Vísir - 11.04.1975, Blaðsíða 9

Vísir - 11.04.1975, Blaðsíða 9
prfl 1975. Vísir. Föstudagur 11. aprfl 1975. ■^9 tjón: Hallur Símonarson 'M IMxt .ÆCÖ'-A. r’jfjFc auðvitað Paö gleymist stundum, sem næst manni er — eða þá öliu heldur eins og i þessu til- felli, að það er bókstaflega ekki hægtað sætta sig við, að það gamalfræga félag, Sund- erland, skuli teljast til liða i 2. deild á Englandi. Að visu hefur Sunderland leikið i 2. deild siðustu árin — meira að segja rokkað milli 1. og 2. deildar eftir að það féll i fyrsta skipti i sögu félagsins niður í 2. deild 1958. Þá eftir lengri samfelldan feril i 1. deild en nokkurt annað félag á Englandi fyrr eða siðar — eða frá þvi löngu fyrir alda- mót. En í opnunni i gær sögðum við frá þvi, að ekkert lið úr 2. deild heföi sigrað i ensku hikarkeppninni frá þvi West Broinwich Albion lék þann leik 1931. Auðvitað er það ekki rétt — Sunderland sigr- aði i keppninni 1973 og vann Leeds í úrslitaleiknum. Lék þá i 2. deild eins og nú. Nokkrar likur eru á, að Sunderland vinni aftur sæti sitt i 1. dcild I vor, — sæti, sem manni finnst tilheyra Sundcrland, félaginu, sem eitt sinn gekk ekki undir öðru nafni en „Bank of England” — Englandsbanki — vegna rikidæmis og reisnar. Sunderland hefur sex sinn- um oröið Englandsmeistari — aðeins Arsenal, Liverpool 8 sinnum, Man .Utd., Ever- ton 7 sinnum, hafa oftar sigr- að — og tvivegis hefur Sund- erland sigrað i bikarkeppn- inni. Það fyrirgefst þvi kannski að gleyma þvi i blaðinu i gær að telja Sund- erland til liða 2. deildar. —hsim. Formaður FIFA vœntanlegur Formaður FIFA, alþjóða- knattspyrnusambandsins, Braziliumaðurinn de Have- lange, er væntanlegur til Reykjavikur i kvöld i boöi Knattspyrnusambands ís- lands. Það er i fyrsta sinn, sem hai\n kemur til islands. Hlaupið víða Það verður mikiö um hlaup um helgina. Mikla- túnshlaup Armanns á laug- ardag kl. 14.00 — Bessa- staöahlaup á sunnudag kl. 15.00. Keppt i kvenna- og karlaflokkum og 5. Breið- holtshlaup ÍR á sunnudag kl. 14.00. Real steinlá fyrir Varese italska liðið, Ignis Varese, kom á óvart i úrslitaleik Evrópu- keppninnar i körfuknattleik i gærkvöldi i Antwerpen — sigraði þá Real Madrid, Spáni, sem fyrir leikinn var talið hafa mun meiri sigurmöguleika, með talsverðum yfirburðum, eða 79 stigum gegn 66. Þrettán stiga munur i úrslit- um er rnikið. Atletico meistari Atletico varð heimsmeistari fé- lagsliöa I knattsþyrnu i Madrid I gærkvöldi — sigraði þá Inde- pendiente frá Argentinu 2-0 I siöari leik liðanna. Fyrri leikinn vann argentiska liðið — i Buenos Aires — með 1-0. Atletico komst i þessa keppni vegna þess, að Evrópumeistarar Bayern Munchen höföu ekki tima til að sinna henni, en Atletico tapaði sem kunnugt er fyrir Bay- ern i úrslitaleik Evrópubikarsins i fyrravor — eftir tvo leiki. Áhorfendur i Madrid voru 70 þúsund i gærkvöldi og mikil stemmning. Á 22. min. náði spánska liðið forustu með marki Javier Irureta, framvarðar, þeg- ar hann fékk knöttinn átta metra frá marki, frir. Sigurmarkið skoraði svo Ruben Ayala, argen- tinski landsliðsmaðurinn hjá At- letico!! fjórum minútum fyrir leikslok, en hann hafði átt slak- an leik fram að markinu. En spyrna hans þá — eftir góða send- ingu miðherjans Jose Eulogio Garate — var óverjandi. Madrid-liðið var betra i leikn- um allan timann og einkum léku þeir Jose