Tíminn - 22.07.1966, Qupperneq 3

Tíminn - 22.07.1966, Qupperneq 3
FOSTUDAGUR 22. iúlí 1966 TÍMINN í Bandaríkjunum hefur ný- lega verið lokið við töku kvik- myndarinnar „Hver er hræddur við Virginíu Woolf“, þar sem sæmdarhjónín, sem við sjáum hér á myndinni, fara með hlut verk Georges og Mörthu. Það er greinilegt, að Elizabeth Tayl or hefur lagt mikið á sig til að gera hlutverki hinnar digru drykkjukonu góð skil, hún hef ur bætt við sig fjöknörgum aukakílóum, og er um þessar mundir harla ólík þeirri tá- grönnu og fögru konu, er á sínum tíma fór með hlutverk Kleopötru- Sagt er, að þeim hjónum hafi tekizt mjög vel upp í kvikmyndinni. ★ ♦ Það er víst orð að s>önnu, að kvenfólkið í Rússlandi lætur sér ekOd allt fyrir brjósti brenna og tekur að sér störf, sem ekki eru talin við kvenna hæfi hér á Vesturlöndum. Þarna sjáum víð tvær miðaldra frúr gera við niðurfall úti á miðri götu í Moskvu og þær virðast ekki láta sig neinu máli skipta, þótt bílarnir þjóti á- fram til beggja hliða víð þær. Gina Lollobri'gida er í þann veginn að skilja við mann sínn Milko Skofic. Þau hjónin urðu ásátt um, að skilnaður væri bezta lausnin á vandamálum hjónabandsins, og um daginn skildu leiðir þeirra í mes'a bróðerni. Hann tók sér á hendur ferð til Sardiniu, en hún fór í sumarleyfi til Genfar ásamt átta ára gömlum svni þeirra. Nýlátinn er í Kansas City aldraður maður, Homer Mc Williams að nafni. Fyrir nítján árum síðan lenti hann í umferð arslysi, hlaut lítils háttar meiðsli, en var fluttur á sjúkra hús. Er hann var gróinn sára sinna, þverneitaði hann að hverfa burt af sjúkrahúsinu, því að honum hafði aldrei lið ið betur á ævinni. Raunin varð því sú, að síðustu nítján ár ævi sinnar dvaldi hann á sjúkra húsinu, og borgaði sjálfur fyr ir dvöl sína þar, enda var hann mjög loðinn um lófana. Hann lét eftir sig fjárupphæð, sem svarar til hundruða milljóna ísl. króna og það var látið renna til góðgerðastarfsemi og fjarskyldra ættingja. í Bretlandi refur verið koirn ið fyrir hárþurrkum fyrir karl menn í nokkrum sundlaugumr Sagði stafsmaður sundlaug- anna, að konur hefðu lengi haft hárþurrkur í þessum sund laugum, og nú væru karlmenn komnir með álíka sítt hár og kvenfólk ef ekki síðara, svo að það væri sanngjarnt, að þeir fengju hánþurrkur líka. í ensku blaði birtist nýlega viðtal við Rainer fursta af Monaco, eiginmann Grace Kelly. í þessu viðtali er hon- um mjög tíðrætt um börn sín, ★ raroline og Albert. Hann kveðst ekki hafa neinar áhyggjur út af syni sínum. og hann ætli að fela honum ríki sitt, jafnskjc'it og hann vilji. Hins vegar kem- ur fram nokkur uggur varð- andi framtíð Caroline. Furstinn hefur ekki áhuga á mikilli menntun henni til handa og segir að slíkt sé ekki ráðlegt fyrir stúlkur. sem flestar lendi í öruggri höfn hjónabandsins En það er einmitt hjónaband stúlkunnar, sem áhyggjur furst ans snúast um. Hann kveðst vera dauðhræddur um, að þeg ar fram líða stundir. muni ein- hver bítlagæi knýja dyra í Monaco og biðja stúlkunnar, en slíkt geti vitaskuld ekki fall ið í kramið hjá þessari tignu fjölskyldu. Þessar áhyggjur furstans eru áreiðanlega ástæðu lausar að svo stöddu, Caroline er ekki nema níu ára gömul og því ár og dagur þar til hún verður gjafvaxta. Tannlæknir í Nantes í Frakk- landi læsti læknastofu sinni og fór í sumarfrí án þess að vita, að inni í biðstofunni biði mað- ur með voðalega tannpínu. Manngreyið mátti kúldrast þarna