Vísir - 24.03.1975, Side 2
2
Vísir. Mánudagur 24. marz 1975.
VÍSDtSm:
Hvert er þitt álit á nýja flugvall-
arskattinum?
Helgi Thoroddsen, hleðslustjóri:
— Hann getur verið réttlætanleg-
ur, en i þessu tilfelli er skatturinn
of hár. Við getum ekki hagað okk-
ur eins og apar og verið hátt fyrir
ofan alla i slikri sköttun. Þessi
skattur er 2-3 dollarar annars
staðar, en 17 hér. Það er ekki heil
brú I svona háttalagi.
Reynir Þorleifsson, bakari: —
Mér lizt mjög illa á hann. Mér er
alltaf illa við nýja skatta, sem
reikna má með, að verði til eilifð-
ar.
Guðfinnur G. Ottósson,
verkamaður — Mér lizt vel á
hann. Fólk, sem getur farið til út-
landa, hlýtur að geta bætt þessari
upphæð við, það fer varla að
svelta fyrir hana. Nei, ég tilheyri
ekki þessum hópi.
llallgrimur Th. Björnsson, kenn-
ari: — Mér finnst hann bara
eðlilegur, þegar þjóðin á i vand-
ræðum með fjárhaginn. Það
verður að gripa til allar hugsan-
legra ráða til að rétta fjárhaginn
af.
Haraldur Þórðarson, sótthreins-
unarmaður: — Mér lizt illa á
hann. Nú getur maður ekkert
farið, en það er nú kannski til-
gangurinn.
Jón Guðmundsson, vélstjóri: —
Ég hef bara heyrt ávæning af
þessu, en ekki myndað mér
neinar skoðanir. Ég ferðast ekki
neitt sjálfur, fjárhagurinn leyfir
ekki slikt, hvort sem slikur skatt-
ur er eða ekki.
ÉG VIL HELZT KALLA
MIG LEIRARA
Það hefur lengst af
þótt léleg latina á ís-
landi að nota leir i list
sina, en fáeinum er þó
gefið að gera þetta svo
vel sé. Þeirra á meðal
er Steinunn Marteins-
dóttir á Hulduhólum i
Mosfellssveit, sem yrk-
ir i leir með margvis-
legu móti, svo af verð-
ur ágætasta list.
/ / — segir Steinunn Marteins-
dóttir, sem á
laugardaginn opnar
sýningu á Kjarvalsstöðum
Steinunn stendur i ströngu
þessa dagana að láta listmuni
sina ofan i kassa og pakka með
þeim, svo þeir komist i heilu
lagi til Reykjavikur, en hún ætl-
ar að opna sýningu I Kjarvals-
stöðum á laugardaginn, 29.
Steinunn leggur siðustu hönd á listmun. Þessi skál var að kólna I ofninum, en orðin nógu köld til að taka
hana upp úr.
A sýningu Steinunnar á Kjar-
valsstöðum verða 20 veggmynd-
ir úr leir, sumar að hluta upp-
hleyptar, og sumar unnar með
sérstakri ieirlitatækni.
marz. A sýningunni verða tæp-
lega 440 sýningarnúmer: Leir-
munir hvers konar, þar með tal-
ið 20 veggmyndir úr leir, um 20
teikningar, tvær raderingar og
silkiþrykk „frá þvi I eldgamla
daga”, sagði Steinunn, er VIsis-
menn heimsóttu hana einn góð-
an slagveöursdaginn fyrir
skemmstu.
„Ég vil helzt kalla mig leir-
ara”, sagði Steinunn. „Þegar
krakkarnir leika sér að leir,
segjast þau vera að leira, og
mér finnst það ágætis orð”.
Steinunn er fædd I Reykjavík
árið 1936, dóttir Kristlnar
Bjarnadóttur og Marteins Guð-
LESENDUR HAFA ORÐIÐ
KENNIÐ RÆÐUMENNSKU
í GAGNFRÆÐASKÓLUM!
Sigurður Jónsson hringdi:
„Það er mikið I tizku núna, að
menn fariá námskeið til að tala.
Eru það bæði stjórnmálaflokkar
og einstaklingar, sem standa
fyrir sllkum námskeiðum. Um
það er ekkert nema gott eitt að
segja.