Capon og Ramon Here- dia, annar Argentinumaður i liði Atletico, vel. Hins vegar átti argentinska liðið ekki skot á mark ileiknum, sem hægt var að tala um — varamarkvörður Atletico, Jose Pacheco, hafði ekkert aí gera. Þetta er i fyrsta sinn síðan 1972 að Evrópulið sigrar i þessari keppni. ttalska liðið jók mjög hraðann i siðari hálfleiknum eftir, að Real hafði forustu i leikhléi 38-35. Það kom spánska liðinu greinilega á óvart og innan skamms stóð 49-40 fyrir Ignis. Þeir Rizzi og Morse voru þá iðnir við að koma knettin- um i körfu Real. Spánska liðinu tókst aldrei að vinna upp þennaii mun, þrátt fyr- ir góðar tilraunir Brabender og Gorbolan. Real Madrid, sem sigr- aði i þessari keppni i fyrra, náði sér aldrei verulega á strik i leikn- um og kom það á óvart, einkum og sérilagi þar sem Ignis var án sins bezta leikmanns, Dino Meneghin, sem er ristarbrotinn. En það kom ekki að sök — Ignis Varese varð Evrópumeistari i fjórða sinn. Bandarikjamaðurinn Bob Morse var stigahæstur hjá italska liðinu með 29 stig — Ivan Bisson skoraði fjórtán, Rizzi 13, Yelverton 10, Zanatta 9 og Ossola 4. Fyrir Real skoruðu Brabender 21 stig, Szezerbiak 16, Rullan 12, Corbolan 11, Luyck_ 4 og Cabrera 2. Á heimsmeistaramótinu I listhlaupum á skautum i Colorado á dögun- um sigraði sovézka parið Irina Moiseeva og Andrei Minenkov I Isdans- inum og sýndu mikla hæfni. Myndin að ofan var tekin af þeim i keppn- inni. Borussia öruggt í úrslit UEFA! Borussia Mönchengladbach, Vestur-Þýzkalandi, er öruggt með að leika úrslitaleikinn i UEFA-keppninni i knattspyrnu eftir stórsigur gegn Köln, einnig Vestur-Þýzkalandi, i fyrri leik liðanna i undanúrslitum i gær- kvöldi. Borussia sigraði með 3-1 og þó var leikið i Köln!! Borussia, mótherji Vestmanna- eyinga i Evrópukeppni ekki alls fyrir löngu, gerði allar vonir Kölnar-liðsins að engu með tveimur mörkum i fyrri hálfleik. Hið fyrra var skorað á 23. minútu og það var litli, danski landsliðs- maðurinn, Alan Simonsen, sem leikið hefur héráLaugardalsvelli, sem skoraði. Hann fékk frábæra sendingu frá „stjörnu” leiksins, þýzka landsliðsmanninum, Josef Heynckes, hljóp af sér varnar- mennina og lyfti knettinum siðan yfir markvörð Kölnar, Schu- macher, og i markið. Ellefu minútum siðar stóð 2-0, þegar Danner lék snarlega inn i vitateiginn og þrumufleyg hans réð Schumacher ekkert við. Eftir markið lögðu leikmenn Borussia aðaláherzluna á vörnina — og ekki tókst Kölnarliðinu að skora fyrir hléið. En stöðug sókn liðsins hlaut að gefa uppskeru — á 52. minútu missti markvörður Borussia knöttinn eftir spyrnu Loehr og af honum hrökk knötturinn i markið. En þá breytti Borussia, sem hefur góða forustu i 1. deild- inni vestur-þýzku, um leikaðferð á ný og ekki leið á löngu að Alan Simonsen skoraði. Það var á 60. minútu og þá skallaði þessi lang- minnsti leikmaður á vellinum knöttinn i mark Kölnar. Áhorf- endur voru 28.500. 