Tíminn - 16.07.1966, Blaðsíða 16

Tíminn - 16.07.1966, Blaðsíða 16
/ Frá umræðum um reikninga borgarinnar 1965: BORGARSTJÓRINN / FELU- LEIK MEÐ 39 MILUÓNIR ;ða um reikni TREYSTUM VERNDAR- MÆTTIJÓNS BISKUPS sagði Einar G. E. Sæmundsen' formaður Lands- sambands hestamanna í setningarræðu. KJ-Hólum í Hjaltadal. föstud. í dag kl. 2 var fimmta lands mót Landssambands hesta mannafélaganna sett hér á Hól um, Einari G. E. Sæmundsen, formanni samtakanna. Fjöldi fólks var þá komið hingað á staðinn, og hefur verið stöð ugt að bætast við í dag. Veður hefur verið mjög ákjósanlegt stillt og hlýtt, en sólarlaust að mestu. í setningarræðu sinni, mæltist Eúiari G.E.Sæmund sen m.a. á þessa leið: „Þegar Landssamband hestamanna félaga hóf starf sitt fyrir 16 árum, mátti það naumast tæp ara standa. að hestaíþróttir og hestamannska, sem verið höfðu sérstæður þáttur í þjóð lífinu, yrðu ekki alger hornreka og hyrfu með öllu . Fyrir öt ula baráttu og þrotlaust starf forgöngumanna hestamanna félaganna var í undanhaldi og deyfð snúið upp í glæsilega sókn og sigra. Fjöldi nýrra hestamannafélaga hefur verið stofnaður á liðnum árum, og eru þau nú orðin 32 talsins, með um 2500 félaga. Samstarf Búnaðarfélags fslands og LH um sýningar og dóma á kynbótahrossum, á fjórðungs og landsmótum, hefur eflt hrossakynbótastarfið. Störf hestamannafélaganna heima í héraði eru hin margvísleg ustu, og fer það að sjálfsögðu eftir aðstöðunni á hverjum stað, á hvaða þætti er lögð megináherzla hverju sinni. Bæjarbúar flýja í æ rík ara mæli náðir hestsins til þess að fá holla útivist og hreyfingu, tilbreytni frá kyrr setu og taugaþenslu, á öld hraða og spennu. Með hestin Framh. á bls. 14. Myndin hér að ofan er af Hólastað og nokkrum tjaldanna, sem bar hafa verið reist. T.h. er mynd af ungu hjónunum Árdísi Björns- dóttur og Jóni Friðrikssyni frá Akureyri með hryssurnar Vöku (t. v.) og Yrpu. Þau hjónin eru góðir fulltrúar unga fólksins á lands- mótinu. Neðst er svo mynd yfir landsmótssvæðið. (Tímamyndir KJ) ® Síðari umræða um reikninga eykjavíkurborgar fyrir árið 1965 ór fram í borgarstjóm í fyrra- :völd. Einar Ágústsson, borgarfoll rúi Framsóknarflokksins, ræddi ýmls atriði þeirra og gagnrýndi »æði ýmsan hallarekstur borgar- nnar og útfærslu reikninganna, 'er hér á eftir útdráttur úr ræðu hans. Gjöldin. Við 1. umr. sagði borgarstjóri [að rekstrargjöld borgarinnar hefðu farið 4 rnillj. kr. fram úr fjár- hagsáætlun. Samkvæmt þeim gögn um, sem ég hef undir höndum, fjárhagsáætlun 1965 og reikning ana fyrir sama ár lítur þetta öðru vísi út. Rekstrargjöld skv. fjárhags áætlun voru skv. mínu eintaki 528 539 þús., en samkvæmt reikningi er þessi tala 567.154 auk afskrif- aðra og eftirgefinna skulda að upphæð kr. 578 þúsund eða sam- tals 567.732 þús. Samkvæmt þess- um tölum hafa gjöldin farið 39 578 þús. fram úr áætlun og finnst mér sjálfsagt að borgar- stjórn öll viðurkenni svo augljósa staðreynd. Hitt er svo annað mál. að umframgreiðslurnar geta átt sína skýringar, og ég rengi út af fyrir sig ekki þá reikninga. sem lagðir hafa verið fram um það, hversu mikið af umframgreiðslun- um eigi rætur sínar að rekja t.d. til kauphækkana. f boEgarreikningunum er sú upp hæð talin vera 26.7 milljónir, og lögboðin framlög til elmannatrygg inga Atvinnuleysistryggingasjóðs og Sjúkrasamlags Reykjavíkur reyndist nærri 6 millj. kr. hærri en áætlað hafði verið. Með því að draga þessar fjárhæðir svo og aukafjárveitingar borgarsjóðs að upphæð 1.9 millj. er fengin úr áð- umefnd tala 4 millj. kr. Þetta eru skýringar út af fyrir sig, en aug- ljóst er þó engu að síður að um- framgreiðslur eru þetta, þær urðu 39 millj. kr. umfram fjárhagsáætl- un en ekki 4 millj. eins og borgar stjóri sagðí á síðasta fundi. Eg tel ástæðulaust að leika feluleik út af þessu! Tekjurnar. Tekjur borgarinnar fóru líka fram úr því, sem áætlað hafði ver ið. Samkv. fjárhagsáætlun voru þær þessar: Útsvör 445.6 millj. aðr ar tekjur 240.1 millj. eða samtals 685.7 millj. kr. Reikningurinn sýn ir hins vegar allmiklu hærri tölur. Samkvæmt honum urðu útsvörin 463,2 millj. eða 17.6 millj. umfram áætlun. Aðrar tekjur urðu 259.6 millj. eða 19.5 millj. kr. fram yfir áætlun. Þannig eru umframtekjurn ar í heild 37.1 millj. Fyrir utan útsvörin munar þarna mestu um aðstöðugjöldin. Þau urðu 100.5 millj. og fóru 12.5 millj. fram úr áætlun. Einnig varð hluti borgar- innar af jöfnunarsjóðsgjaldi 3% Framhald á 2. síðu. Barn drukknar á Siólufirði Siglufirði, föstudag. í gærkvöldi féll sex ára dreng ur út af bryggju hér í bæ og drukknaði. Reiðhjó) drengslns fannst á bryggjunni, og var þeg- ar brugðið skjótt við og útveg aður froskmaður. Kafaði hann og fann fljótlega lík drengsins. Svo einkennilega vill til, að á sama stað drukknaði jafngama!) drengur fyrir þrem vikum. 159. tbl. — Laugardagur 16. |úfí 1966 — 50. árg.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.