Vísir - 24.03.1975, Qupperneq 6
6
Vísir. Mánudagur 24. marz 1975.
vísrn
títgefandi: Reykjaprent hf.
Framkvæmdastjóri: Sveinn R. Eyjólfsson
Ritstjóri: Jónas Kristjánsson
Fréttastjóri: Jón Bírgir Pétursson
Ritstjórnarfulltrúi: Haukur Helgason
Auglýsingastjóri: Skúli G. Jóhannesson'
Auglýsingar: Iiverfisgötu 44. Simar 11660 86611
Afgreiðsla: Hverfisgötu 44. Simi 86611
Ritstjórn: 'Siöumúla 14. Simi 86611. 7 linur
Askriftargjald 600 kr. á mánuði innanlands.
1 lausasölu 35 kr. eintakið. Blaðaprent hf.
Kissinger mistókst
Mistök Kissingers i tilraunum hans til að leiða
deiluaðila i Mið-Austurlöndum nær samningum
eru einhver sorglegasti atburðurinn i heims-
stjórnmálum um langt skeið. Miklar vonir voru
bundnar við, að honum tækist i siðustu lotu
samningatilrauna sinna að mjaka ísraelsmönn-
um og Egyptum að samningaborðinu, og greini-
lega hefur ekki munað miklu, að það tækist. Svo
virðist af ummælum stjórnmálamanna i gær
sem þrjózka beggja hafi á siðustu stundu hindrað
samkomulag. Samkomulagið, sem Kissinger
stefndi að, átti að ganga út á, að ísraelsmenn
drægju her sinn til baka á svæðum á Sinaiskaga
en fengju i staðinn loforð egypzku stjórnarinnar
um, að Egyptar mundu ekki gera árás á ísraels-
menn. Jafnvel i fyrradag voru menn bjartsýnir,
en skjótt skipast veður i lofti.
Nú er striðshættan mikil, og það viðurkenna
deiluaðilar. 1 Gólanhæðum, á landamærum ísra-
els og Sýrlands, hafa báðar þjóðir um skeið
undirbúið heri sina undir styrjöld. Egyptar hafa
einnig haldið áfram stöðugt að þjálfa og vopna
her sinn. í bakgrunni er grunur um, að Israels-
menn muni innan skamms eiga kjarnavopn, ef
þeir eiga þau ekki nú þegar.
Gera má ráð fyrir, að friður haldist, meðan
friðargæzlusveitir Sameinuðu þjóðanna standa
vörð milli herja ísraelsmanna annars vegar og
Sýrlendinga og Egypta hins vegar. En umboði
Sameinuðu þjóðanna lýkur innan skamms, i mai-
lok á Gólanhæðum. Sem stendur eru meiri likur
til, að til bardaga komi að þeim tima liðnum en að
friður haldist.
Kissinger sagði i gær, að þá væri sorgardagur
fyrir Bandarikin og ísrael. Jafnt og þétt hefur
dregið úr yfirburðum ísraelsmanna i hernaði. Að
þvi hlýtur að koma vegna yfirburða Arabarikj-
anna i mannfjölda og vaxandi herstyrks á næst-
unni, að Israelsriki verði sundurkramið undir
hæl Araba, nema það geti ógnað með atómvopn-
um. Það er þvi heimskulegt af ísraelsmönnum að
sýna þá þrjózku, sem þeir sýndu i þessum siðustu
friðarumleitunum. Fyrir þá skiptir öllu, að
Bandarikjamenn snúi ekki við þeim baki.
Verði styrjöld með vorinu, sem mikil hætta er
á, hafa Arabar allt að vinna og engu að tapa. í
reyndinni er ofuraugljóst, að það væri allra hag-
ur, að samið yrði um varanlegan frið og landa-
mærin. Allir ábyrgir Arabar hafa lagt niður hót-
anir um útrýmingu ísraelsrikis. Hins vegar
kynnu herir þeirra að hertaka ísrael i styrjöld.
Þjóðirnar á þessu svæði geta vel búið saman án
haturs. í siðustu samningaumleitunum hefur
komið fram, að ísraelsmenn treysta sér ekki
lengur til að halda dauðahaldi i hernumdu svæð-
in, sem þeir tóku i sex daga striðinu 1967 og októ-
berstriðinu 1973. Þvi ætti að vera unnt að semja
um málin með þeim hætti, að Israelsriki verði
áfram við lýði, en gömlu landamæri ísraels og
Egyptalands og Sýrlands verði að nýju upp tekin.
