Vísir - 09.05.1975, Blaðsíða 3
Vlsir. Föstudagur 9. mai 1975.
3
/#
VIÐ ERUM EKKI FERÐASKRIF-
STOFA SEM SELUR SÓL
— heldur klúbbur áhugafólks sem vill kynnast öðrum löndum og þjóðum
segir talsmaður ferðaklúbbsins, sem Ferðafélagið klofnaði út af
— Moniseur Christian Pinot —
viil feröast um island á sama
grundvelli og islendingar.
I/
„Viö erum ekki aö selja
túrisma, heldur erum viö aö
stofna til kynna,” sagöi
Christian Pinot, aöalritari
franska feröaklúbbsins
Nouvelles Frontiers
Association, en sá klúbbur var
mjög haföur á oddinum, þegar
úfar risu sem hæst I Feröafélagi
islands I febrúar siöastliönum.
„I sambandi viö deilurnar
innan Ferðafélagsins var klúbb-
ur okkar dreginn inn i myndina
og starfsemi hans stórlega
rangtúlkuð,” sagði Moniseur
Pinot. „Fyrst og fremst erum
við ekki ferðaskrifstofa, sem
selur sól, heldur klúbbur, sem
starfar án fjárhagshagnaðar að
þvi að gefa félögum tækifæri til
að uppgötva önnur lönd, kynn-
ast þeim, fólkinu þar og lifinu
almennt á lágu veröi, sem við
gerum fyrst og fremst með þvi
að skipuleggja ódýrar leiguflug-
ferðir. Meira að segja farar-
stjórarnir eru ekki launaðir.
Þeir eru áhugamenn rétt eins og
hinir' og fá aðeins ferðina
ókeypis til endurgjalds fyrir
ómak sitt.
Ferðir okkar byggjast á vilja
fólksins til að lifa i samlyndi við
þær þjóðir, sem það heimsækir,
blanda geði viö þær og forðast
að spilla neinu fyrir þeim. Það
fólk, sem velur Islandsferðir,
gerir það að yfirlögðu ráði af þvl
það vill raunverulega kynnast
Islandi, bæði þéttbýlinu, þar
sem skemmtanalifið er og
stjórnunin fer fram, og ein
landsbyggðinni og óbyggðum.
Þetta fólk býr sig undir ferðirn-
ar, með þvl að lesa um tsland,
og fræðast um það á annan hátt.
Það er siður en svo, að það vilji
spilla neinu hér eöa ;menga —
þvert á móti, mest af okkar fólki
er einmitt fóíkiö, sem berst móti
náttúruspjöllum og mengun
heima fyrir.
Sagt var, að viö hefðum I
hyggju að einoka sæluhúsin, en
það er lika mikill misskilningur.
Sé þar pláss, viljum við fegin
fá gistingu meö öðrum, en alls
ekki loka þeim fyrir öðrum. En
mér þykir, sem klúbbur okkar
hafi verið ómaklega dreginn inn
I deilur hér heima fyrir, sem við
eigum engan þátt I, og honum
hafi verið lýst þar á neikvæðan
og rangan hátt. Ferðir okkar
hingað eru ekki „frönsk bylt-
ing” eða „frönsk innrás”, þar er
Bifreiðakaup fjármóiaráðherra:
ALLT MEÐ FELLDU
— segia
umboðsmenn og
r
Landsbanki Islands
Asakanir Vilmundar Gylfasonar I garð f jármálaráöherra og bllakaupa hans hafa vakiö mikla athygli
aö vonum. Ráöherra hefur nú sent VIsi yfirlýsingu vegna ummæla Vilmundar. Þá hefur blaöinu einnig
borizt yfirlýsing Veltis h.f., Landsbanka tslands og Gunnars Asgeirssonar forstjóra.
