Vísir - 09.05.1975, Side 1
vism
65. árg. —Föstudagur 9. mal 1975 —103. tbl.
ENN Á AÐ KÓLNA
Enn spá veöurfræðingar
þvi, aO veður fari kólnandi. t
morgun var hitinn þrjú stig i
Reykjavik, en við getum
verið róleg, á meðan ekki
snjóar á okkur. Það gerði
það hins vegar á Vestfjörð-
um. Þar var allhvöss norð-
anátt og snjókoma i morgun.
Er spáð, að fyrst kólni á
Norður- og Vesturlandi,
siðar einnig i öllum halds-
hlutum.
t Reykjavik er spáð norðan
og siðar norðaustan kalda
eða stinningskalda, skúrum
eða slydduéli i fyrstu, en
siðan léttir til. —EA
Hvorugur vill hnika við Sigöldu:
BINGÓ í HITA ÁTAKANNA
/,Það var ný tilhögun á
frídögunum, sem olli því
að endanlega sauð upp
úr," sögðu íslenzkir
starfsmenn inni við Sig-
öldu, er Vísismenn ræddu
við þá í nótt.
„Við höfum áður átt i ýmsum
útistöðum við júgóslavnesku
verktakana vegna öryggismála,
aðstöðu og áhættuþóknunar og
atvinnuleyfislausra Júgóslava.
Við teljum, að þeir hafi æ ofan i
æ virt þá samninga að vettugi,
sem þeir sjálfir hafa undirrit-
að,” sögðu verkamennirnir, er
blaöam. ræddi við, og var
greinilegt, að I þetta sinn yrði
hvergi hnikað. Frá 12 á hádegi i
gær hefur verið um algera
vinnustöðvun að ræða inni i Sig-
öldu. Ástæðan fyrir þvi að end-
anlega sauð upp úr var sú, að
verkamennirnir fengu ekki
greidd laun fyrir dagana 30.
april og 2. mai, vegna þess að
ekki var unnt að ganga til vinnu
vegna veðurs.
„Málið er það að við vorum að
koma úr frii þann 28. og 29.
april. Daginn þar á eftir var
veðrið það slæmt, að engin leið
var að vinna utan dyra, og
vorum við þvi sendir i bæjarfri á
ný. Það, sem við vissum hins
vegar ekki var, að úthaldstim-
anum hafði verið breytt á þann
hátt, að þessir tveir dagar
reiknuðust ekki til vinnudaga,”
sagði hópur vinnufélaga, sem
blaöið ræddi við i morgun.
Þessi breyting á vinnutilhög-
un mun hins vegar hafa veriö
gerð með samþykki Sigurðar
Óskarssonar, formanns full-
trúaráðs verkalýðsfélaganna i
Rangárvallasýslu, en án sam-
þykkis verkamannanna. Verka-
mennirnir halda þvi fram, að
rangar upplýsingar hafi fengið
Sigurð til að samþykkja þessar
umræddu breytingar.
í nótt var litið um mannaferð-
ir inni við Sigöldu, en vanalega
eru þar rúmlega hundrað ís-
lendingar að störfum á þeim
tima sólarhringsins. Þó héldu
dælumenn áfram sinni vakt með
undanþágu og einstaka sinnum
óku verkfallsverðir um svæðið.
1 mötuneytinu var aftur á móti
margt um manninn alla nóttina
og mikið skrafað.
Engir Júgóslavar eru aö
störfum á næturnar, en I gærdag
meinuðu Islendingarnir þeim aö
ganga til vinnu. Voru flestir
júgóslavnesku verkamannanna
mjög samvinnuþýðir, en um það
bil átta þeirra þurftu islenzku
verkfallsverðirnir þó að elta um
svæðið, áður en þeir lögðu niöur
vinnu.
1 morgun klukkan sjö mættu
Júgóslavarnir til morgunverðar
að vanda, en voru engir á þeim
buxunum að hefja vinnu.
„Þetta verkfall truflar okkur
ekki persónulega, en við ótt-
umst þó, að fyrirtækið okkar
muni biöa skaða af,” sögðu
tveir Júgóslavanna I morgun.
„Hvort við fáum laun greidd á
meðan íslendingarnir eru i
Stórgrýtið kom
fljúgandi í
gegnum skúrþakið
Islenzku verkamennirnir settu upp vegatálma til að hindra, að stórvirk verkfæri kæmust til verka sinna I morgun klukkan sjö.
verkfalli? Það er nú annaö
vandamál”.
Júgóslavarnir telja, að með
þessu verkfalli hafi Islending-
arnir sagt störfum sinum laus-
um, og hafa Júgóslavarnir af
þeim sökum beðið þá að yfir-
gefa svæðið, en Islendingarnir
neita aðfara. Verktakarnir hafa
á engan hátt reynt að flýta fyrir
brottförinni og hafa Islending-
arnir mat og húsnæði jafnt og
áður.
Júgóslavnesku verkamenn-
irnir höfðu I morgun ekki enn
viljað ræða við islenzku verka-
mennina um deiluatriðin.
„Yfirmenn verktakafyrirtæk-
isins komu saman til fundar I
morgun og ég get ekkert sagt
um framvindu málsins, fyrr en
niðurstöður þess fundar liggja
fyrir”, sagði Pétur Pétursson,
starfsmannastjóri verktaka-
fyrirtækisins.
„Ég er að fara á þennan fund
núna til að kanna hljóöið i yfir-
mönnunum og get ekkert sagt
um næsta leik þeirra fyrr en
fundinum lýkur,” sagði Pétur,
er Visismenn náðu tali af honum
undir hádegið.
1 gærkvöldi var slegið upp
allsherjar bingói i mötuneytinu
inni við Sigöldu og skemmtu
bæði íslendingar og Júgóslavar
sér konunglega og gleymdu öll-
um sinum deilumálum um
stund.
Fór aftur inn um sama glugga
til að nó sér í bíl - baksíða
Erlingur Árnason rafvirki viö
Sigöidu var nýgenginn frá
kaffiskúr við dæiumannvirkin,
er gifurleg sprenging kvað viö
og stórgrýtinu rigndi yfir svæð-
ið. Stærðarsteinn lenti á þaki
kaffiskúrsins, reif það i sundur
og lenti I góifinu og stakkst ofan
I það.
Atvikið átti sér staö, skömmu
eftir að verkfall Islendinganna
hófst klukkan 12 á hádegi i gær.
Sprengiefni haföi verið komiö
fyrir i bjargi skammt frá kaffi-
skúrnum og þótti ráölegra að
sprengja strax heldur en aö biöa
eftir, að vinnudeilan leystist.
Fáir voru á svæðinu vegna
verkfallsins en I umræddum
skúr voru þó dælumenn á vakt.
Erlingur var einn eftir inni, en
skömmu áður en sprengingin
dundi yfir, varð honum gengið
út og gat eldsnöggt forðaö sér i
skjól við stóra ýtu, er grjótregn-
ið dundi yfir, Hefði maður setiö
við kaffiborðiö, þar sem steinn-
inn kom niður, heföi vart þurft
að spyrja að leikslokum.
Starfsmenn við dæluna skoða,
hvar steinninn rauf þak kaffi-
skúrsins og grófst I gólfið.
Ljósm. BG.
FREYJURNAR
STÖÐVA FLUGIÐ
— baksíða
Stofna íþrótta-
menn sína eigin
ferðaskrifstofu?
— baksíða
Jóhannes
Eðvaldsson:
„Aldrei eins
svekktur..."
r
— Iþróttir í opnu
Blaðakona
gerist aflakló
- INN-síða
ó bls. 7