Þá væri nauðsynlegt að stofna sérstakt riki fyrir
Palestinu-Araba. Að svo komnu þyrftu þessar
þjóðir ekki að elda grátt silfur.
— HH
Sovézki kafbáturinn, sem CIA náöi framhlutanum af, mun hafa veriö af svonefndri G-tegund, eins og
þessi, sem hér sést á sigiingu. — Sprenging varö um borö I kafbátnum og hann sökk um 920 km norövest-
ur af Ilawaii, þar sem hann ligur á 5700 m dýpi.
Dýrt njósnaspil
Stundum talar þögnin
skýrara máli en nokkur orð
fengju lýst. Ford-stjórnin
hefur verið óvenjufámál
um þær uppljóstranir, að
leyniþjónusta Bandaríkj-
anna hafi náð upp af hafs-
botni hluta af sokknum
sovézkum kafbáti, sem
fundizt hafi í Kyrrahafi.
Þessa þögn Washington-
stjórnarinnar, skilja menn svo,
aö hún vilji ekki styggja Rússa og
spilla þeim árangri, sem náöst
hefur i bættri sambúö rikjanna
siöustu árin. Einkanlega ekki
meöan SALT-viöræöurnar standa
ennþá yfir.
Henni er mjög i mun aö ekki
veröi endurtekin sagan frá 1960,
þegar njósnaflugvél af geröinni
U-2 var skotin niöur yfir
Sovétrikjunum. Eisenhover for-
seti neyddist þá til aö játa, aö
hann heföi fyrirskipaö njósna-
flugiö og þar meö var aflýst fundi
leiötoga rikjanna og i mörg ár
sátu þessi riki aldrei á sárshöföi
eftir þaö.
Hvita húsiö og æösta stjórn
hersins hafa svaraö öllum fyrir-
spurnum undanfarna daga meö
þvi einu, aö „ekkert sé um máliö
að segja”.
En meö þessari þögn er Kreml-
herrunum hlift viö aö þurfa að
gefa út yfirlýsingu, um máliö eöa
aö kannast viö þaö núna, að þeir
hafi misst kafbát fyrir sjö árum.
Kafbát, sem sprakk og sökk meö
allri áhöfn.
Stjórn Fords er um þessar
mundir i miöjum samningum við
Sovétstjórnina og framtiöarhorf-
ur milli austurs og vesturs þykja
vera i húfi.
NBC-útvarpsstöðin i Banda-
rikjunum skýröi frá þvi i miðri
siðustu viku, aö Bandarikin heföu
sent út fjóra björgunarleiðangra
til þess að komast yfir sovézk
hergögn, sem farizt höföu á hafi
úti. Sagöi NBC, aö tilraun CIA til
þess að ná upp rússneskum kaf-
bát á Kyrrahafi i fyrrasumar hafi
veriö sú siöasta af svipuðum
tilraunum, sem hófust fyrir fimm
árum.
Fréttir herma, aö megintil-
gangur björgunartilrauna kaf-
bátsflaksins i Kyrrahafi af 5700
metra dýpi heföi veriö sá, að
komast yfir dulmálsvél, sem gæti
gert bandariskum sérfræöingum
kleift að ráö fram úr þúsundum
dulmálsskeyta Rússa, er þeir
komust yfir á árunum frá 1960 til
1970. — Eins mun hafa veriö
ætlunin aö ná upp einni kjarna-
sprengjueldflauginni úr kafbátn-
um. Þetta mun mafa mistekizt i
fyrstu atrennu, en almennt er tal-
ið, aö þetta heföi tekizt, ef reynt
hefði verið öðru sinni.
CIA mun hafa gert allt sem i
þess valdistóö til aö hindra að frá
þessu yrði skýrt i fréttum. Bæði
var, aö tilraunin var kostnaðar-
söm, sem gerir þingmenn — full-
trúa skattgreiöenda — ævinlega
uppvæga, og svo geröi leyni-
þjónustan sér vonir um aö geta
haldiö tilraununum áfram i sum-
ar.
