Vísir - 16.04.1975, Síða 16
vísm
Miðvikudagur 16. april 1975
Samvinnubankinn
í stórsókn:
Síðasta ór
hagstœðara
en nokkru
sinni fyrr
Samvinnubankinn sækir i sig
veðrið. Rekstursafkoma hans var
á siðasta ári hagstæðari en
nokkru sinni fyrr.
Tekjuafgangur, sem var til
ráðstöfunar, nam 43,7 milljónum
króna samanborið við 28,2
milljónir árið áður. Eigið fé var i
árslokin 175.6 milljónir. Hluthaf-
ar fá tólf prósent arð.
Framkvæmdum við nýbygg-
ingu bankans i Bankastræti 7
lýkur í næsta mánuði.
Heildarinnlán bankans jukust á
siðasta ári um 31,7 prósent og
námu riflega 2,5 milljörðum
króna. Þetta var nokkru meira
en meðaltalsaukning innlána i
bankakerfinu. Spariinnlán jukust
um 34,4% og veltiinnlán um 22%.
Útlánin jukust um 32,6%.
Heildarveltan, það er straumur
fjármagns gegn um bankann,
jókst um hvorki meira né minna
en 47,8 prósent.
Útlánin námu i árslok i heild
um 2,1 milljarði.
-HH.
ísinn fjœr
tsinn hefur nú fjarlægzt landið.
TF-SÝR . flugvél Landhelgis-
gæzlunnar fór i iskönnunarflug
fyrir Vestur- og Norðurlandi á
mánudag. Kom þá i ljós að megin
isröndin var 65 sjómilur frá
Deild, 50 sjómilur frá Horni, 65
sjómilur frá Grimsey og 85 sjó-
milur frá Melrakkasiéttu.
Fyrir sunnan meginisröndina
voru dreifðir jakar og isspangir
frá 5-25 sjómiiur
tsinn er nú nokkuð meiri en hin
siðari ár, en þó ekki nærri eins
mikil og t.d. á árunum 1965, 1968
og I kringum 1970.
-EA.
Göturnar
bara góðar
eftir
veturinn
— enda tíð ekki eins
umhieypingarsöm
og oft óður
„Göturnar i Reykjavik eru til-
tölulcga góðar eftir veturinn”,
sagði gatnamálastjóri, Ingi Ú.
Magnússon, þegar við höfðum
samband við hann.
Hann gat þess, að slit væri þó
geysimikið eftir nagladekkin, en
þó væru göturnar ekki eins illa
famar eftir veturinn og svo oft
áður.
Sagði hann það sérstaklega
vera vegna þess, að tið hefur ekki
verið eins umhleypingasöm i vet-
ur og áður.
Sumir hafa álitið, að menn
hefðu ekki keyrt bila sina eins
mikið i vetur og fyrr. Ekki kvaðst
gatnamálastjóri merkja það, en
sagði, að þar kæmi þó sjálfsagt á
móti bilaaukning i Reykjavik.
Hann sagði, að hafið yrði fljót-
lega viðhald á götunum, ef tiðin
verður góð.
— EA
SMYRILL — Seyðisfjörður eða Reyðarfjörður?
Ákvörðun tekin snemma
i nœstu viku
„Við höfum séð aðstöðuna
bæði i Seyðisfirði' og Reyðar-
firði og förum nú heim og leggj-
um málið fyrirlandsstjórnina.”
Þetta sagði Thomas Arabo hjá
Strandfaraskip landsins i Fær-
eyjum, þegar Visir hitti hann að
máli í morgun á Hótel Esju,
ásamt Sigurd Simonsen, ferða-
mannastjóra i Tórshavn.
Þeir eru hér til að kanna að-
stæður fyrir bilaferjuna Smyril.
„Höfnin i Seyðisfirði er mjög
góð, en samgöngur á landi að
staðnum og frá eru lakari. í
Reyðarfirði er þessu snúið við.
Þar eru samgöngur á landi
ákjósanlegar, en höfnin ekki
alveg eins góð.
Akvörðun um, hvor staðurinn
verður fyrir valinu, verður tekin
mjög fljótt, liklega á mánudag
eða þriðjudag, þvi á hvorum
staðnum, sem verður fyrir
valinu, þarf að gera vissar lag-
færingar, og það verður að
byrja á þeim eins fljótt og
kostur er.”