Yfirlýsing
fjármálaráðherra
í þættinum „Um daginn og
veginn” sl. mánudagskvöld og I
Kastljósi sjónvarpsins hinn 21.
marz sl. var dylgjað um bif-
reiðakaup mln, eins og áður
hafði verið gert I Alþýðublaðinu
18. febrúar sl. Ég sá þá ekki
ástæðu til að svara. Þar sem
þessar dylgjur hafa nú verið
viðhafðar i hljóðvarpi leyfi ég
mér að óska eftir þvi að meö-
fylgjandi yfirlýsingar verði
birtar og þykir rétt aö taka fram
eftirfarandi:
1. Bifreið þá, sem hér um ræðir,
pantaöi ég hjá Velti hf. 13.
september 1974 og átti hún að
afgreiðast frá verksmiðju 28.
október — 9. nóvember það
ár.
2. Vegna framleiðslutafa, sem
mér eru aö sjálfsögðu óviö-
komandi kom bifreiðin ekki
til landsins fyrr en 16. janúar
sl.
3. Ég greiddi andvirði bifreið-
arinnar til Veltis hf. 23. janú-
ar sl. Fyrirtækið greiddi hana
ásamt öörum bifreiöum I
banka 24. janúar sl.
4. Innflutningur bifreiðarinnar
var á vegum Veltis hf. og án
nokkurs atbeina af minni
hálfu. ■
5. Þessu til staöfestingar fylgir
hér með yfirlýsing frá Velti
hf. Ennfremur staðfesting
Landsbanka Islands á þvl að
bifreiðin var greidd I banka
24. jan. og að á þessum tlma
voru engar gjaldeyrishömlur
komnar til, þær voru settar á
29. jan.
6. Gengi islenzku krónunnar var
lækkað 12. febrúar 1975.
7. Meðfylgjandi yfirlýsing
Gunnars Asgeirssonar, for-
stjóra sýnir, að Vilmundur
Gylfason vissi betur en hann
lét I veðri vaka sl. mánudag
er hann flutti erindi sitt „Um
daginn og veginn.”
Virðingarfylist
Reykjavlk, 7. mal 1975
Matthlas A. Mathiesen
Yfirlýsing frá
Velti h/f
í framhaldi af umræðum I
fjölmiölum, sem orðið hafa um
bifreiðakaup Matthiasar A.
Mathiesen fjármálaráðherra i
janúarmánuði slðastliönum,
viljum vér gefa eftirfarandi
yfirlýsingu.
Bifreiöin, sem er af geröinni
VOLVO árgerð 1975 var pöntuð
af oss, til VOLVO AB I Gauta-
borg, þann 13. september 1974.
A.B. Volvo staðfesti þá, aö bif-
reiðin mundi afgreidd frá verk-
smiðju á timabilinu 28. október
til 9. nóvember sama ár. Vegna
ýmissa tafa á afgreiðslu á gerð-
inni VOLVO 264, reyndist af-
greiðslan óframkvæmanleg fyrr
en eftir áramót.
Bifreiðin var siöan afgreidd
frá verksmiðjunni 9. janúar 1975
á reikningi nr. A-0520147 og kom
til landsins með M/S Hvitá þann
16. janúar 1975, á farmskrá nr.
6.
Samkvæmt bókhaldi voru, og
kvittun fyrir greiðslu nr. 872,
greiddi fjármálaráðherra and-
viröi fob-verðs bifreiðarinnar til
vor þann 23. janúar s.l.
Bifreiðin var slðan greidd i
Landsbanka Islands, Laugavegi
77, þann 24. janúar s.l. sam-
kvæmt bankastimpluðum gögn-
um I bókhaldi voru og meðfylgj-
andi staðfestingu Landsbanka
íslands, Austurbæjarútibús.
Þann sama dag var einnig
greidd ein vörubifreið og ein
fólksbifreið, báöar af
VOLVO-gerð. I vikunni á eftir,
þ.e.a.s. til ogmeð 28. janúar fór
fram afgreiðsla I þessum sama
banka, á fimm fólksbifreiöum
og einni vörubifreið, allar af
VOLVO-gerð. Ekki var um
neina afgreiðslutregðu að ræða
af hálfu bankans á þessu tlma-
bili, sbr. áðurnefnda staðfest-
ingu Landsbankans. Tekið skal
fram, að allar bifreiðar, sem
fluttar eru inn af VELTI HF,
eru á nafni fyrirtækisins, en
ekki nafni væntanlegra kaup-
enda þeirra og annast fyrirtæk-
ið þvi algjörlega um innflutning
þeirra.
