Tíminn - 31.07.1966, Blaðsíða 3
SUNNUDAGUR 31. júlí 1966 TIMINN
Frá Kaupmannahöfn ber
ast þær fregnir, að óhreinir og
ræfilslegir útlendingar hafi
svo að segja lagt undir sig
aðalverzlunargötu borgarinn
ar „Strauið“. Þessir náungar
hafa það fyrir stafni að mála
á götuna alls kyns myndir, allt
frá madonnumyndum upp í
★
Fabíóla drottning missti fóst
ur í þriðja skipti mjög nýlega.
Hún liggur enn á sjúkrahúsi
og er líðan hennar góð eftir
atvikum. Sögusagnir herma, að
þetta fósturlát hafi haft svo
mikil áhrif á Baldvin Belgíu
konung, að hann muni ef til
vill afsala sér konungdómi.
Svipaðar sögusagnir gengu þeg
ar Fabíóla missti síðast fóstur,
og ekki er líklegt, að hér búi
nokkur alvara á bak við. En ef
svo fer, sem sögusagnirnar
herma, verður það Albert bróð
ir Baldvins, sem hreppir kon-
ungdóm. Hann og Paola prins
abstraktverk. Til þess er ætl-
ast, að vegfarendur greiði fyr
ir þessi listaverk og áður en
listamennirnir hefjast handa,
teikna þeir upp dálítinn fer
hyrning og fyrir ofan hann
krota þeir orði^- Þökk fyrir.
í þennan ferhyrning á að
leggja greiðsluna.
essa eiga þrjú börn og er það
haft fyrir satt, að uppeldi son
arins Phillippe miðist við, að
hann verði konungur, þeg-
ar fram líða stundir.
★
Svo virðist sem kaþólska
kirkjan sé eitthvað að linast
í andstöðu sinni gegn takmörk
unum barneigna. Segir í
ítölsku blaði nú fyrir skömmu
að Páll páfi hafi í hyggju að
leyfa giftum konum að nota
getnaðarvarnapillur 18 mánuð-
um eftir síðustu fæðingu. Ógift
ar stúlkur fá hins vegar enga
úrlausn í þessum efnum.
6. ágúst næstkomandi munu
Luci Johnson, dóttir Banda
ríkjaforseta og Patrick Nugent
verða gefin saman í hjóna
band. Þau hafa orðið sér úti
um tveggja herbergja íbúð í
Austin í Texas, og hún hefur
verið útbúin smekklegum hús
gögnum. Þau hjónin munu
ekki hafa. efni á því að hafa
vinnukonu heldur verður Luci
að gera öll húsverk upp á eig
in spýtur, samhliða því sem
hún sækir fyrirlestra við Texas
háskóla. Brúðargjafirnar eru
þegar farnar að streyma til
Hvíta hússins, m.a. hefur frú
Robert McNamara gefið Luci
risastóran demantshring, þá
hafa þau fengið mikla og veg
lega silfurtekönnu, sem kost
ar hátt á þriðja þúsund doll-
ara. Johnson Bandaríkjaforseti
var sagður mjög á móti þess-
um ráðahag, er ungu skötuhjú
in voru að draga sig saman,
en hann hefur greinilega sætzt
við dóttur sína og tilvonandi
tengdason.
★
Fyrir rúmri viku voru þau
Anita Lindblom, sem fræg er
fyrir dægurlagið Saa'nt aar liv
et og hnefaleikakappinn,
Bosse Högberg, gefin saman í
hjónaband í ráðhúsinu í Kaup
mannahöfn. Rógtungur segja,
að brúðkaupið og allt sem til
heyrði því hafi verið borgað
af sænskum dagblöðum og
tímaritum, þetta hefði allt ver
ið eins og leiksýning og enga
rómantík hefði verið að sjá á
ungu brúðhjónunum.
★
Drekafrúin, frú Nhu, sem á
sínum tíma var álitin pottur-
inn og pannan í öllu, sem gerð
ist í Suður-Vietnam er nú í
góðu yfirlæti suður á Ítalíu.
Mörg blöð hafa freistað þess
að ná af henni tali, en það er
ekki á hvers manns færi, því
að hún krefst þúsund sterl
ingspunda fyrir hálftíma við-
tal. Tímarit nokkurt í París lét
þessa háu greiðslu ekki aftra
sér frá því að tala við Dreka
frúna, og náði mjög góðu við-
tali við hana. Þar segist hún
hafa mikla samúið með komm
únistum í Suður-Vietnam.
„Þeir eru Vietnambúar og þjóð
ernissinnar eins og við,“ sagði
hún. Þessi breytta afstaða
Drekafrúarinnar hefur að von-
um vakið talsverða athygli.
★
Sænska prinsessan Birgitta
og maður hennar Johann
George von Hohenzollerns eign
uðust fyrir skömmu son og
mun hann vera þriðja barn þess
ara tignu hjóna. Fyrir nokkrum
dögum var drengurinn skírður
í Maria Königen kirkju i
Miinchen Griinwald. Upp á kon
unglega vísu heitirhannfjöldan
allan af nöfnum, nefnilega Hu-
bertus Gústaf-Adolf. Veit
Georg, Meinrad, Maria og Alex-
ander. Það fylgir ekki sögunni,
hvað foreldrarnir ætla að láta
kalla þennan unga son sinn.
★
Hinn dáði kvikmyndaleikari,
Gary Grant, hefur nú ákveðið
að taka ekki að sér fleiri ástar-
hlutverk. Hann segist gera
þetta af frjálsum og fúsum
vilja, því að það sé ekkert vit
í því að maður á sjötugsaldri
sé að eltast við kvikmynda-
stjörnujr, sem fæddar séu eftir
heimsstyrjöldina síðari. Gary
Grant er nú 62 ára að aldri, en
hann hefur til þessa farið alveg
varhluta af öllum ellimörkum.
Sólin hefur svikið París-
arbúa á þessu sumri, og hafa
þe'ir því þurft að sækja á önn
ur mið til að verða sér úti um
sólbrúnku. Þannig er því farið
um þessar þrjár persónur, sem
Á þessari mynd sést Julie
Andrews Oscarverðlaunahafi
virða fyrir sér styttu af hinum
fræga kvikmyndaframleiðanda
og stjórnanda Alfred Hitch-
myndin sýnir. Þetta eru þau
Jacques Chazot dansari, hin
víðfræga dægurlagasöngkona
Julietta Greco og franski rit-
höfundurinn Francoise Sagan.
cock, þar sem verið er að út-
búa styttuna til sendingar til
vaxmyndasafns Madame Tuss-
aud í London.