Vísir


Vísir - 25.02.1975, Qupperneq 3

Vísir - 25.02.1975, Qupperneq 3
Vísir. Þriöjudagur 25. febrúar 1975 3 Á lakari stöðu móti Keres „Ég á biðskák á móti Keres og hef líklega lakari stöðu,” sagði Friðrik Óiafsson, stór- meistari i skák, þegar Visir náði tali af honum á miðnætti i gær. Klukkan var þá þrjú að nóttu i Tallin, þar sem mótið fer fram. ,,Ég tefldi fast upp á vinn- ing,” sagði Friðrik. „En mér urðu á mistök, og raunar er staðan óljós eins og sakir standa. Biðskákin verður tefld til enda á miðvikudaginn.” í dag teflir Friðrik við Ung- verjann Lengyel og hefur svart. Hann hefur nú þrjá og hálfan vinning og biðskák, eftir að hann vann Finnann Rantanen á sunnudaginn. „Sú skák var allvel tefid af minni hálfu, held ég,” sagði Friðrik. —SH Enn fjölgar blöðum við hið íslenzka Fleet Street: Alþýðublaðið í Blaðsíðumúla Sfðumúli ætlar svo sannarlega að rfsa undir nafninu Blaðslðu- múli. Gatan fékk það auknefni, þegar Blaðaprent og Visir tóku sér þar bólfestu. Siðan komu Eimreiðin, Vikan, Urval og Hilmir I götuna, og ekki leið á löngu þar til Þjóðviljinn tók fyrstu skóflustunguna að húsi yfir ritstjórn sina. Og nú er Alþýðublaðið flutt i húsið við Siðumúla 11. Er blaðið, sem kom út i morgun, skrifað i þvi húsi. Þá má einnig benda á það, að við Siðumúla er einnig til húsa fyrirtækið Blaðadreifing. Og þar eru einnig þrjár prentsmiðjur til Hún er formaður — ekki hann Jakob Jónsson, leikari i Gisl i Hamrahliðarskólanum, hefur beðið Visi að árétta það, að hann sé ekki formaður Leiklistarfélags Hamrahliðarskólans, heldur Ragnheiður Tryggvadóttir. — SH viðbótar þeim tveim, sem áður er getiö. Eru það Grafik, Leturprent og Rlkisprentsmiðjan Gutenberg. Enn er verið að byggja ný hús og nýjar hæðir við Siöumúla og ekki útilokað, að enn eigi blöðum, timaritum og prentsmiðjum eftir aö fjölga þar. —ÞJM GISTIHÚSIÐ Á UPPBOÐI! Skyldu það verða endalok hins umtalaða gistihúss við Laugaveg 32 að verða selt á nauðungarupp- boði? Húseignin er þinglýst eign Björgvins Hermannssonar og hefur Björgvin haldið þvi fram, að i húsinu ætti hann heimili sitt. Afskipti lögreglunnar af gestakomu i húsið hafa verið i fréttum undanfarnar vikur, en heimsókn lögreglunnar hefur Björgvin talið vera til þess að spilla „heimilisfriðnum”. Á morgun, miðvikudag, á að fara fram annað og siðasta nauð- ungaruppboð á .húseigninni og á uppboðiö að fara fram á eigninni sjálfri kl. 10.30. —ÞJM Sparaði sjónvarpinu 26 þúsund krónur — en vann sjólfur 54 þúsund krónur „Hann bauðst til að slökkva i hjá mér, en ég bauðst til að klippa hann ókeypis út þetta ár”, sagði Valur Magnússon, rakari, sem vann 40 þúsund af Arnþóri Sigurðssyni bruna- verði, i þættinum Ugla sat á kvisti á laugardaginn. Brunavörðurinn hafði staðið sig mjög vel, og unnið áskor- unarréttinn tvivegis með þvi að hafa tiu rétt svör i lokaatrennu spurningakeppninnar, sem er i þessum þáttum. Með þvi að hafa tiu svör rétt ávann hann sér fyrst 20 þúsund krónur, sem hann mátti eiga og fara með, eða skora á einhvern annan, missa allt, ef hann tap- aði, en tvöfalda upphæðina ella. Fyrst fór þetta allt vel og hann tvöfaldaði upphæðina i 40 þús- und krónur. Þá varð Valur við áskorun- inni, vann sjálfur 14 þúsund krónur i keppninni, en sigraði siðan áskorandann, þannig að hann fór á braut með 54 þúsund krónur. Hefði