Vísir - 04.04.1975, Qupperneq 16
vísm
Föstudagur 4. apríl 1975.
Vélstjórinn
nefbraut
skipstjórann
t nótt sló I brýnu milli yfir-
manna á báti i Reykjavikurhöfn.
Vélstjóri bátsins réðst á stýri-
manninn og ætlaði að þjarma að
honum, en skipstjórinn ætlaði að
stilla til friðar og gekk i milli.
Þeirri viðureign lauk með þvi, að
skipstjórinn var fluttur á slysa-
deild Borgarsjúkrahússins, nef-
brotinn eftir vélstjórann sinn.
Ekki cr þess getið, að stýri-
manninn hafi sakað.
— SHH
„Þeir eru
farnir
að tala
við
okkur"
,,Þeir eru að
minnsta kosti farnir
að tala við okkur,”
sagði Jón Sigurðsson,
forseti Sjómanna-
sambandsins i morg-
un.
Hann taldi, að út-
vegsmenn væru farnir
að hreyfa sig í sam-
komulagsátt.
Samningafundir
verða i dag, kiukkan
hálftvö hjá bátasjó-
mönnum, klukkan
fjögur hjá sjómönnum
á stærri togurum.
— HH
Landabót eða landaspjðll?
Breyta lifandi þaraflúðum
í steindauða sandfjöru
— til að draga úr flóðum, sem verða endrum og eins
Öflug jarðýta með
ripper öslar nú um
fjöruna fram af Deild á
Álftanesi og ryður
klöppunum upp i garð,
rétt undan gamla
sjóvarnargarðinum.
Þetta er gert að undir-
lagi Vita- og hafnar-
málastjórnarinnar i
þvi skyni að draga úr
flóðunum, sem þarna
verða endrum og eins.
Klappirnar sem verið er að
rifa upp og hranna saman i
garð eru þaktar miklum sjávar
gróðri og hafa meðal annars
verið griðland æðarunga um
uppvaxtartimann. Auk þess
hafa þessar flúðir að sögn
heimamanna verkað sem öldu-
brjótur og dregið úr haföldunni,
áöur en hún skall að landi.
Fyrir nokkru var fjaran niður
af Breiðabólstöðum handleikin
á þennan hátt. Þar er nú aðeins
sandfjara, steindauð, og græna-
dýpi fyrir utan. Út fyrir grjót-
garðinn var hellt töluverðu af
hraungrjóti, sem nú hefur nær
allt flotið inn fyrir og liggur
uppi á sjávarkambinum eins og
hver annar reki.
Fyrir skömmu kom jarðýtan
út á Alftanes og átti þá að fara
að skarka fyrir landi Akrakots.
Bóndinn i Akrakoti, Erlendur
Sveinsson, bannaði þetta rask i
sinni landareign, og var þá
haldið með ýtuna út að Deild,
þar sem eigendur eru margir.
Ahugamaður um náttúru-
vemd, sem blaðið hafði sam-
band við í gær, sagði að þetta
væri gert vegna þess, að í flóð-
um hefði sjór stöku sinnum
gengið upp á land á þessum
slóðum og valdið einhverjum
spjöllum, aðallega á vegi, sem
ligfur þarna eftir sjávarkambin
um. „En það er alveg spurning,
hvort ekki á að meta það eins og
vegarskemmdir af snjó eða
árennsli, og hvort það er for-
svaranlegt að skemma þarna
fallega og lifrika fjöru með ærn-
um tilkostnaði, til þess eins að
reyna að afstýra tiltölulega litl-
um flóðaskemmdum, sem verða
endrum og eins.” — SHH
EHendur Sveinsson I Akrakoti sýnir muninn á fjörunni, fyrir og eftir ruöning. Sandfjaran er framaf
Breiðabólsstöðum og var rudd fyrir nokkru, og þá meðal annars eyöilagöar gamlar varir, sem bændur
á þessum slóðum höföu notaö um aldir. Hraungrjóti var ekiö út fyrir varnargaröinn, en þaö er mest
komið inn fyrir núna. Lengra frá sést I ósnerta fjöruna fram af Akrakoti. Ljósm. VIsis Bragi.
Jaröýtan aö störfum sinum á
flúöunum út af Deild.
NÆSTA DAS-HÚS í FURULUNDI
— tvö tromp nœst
,,Við verðum með tvö tromp
næst”, sagði Pétur Sigurðsson
hjá Happdrætti DAS, þegar við
ræddum við hann, en auk þess
liúss, sem kom upp á óseldan
miða i gærdag, verður dregið
um nýtt einbýlishús i Garða-
hreppnum.
Það hús stendur við Furulund,
og verður kynnt um aðra helgi
aö sögn Péturs. Húsið er grænt
að lit og virðist hið glæsiiegasta
að sjá.
Verður dregið um það i april
’76 eða að ári. Um húsið á Álfta-
nesi sem dregið var um i gær,
verður liklega dregið i haust eða
næsta vor. Hefur það ekki alveg
verið ákveðið, en það verður
haft sem aukavinningur.
Hús það er metið 15 milljónir
króna.
— EA
Kaupmenn a fund
ríkisstjórnarinnar
„Þetta er allt óljóst. Það gæti
alveg eins komið til verkfalls,”
sagði Magnús Finnsson, fram-
kvæmdastjóri Kaupmannasam-
takanna i morgun.
Kjararáð verzlunarinnar gekk
á fund rikisstjórnarinnar klukkan
hálftóif i morgun. Kaupmenn
báöu i fyrradag um tveggja daga
frest til að kanna, hvað rikis-
stjórnin gæti fyrir þá gert. Fund-
ur verður með sáttasemjara
klukkan fimm i dag.
Magnús L. Sveinsson formaður
Verzlunarmannafélagsins sagði i
morgun, að ekkert hefði miðað I
samkomulagsátt á þeim eina
fundi, sem haldinn hefur verið
milli aðila.
ÆTLUÐU AÐ RÆNA
LÖGREGLUKONUNA
Veskjaþjófnaður fer mjög i
vöxt á veitingahúsum borgar-
innar. Þegar menn eru að
skemmta sér, gæta þeir ekki svo
grannt aö veskjum sinum eða
buddum. Þetta hafa óprúttnir
menn notfært sér upp á siðkast-
ið og stoiið af mönnum; jafnvel
með þeirri aðferð að hrifsa
veskin og flýta sér að týnast áð-
ur en misjafnlega ölvuð fórnar-
lömbin ná að bregðast við.
I gærkvöldi var Björg Jó-
hannesdóttir, lögregluþjónn, á
vakt i Klúbbnum til að reyna að
hafa auga með afbrotum af
þessu tagi. Hún var sjálf með
peningaveski i kápuvasanum.
bá vissi hún ekki fyrr til en
tveir karlmenn réðust að henni
og ætluðu að rifa af henni vesk-
ið. En þeir komu ekki að tómum
kofunum, þvi Björg tók mann-
lega á móti og hafði annan undir
og hélt honum, en hinn hljóp.
Hann náðist þó skömmu siðar,
og játuðu þeir félagar stuld á
tveimur öðrum veskjum þetta
kvöld.
Lögreglan telur ástæðu til að
brýna fyrir mönnum að gæta vel
að reytum sinum á þessum stöð-
um. —SHH