En eftir aö þessu hefur verið
ljóstraö upp er óliklegt að
björgunarskipinu „Glomar
Explorer” verði snúiö aftur á þær
slóöir, sem kafbáturinn liggur, en
það er um 920 km norðvestur af
Hawaii. Menn hafa látið sér detta
i hug, aö yröi slikt reynt, þá
mundu sovézk skip halda á þessar
slóðir, og reyna aö þvælast fyrir
björgunarmönnum. Eöa aö Rúss-
'ar einfaldlega sprengdu upp flak-
ið, til þess aö varöveita leyndar-
mál þess. — En Bandarlkjamenn
geta naumast hætt á aö styggja
Sovétmenn með frekari tilraun-
um, svo aö slikar vangaveltur úr
út i loftið.
Samkomulag, sem CIA náöi við
blöðin um aö þegja yfir fréttinni,
féll um sjálft sig, þegar dálka-
höfundurinn, Jack Anderson, gat
ekki stillt sig um að nota tæki-
færið til aö gagnrýna stjórn
repúblikana. Hann lýsti þvi opin-
berlega aö þessar aögeröir, heföu
reynzt alger mistök, og veriö sóun
á almannafé — Hiö opinbera hef-
ur þagað vandlega yfir þvi, hvað
þessar tilraunir hafa kostaö, en
menn ætla aö það nemi ekki undir
350 milljónum dollara.
Eftir þetta sáu aðrir fréttamiðl-
ar sig ekki skuldbundna til þess
aö þegja lengur, og birtu fréttirn-
ar. — Þaö þykir svo aftur liklegt
til þess aö draga dilk á eftir sér,
að þeir skyldu i upphafi hafa lát-
ið þagga niöur i sér. Eiga vafa-
laust eftir aö veröa miklar
umræður um hlutverk fjölmiðla i
samfélaginu i kjölfar þessara
uppljóstrana.
Viöbrögö þingsins viö fréttun-
um af þessum björgunartilraun-
um hafa verið mjög upp og ofan.
Nokkur gagnrýni hefur heyrzt frá
þingliöum, en hún hefur þá helzt
beinzt að þvi — eins og CIA hafði
reyndar búizt viö — hvort eftir
svo miklu hafi verið að slægjast,
aö það svaraði þessum mikla
kostnaöi.
Gary Hart, öldungadeildar-
þingmaður, sem á sæti I þing-
nefndinni, er sett var til aö rann-
saka störf CIA, lagði þó þann veg
út af fréttunum, að hann teldi
ástæðu til að láta rannsaka sam-
bönd CIA Viö milljónamæringinn
Howard Hughes. Það er nefnilega
eitt fyrirtækja Hughes, sem á
björgunarskipiö „Glomar
Explorer”. CIA tók skipiö á leigu
til þessara tilrauna.
Hart sagði ennfremur, að þess-
ar tilraunir væru i þversögn viö
yfirlýsta afstööu Bandarikjanna.
„Við liöum ekki öörum þjóöum að
garfa i sokknum skipsflökum
okkar. En i þessu tilfelli geröum
við einmitt sjálfir, það, sem okk-
ur þykir vera óviöeigandi af öðr-
um.”
John Stennis, öldungadeildar-
þingmaður og formaður varnar-
'málanefndar þingsins, leit hins
vegar öðruvisi á máliö. „Það var
ekki troöið á rétti eins eða neins,”
sagði hann. —Stennis kvaðst hafa
vitað um þessa tilraun strax með-
an hún var enn á áætlunarstigi og
hafa verið eindregið fylgjandi
henni.
Einn þingmanna, Stuart
Symington, tók i fyrstu svo djúpt i
árinni, að hann heimtaði að Willi-
am Colby, forstjóri CIA, segði af
sér, ef kæmi i ljós, aö CIA réöist i
svo fjárfrek fyrirtæki sem björg-
un kafbátsins, án þess að ráðfæra
sig við fjárveitingarvaldið. —
Hann dró þó ögn i land siðar, þeg-
ar hann viðurkenndi, að greini-
lega hefði nokkrum áhrifamikl-
um þingmönnum verið kunnugt
um, hvað til stóð, og ekki hreyft
andmælum.
Þetta er björgunarskipiö „Glomar Explorer”, sem CIA leigöi af einu
fyrirtækja milljónamæringsins Howard Hughes til þess aöná dulmáls-
vél og kjarnasprengjueldflaug úr sokknum sovézkum kafbáti.