Arnþór sigrað, hefði hann hækkað verðlaun sin i 80 þúsund krónur og átt þess kost að hækka það i 160 þúsund — en i fjárhættuspili getur ævinlega brugðið til beggja vona. „Mér var sagt, þegar ég kom að ná i þessa peninga hjá sjón- varpinu, að það væri dýrt að fá svona menn eins og mig. Ég sagðist ekki vita betur en ég hefði sparað þvi að minnsta kosti 26 þúsund, sem það hefði Sumir rakarar raka aöeins mannahöfuð, en Valur Magnússon rakar orðið að borga, hefði Arnþór a& sér fé. Ljósm. Bj.Bj. haldið áfram að vinna, þvi hann hefði þá átt áttatiu þúsund. Ég er ekki i neinni hættu með mina peninga, þvi ég vann mér ekki áskorunarrétt. Og þegar maður litur á verðlag á öllum hlutum núna, er nóg við 54 þús- und að gera”. —SH HUNDRAÐ MEÐ ZETUNNI Eftirfarandi áskorun var af- hent menntamálaráöherra s.l. fimmtudag 20. þ.m.: Við undirrituö skorum hér með á yður, herra menntamála- ráðherra, að nema úr gildi þá breytingu á islenzkri starfsent- ingu, sem birt var i Stjórnar- tiöindum með „Auglýsingu nr. 132/1974 um islenska stafsetn- ingu”. Höfuðástæður okkar fyrir þessari áskorun eru sem hér segir: 1 fyrsta lagi teljum viö z-staf- setningu þá, sem gilti á timabil- inu 1929-1974, hafa ýmsa ótvi- ræða og mikilvæga kosti um- fram hina nýju stafsetningu, þar sem er meiri skýrleiki og gleggri visbending um uppruna, sem i mörgum tilvikum léttir skilning og eykur málþekkingu. Sérstaklega viljum við benda á ókosti þess, að samkvæmt hin- um nýju reglum falla einatt saman I ritmáli germynd og miðmynd sömu sagnar, svo og germynd einnar sagnar og mið- mynd annarrar, svo að rita skal t.d. hefur leyst,hvort sem er af leysa eða leysast, hefur ræst, hvortsemeraf ræsaeða rætast, hefur þeyst, hvort sem er að þeysa eða þeytast. Getur þessi ritháttur valdið misskilningi, ekki sizt I stuttu máli, sem þarf að vera hnitmiðað, svo sem I fyrirsögnum blaða, auglýsing- um og sjónvarpstextum. Enn fremur þykir okkur eftirsjá að þvi að hætta að rita z i stofni i orðum eins og gæzla, tizka, verzlun vegna þekkingar á orð- sifjum, sem þeirri stafsetningu fylgir. 1 öðru lagi teljum við hinar nýju reglur um stóran staf og litinn stórum óhentugri og flóknari en fyrri reglur, t.d. að rita skal oddaverjarmeö litlum staf, en Sturlungarmeö stórum, hólsfjallamaður með litlum staf, en Hólsfjallahangikjötmeö stórum, bandarikjamaður með litlum staf, en Bandarikjafor- seti með stórum. í þriðja lagi teljum viö, aö valfrelsium ritun margra orða, sem hafa löngum vérið rituð á einn veg, sé til þess eins falliö að valda ruglingi, sem m.a. getur orðið mjög bagalegur i stafrófs- röðun, t.d. að rita skuli hvort heldur er (ár) niöur eða (ár) nyður, tékki eða tjekki o.s.frv. í fjóröa lagi teljum við, aö sú festa I islenzkri stafsetningu, sem tókst aö koma á undan- farna tæpa hálfa öld, sé til ómetanlegs hagræðis á mörgum sviðum, svo sem I bókagerð, stjórnsýslu, safnstörfum og kennslu, en breyting að sama skapi til þess fallin að valda glundroða og tjóni. Má og ekki gleyma þvi, að tveimur kyn- slóðum Islendinga er töm sú stafsetning, sem kennd hefur verið undanfarna áratugi, og eiga margir bágt með að sætta sig við stafsetningu, sem þeir telja óskilmerkilegri og óhentugri. Andrés Björnsson útvarpsstjóri Armann Kr. Einarsson rithöfundur Arnbjörn Kristinsson bókaút-' gefandi Arngrimur Isberg