Vísir - 24.03.1975, Qupperneq 3
r
Vísir. Mánudagur 24. marz 1975.
Þessi fallegi vasi er eftirmynd Esjunnar, eins og sjá má, þegar
grannt er aö gáö. Þetta stef er aö finna i fleiri myndum Steinunnar
af ýmsum geröum. — Borðið er svipaö þeim, sem munirnir veröa
sýndir á. Höfundur þess er eiginmaður Steinunnar, Sverrir Har-
aldsson, iistmálari, en boröin hafa þá náttúru, aö hægt er aö taka
þau sundur og raða þeim saman á andartaki. Ljósm. Vísis Bragi.
mundssonar, myndhöggvara.
Hún brautskráöist frá Mennta-
skólanum i Reykjavik 1955,
stundaöi nám i Handiöa- og
myndlistaskólanum 1956—57, og
Hochschule fur bildende Kunste
i Vestur-Berlin 1957—60 með
leirkeragerð sem aðalgrein.
Þegar heim kom, vann hún um
skeið hjá Glit h.f., rak eigið leir-
verkstæði frá 1961 til 1966 og tók
á þeim árum þátt i samsýning-
um innanlands og utan.
1966—67 lagði hún stund á
nám I teiknikennslu, og 1967—73
hélt hún námskeið i leirkera-
smið fyrir almenning. Þann
tima hefur hún ekki sýnt og ekk-
ert látið frá sér fara af verkum.
Þetta er þvi I senn fyrsta einka-
sýning Steinunnar og hið fyrsta,
sem hún hefur látið frá sér fara I
nærri átta ár.
Sem fyrr segir kennir ýmissa
grasa á sýningu Steinunnar.
Auk þess, sem áður er talið, má
nefna veggskildi, blómapotta,
vasa, lampa, platta, kerta-
stjaka og sjálfsagt fleira. Sýn-
ingin verður opin til 13. apríl, og
er mikill hluti verkanna til sölu.
Nokkuð er i einkaeign, og ,,ég er
ekki viss um, að ég vilji selja al-
veg allt”, sagði Steinunn. „Þá
missi ég tengslin við þaö, sem
ég hef verið að gera”.
—SHH
Ölvun á ölvun ofan
— ölvaður tók bfl, en ölvaður eigandinn
tók annan
Ilonum fannst eigandinn of
ölvaöur til þess að keyra bfl sinn,
svo hann ákvaö bara að setjast
sjálfur undir stýriö. Þaö versta
var bara, að hann hafði sjálfur
bragðaö of mikið af áfengum
drykkjum um kviildiö og var þar
að auki réttindalaus.
Það er vist ekki i fyrsta skipti,
sem slikt skeður á laugardags-
kvöldi i Reykjavfk, en ekki er
alltaf, sem eigandinn nær sér i
annan bfl til þess að ná i sinn eig-
inn.
Þeir höfðu verið að skemmta
sér eitthvað saman fyrrnefnt
kvöld, þegar þetta skeði. Lögregl-
an fann þann réttindalausa og
sagði honum til syndanna.
Eigandinn var ekki alveg á þvi
að láta bil sinn frá sér, svo hann
settist upp I bil móður sinnar og
ók niður á lögreglustöð til þess að
fá bil sinn aftur. Lögreglan var þó
ekki lengi að sjá, að maðurinn var
ekki allsgáður, og fékk hann að
sjálfsögðu ekki að setjast undir
stýri strax aftur.
—EA
60 útköll á 6 tímum
— mest ölvað ungt fólk
— mikil ölvun á föstudagskvöld
60útköll á rúmum 6 timum. Þaö
þykir nokkuö mikiö hjá lögregl-
unni. Þetta átti sér staö aðfara-
nótt laugardagsins, eöa rétt um
og eftir miönætti hjá lögreglunni I
Reykjavik.
Aldrei var þó um neitt stórmál
að ræða. Að sögn. lögreglunnar
var aðallega um að ræða slags-
mál, rifrildi eða annað slikt i
samkomuhúsum eða heimahús-
um.
Hér virtist eingöngu um ungt
fólk að ræða. Var sá yngsti 14 ára
gamall, en þeir elztu um tvitugt
og rétt þar yfir. Var Bakkus alls
staðar I spilinu.
Var unga fólkið annaðhvort
héöan úr Reykjavik eða nágrenni.
Engin alvaríeg meiðsli urðu þrátt
fyrir slagsmálin. Nokkrir voru
teknir ölvaðir við akstur og virtist
talsvert um ölvun á föstudags-
kvöldið. Ekki kunni lögreglan
neina skýringu á, hvers vegna svo
mikið var um ölvun þetta kvöld.
Þrátt fyrir annirnar kom ekk-
ert alvarlegt upp. — EA
3
,Sjálfsákvörðunarrétt-
urínn viðurkenndur
— sfofnfundur baráftusamfaka í kvöld
„Viðurkenndur sé sjálfs-
ákvörðunarréttur kvenna varð-
andi fóstureyöingu innan 12
vikna meðgöngu....”
Þannig segir meöal annars i
tilkynningu frá baráttusamtök-
um fyrir sjálfsákvörðunarrétti
konu til löglegrar fóstureyðing-
ar. Stofnfundur þessara sam-
taka verður haldinn á Hótel
Sögu i kvöld.
Markmið samtakanna er að
vinna að þvi, að breytingar, sem
gerðar hafa verið i upphaflegri
gerð frumvarps til laga um ráð-
gjöf og fræðslu varðandi kynlif
og barneignir og um fóstureyð-
ingar og ófrjósemisaðgerðir
verði niður felldar.
Þá leggja samtökin megin-
áherzlu á sjálfsákvörðunarrétt
kvenna. Fjóstureyðingin sé allt-
af neyðarúrræði, og skilyrði sé,
að kona sé frædd um áhættu
samfara slikri aðgerð og að
henni sé gerð grein fyrir þeirri
félagslegu aðstoð, sem þjóðfé-
lagið veitir þungaðri konu og
móður.
Þá er lögð áherzla á, að skólar
á skyldunámsstigi veiti fræðslu
um kynlif, barneignir og notkun
getnaðarvarna.
Fundurinn hefst klukkan 20.30
i Súlnasal.
—EA
Halda 25. róðstefnuna
ó tíu órum ó
þrítugsafmœlinu
t byrjun næsta mánaöar efnir
Samband islenzkra sveitarfélaga
til 25. ráöstefnunnar, sem haldin
er á vegum sambandsins, og eru
þá jafnframt liöin tfu ár, sföan
starfsemi þessi hófst. Um leiö
getur sambandiö haldiö upp á þri-
tugsafmæliö.
Til umræöu á þessari 25. ráö-
stefnu Sambands fslenzkra sveit-
arfélaga veröur efniö Sveitar-
stjórnir og menningarmái. Meöal
annars veröur fjallað um sam-
starf rikis og sveitarfélaga i
menningarmáium og leitazt viö
að svara því, hverjar séu skyldur
sveitarstjórna I menningarmál-
um.
—SHH
Akureyrar-
plast ó
markað
ytra
Plastiðjan Bjarg á Akureyri
hefur íengið pöntun á raflagna-
efni frá fyritæki i Hollandi. For-
ráðamenn verksmiðjunnar hafa
leitað markaða ytra og sent sýn-
ishorn af vörum i þvi skyni. Nú
er eftir að vita hvort ekki verður
áframhald á útflutningi á þessari
vöru Akureyringanna.
Ingólfistrœti 5
Vorsala á skinnfatnaði
Mikill afsláttur
SIMI 2-81-30
n
GRÁFELDUR HF.