Vísir - 16.04.1975, Blaðsíða 6
Vlsir. ÍVliövikudagur 16. april 1975
vísrn
(Jtgefandi: Reykjaprent hf.
Framkvæmdastjóri: Sveinn R. Eyjólfsson
Ritstjóri: Jónas Kristjánsson
Fréttastjóri: Jón Birgir Pétursson
Ritstjórnarfulltrúi: Haukur Ilelgason
Auglýsingastjóri: Skúli G. JóhannesTön
Auglýsingar: Hverfisgötu 44. Simar 11660 86611
Afgreiösla: Hverfisgötu 44. Simi 86611
Ritstjórn: Slðumúla 14. Simi 86611. 7 linur
Askriftargjald 700 kr. á mánubi innanlands.
1 lausasölu 40 kr. eintakiö. Blaöaprent hf.
Tíu milljarða dagdraumur
Tiu milljarðar króna eru mikið fé. íslendingum
þætti ekki amalegt, ef þeir hefðu á hverju ári
heila tiu milljarða til umráða umfram það, sem
þeir hafa i dag. Sumt af þessu fé mætti nota til að
bæta lifskjörin, sumt til að hraða orkuþróuninni
og enn annað til að létta rekstur atvinnulifsins.
Menn kunna að telja það tilgangslitla dag-
drauma að ræða út i loftið um tiu milljarða. En
þessi tala er þannig komin, að hún er mismunur-
inn á nýtingu fjárfestingarpeninga okkar og
ýmissa nágrannaþjóða okkar, sem kunna betur
með fé að fara.
Við þurfum að leggja til hliðar 27% þjóðar-
teknanna eða 30 milljarða króna i fjárfestingu til
þess að ná út 4,5% hagvexti á ári. Danir ná svip-
uðumárangri út á 19% þjóðarteknanna, sem
nemur á islenzkri stærðargráðu um 20
milljörðum króna. Mismunurinn nemur 10
milljörðum króna á hverju ári.
Taka má tillit til þess, að vegna dreifbýlis er
fjárfesting dýrari hér en viða annars staðar. En á
móti þti kemur, að við losnum við fjárfestingu i
varnarmálum, sem viða eru veigamesti liðurinn i
fjárfestingu nágrannaþjóðanna. Byggðastefna
okkar á ekki að vera dýrari i rekstri en land-
varnir eru með öðrum þjóðum.
Hver er þá skýringin á óvenju lélegri nýtingu
fjárfestingarpeninga hér á landi? Hún er sú, að
fjármagnskerfi okkar er allt úr skorðum gengið.
Við búum ekki við markaðskerfi i fjármálunum
eins og allar nágrannaþjóðir okkar gera i höfuð-
atriðum, heldur pólitiskt kerfi. Með pólitiskum
aðgerðum hindrum við eðlilega fjármagns-
strauma i þjóðfélaginu, hindrum sjálfkrafa leit
fjármagnsins að hagkvæmustu kjörum og
arðbærastri fjárfestingu.
í fyrsta lagi eyrnamerkjum við verulegan
hluta af fjárfestingarpeningum okkar og verjum
til atvinnugreina og landshluta, sem hafa hlotið
pólitiska viðurkenningu. Á sumum sviðum rikir
jafnvel sjálfvirk fjármögnun og það til nánast
óarðbærra verkefna.
í öðru lagi mismunum við i lánakjörum eftir
pólitiskum forgangi atvinnugreina og landshluta.
Þetta kemur fram i hlutfalli lána af heildarfjár-
festingu, lánstima, vöxtum og rikisábyrgðum.
í þriðja lagi veitum við framleiðslustyrki,
niðurgreiðslur, útflutningsuppbætur og inn-
flutningsbann til að halda uppi óarðbærri fram-
leiðslu, sem hefur pólitiskan forgang.
1 fjórða lagi veitum við sumri framleiðslu
tekjutryggingu, jöfnunargjöld og sjóðamilli-
færslur, vitanlega á kostnað annarrar fram-
leiðslu, sem skilar arði til þjóðfélagsins á fljótari
og betri hátt.
í fimmta lagi höldum við uppi gifurlegri offjár-
festingu i opinberri þjónustu. Fyrir þann niður-
skurð, sem nú er fyrirhugaður, lét nærri, að opin-
ber f járfesting væri orðin 30% af allri f járfestingu
i landinu.