kennari Arni Þórðarson fv. skólastjóri Asgeir Magnússon fram- kvæmdastjóri Axel Kristjónsson kennari Baldvin Þ. Kristjánsson félags- málafulltrúi Baldvin Tryggvason fram- kvæmdastjóri Bjarni Sigbjörnsson mennta- skólakennari Bjarni Vilhjálmsson þjóðskjala- vörður Björn Jónsson, forseti Alþýðu- sambands Islands Björn Teitsson sagnfræöingur Egill J. Stardal verzlunarskóla- kennari Eiður Guðnason fréttamaður Einar Sigurösson háskólabóka- vörður 'Eirikur Hreinn Finnbogason borgarbókavöröur Elin Pálmadóttir blaðamaður Finnbogi Guömundsson lands- bóka.vörður Finnur Guðmundsson fugla- fræðingur Gaukur Jörundsson prófessor Georg Sigurðsson cand. mag. Gestur Guöfinnsson blaða- maður Gestur Magnússon cand. mag. Gisli Blöndai hagsýslustjóri Guðlaug Guðsteinsdóttir kenn- ari Guðmundur G. Hagalin rit- höfundur Guðmundur E. Sigvaldason jarðfræðingur Guðni Guðmundsson rektor Guðrún P. Helgadóttir skóla- stjóri Gunnar Guðröðarson skóla- stjóri Gunnar Gunnarsson rit- höfundur Gunnar Stefánsson dagskrár- stjóri Halldór Kristjánsson frá Kirkjubóli Halldór Pálsson búnaðarmála- stjóri Hannes Pétursson skáld Haraldur Ólafsson lektor Haraldur Sigurðsson bókavörð- ur Heimir Þorleifsson mennta- skólakennari Helga S.v Einarsdóttir kennari Helgi Hálfdanarson rit- höfundur. Helgi Skúli Kjartansson stud. mag. Helgi Þorláksson skólastjóri Hjalti Jónasson skólastjóri Indriði G. Þorsteinsson rit- höfundur Ivar Björnsson verzlunarskóla- kennari Jóhannes Halidórsson cand. mag. u Jóhannes Nordal seðlabanka- stjór Jón Dan rithöfundur Jón Gislason skólastjóri Jón Rafn Guðmundsson fram- kvæmdastjóri Jón S. Guðmundsson mennta- skólakennari Jón Guðnason lektor Jón B. Hannibalsson skóla- meistari Jón Helgason ritstjóri Jón Aðalsteinn Jónsson orða- bókarritstjóri Jón Sigurösson B.A. Jón Sigurðsson, forstöðumaður Þjóðhagsstofnunar "Jón Þóararinsson dagskrár- stjóri Jónas Kristjánsson, forstöðu- maður Arnastofnunar Jónas Kristjánsson ritstjóri Kjartan Jóhannsson verk- fræðingur Lúövik Kristjánsson rithöfund- ur Lýður Björnsson verzlunar- skólakennari Magnús Bjarnfreðsson fulltrúi Magnús Finnbogason mag. art. Magnús Guömundsson mennta- skólakennari Magnús Thorlacius hæsta- réttarlögmaður Matthias Johannessen ritstjóri Ölafur Haukur Arnason áfengisvarnaráðunautur Ölafur Björnsson prófessor Ólafur Hansson prófessor Ólafur Oddsson menntaskóla- kennari ólafur M. ólafsson mennta- skólakennari Ólafur Pálmason bókavörður Ólafur Jóhann Sigurðsson rit- höfundur Oliver Steinn Jóhannesson bókaútgefandi Páll Lindal borgarlögmaöur Pétur Sæmundsen bankastjóri Sigfús Daðason ritstjóri Sigurbjörn Einarsson biskup Sigurður Lindal prófessor Sigurður Skúlason marg. art. Sigurður Þórarinsson jarð- fræðingur Simon Jóh. Ágústsson prófessor Stefán Sörensson háskólaritari Steinar Þorfinnsson kennari Sturla Friðriksson erfða- fræðingur Styrmir Gunnarsson ritstjóri Tómas Guðmundsson skáld Vigdis Finnbogadóttir leikhús- stjóri Þórður Jörundsson yfirkennari Þórhallur Tryggvason skrif- stofustjóri Þórhallur Vilmundarson, for- stööumaður örnefnastofnunar Þórir Stephensen dómkirkju- prestur Þorleifur Einarsson jarð- fræðingur Þorsteinn frá Hamri skáld Þorsteinn Gylfason lektor Þorsteinn Valdimarsson skáld Þráinn Guðmundsson yfir- kennari.

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.