Reykjavik, 7. mal 1975.
Asgeir Gunnarsson, forstjóri.
Arni Filippusson, sölustjóri.
GIsli Steinsson, skrifstofustjóri.
Staðfesting
Landsbanka íslands
Veltir h.f.
Suðurlandsbraut 16
Reykjavik
Skv. beiðni yðar staðfestum
vér að innh. nr. 479462 (invoice
no. A 0520147) að upphæð Skr.
20.824,00 fyrir bifreiö, var af-
greidd hér i bankanum 24. jan.
s.l., enda voru frilistakröfur
gegn staðgreiðslu afgreiddar
með eðlilegum hætti fram til 29.
janúar s.l. samkvæmt gildandi
gjaldeyrisreglum.
Reykjavik 7. mai 1975
Landsbanki íslands
Austurbæjarútibú
Yfirlýsing
Gunnars Ásgeirssonar
Vegna ummæla Vilmundar
Gylfasonar I þættinum „Um
daginn og veginn” s.l. mánu-
dag, þar sem hann ræðir enn um
greiðslur bifreiða I banka fyrir
lokun á gjaldeyri 1 janúar s.l.,
vil ég aö fram komi þaö, sem á
milli okkar fór, fyrir þáttinn
Kastijós um miðjan marz.
Vilmundur hringdi til mln og
óskaöi eftir upplýsingum um
hvenær við heföum siöast leyst
bíl úr banka.
Þar sem ég hafði ekki við
hendina stimplaða bankapapp-
ira, spurði ég tollmann minn um
þetta atriði, en hann skráir allar
vörur með dagsetningu, sem I
toll fara.
Slðustu bilar, sem I toll fóru
frá okkur var 29. janúar og
sagði ég þvl Vilmundi, að ef að
likum lætur hafi þeir verið
greiddir 1-2 dögum áður.
Slðan spyr hann, hvort bill
fjármálaráöherra sé einn af
þeim. Svarið, sem hann fær er,
að hann fór i toll 24. janúar og
hafi þvi væntanlega verið
greiddur 22. eða 23. janúar I
banka.
• Þar sem hannminntist á bil
ráðherra, þá bað ég hann að
koma þvl að I þættinum, vegna
ummæla i Alþýðublaðinu, að bill
fjármálaráðherra hafi verið
pantaður s.l. haust, en af-
greiðsla tafizt. Hinsvegar hafi
hann veriö leystur út strax og
papplrar komu og þvl væntan-
lega verið greiddur I banka
22.-23. janúar eins og fyrr segir
og þá engar afgreiðslutafir á
gjaldey risyfirfærslum.
Að mér dytti i hug, að mann-
inum væri ekki treystandi fyrir
aö koma leiöréttingu á framfæri
er mér fjarri, hinsvegar segir
hann I þessum þætti, að Veltir
hafi haft sérfriðindi I bankan-
um, þar sem hvorki Hekla h.f.
eða P. Stefánsson h.f. hafi feng-
ið að greiða sendingu bila 4 dög-
um fyrir lokun.
Að Veltir h.f. hafi haft einhver
sérfriðindi vegna afgreiðslu
gjaldeyris i banka á ég bágt
með að trúa, enda e.t.v. meining
Vilmundar aö gera tortryggi-
lega greiðslu vegna fjármála-
ráöherra.
Að sjálfsögðu á maður að vara
sig á fréttamönnum en ég hefi
verið það heppinn um dagana i
flestum tilfellum aö hafa átt
viðtal við heiðarlega frétta-
menn sem viljaö hafa það sem
sannast reynist.
Reykjavlk, 7.mai 1975.