A ýmsan slikan hátt látum við handbært fjár-
magn þjóðarinnar renna i fyrirfram ákveðna
pólitiska farvegi án tillits til arðsemi. Ef við ber-
um árangurinn saman við aðrar þjóðir, er unnt
að halda þvi fram, að við brennum upp á þennan
hátt um tiu milljörðum króna á ári hverju.
-JK.
Umsjón: G.P.
Mýrlendi eitt hjá
Kaiseraugst i Sviss, þar
sem ætlunin er að reisa
kjarnorkuver, er sá
vettvangur, þar sem
umhverfisverndarmenn
hafa skorað lýðræðis-
skipulag Sviss á hólm.
Þar hafa milli 100 og
150 manns hafzt við i
tjöldum og timburskúr-
um frá þvi 1. april i til-
raunum sinum til þess
að stöðva frekari fram-
kvæmdir við gerð kjarn-
orkuvers, sem kosta á
82,5 milljarða króna.
Það á að verða tilbúið
eftir 5 ár.
Kaiseraugst er um 10 km frá
Basel, næststærstu borg Sviss.
Þetta hernám mýrarinnar er
ólöglegt með öllu. En yfirvöld
kantónunnar hafa samt leyft
tjaldbúum að koma sér upp elda-
skála og matsal og jafnvel gera
áætlanir um gerð smáhýsa og
ræktun garða til þess að gera
dvölina þarna i mýrinni þægi-
legri.
Þetta litla samfélag umhverfis-
vemdarmanna hefur meira að
segja komið sér upp áætlunar-
ferðum til þess að flytja fólk á
milli „hernámssvæðisins” og
næstu járnbrautarstöðvar.
Verktakinn, sem reisir þetta
925 megavatta orkuver, hætti
strax undirbúningi sinum, þegar
umhverfisverndarmenn settust
um staðinn. Hann hefur gert
skaðabótakröfur á hendur fjórum
forvigismönnum þessa mótmæla-
hóps, sem risið hefur gegn gerð
nokkurra kjarnorkuvera á landa-
mærum Sviss, Frakklands og
Vestur-Þýzkalands.
Enn sem komið er hefur verk-
takinn ekki kallað á lögregluna til
að fjarlægja mótmælendur. Seg-
ist hann þó tapa rúmri milljón á
dag.
Yfirvöld kantónunnar hafa for-
dæmt hernámið, sem þau segja
ólöglegt með öllu. Þau hafa neitaö
aö taka upp viðræður við tjald-
búa, fyrr en þeir hafa haft sig á
burt.
En hér er ekki bara við 100 til
150 manns að etja. Um 15 þúsund
manns þyrptust saman undir
regnhlifum og öörum verjum á
útifund, sem haldinn var á sunnu-
dag, og létu ekki úrhellisrigningu
aftra sér. Þar komu fram sautján
ræðumenn ýmissa flokka og
kröfðust þess, að hætt yrði við
kjamorkuvæöingaráætlun Sviss.
Jafnframt var krafizt atkvæða-
greiðslu i Kaiseraugst um málið.
Andstæðingar kjarnorkunnar
halda þvi fram, að of mörgum
orkuverum verði þjappað á sama
svæöið, og aö ekki hafi veriö gerð-
ar nægar öryggisráðstafanir.
„Tiu kjarnorkuver með sautján
til nitján kjarnaofna eru fyrir-
huguð á þessu svæöi, þar á meðal
frönsk og þýzk”, segir Hansjurg
Weder i viðtali við fréttamann
Reuters. Weder er formaöur
þeirra samtaka, sem snúizt hafa
gegn kjarnorkuverum, sem setja
skal upp i norðvesturhluta Sviss.
„Hvergi I heiminum er kjarn-
orkuverum þjappað svo saman.
Fimm eru innan 40 km frá Basel,
sem er nær þéttbýli en yfirvöld i
Bandarikjunum leyfa i sinu
landi.”
Borgarstjórnin i Basel mun
taka málið til umræðu á fundi
með landsyfirvöldum og Willi
Ritschard orkumálaráðherra
þann 6. mai. Hún mun krefjast
svara við þvi, hvers vegna
sambandsstjórnin leyföi fram-
kvæmdirnar áður en niðurstöður
veðurfræði- og náttúrurannsókna
lágu fyrir.
