Tíminn - 22.07.1966, Síða 12
12
ÍÞRÓTTIR
TÍMINN
Fyrir síðustu helgi komu
til landsins með Snarfaxa
Fokker Friendship flugvél
Flugfélags íslands, flokkur
glímumanna. úr Glímudeild
Glímufélagsins Ármanns úr
sýningarferð til Færeyj-a. Fóru
þeir utan hinn 5. júlí með Snar
faxa til þátttöku í svonefndri
Vestanstevnu, sem að þessu
sinni var haldin í Sörvági á
Vagar og var glímuflokknum
boðið til þátttöku í hátíðar
höldunum, eins og áður hef
ur verið getið í blöðum.
Vestanstevnan er hátíð, sem
Vagarbúar efna til árlega, en
er haldin til skiptis í bæjun
um Sörvági, Miðvági, Sanda
vági og Vestmanna, þótt sá,
bsrar sé á Stranmey. Helztu
þættir Vestanstevnunnar
hverju sinni eru kappróður,
sem er einhver mesta skemmt
un Færeyinga, íþróttakeppni,
sýningar og dansar, bæði
þjóðdansar og yngri dansar.
Að þessu sinni var breytt frá
venju og boðið til hátíðar-
inar glímuflokki frá íslandi.
Móttökur.
Þegar glímumennirnir komu
frá Vagar tóku á móti þeim
formaður hátíðarnefndar-
innar í Sörvági, Leif Nolsoe,
auk umboðsmanns Flugfélags,
íslands á Vagar, sem reyndist
ásamt aðalumboðsmanni Flug-
félagsins í Tórshavn, Lars Lar
sen, flokknum hið bezta, með
an á dvölinni stóð í Færeyj-
um. Sama dag fór Leif Nolsoe
með glímumennina til Miki
nes, sem er þekktur ferða
mannastaður, fögur, hrikaleg
og sæbrött klettaeyja, úti fyrir
Sörvági. Síðan var Vagar skoð-
uð og farið til Tórshavn á
Straumey.
Vestanstevnan.
Sjálf Vestanstevnan var
haldin 9. og 10. júlí. Munu allt
að 2000 manns hafa veríð að
komnir í Sörvági, sem er 1000
manna bær. 36 áhafnir á
tveggja til tíu manna förum
tóku þátt í kappróðrinum, sem
var hinn mesti til þessa á Vest
anstevnu og komu þær frá flest
um eyjum. Þá sýndu frosk
menn frá Torshávn listir sín-
ar í höfninni. Var þetta í
fyrsta sinni, sem froskmennirn
ir viðhöfðu slíka skemmtan í
Færeyjum. Handknattleiks-
flokkar kvenna kepptu og voru
þeir frá Tórshavn og Sanda
vági, en karlaflokkkar frá Sör-
vági og Miðvági.
Hátíðin var sett af Leif Nol
soe, um miðjan dag 9. júlí að
lokinni skrúðgöngu um bæ
inn, þar sem í fararbroddi voru
bornir fæeyski og íslenzki fán
inn fyrir flokkum íþrótta-
manna og skáta, auk annarra
hátíðargesta. Bærinn skart
aði sínu fegursta, hreinn og
fagur, blaktandi fánar við hún,
og sólin skein í heiði. Er leið
að miðnætti þessa dags, voru
menn kvaddir til fundar á
íþróttaleikvangi Sörvágs með,
því, að bomir voru logandi
kyndlar um bæinn og P.M.
Dam, fólksþingsmaður, flutti
miðnæturræðu við snark
brennandi bálkastar. Að ræð
unni lokinni var hin skraut
legasta flugeldasýning. Lykt
aði svo fyrri degi Vestan-
stevnunnar. Er leið að kvöldi
síðari dags, upphófst dans í
tveim samkomuhúsum, fær-
eyskir þjóðdansar í öðru,
en nýrri' dansar í hinu, og var
dansað á báðum stöðum fram
á rauðan morgun hinn 11. júlí
er menn tóku að tygja sig til
heimferðar.
Útsýnisflug F. í.
Tvennt var það, sem einna
mesta athygli mun hafa vakið
á þessari Vestanstevnu, og var
hvoru tveggja komið frá ís-
landi. Voru það glímusýningar
Ármenninganna og útsýnis-
flug Gljáfaxa Flugfélags ís
lands.
Flugfélag íslands staðsetti
Gljáfaxa á Vagar- flugvelli
hátíðisdagana, og flaug hinn
trausti og öruggi flugstjóri,
Ingimar K. Svinbjörnsson og
aðstoðarfólk hans svo mörg út
sýnisflug yfir Vagar og aðrar
eyjar, sem við var komið
fram í myrkur báða dagana.
