Vísir - 02.04.1975, Blaðsíða 1
VÍSIR
65. árg. Miðvikudagur 2. aprii 1975 — 74. tbl.
SJÓMENN BOÐA
FALL 9. APRÍL _
VERK-
Sjá baksíðufrétt
HLJÓPST ÞÚ
APRÍL LÍKA?
— bls. 3 um
aprílgabb í
fjölmiðlum í gœr
„Útsala"
hjá leigu-
bíl stjórum
— bls. 3.
Tólf ára
blaða-
útgefandi
og ritstjóri
— baksíða
Samið fyrir
obbann af
félögum VR
— baksíða
TÍU SINNUM
ÍSLANDS-
MEISTARI
— Iþróttir í opnu
SKRÚFUÐU FYRIR OLÍUNA
— þegar vanskilaskuldir Energoprojekt hlóðust upp
Minnstu munaði, að
Sigölduvirkjun stöðvaðist
vegna þess að Olíufélagið
Skeljungur „skrúfaði
fyrir" olíuafgreiðslu þang-
að. Verktakinn Energopro-
jekt var í greiðsluvandræð-
um, og afgreiðsla var
stöðvuð fyrir páska, en
síðan samdist um
greiðsluf yrirkomulag á
vanskilaskuldum.
Þetta sagði Ragnar Kjartans-
son hjá Skeljungi i morgun.
Ragnar sagði, að málið væri nú
vonandi leyst. Verktakinn hefði
ekki staðiö við gerða samninga
um greiðslur en nú væri búið að
gera samning um fyrirkomulag á
greiðslu á vanskilaskuldunum,
sem hefðu safnazt.
Þegar afgreiðsla var stöðvuð
fyrir páska, hefði það ekki valdiö
vandræðum við virkjunina, þar
sem áður hefði verið búið að af-
greiða magn þangað uppeftir,
sem hefði enzt þennan tima. HH
Sæborgin við bryggjuLandhelgisgæzlunnar I morgun, eftir aö búið var^ö færa hana til hafnar fyrir brot á reglum, sem skipstjórinn taldi sig
ekki vita um. (Ljósmynd Vfsis BG)
Sœborg RE staðin
að ólöglegum veiðum
i Faxaflóa
Tekinn fyrir brot á reglum
sem hann vissi ekki um
„Þeir voru að koma inn með
Sæborgina í morgun, sem tekin
var aö ólöglegum veiðum hér I
Faxaflóanum”, sagði Pétur
Sigurðsson hjá Landhelgisgæzl-
unni I morgun.
Sæborg RE var að ólöglegum
veiðum samkvæmtreglum, sem
sjávarútvegsráðuneytið setti,
þar sem Faxaflóanum er lokað
fyrir öllum togveiðum. En
reglugerðin kom svo seint úr
prentun, að það er kannski ekki
sanngjarnt að ætlast til þess, að
menn fari að reglum, sem þeir
vita ekki um.
Við erum að mjólka þetta viö
ráðuneytið og vonumst til að
botn komi í það i dag,” sagði
Pétur.
Hann var spurður, hvort rétt
væri sú saga, að þessi bátur
heföi veriö tekinn fyrir veiðibrot
fjórum sinnum sama sólar-
hringinn. Þá hló Pétur.
„Ekki vil ég segja það,” sagði
hann. „En segja má, að þessi
skipstjóri hafi verið fylgifiskur
minn i störfum minum hjá
Landhelgigæzlunni i fjölda ára.
Þetta er bráðduglegur maður
og hefur ekki auðgazt á glappa-
skotum sinum.”
Þórður Ásgeirsson hjá sjávar
útvegsráðuneytinu gaf Visi þær
upplýsingar i morgun að ráðu-
neytið mundi leggja til að skip-
stjórinn slyppi með áminningu
fyrir brot sitt, þar eð auglýsing
um lokunina hefur ekki veriö
birt. Tafðist það meðal annars
vegna korts sem ráðuneytiö er
að láta gera til nánari út-
skýringar. Verður fréttatil-
kynning um málið send út á
morgun að sögn Þóröar Ás-
geirssonar. — SHH —
Fresturinn
runninn út
Enn er beðið eftir Fischer
t erlendum fréttastofufrétt-
um I morgun segir, að almennt
sé búizt við að Bobby Fischer
tapi heimsmeistaratitlinum i
dag með þvi að láta frestinn til
að taka áskorun Karpovs liða
án þess að sýna iifsmark.
í gær var haft eftir Ed
Edmondson forseta bandariska
skáksambandsins, að Fischer
myndi trúlega „gera nákvæm-
lega ekki neitt.” Aftur á móti
sagði Edmondson, að sögn
Reuters, að rússneska skák-
sambandið beitti til þess bola-
brögðum að neyða Fischer til að
Karpov verður ekki krýndur fyrr en á morgun
láta frá sér titilinn án keppni, og
nú myndi hinn 32 ára gamli
bandariski skákmeistari hverfa
hljóðlega af skáksviðinu.
Edmondson tók fram, að hann
ásakaði ekki Karpov i þessu
máli, og bætti þvi við, að
Karpov „þráöi ekkert heitara
en raunverulega keppni.”
Fischer býr fremur afskekkt i
Pasadena i Kaliforniu og hefur
ekki einu sinni síma. Hann lét
svo ummælt, þegar FIDE,
alþjóðlega skáksambandiö,
gekk ekki að öllum kröfum hans
um breytingu á einvigisreglum
um heimsmeistaratitil i skák,
að hann myndi ekki tefla þetta
einvigi. Standi hann fast við
það, glatar hann titlinum og sin-
um hluta af þeim 750 milljónum
króna, sem keppendur áttu að fá
til skiptanna, ef heimsmeistara-
mótið yrði haldið i Manila á
Filippseyjum.
AP frétt sagði i morgun, að
liöið hefði framyfir miðnætti i
Pasadena, án þess að nokkuð
benti til viðbragða af Fischers
hálfu. Dr. Max Euwe forseti
Alþjóðaskáksambandsins,
sagðist i morgun myndu biða til
morguns, fimmtudag, með að
lýsa Karpov nýjan heimsmeist-
ara — „það er ekki útilokað, að
Fischer hafi sent boð frá sér á
siöustu stundu,” hefur júgó-
slavnesk fréttastofa eftir dr.
Euwe. — SHH
Fresturinn
lengdur
Alþjóðlega skáksanibandið,
FIDE, ákvað á fundi sfnum i
morgun að framlengja frest
þann, sem Fischer hefur til
að taka áskorun Karpovs,
um einn sólarhring — til
miðnættis annan aprfl.