarinnar fæst vænt- anlega skýrt svar við þessari spurningu og fjölmörgum öðrum, sagði Karl að lokum. Við erum alls ekki komnir til með að segja, að það leiðakerfi, sem nú er i gangi, sé endilega það eina rétta. Samvinna á milli Strætisvagna Kópavogs og Hafnarf jarðar? Nei, aðeins mynd frá því, þegar SVK hljóp undir bagga með Landleiðum, þegar einn vagna þeirra varð lens I ófærð á milli Kópavogs og Reykjavík- ur. Bréfritari spyr hvort hugsanlegt sé, að á milli þessara vagna verði tekin upp skiptimiðaviðskipti. Þvi svarar forstöðumaður SVK neitandi. Og hann bendir á, að fram til þessa hefur fremur verið um að ræða samkeppni á milli þessara tveggja aðila. „Það er ekki hægt aðneita þvi,” sagði forstöðumaðurinn. „Það hefur verið deiluefni út af fyrir sig, að Hafnarfjarðarvagnarnir skuli taka upp farþega innan Kópavogs. Ekki er okkur leyfilegt að keyra fólk á milli biðstöðva innan Reykjavíkur,” sagði hann, en tók fram, aðhann vildi ekki fara aðýfa upp þaðdeiluefni. —ÞJM SPARA SEGJA ÞEIR, SPARA OG HÆKKA OG HÆKKA.... ## Asgeir hringdi: „Spara, spara! tóna yfirvöld — og hamast við að hækka og hækka. Núna siðast hækkuðu þeir áfengi og tóbak svo rosa- lega, að manni verður óglatt. Gengisfellingin er sögð vera þess valdandi, að áfengið hækkar allt upp i 25 prósent. Flestir kinka kolli og þykjast skilja það ósköp vel, að gengis- fellingin hafi gert þessa hækkun óumflýjanlega. Ég get hinsvegar ómögulega skiliö þessa svivirðilegu hækk- un. Það er vitað, að innkaups- verð á einni áfengisflösku er langt innan við þá krónutölu, sem bætist ofan á gamla verðið við þessa nýjustu hækkun. Maöur hefur heyrt, að vodka- flaska kosti i innkaupum til ATVR eitthvað i kringum tvö hundruð krónur. Hvernig getur hún þvi hækkað um næstum 400 krónur, þegar það verður 25 prósent hækkun? Ég fæ ekki dæmið til að ganga upp. Það sama er að segja um hina miklu hækkun á tóbaki. Hér finnst mér illa farið að. Það eru ekki nema rétt rúmir tveir mánuðir og hálfur siðan siðustu hækkanir urðu á þessum varningi. A aðeins tveim árum hefur pólskt vodka t.d. hækkað úr kr. 1100 ikr. 2350 og annað vin sambærilega. Annað hefur svo sem hækkað lika, en hvers vegna er alltaf ráðizt á þessa vörutegund öðrum fremur?” Ósáttur við hinar miklu verð- hœkkanir á áfengi og tébaki i^ir voru byrjaftir «6 vfnKtVTi ^ Dýrt ai vero ekki roglusamur: VISKIFLASKAN í ....*>00 KRONUR TSj-íSd £S3S ssa

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.