3-1 og þá forustu missir Boruss- ia ekki á heimavelli sinum eftir hálfan mánuð. Sennilega leikur liðið til úrslita við hollenzka liðið Twente Enschede, sem hefur 3-1 forustu eftir fyrri leikinn við Ju- ventus, ítaliu. Bréf til íþróttasíðunnar: ísfirðingurinn ungi og skíðalandsmótið „Mig langar að gera nokkrar athugasemdir viö skrif og fyrir- sagnir Visis af skiðalandsmótinu á isafirði. Þá fyrst: Furðulegt — of ungur til að verða íslands- meistari! Eg hef stundað skíða- iþrótt frá þvi ég var unglingur og fylgist með skfðafólkinu enn. Ég vcit þvi, að þessi fyrirsögn er al- röng cða nánast innantómt þvaður. Sigurður H. Jónsson hafði ná- kvæmlega sömu möguleika á að verða Islandsmeistari og aðrir keppendur, hefði hann verið lát- inn keppa i sinum aldursflokki. En Isfirðingar kusu sjálfir að hafa þessa „stjörnusýningu” á Sigurði. Að minum dómi átti þetta ekki að eiga sér stað, svo ég ætla að koma með min rök fyrir þeirri fullyrðingu. 1 fyrsta lagi. Sigurður gat leikið sér i brautinni alveg áhyggjulaus. Hann vissi fyrirfram, að hann hafði allt að vinna, en engu að tapa. Hann hefði jafnvel getað sleppt porti, eins og sænski gesturinn gerði i fyrra, án þess að Ömari fyndist ástæða til að hafa orð á þvi. I öðru lagi: Allir, sem fylgjast með skiðafólkinu, vita, að Sigurð- ur H. Jónsson er mjög góður Rétt. Sem sálfræðingur get ég fullyrt að Lolli er saklaus. Taka þeir framburð minn gildan?__________ ^ Hvað næst....? ) skiðamaður. Það var þvi alger óþarfi að láta hann fórna tslands- meistaratitlinum og Isfirðingar urðu þar með að sjá á bak þremur til fjórum gulium. 1 þriðja lagi: Eins og fyrr segir gat Sigurður tekið alla áhættu án tillits til hinna keppendanna. Það gátu hinir keppendurnir ekki gert. Þeir urðu að taka tillit til sinnar heimabyggðar, sem þeir voru að keppa fyrir. Dæmi: Haukur Jóhannsson, sem ég tel aðalkeppinaut Sigurð- ar, þar sem Árni Óðinsson var veikur, hafði heldur betri tima i fyrri ferði stórsvigi. Hann tók þvi enga áhættu i seinni ferð og kom út sem sigurvegari. Sömu sögu er að segja af sviginu, nema að þvi leyti, að þá hafði Sigurður heldur betri tima. Þá stóðst Haukur ekki mátið og setti á fulla ferð og datt. Þá öskruðu og klöppuðu Is- firðingar svo um munaði. Það má þvi segja, að þátttaka Sigurðar hafi haft truflandi áhrif á gang Is- landsmótsins. Að lokum þetta: Allt skiðafólk, hvar sem það býr á landinu, væntir sér mikils af Sigurði H. Jónssyni i framtiðinni. Við vonum þvi, að hann verði svo sterkur, að hann geti risið undir þeirri aug- lýsingaherferð og hóli, sem á hann er hlaðið. Þvi eins og allir vita, þá þarf sterk bein til að þola góða daga. Ég vona, að þið sjáið ykkur fært að birta þetta i iþróttasiðunni ásamt mynd af Sigurði. Ég held, að þetta sé rétt mynd af þvi, sem raunverulega gerðist.” Skíðakona Gullbjörninn byrjaði vel — en Bobby Nichols þó beztur eftir fyrstu umferð í 39. meistarakeppninni í golfi Hinn 38 ára Bobby Nichols, sem sigrað hefur á 12 golfmótum á 15 ára ferli sinum sem atvinnumaður, lék fyrstu 18 holurnar I meistarakeppninni (masters) I Bandarikjun- um á 67 höggum — fimm undir pari á vellin- um i Augusta I Georgiu — þegar 39. meistaramótið hófst þar I gær. En gullbjörn- inn sjálfur, Jack Nicklaus, sem fyrir mótið var talinn sigurstranglegastur, byrjaði einnig m jög vel — lék á 68 höggum og var I öðru sæti ásamt hinum 26 ára Alan Miller frá Pensa- cola, Florida, sem aðeins hefur sigrað I einu móti sem atvinnumaður. Það verður mikil barátta fram á sunnudag I keppninni og margir, frægir kappar byrjuðu vel I keppninni. Tom Weiskopf, J.C. Snead og Arnold Palmer, sem nú er 45 ára og reynir að vinna sinn fimmta meistaratitil, voru með 69 högg. Með 70 vöru Billy Casper, Tom Watson og Bob Murphy — en á 71 höggi