Tíminn - 06.07.1966, Blaðsíða 3

Tíminn - 06.07.1966, Blaðsíða 3
MIÐVIKUDAGUR 6. júlí 1966 TÍMINN í SPEGLITÍMANS i4..AWW'-A.. .'X /«í- ./. W .. ií&iáSÍÍSw Stúlkan hér á myndinni heit ir Gunilla, 22 ára og er frá Gautahorg. Því miður vitum við ekki eftirnafnið, en hún er nú komin til Lundúna til þess að verða ein af hinum frægu James Bond stúlkum. Á hún að leika í næstu 007 kvik myndinni, sem heitir, Maður lifir aðeinu sinni. Og þetta hlutverk getur hún þakk að blaðaljósmyndara, því að í apríl síðastliðnum birtist af henni mynd í Kvallposten og eftir það stóðu henni aldar dyr opnar. Hún hefur nú komið, fram í ítalska sjónvarpinu og leikið í franskri kvikmynd og nú í haust á hún að leika í hryllingsmynd, sem Arne Matt son leikstjóri mun stjórna. Og þar með hefst ferill Gunillu í sænskum kvikmyndum. Söngfélagarnir The Rolling Stones vildu taka á leigu Rolls Royce, þegar þeir voru í heim sókn í París, en fengu neitun. The Beatles höfðu einkarétt á slíkum yfirstéttarmunaði, og The Rolling Stones urðu a? láta sér nægja að aka um í Citroen DS 19. Englendingurinn John Mill- er mætti frú Nínu Krústjoff af tilviljun á flugvelli í Moskva og spurði um mann hennar, sem er sagður hafa legið tvisv ar á spítala frá því hann fór frá völdum 1964. Hann er orð inn heilbrigður aftur sagði frú in og er hamingjusamur með líf sitt. Lyndon B. Johnson hefur fengið það ráð hjá líflækni sín um, að forðast allt át milli mála. Forsetinn gat ©kki al- mennilega sætt sig við það og eina nóttina læddist hann inn í eldhús í Hvita húsinu og fékk sér smámatarbita úr ísskápn- um. En Lady Bird sefur mjög laust og heyrir vel og hún heyrði, þegar silfurskeiðin glamraði við diskinn og tók hann heldur betur í karphús ið. Um morguninn kaillaði for setinn á varablaðafulltrúa sinn Robert Fleming, og bað hann um að sjá svo til, að hann fengi tréskeið. Lady Bird Johnson, forseta- frú Bandaríkjanna lenti í hálfgerðum vandræðum fyrir skemmstu, þegar hún var í New York ásamt dóttur sinni Lyndu. Fyrst fékk hún fimmt- án dollara sekt fyrir að leggja bifreið sinni rangt og sama kvöldið komu tveir lögreglu menn í samkvæmi það, sem þær mæðgur héldu og skýrðu frá því, að nágrannarnir kvört uðu yfir hávaða. Forsetafrúin yfirgaf staðinn þegar í stað, en Lynda var þarna áfram og hjálpaði til að loka gluggum, og draga fyrir gardínur til þess að reyna að draga úr þeim há vaða, sem hundrað gestir samkvæmisins ollu. * Peter 0‘Toole sagði eitt sinn í viðtali sem birtist í frönsku dagblaði: Dublin er hættuleg- asta borg, sem ég þekki. Þar er ein gata, sem ekkert er við annað én barir, og eitt sinn tók það mig fjóra sólarhringa að fara 500 metra . . . Dublin . er fæðingarbær Peters, ■ * Fyrir skömimu síðan sögðu The Rolling Stones í út- varpsviðtali, þegar minnzt var á Framk Sinatra: — Frank Sin- atra? Hver er það? Hann hiýt ur að vera dáinn fyrir mörgum árum síðan. Síðan hafa The Rolling Stones ekki minnzt á Frank einu orði, því að í vik unni eítir að viðtalið birtist, náði platan Strangers on the night, fyrsta sæti á vin- 1 ■ . * Soraya fyrrverandi keisara- drottning í Iran, situr nú í Miinehen og bíður eftir síma, hringingu frá Hollywood. Aug- lýsingafyrirtæki nokkurt, sem hefur m. a. Audrey Hepurji og Doris Day hefur sent banda rískum blöðum fjölda greina um Soraya, en