Margir Færeyingar flugu að
þessu sinni í fyrsta skipti, og
auk þeirrar reynslu sáu þeir
land sitt af nýjum og áður
óþekktum sjónarhóli. Þeir ís
lendingar, er áttu þess kosf að
fara með Gljáfaxa, munu seint
gleyma mikilfengleik færeyskr
ar náttúru, og sérstæðri feg
urð, sem eyjarnar búa yfir.
Glímusýningar Ármenninga.
Ólímusýningar Ármenninga
urðu alls fjórar, tvær 8. júlí,
ein 9. júlí og sú síðasta hinn
10. júlí, ávallt fyrir fullu húsi
áhorfenda, sem munu hafa orð
ið hart nær 1500, og er slík
aðsókn einsdæmi í Sörvági, að
íþrótta- eða leiksýningum
sama sýningarflokks. Á dag-
skrá glímuflokksins voru milli
30 og 40 atriði glímu og
fornra leikja, og dagskrá
in því mismunandi á hverri
sýningu. Undirtektir voru íá-
dæma góðar, sem marka má af
því, að þótt aðeins fimm glímu
menn hafi verlð í flokknum,
varð stytzta sýningin 1 klukku
sfund og 15 ' mínútur en sú
lengsta tæpar 2 klukkustundir
án teljandi hléa. Flokkur
inn var vel samæfður fyrir ut
anförina og hafði hlotið góða
þolþjálfun, og má þakka því
tvennu, hvesu vel tókst með
sýningarnar.
í lok síðustu sýningarinn
ar var skipzt á gjöfum. Fengu
glímumenn fagran áletraðan
silfurbikar fyrir þátttöku í
Vestanstevnunni frá Sörvágs
búum, qn afhentu Leif Nol
soe, formanni hátíðarnefndar
innar nýjan silkifána á stöng
sem Glímudeild Ármanns hafði
látið gera fyrir þessa för.
Teiknaði fánann Gísli B.
Björnsson, auglýsingateikn.
Glímumennirnir er þátt tóku
í Færeyjaförinni voru Pétur
Sigurðsson, Guðmundur Freyr
Halldórsson, Valgeir Halldórs-
son, Þorvaldur Þorsteinsson,
og Hörður Gunnarsson, for
maður Glímudeildar Ármanns,
sem var þjálfari og fararstjóri.
Þakkir.
Glímudeild Ármanns vill
þakka öllum þeim, er á einn
eða annan hátt stuðluðu að því
að för þessi yrði farin, og þakk
ar sérstaklega hinar stórhöfð-
inglegu móttökur Sörvágsbúa,
sem allir létu sér annt um, að
„glímararnir úr íslandi" hefðu
allt sem bezt, meðan þeir
dveldust þar. Ber þar formann
hátíðarnefndarinnar Leif Nel
soe hæst.
Ekki_ síður þakkar Glímu
deild Ármanns Flugfélagi ís
lands og starfsmönnum þess
alla fyrirgreiðslu, sem í té
var látin ljúflega og greiðlcga
bæði hér heima og í Færeyj-
um, þó alveg sérstaklega blaða
fulltrúa félagsins, Sveini Sæ-
mundssyni fyrir þá miklu að
stoð, er hann veitti - glímu-
flokknum.
(Fréttatilkynning frá Glímu
deild Ármanns.)
FÖSTUDAGUR 22. júlí 1966
Biðja um
íslenzka
dómara!
Knattspyrnusambandi íslands
barst í gær bréf frá Evrópusam-
bandinu, þar sem það var beðið
að tilnefna dómara og línuverði
í leik milli Swansea, Wales, og
búlgörsku bikarmeistarana í Bvt
ópubikarkeppni bikarhafa. Leik
urinn verður háður í Swansea í
haust. KSÍ hefur ákveðið að taka
þessm boði, og verður dómari og
linuverðir tilnefndir einhvern
næstu daga.
Farið ekki!
Farið ekki!
— hrópuðu stúlkurnar,
þegar Brassarnir fóru
frá Lymm.
NTB—Lymm, fimmtudag.
Það voru niðurlútir Brasilíu-
menn, sem yfirgáfu HM-aðalstöðv-
ar sínar í Lymm í Cheshire í dag
í fyrsta áfanga heimferðarrnnar.
AukalögregMið var kallað út, en
þvi tókst ekki að halda fóíki, sem
vildi kveðja heimsmeistarana frá
1958 og 1962, í skefjum. Ungar
stúlkur hágrétu og kööuðu: FariSð
ekki, farið ekki! BrasiMska löHð
mun dvelja í London í tvo daga,
áður en það flýgur heim til Rio,
— þar sem það fær áreiðaniega
kaldar móttökur.
Valur -
Keflavík
í kvöld
í kvöld verður háður mjög
þýðingarmikill leikur í íslands
mótinu, en þá mætast tvö efstu
liðin í 1. deild, Vaiur og Kefla
vík. á Laugardalsvellinum.