klukkutímum saman, því að þetta var uppi á 5. hæð og engin leið að stökkva út um gluggann. Vegfarendur heyrðu að lokum köll hans og eftir dúk og disk komu brunaliðsmenn með langan stiga og björguðu honum úr prísundinni og fóru með hann til annars tannlækn- is. Arthur Schlesinger, ævisögu- ritari Kennedys, hefur nú í sam vinnu við Irwin Shaw rithöfund gert kvikmyndahandrit um for- seta Bandaríkjanna og skuli myndin heita „Hvíta húsið“. Sagt er, að það sé kvikmynda- framleiðandinn John Ford, sem stjórna eigi upptöku myndar- innar, en það mætir talsverðri mótspyrnu, þar sem hann er einangrunarsinni, ákafur stuðn ingsmaður Goldwaters og þyk- ir hafa fremur lítið vit á stjórn málum. ★ < i *n pjir?. iÍÁ vfeÁVANCjí Læknamál dreifbýlis Grein sú, sem ungur læknir, Gísli G. Auðunsson hefur ritað i dagblöðin síðustu daga uni læknamál dréifbýlisins og þann læknaskort, sem þar segir til sín í æ ríkari mæli. er rniög athvgiisverð og ástæða til þess að hvetja alla, ekki sízt alþing ismenn og stjórnarvöld heii- brigðismíla til þess að athuga tillögur hans gaumgæfiícga. Það er mikið fagnaðarefni að ungir læknar skuli hafa rekið þessi vandamá! til svo gagn- eerrar krufningar og barið fram rökstuddar tillögur, og á hvaða raddir á að hlusta í þessum efnum fremur en ungra lækna Læknamiðstöðvar Einkum eru mjög athyglis- verðar tillögurnar um gagn- gera endurskipulagningu lækn ishéraða, heilsugæzlu og lækna starfa, sem fram koma í grein inni, en kjarni þeirra tillagna er að koma upp Iæknamiðstoðv um í stærri læknishéruðum en nú eru, þar sem aðstaða gefst til miklu betri heilbrigð isþjónustu. Um þetta mál segir Gísli G. Auðunsson meðal annars: ,,Fyrstu fjórir liðimir fjalla allir um afleiðingar einangr- unarinnar. Því er meginatriði að ráðast gegn henni, en það verður ekki gert með öðru móti en steypa læknishéraðunum saman f stærri heildir og mynda læknamiðstöðvar. Það yrði allt of langt mál að lýsa hér læknamiðstöðvum í smá atriðum og starfstilhögun í þeim. Þess má þó geta, til að koma í veg fyrir allan mis- skilning, að hugmyndin gerir ráð fyrir því, að lækningastof ur verði opnar í öllum þorpum og bæjum iandsins sem telja 4—500 íbúa eða fleiri, þó ekki verði miðstöð viðkomandi hér aðs staðsétt þar. Mun þá lækn ir ásamt aðstoðarfólki koma frá miðstöðinni einu sinni, tvisvar eða þrisvar í viku eftir því, sem þörf krefur og hafa þar stofu opna ca. 3—4 klst. f senn. Með þessari tilhögun á að vera hægt að anna lang- mestum hluta Iæknisþjónust- unnar í viðkomandi byggðar- lagi. Með öll bráð sjúkdómstil- felli þarf náttúrlega að leita til miðstöðvarinnar, eða læknir kemur þaðan til sjúklingsins. Um miðstöðina sjálfa vil ég aðeins geta þess, að húsnæði liennar, svo og öll tæki og íbúð ir fyrir lækna skulu vera í eign viðkomandi héraðs eða ríkisins. eftir því, sem henta þykir. Þar skuiu starfa minnst 3 læknar og læknishéraðið má helzt ekki telja færri en 3 þús. íbúa. Þá er mjög æskilegt, að vegalengd til þorps með ca. 500 íbúa fari ekki yfir 100 km og vegalengdir til einstakra sveitabæja fari sem minnst yf ir 150 km. Áskorun til ungra lækna » Og Gísli segir ennfremur: ,,Eg vil einkum beina orð- um mínum til ungra starfs- bræðra. Þó margt verði til þess að beina áhuga okkar i átt að sérfræðinámi og spítala- vinnu og mörg rök hnígi að því. að læknisþjónusta fram- Framhald á bls. 15.

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.