Vísir - 11.04.1975, Blaðsíða 7
Vísir. Föstudagur 11. april 1975.
7
Þau minnstu vita sjálf
hvenœr þau þurfa að sofa
Það er misjafnt
hversu mikið börn
þurfa að sofa. Ársgam-
alt barn sefur venju-
lega 13 tima á sólar-
hring, en það er jafnal-
gengt að bam á þessum
aldri þurfi ekki nema
10 og hálfs tima svefn.
Sum geta þó þurft al-
veg 15 tima svefn á
hverjum sólarhring.
Þriggja ára barn þarf
venjulegast um 12 tima
svefn á sólarhring, en i
sumum tilfellum
tveimur timum minna
og i öðrum tveimur
timum meira.
Smábörn vita sjálf hversu
mikið þau þurfa að sofa, og það
er engin hætta á þvi að þau sofi
ekki nóg. Þau sýna það venju-
lega hvenær þau eru syfjuð og
segja frá þvf þegar þau vilja
ekki sofa.
Flest börn halda áfram að
sofa eitthvað á daginn fram yfir
2ja ára aldur. Þriggja ára börn
þurfa þó ekki öll svefn eftir há-
degið. Talið er að um f jórði hluti
þeirra þurfi að sofa á daginn.
Svefnþörfin er géysilega
breytileg, jafnvel hjá systkin-
um. I sumum fjölskyldum er til
dæmis hægt að finna þriggja ára
bam sem sefur reglulega eftir
hádegiðogalla nóttinaúti gegn.
A meðan kemst eins árs gamalt
systkini þess i gegnum allan
daginn án þess að þurfa svo
mikið sem að blunda. Það vakn-
ar jafnvel um miðja nótt og vill
fara að leika sér.
Þurfa að sofa hjá for-
eldrunum öðru
hverju......
Á forskólaaldrinum vaknar
fjórði hluti allra barna einu
sinni eða oftar á hverri nóttu.
Til þess að fá eins árs gamalt
bam til að sofna, ef það vaknar
um nætur, nægir oft að gefa þvi
að drekka eða hugga það.
Eldra barni nægir ekkert
minna en að flytja sig yfir til
mömmu og pabba. Leyfið þvi
það. Það getur vissulega raskað
svefnró foreldranna að hafa
bam i rúminu sem veltir sér
mikið og mikið fer fyrir. En
leyfið þvi að minnsta kosti að
sofna i rúminu. Siðan má flytja
það varlega aftur i rúmið sitt.
Ef þú hugsar sem svo að það
skuli alls ekki koma barninu
upp á þetta, og það skuli venja
sig við að sofa eitt i eigin rúmi,
mundu þá að einmitt nú getur
bamið verið á viðkvæmu stigi
og getur þurft á sérstaklega
miklum skilningi og öryggi að
halda. Ekki aðeins á daginn,
heldur lika um nætur. Flest
börn hætta smám saman af
sjálfu sér að vilja skriða yfir i
rúmið til pabba og mömmu.
Erfiðleikar með svefn
hjá l-3ja ára börnum
Auðvitað eiga mörg börn á
Svefnþörf barna er mjög misjöfn. Sum sofa allar nætur út f gegn. önnur vakna hvað eftir annað.
— en
hversu
mikinn
svefn
þurfa
l-3ja
ára
börn?
IIMIM
SÍÐAN
Edda
Andrésdóttir
þessum aldri erfitt um svefn.
Foreldrarnir eiga oft i miklu
striði, vegna þess að börnin
þeirra sofa ekki eins mikið og
þau „þurfa”.
Orsakirnar fyrir þvi að lítið
bam vaknar upp um nætur geta
verið margar, eitthvert atvik
sem kom fyrir daginn áður,
ókunnugt hljóð sem hefur vakið
þaðog þar fram eftir götunum.
Það má segja að það verði oft
til einn vitahringur þegar barn
vaknar aftur og aftur á hverri
nóttu. Foreldrarnir verða illir
yfir þvi að fá ekki sinn svefn og
eiga kannski erfitt með að sofna
aftur. Smátt og smátt eru þeir
yfir sig komnir af þreytu.
Bamið finnur illsku foreldranna
og svarar með þvi að vakna oft-
ar...
í slikum tilfellum getur þurft
að leita til læknis til þess að fá
dauft svefnmeðal handa
baminu. Það hjálpar bæði barn-
inu og foreldrunum.
Eftir þriggja ára aldurinn er
versta tfmabilinu lokið hvað
þetta varðar. En þá kemur fram
nýtt vandamál oft á tiðum:
bamið sem vill aldrei fara að
sofa á kvöldin....
FERMINGARGJÖF
Utvarp og segulband
í einu tœki
Gengur bœði fyrir
rafhlöðu og rafmagni
Skipholti 19. Sími 23800
Klapparstíg 26. Sími 19800
Sólheimum 35. Sími 21999