Vísir - 24.03.1975, Page 16
16
Vlsir. Mánudagur 24. marz 1975.
GiÆSUEGT UWM
OEPÐ U/Ð MIM mfí
Skíðabakterían
er afbragös
fermingargjöf
Gefið fermingarbarninu skíðanámskeið i
Kerlingarfjölium i sumar.
skíöanámskeiöin í sumar:
Nr. Frá Rvik Tegund námskeiðs Lágm.gjald
1 18. júní 6 dagar Unglingar 12—16 ára 16.500‘I
2 23. júní 6 dagar Unglingar 12—16 ára 16.500')
3 28. júni 6 dagar Fjölskyldunámskeið 17.500
4 3. júlí 6 dagar Fjölskyldunámskeið 17.500
5 8. júll 7 dagar Almennt námskeið 19.900
6 14. júlí 7 dagar Almennt námskeið 19.900
7 20. júlí 7 dagar Almennt námskeið 19.900
8 26. júll 7 dagar Almennt námskeið 19.900
9 1. ágúst 4 dagar Námskeið. Skiðamót 10.900’)
10 5. ágúst 6 dagar Almennt námskeið 17.500
11 10. ágúst 6 dagar Unglingar 14—18 ára 16.500')
12 15. ágúst 6 dagar Unglingar 14—18 ára 16.500')
13 20. ágúst 6 dagar Almennt námskeið 16.500
14 25. ágúst 6 dagar Almennt námskeið 16.500
*' Fargj. innifalið. !) Lágmarksverð kvöldferð kr. 9200. Sérgj. f. keppendur.
Bókanir og miðasala:
Ath.biðjið um upplýsingabækling.
FERÐASKRIFSTOFA HAFNARSTRÆTI 5
r
Skíðaskólinn
í Kerlingarfjöllum
VÍSIR VÍSAR Á VIÐSKIPTIN
EINS GOTT AÐ BORÐA
- EN HVAÐ ÞÁ?
r iixiimí
i S ÍÐAN j
Umsjón: Edda
Andrésdóttir
Það er oft sem við getum
kennt fæðinu um, þegar við er-
um þreytt, dupplögð og eigum
við einhverja smá likamlega
erfiðleika að etja. Þetta á ekki
sízt við um þá eidri, sem oft eru
mjög viðkvæmir, meðal annars
vegna þess að matarlystin er
minni. En eidra fólk hefur ekki
siður þörf fyrir næringarefni en
áður, og þessi næringarefni
verður þá að útvega I minni
skömmtum af mat.
Maturinn, sem þeir eldri
borða, verður þvi að saman-
standa af næringarrlkum
tegundum. En það eru bara ekki
allir, sem gera sér grein fyrir
þvl, að maturinn hefur enn
mikla þýðingu fyrir heilbrigðið
þó menn séu komnir til ára
sinna.
Upphitaður matur
hefur minna
næringargildi
Maturinn nýtist kannski ekki
eins vel og áður. Margir eiga
orðið i erfiðleikum með að
tyggja og maginn er orðin
viðkvæmur. Þetta leiðir oft til
þess að fólk leiðir hjá sér
næringarrikar matartegundir
og kýs aðrar óæskilegri.
Eldra fólk sem orðið er eitt
hefur ekki löngun til þess að
iega sér mat, sérstaklega ekki
ef það matreiddi fyrir marga
áður fyrr. En komizt það yfir
þetta atriði, þá hættir því oft við
að búa til mat, sem hægt er að
hita upp og getur nægt oftar en
einu sinni. Upphitaður matur er
ekki eins bragðgóður eða
næringarrikur og nýtilbúinn.
Hvaða klipping
hœfir þér?
Nú þegar páskar fara i hönd
og fermingar standa yfir, verð-
ur sjálfsagt nóg að gera á
rakarastofunum. Það þykir ekki
annað viðeigandi en að menn
láti aðeins snurfusa á sér hárið
áður en þeir eru teknir I krist-
inna manna tölu, og margir
vilja líka eitthvað láta snyrta á
sér hárið fyrir stórhátiðar.
Tizkan er fyrir hendi i hár-
greiðslu jafnt og öðru. Liklega
fer þó bezt á þvi að láta hana
ekki ráða of miklu, heldur fá
klippingu sem hæfir viðkomandi
bezt.
En hvernig verður það bezt?
Með þessum myndum getum
við kannski hjálpað einhverj-
um, en annars er sjálfsagt að
spyrja fagmanninn ráða I þessu
sambandi. Það er víst engin
hætta á, öðru, en að hann geti
bent mönnum á heppilega
klippingu.
Rétthyrnt
andlitslag
Þetta er langt andlit, þar sem
breiddin er söm á cnni, kinnum
og kjálkum. Hárið ætti að klippa
fremur stutt, og fyrirferð þess
er bezt að hafa mesta I hliðun-
um. Sltt hár yrði verra við þetta
andlit.
Þrihyrnt andlitslag
Þarna er andlitið breiðast um
ennið. Hárið uppi á kollinum er
haft frekar stutt, en sltt i
hnakkanum og I kringum eyrun
eins og myndin sýnir.
Tigullagað andlit
Þarna er breiddin I kringum
augun og kinnar. Minni fyrir-
ferð er ráðlögð á koliinum og I
hliðunum. Greiðið hárið fram á
ennið og hafið hárið sltt I
hnakkanum.