Nokkuð er siðan Valsmenn
hafa staðið í keppni, en hins
vegar “hafa Keflvíkingar oft
verið í eldlínunni og átt ágæta
leiki að undanförnu. í þremur
síðustu leikjunum hafa þeir
sigrað þýzka liðið Sportklub
07, Akureyringa og KR. Fram
lína Keflvíkinga hefur einkum
vakið athygli — skorað 12 mörk
í þessum þremur leikjum —
en sennilega verður leikurinn
í kvöld erfiðari, þar sem Val
ur hefur beztu vömina í 1.
deild — og einnig sókndjarfa
framherja. Erfitt er því að
spá um úrslit, en áhorfendur
ættu alla vega að sjá spenn-
andi leik, sem getur haft mikla
þýðingu í sambandi við úrslit
mótsins.
íslandsmótið í golfi á Akureyri:
MAGNUS OG EINAR GUÐNASON
ERU JAFNIR EFTIR 36 HOLUR
íslandsmótið í golfi hélt áfram
á Akureyri í gær, og voru þá
leiknar aðrar 18 holur — þann
ig að nú hafa verið leiknar 36
holur í meistara-, 1. og 2. flokki
en 18 í unglingaflokki. Það bar
helzt til tíðinda í gær, að Einar
Guðnason, Reykjavík, náði ágæt-
is árangri, fór hinar 18 holur á
74 höggum, sem er bezti árang
urinn, sem náðst hefur í keppn-
inni hingað til.
í 3. sæti er Þorbjörn Kjærbo
með 163 högg og í 4.—5. sæti
Gunnar Sólnes og Sævar Gunnars
son með 164.
í 1. flokki er Þórir Sæmundsson
frá Suðurnesjum ennþá fyrstur
og hefur aukið forskot sitt í níu'
högg, fór hinar 36 holur á 174
höggum. f öðru sæti er Hörður
Steinbergsson, Akureyri, með 183
högg og í 3. sæti Haraldur Júlíus
son, Vestmannaeyjum, með 184
högg.
f 2. flokki er Kolbeinn Péturs
son, Akureyri, enn með örugga
forustu, þótt hann léki ekki eins
vel og fyrsta dag keppninnar. Eft
ir 36 holur var Kolbeinn með
178 högg. Hann fór fyrstu 18 hol
urnar á 83 höggum ,sem er mjög
óvenjulegt hjá keppanda í 2.
flokki.
í 2. sæti er Hannes Hall með
185 högg og 3. er Haukur Guð-
mundsson með 188 högg.
f unglingaflokki er Hans Ise-
barn. Reykjavík, enn efstur og
hefur aukið forskot sitt í fjögur
högg. Þar hafa verið leiknar 18
holur og er Hans með 89 högg,
en í öðru sæti er Viðar Þorsteins
son frá Akureyri með 93 högg.
Framhald á bls. 14.
Einar vann upp þau fjögur högg
sem núverandi fslandsmeistari,
Magnús Guðmundsson. Akureyri,
var á undan honum eftir fyrsta
dag keppninnar og að keppninni
hálfnaðri standa þeir jafnt að vígi
Einar og Magnús, báðir með 153
högg — og 10 höggum á undan
næsta manni. Ef að líkum lætur
og ekkert óvænt kemur fyrir,
mun keppnin um íslandsmeistara
titilinn eingöngu standa á milli
þeirra. Magnús hefur verið ósigr
andi hér heima undanfarin ár,
— og þetta er i fyrsta skipti í
langan tima, sem hann fær veru
lega keppni — hver svo sem úr
slit verða.
Tveir tyrkneskir íþróttamenn
keppendur á 40. meistaramótinu
Eins og skýrt hefur verið trá
hér á síðunni hefst fertugasta
meistaramót íslands í frjálsum
íþróttum á mánudaginn á Laug
ardalsvellinum og stendur mótið
yfir í þrjá daga. Tveír tyrkneskir
frjálsíþróttamenn munu keppa
sem gestir á mótinu og er það í
fyrsta skipti, sem íþróttamenu frá
Tyrklandi keppa hér. Þeir neita
Muharrem Dalkilic og Askin Tuna-
Sá fyrrnefndi er ágætur hlaupari,
hefur td. hlaupið 500 m á 14:02.0
mín. Hann mun þó ekki keppa á
þeirri vegalengd hér enda yrði
hað svn óiafn lei'kur
ViplHiir
í 800 og 1500 m. hlaupum. Tuna
er þrístökkvari og hefur náð bezt
15.44 metrum — eða stokkið um
metra lengra en okkar beztu
menn í greininni í dag. Með þeim
kemur ritari tyrkneska frjáls-
íþróttasambandsins, Cihat Renda.