Thomas og Sigurd voru sam-
mála um, að mikill áhugi væri á
ferjunni og margar fyrirspurnir
hefðu komið, ekki sizt i Færeyj-
um og á Islandi. Bæði Reyð-
firðingar og Seyðfirðingar buð-
ust til að koma upp þeirri að-
stöðu, sem með þyrfti. Ekki hef-
ur verið ákveðið, hver verði um-
boðsaðili hér, en að likindum
verður einn aðalumboðsmaður,
en allar ferðaskrifstofur geti
selt far með skipinu.
Ekki vildu þeir gefa upp, hvor
Tii vinstri er Thomas Arabo, starfsmaður Strandfaraskips iandsins,
sem er sambærileg stofnun og Ríkisskip. Hægra megin er Sigurd
Simonsen, ferðaskrifstofumaður frá Þórshöfn. Ljósm. Vfsis Bragi
staðurinn þeim þætti álitlegri,
Seyðisfjörður eða Reyðarfjörð-
ur. Thomas sagðist að visu hafa
ákveðna skoðun á því, en gæti
ekki látið hana uppi áður en
hann hefði talað við þá, sem
hann er umboðsmaður fyrir.
Fyrsta ferð Smyrils til Islands
er áætluð 21. júni, og siðan
hvem laugardag til 23. ágúst, 10
ferðir i allt. Fjórar þeirra verða
famar um Leirvik á Hjaltlandi.
Farið til Færeyja kostar röskar
tiuþúsund krónur fyrir manninn
i tveggja manna klefa, en rösk
sautján þúsund til Bergen. I 6-8
mannaklefum er fargjaldið um
9 þúsund krónur til Færeyja en
um 15 þúsund til Bergen. Fyrir
bilinn kostar um 3.400 kr. til
Færeyja, en um 6.500 til Bergen.
Milli Færeyja og Islands er ferj-
an aðeins 15 tima, og „Is-
lendingar hafa séð það svartara
en vaka á dekki þann tima,”
sagði Thomas Arabo.
1 dag munu Færeyingarnir
hitta Halldór E. Sigurðsson,
samgönguráðherra, og sfðan
halda blaðamannafund. Þeir
fara heim á morgun.
— SHH
„TREYSTUM
FÆREYINGUM TIL
AÐ VELJA
HLUTLAUST"
— sagði bœjarstjórinn á Seyðisfirði
„Færeyingarnir komu hér I
gær og leizt afskaplega vel á
allar aðstæður,” sagði Jónas
Hallgrimsson, bæjarstjóri í
Seyðisfirði I viðtali við Vfsi I
morgun. „Það var ekkert,
sem vantaði hér á. Ferjan á að
geta athafnað sig hér með
örlitilli breytingu á nýju,
steinsteyptu bryggjunni.
Við vitum ekki betur en að
þetta fullnægi öllum þeirra
kröfum. Viðvikjandi yfir-
lýsingum sveitarstjórnar-
manna, eins og fram komu i
Visi i gær, að Fjarðarheiði sé
ekki fær eins drifs bilum með
hjólhýsum má benda á það, að
hér i Seyðisfirði eru eins drifs
bflar með hjólhýsi, og menn
hafa ekki orðið þess varir hér,
að þeir kæmust ekki leiðar
sinnar. Þetta er algerlega
órökstutt og reyndar ódrengi-
legt að gera samanburð sem
þennan. Auk þess treystum
við Færeyingunum miklu bet-
ur til að velja hlutlaust þarna
á milli, þegar þeir eru búnir að
skoða báða staðina,” sagði
Jónas Hallgrimsson. „Að-
stæðurnar höfum við með
okkur.” -SHH.
ibúar i Breiðholtinu, og þá
sérstaklega I þvi efra, hafa beð-
ið eftir, að lagður yrði vegur úr
neðra Breiðhoitinu og þangað
upp eftir, þvf það kemur til með
að stytta leiðina þangað mikið.
Þegar við ræddum við gatna-
málastjóra, Inga Ú. Magnús-
son, tjáði hann okkur, að lagn-
ing þessa vegar væri á fram-
kvæmdaáætlun I ár. Ekki viidi
hann þó timasetja það nánar,
hvenær búast mætti við vegin-
um fullgcrðum.
Nánar tiitekið liggur vegur
þessi frá Höfðabakka i neðra
Breiðholti upp i Vesturhóla i
efra Breiðholti.
Menn hafa kannski lika tekið
eftir þvi, að þegar hefur vegur
þessi verið merktur inn á kort
nýju simaskrárinnar.
— EA
ÞEIR FA
VEGINN TIL
SÍN í ÁR