hingað til hef ur það ebki borið tilætlaðan árangur, sem sé kvikmyndatil- boð. ★ sældalistanum í Bretlandi og söngvarinn var enginn annar, en Frankie Boy. Þéir, sem áð ur voru í fyrsta sæti voru ein- mitt Rolling Stones. Hljómsveitarstjórinn Xavier músík og úr kvikmyndum með rugat og samkvæmt hans eig Cugat er nokkuð tekinn að Ester Wiiliams. Hann hefur in upplýsingum er það Charo eldast. Það muna sjálfsagt löngum haldið sig við það, að Baenza, sem verður næsta eig margir eftir hoonum sem sér giftast söngkonum. Síðast var inkona hans. Hér sjáum við fræðing í suðuramerískri dans það Aube Lane, sem var frú þau Xavier og Cugat. Á VÍÐAVANGI Reykjavíkurflug- völlur í dag eru 20 ár liðin síðan Bretar afhentu íslendingum Reykjavíkurflugvöll til afnota. Flugvöllurinn var gerður á stríðsárununi og miðaður við þarfir styrjaldarrekstwrsins fyrst og fremst. Reykjavíkur- flugvöllur hcfur . á þessum tuttugu árum verið aðalflug- miðstöð Iandsmanna og er reyndar enn, þar sem hann er eini millilandaflugvöllurinn, sem íslendingar starfrækja eingöngu sjálfir. Heildartala lendinga og flugtaka er hátt á aðra milljón orðin og 1.7 milljónir farþega hafa farið um völlinn og á síðasta ári voru farþegar samtals um 150 þúsund, en voru 175 þús 1963 áður en Loftleiðir fluttu til Keflavíkurflugvallar. Af þessu sést, hve mikilvægur Reykja víkurflugvöllur hefur verið í samgöngumálum landsmanna. Nú er rætt mjög um það, að leggja Reykjavíkurflugvöll nið ur og gera nýjan flugvöll á ’Álftanesi. Nýr flugvöllur mundi kosta mikið fé og byggð in í Reykjavík og nágrenni færist ört út. Flugvöllur á Álftanesi yrði fljótlega ekki síður í miðri byggð en Reykja víkurflugvöllur er nú. Ef stór ar þotur og hávaðamiklar verða framtíðarfarartæki fs- lendinga í millilandaflugi verður Álftanesflugvöllur ekki síður óheppilegur en Reykja- víkurflugvöllur. Flest virðist benda til þess, að millilanda flugið flytjist allt til Kefla víkurflugvallar, en Reykjavík urflugvöllur verði áfram um langa framtíð höfuðmiðstöð inn anlandsflugsins. Uppskera og hungur f ritstjórnargrein búnaðar- blaðsins Freys segir ritstjórinn m. a.: „Þær fregnir berast utan úr heimi, að hundruð milljónir manna svelti heilu hungri og vannæring valdl ýmsum veil- um í hundruðum milljóna þar að auki. Svona hefur þetta raunar æv- inlega verið, um allar aldír. Við fréttum bara meira en áður um hvað gerist hinumegin á hnettinum, sími og útvarp segja frá hlutum, sem engir aðrir en áhorfcndur vissu um fyrr. Hitt er annað mál, að fjölgun íbúa hcimsins er ör og sjálfsagt svelta fleiri en fyrr, en vafasamt að hlutfallstalan sé hærri. Það var líka einu , sinni, að ekki þurfti mikið að bera út af með árferði á fs- landi svo að sultur berði að dyrum, og hungurdauði heim- sækti fólk hér og þar. Þá var þó miklu færra fólk á fslandi en nú. Norskar sögulegar stað- reyndir herma, að á sautjándu öldinni hafi maður einn i, Kongsberg komið á skrifstofii fylkismannsins og óskað þess að mega lífláta börn sín tvö, fjölskyldan hafi af engu að nærast og enginn var aflögu- fær, sem hann þekkti, fólk var vannært og vistalaust það sem hann þekkti til, enda hrundi það niður úr hungri sum ár í Noregi um þær mundir. Tæknibyltingin Svona hefur þetta verið víða. Framhald á bls. 15.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.