En ég hef oft velt þvi fyrir
mér, hvort ræðumennska sé
ekki nokkuð, sem menn eiga að
læra I skólum. í sumum skólum
eru að visu rekin málfunda-
félög, en þau gera ekki fullkom-
lega sama gagn. Þar eru það
jafnan sömu fjórir eða fimm
kjaftaskarnir, sem standa upp.
Hinir sitja sem fastast. Þeir
ætla að vera kaldir og taka til
máls seinna.
Nú er það svo, að flestir
standa frammi fyrir þvl fyrr
eða sfðar á lifsleiðinni að þurfa
Frimerkjasafnari skrifar:
„Það hafa margir haft við
orð, að islenzku frlmerkin séu
alltaf að verða ljótari og ljótari.
Þvl fór ekki fjarri, en breyttist
allverulega til batnaöar með
tilkomu frlmerkjanna, sem
aö standa upp og flytja ræðu.
Margir eru með eilifan maga-
verk af ótta við að þurfa skyndi-
lega að taka til máls frammi
fyrir áheyrendum. Þessi ótti er
þess valdandi, að t.d. ýmis
stéttarfélög, sem I eru kannski
nokkur hundruð félagsmenn,
hafa aldrei nema litið brot
félagsmanna á fundi. Launa-
málafundir eru jafnvel illa
sóttir. Þeir eru svo fáir, sem
þykjasteiga erindiá slika fundi.
Þeir hafa jú skoðanir, en vita
sem er, að þeir munu aldrei
standa upp og lýsa þeim. „Það
gera hinir. Ég er bara þriðja
flokks félagi. Það er bezt, að
kjaftaskarnir finni lausn á mál-
unum. Ég get svo farið og kosið
meö eða á móti. Þannig get ég
bezt haft áhrif i mínu félagi.”
Er það ekki alltof margir, sem
gefin voru út I tilefni gossins I
Eyjum.
Merkin voru orðin þaö stór, að
maður var eiginlega farinn að
lima umslögin aftan á frlmerk-
in, eins og einhver góður maður
komst að orði.
Hrósyrði min I garö póstyfir-
hugsa svona?
En það er ekki aðeins I stétt-
arfélögum, sem meiri eða minni
kunnátta I ræðumennsku getur
komið að gangi: það má t.d.
nefna til viðbótar umræður á
húsfélagsfundum, borgara-
fundum, framboðsfundum, já,
og siðast en ekki sizt við tæki-
færi eins og stórafmæli,
brúðkaup þar sem einhver I
hópnum þarf kannski
skyndilega að segja nokkur orð.
Það getur verið nógu erfitt að
koma þá upp orði. Það þekkja
þeir, sem reynt hafa.
Þykist ég hér vera búinn aö
sýna fram á nauðsyn þess, að
kennsla I ræðumennsku verði
tekin upp I skólum. Það ætti að
vera á námskrá strax I fyrsta og
öðrum bekk gagnfræðaskól-
anna.”
valda fyrir gosfrlmerkin eru
sennilega fyrstu hrósyrðin, sem
þeirfá i langan tlma. En ég vil
gera meira: Mig langar til að
stinga aö þeim þeirri hugmynd,
aö gefin verði út frímerki til
minningar um hörmungarnar I
Neskaupstað”.
„Opnið
stúkur-
nar
meira"
Lilja Guðmundsdóttir hringdi:
„Ég hef veitt þvi athygli, að
ein og ein I.O.G.T.-stúkan er að
auglýsa opna fundi. Sjálf hef ég
fariö á einn slíkan fund og var á-
nægð með hann.
Nú vil ég koma þeirri ósk á
framfæri við stúkumenn, að
þeir geri enn meira að því að
opna almenningi stúkufundi
slna. Einkum væri óskandi, að
ungtemplarar væru með slíka
fundi og þá með efni á dag-
skránni, sem llklegt væri til að
laöa ungmenni að.
Mér hefur virzt templarar
starfa of mikið út af fyrir sig.
Vera of lokaðir. Þeir ættu að
bjóöa almenningi á fundi sina,
þannig að hver og einn geti
labbað sig inn og kynnt sér starf
stúkunnar án nokkurra skuld-
bindinga um að innlimast mef
það sama.
Ef templarar vilja ná ein-
hverjum árangri I starfi slnu.
verða þeir að vera opnari”.
FRIMERKI TIL MINNINGAR UM
HÖRMUNGARNAR í NESKAUPSTAÐ77
#/