Stjórnir kantónanna hafa nú
einnig byrjað athuganir á þvi,
hvort þær séu bótaskyldar, ef
hætt verði við verkið. Fyrirtækiö,
sem Aargau-kantónan fól verkið,
og reyndar önnur fyrirtæki i
Kjarnaofn á byggingarstigi.
Kjarnorka
og lýðrœði
Kjarnorkuver I smlOum I Sovétrlkjunum. — Svisslendingum hefur nd
snúizt hugur og vilja ekki slik hjá sér.
orkuiðnaðinum, sem vinna að
hinum kjarnorkuverunum, segja,
að það gæti kostað skattgreiðend-
ur um 5370 milljónir króna I glat-
aðri f járfestingu, ef hætt yrði við.
Stjórnin i Bern, sem fór að ráð-
um sérfræðinga sinna um, að
nauðsyn væri á að minnsta kosti
þrettán kjarnorkuverum til þess
að anna rafmagnsþörf lands-
manna um næstu aldamót, hefur
variö geröir sinar fyrir mótmæl-
endum með þvi, að hún hafi ekki
vald til þess að hindra gerð kjarn-
orkuVera, ef þau uppfylla öll
lagaleg skilyrði.
t Kaiseraugst var samþykkt
meö 300 atkvæðum gegn 90 að
fella úr gildi ákvörðunina um að
leyfa smiði kjarnorkuvers.
Framkvæmdir áttu að hefjast á
næsta ári, en undirbúningsvinnan
hefur stöðvazt vegna hernámsins
i mýrinni. En sveitarstjórn Kais-
eraugst komst þá að raun um það,
að hún hafði ekki vald til þess að
afturkalla leyfið eða stöðva verk-
ið.
Þetta gat i lýðræðisskipulagi
Svisslendinga, sem byggist að
miklu leyti á þjóðaratkvæða-
greiðslum (fjórum á ári að
minnsta kosti) og minni atkvæða-
greiöslum heima i héruðum,
hefur vakið menn til umhugsunar
og leiddi til útifundarins stóra á
sunnudaginn. Ákvarðanir i flest-
um meiriháttar málum eru lagð-
ar I hendur kjósenda sjálfra, en
embættismenn hafa valdaminna
umboð en starfsbræður þeirra
vlðast erlendis.
Málið vekur feikilega athygli og
sá fjöldi, sem kom á útifundinn á
sunnudag, segir ekki alla söguna
þar um, þvi að veðrið var óskap-
lega óhagstætt til fundarsóknar.
Ræðumennirnir á fundinum
viðurkenndu, að aðgerðir um-
hverfisverndarmanna væru ólög-
legar. En þeir sögðu, að öll ráð til
þess að fara pólitiskar eöa réttar-
farslegar leiðir hefðu verið reynd
til þrautar.
1 upphafi hafði verktakinn ætl-
aö að nota ámar Rin og Aare til
þess aðkæla kjarnaofna orkuver-
anna. Þvi var synjað af um-
hverfisverndarástæðum. Nefnd á
vegum rlkisstjórnarinnar sam-
þykkti siðan gerð risaturna, sem
notaskal i þess stað, og verktak-
inn fékk leyfi til að halda áfram.
„Þrjár athuganir á vegum þess
opinbera eru enn i gangi”, segir
Weder, talsmaður umhverfis-
vemdarmanna. „Þessar athug-
anir lúta að þvi að rannsaka,
hvaða áhrif kjamorkuverin muni
hafa á umhverfi sitt. — Niður-
stöður þeirra hafa ekki verið birt-
ar opinberlega, en okkur er kunn-
ugt um, að áhrif orkuveranna á
veðurfarið verða hrikaleg”.
Umhverfisverndarmenn kviöa
þvi, að gufustrókar frá orkuver-
unum muni hafa i för með sér
svo miklar breytingar á veður-
fari, sem aftur leiði svo til breyt-
ingará umhverfinu i Baselhérað-
inu.
Þeir vonast til þess, að lands-
stjórnin sjái sér fært á grundvelli
þessara athugana aö stöðva
framkvæmdir við orkuverin.