léku Sam Sned, undraverður karlinn enn, Jerry Heard, Lee Trevino og Tommy Aaron. Meistarinn frá I fyrra, Gary Player, Suður-Afriku, lék á pari, 72 höggum, ásamt fjölmörgum öðrum. Bobby Nichols lék frábærlega á erfiðum vellinum í Augusta, en mikið rigndi meðan keppnin stóð yfir. Fimm holur lék hann á höggi undir pari — og fór aldrei yfir par. Mest athyglin í gær beindist að Lee Elder, fyrsta svertingjanum, sem vinnur sér rétt til þátttöku í þessu mikla móti. Áhorfendur fylgdu honum og Elder, sem er fertugur og vann sér rétt i mótið með þvi aö sigra i Mon- santo open fyrir 51 viku, lék hringinn á 74 liöggum. Sýndi enga taugaspcnnu og var klappað lof i lófa af hinum hvitu áhorfendum i Georgiu. —hsim. ÍSLANDSMÓTIÐ í BORÐTENNIS tsiandsmótið i borðtennis helst i Laugardalshöllinni i kvöld. Þá’tttaka er mikil og keppendur M Þeir láta sig ekki vanta á völl- inn, erlendu þjálfararnir, þegar knattspyrnumenn okkar eru á ferð. Þessa mynd tók Bjarnleifur nýlega á Melavellinum, þegar Reykjavikurmótið stóð yfir. Frá vinstri Joe Hooley, þjálfari Kefl- víkinga, Tony Knapp, þjálfari KR og landsliðsins, og Joe Gilroy, sem þjáifar Val. viða að af landinu. 1 kvöld kl. átta verður keppt I tvfliöaleik og tvenndarkeppni. Mótið heldur svo áfram á laug- ardag á sama stað og hefst þá kl. 3.30. Þá verður leikið i unglinga- flokkunum og er búizt við mikilli og harðri keppni, enda er borð- tennis orðin afar vinsæl Iþrótt hjá mörgum hinna yngri. Á sunnudag verður siðasti keppnisdagurinn. Þá hefst keppn- in kl. tvö I Laugardalshöllinni og leikið verður i einliðaleik. Rnnir þú til feróalöngunac þáer um ■ það vitneski voríð eríendi sem veldur Sigruðu Svía 25% lækkun á fargjöldum til Evrópu á tímabilinu 1. apríl til 15. maí Fyrri umferðinni I heimsmeistarakeppn- inni I ishokkey lauk i Munchen I gærkvöldi og heimsmeistarar Sovétrikjanna komust einir ósigraðir gegnum hana. 1 gærkvöldi léku þeir við Svia og sigruðu með 4-1. (2-0, 1-1, 1-0). Varnarleikur þeirra var glæsilegur og komust hinir harðskeyttu Sviar litið áleiðis — en þeir börðust þó af miklum krafti allan leikinn. Fyrsta sovézka markið var skorað eftir 6 min., — Alexander Yakushev, sem er marka- hæstur nú i keppninni með átta mörk. Eina mark Svia skoraði Tord Lundström á 37. min. enda ekki heiglum hent að koma boltanum (pukkinum) í mark hjá hinum frábæra, sovézka markverði, Vladislav Tretyak. Þá léku Tékkar og Finnar og sigruðu Tékk- ar örugglega með 6-2 og náðu aftur öðru sæti I keppninni. Staðan eftir fyrri umferðina er þannig: FLUCFELAG LOFTIEIBIR /SLAWDS Félög sem sjá um föst tengsl við umheiminn Sovétrikin Tékkóslóvakia Sviþjóð Finnland Pólland Bandarikin 5 5 0 0 40:14 10 5 4 0 1 26:12 8 5 3 0 2 21:9 6 5 2 0 3 18:21 4 5 1 0 4 9:36 2 5 0 0 5 15:37 0 Siðari umferðin verður háð I Dusseldorf. Keppt um 21 bikar í bikarkeppni SR Þriðja og siðasta mótið i Bikarkeppni Skiðalelags Reykjavikur fer fram á laugar- dag og hefst kl. tvö — annað hvort I Skálafelli eða Bláfjöllum. Keppt verður í sjö flokkum og verða keppendur yfir 100 — en keppt er um 21 bikar, sem Sportval hefur gefið. Keppendur eru frá Ármanni, KR, Viking, ÍR og Val og eftir keppnina mun Jón Aðal- steinsson Jónsson, eigandi Sportvals, af- henda keppendum sigurverðlaunin. __ w & jT «5 - ...4fA ■

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.