Gunnar Asgeirsson.
aðeins á ferðinni fólk sem
einmitt óskar eftir því að fara
með friði og valda sem minnstri
truflun. Það óskar þess að ferð-
ast um Island og kynnast þvi
nákvæmlega á sama hátt og fé-
lagar Islenzku ferðafélaganna,
sem við höfum haft samvinnu
við,” sagði Christian Pinot.
Nouvelles Frontiers hefur
skipulagt 18 hópa hingað I sum-
ar, á bilinu frá júni til septem-
ber, og eru 20—25 manns i
hverjum. Það er einmitt liður I
þvl að hafa ferðirnar sem frjáls-
astar, svo að sem mest kynning
komi út úr þeim, að hafa hópana
svo fámenna. Islandsferöir
klúbbsins hafa staðið slðan 1970,
en auk Islandsferðanna skipu-
leggja félagar klúbbsins ferðir
slnar til fjölmargra annarra
staða. — SHH
Skólastjórn Kennaraháskólans hafnar
sáttatillögum nemenda
Nemendur hafa snúið
sér til ráðuneytisins
— Engir farnir að mœta til prófa
„Það er skoðun okkar, aö
sveigjanleiki I beitingu reglu-
gerða um skóla sé óumflýjan-
legur með tilliti til sérþarfa
nemenda, en sveigjanleikinn
má ekki veröa á þann veg, að
slegiö sé af kröfum til nemenda
og skólinn rísi ekki undir hlut-
verki sinu.” Þannig hljóðar
niðurlag fréttatilkynningar,
sem nemendur I háskóladeild-
um Kennaraháskóla tslands
hafa látiö frá sér fara vegna
„verkfallsins,” sem þeir eru i.
Segir i fréttatilkynningunni,
að dreifibréf það, sem Visir
skýröi frá I frétt sl. laugardag,
sé verk fárra nemenda, en túlki
alls ekki skoðun heildarinnar
eða forsendur mótmæla nem-‘
endanna.
Dreifibréfið, sem um er rætt,
er verk fimm nemenda, sem
skólastjórinn hefur neitað um
þátttöku I prófunum. Eru það
nemendur á fyrsta ári, sem ekki
náðu 80 prósent mætingu i vet-
ur. Boðuöu þeir skólafélaga sina
á fund sl. laugardag undir mott-
óinu „Lifi frjálsar mætingar.”
A þeim fundi urðu miklar um-
ræður og mótuðu nemendur
fyrsta, annars og þriðja bekkjar
Kennaraháskólans ákveðna
stefnu I málinu — sem er raunar
ekki samhljóða slagorðum
fimmmenninganna. Nemend-
urnir voru þó sammála um það,
að ýmsu væri ábótavant varö-
andi meðferð skólastjórnar á
reglugerð skólans um skyldu-
mætingu.
Var ákveðið að nemendur
mættu ekki til prófa, fyrr en
skólastjórnin hefur fundiö viö-
unandi lausn á þeim atriðum.
Að minnsta kosti þrem prófum á
að vera lokið nú þegar, en þau
hafa öll runniö út I sandinn. Það
hafa nær engir mætt til próf-
töku.
Eftir þvi sem Visir kemst
næst, lögðu nemendur ákveðna
sáttatillögu fyrir skólastjórn, en
henni hefur verið hafnað. Munu
nemendur þvi hafa snúið sér til
menntamálaráðuneytisins.
—ÞJM
Splunku nýjar plötur
Where fortune smiles/John McLaughlin
Bloodstone/Riddle of sphinx
Gladys knight and pips/A little knight NÝ
Barry White/Just another NÝ
Ohio Players/Greatest hits
Smokey Robinsson/A Quiet storm
Wet Willie/Dixie rock
Chicago/V111 NÝ
Bad Company/Straight Shooter
Paul Anka/Feelings
Fumble/Poetry in lotion
Melanie/As I see it now
Lou Reed/Live NÝ
Al Stewart/Museum brass 2
Joe Walsh/So what
John Entwistles/Mad dog
Eric Anderson/Be true to you
Blue Swede/Out of the blue
David Gates/Never let her go
Humble Pie/Street rats
Herb Albert/Coney Island
Póstsendum
Laugavegí 17 (2766^