Vísir - 27.05.1975, Blaðsíða 16
VÍSI
Þriðjudagur 27. mai 1975
Gróður ó
Akureyri
verður
eldinum
oð bróð
Akureyringar urðu einnig illa
fyrir barðinu á sinueldum og
skógarbrunum um helgina.
Á sunnudaginn kom upp eldur I
skógarreit bæjarbúa við Botn i
Eyjafirði, sem liggur rétt framan
við Akureyrarbæ.
Miklar skemmdir urðu á gróðri
i brunanum, en um klukkustund
tók að hefta útbreiðslu hans.
Skógarreitur þessi er útivistar-
svæði bæjarbúa og höfðu menn
sézt þar á ferli skömmu áður en
cldurinn kom upp. — JB
Áframhaldandi
samningafundir
Sáttafundur með deiluaðil-
um vegna verkfallsins i
rlkisverksmiðjunum stóð til
kl. 8 I morgun. Ekki vildu
menn tjá sig um árangur af
fundinum, en annar hefur
verið boðaður kl. 16 I dag.
Það eru 16 verkalýðsfélög
sem eiga I þessari deilu við
rikisverksmiðjurnar.
Samningafundi með sjó-
mönnum lauk nokkru fyrr,
ki. 3.30 siðastliðna nótt. Litið
eða ekkert miðaði I sam-
komulagsátt með undir-
mönnum og útgerðarmönn-
um og hefur annar fundur
verið boðaður kl. 10 i fyrra-
málið. í gær virtist hins veg-
ar eitthvaö vera að birta til I
samningum við vélstjóra.
Ekki tókst að ná sambandi
við Ingólf Ingólfsson,
formann vélstjórafélagsins i
morgun. —ÓT
Spó skýjuðu
í dog
— en hífastígið
í hœi ra lagi
Samkvæmt veðurspánni
fær sólin ekki að skina
óhindruð á mannfólkið i dag.
I morgun var spáð sunnan
golu eða kalda I dag, skýjuðu
og dálitilli þokumóðu. Þeir
sem höfðu hugsað sér að nota
daginn til sólbaðs verða ef-
laust að láta það biöa betri
tima.
Suðvestan gola rikti á
landinu i morgun. Austan til
var léttskýjað. Hitastigið
ætti aö verða nokkuð hátt i
dag.Strax i morgun var
kominn 9 stiga hiti i Reykja-
vík. - —EA
Bœndur áhyggjufullir
„Mœtti einhvers staðar
■ ■■ | 9X M §— segir Sigurbjörg Óskarsdóttir,
lœkka kauDio, $em ^ ^7 &
í atvinnuleysisbœtur
,,Ég er búin að fá atvinnuleys-
isbætur siðan viku eftir togara-
verkfallið. Ég vann I fiski hjá
Bæjarútgerðinni og þótt ég hefði
viljað fá eitthvað annað, er ekk-
ert að fá,” sagði Sigurbjörg
óskarsdóttir, ein af mörgum,
sem var að stimpla sig inn I
ráðningarstofunni I Hafnarbúð-
um, þegar við litum þar inn i
gær.
Sigurbjörg segir okkur að
maðurinn sinn, sem er sjúkling-
ur og má helzt ekki vinna nema
40 stunda vinnuviku, hafi enn
atvinnu i Bæjarútgerðinni.
Hann hefur um 11 þús. kr. á
viku. Engan veginn er hægt að
lifa á þvi kaupi. Hefur Sigur-
borg haft 200 kr. minna á viku
en maður hennar fyrir dag-
vinnu, en hefur tekið þá eftir- og
næturvinnu sem boðizt hefur.
„Ætli kaupið hafi ekki verið að
jafnaði um 13 þús. á viku”, segir
Sigurbjörg.
Hún segir okkur að heimilið sé
ekki stórt nú orðið. Þau hjónin
eiga dóttur 6 ára og svo fjögur
önnur börn, sem eru orðin upp-
komin. Þau hafa búið meira og
minna heima á meðan að þau
festu kaup á ibúð. Ein dóttirin er
einmitt að flytja I sina eigin
núna.
Sigurbjörg fær i atvinnuleys-
isbætur tæpar 7 þúsund krónur
á viku. Hún segist ekki geta
skilið af hverju ekki sé gert bet-
ur við verkamennina en raun
ber vitni. „Þetta er ójafnræði
t.d. miðað við þingmenn. Ein-
hvers staðar mætti lækka kaup-
ið”, segir hún.
Hjónin hafa aldrei farið i
siglingu saman, en frúin vann
einu sinni hjá Flugfélaginu og
fór þá til Kulusuk á Grænlandi.
Þau eiga góðan bil, sem þau
fengu út á örorkustyrk vegna
veikinda húsbóndans.
Slegið er lán fyrir
mjólkurpotti og strætó.
„Húsbóndinn reynir alls stað-
ar fyrir sér með vinnu. Hann
var að útskrifast sem stúdent.
Maður slær lán hingað og þang-
að til að eiga fyrir mjólkurpotti
og strætó,” segir ein af þeim
sem sækir atvinnuleysisbæturn-
ar. „Við erum með 2 börn og
leigjum fyrir 19 þús. á mánuði.
Jú, það er til bill á heimilinu en
ekki til peningur fyrir trygging-
unum.
Hún segist oftast vinna hálfan
daginn, en þó stundum allan,
eftir þvi hvernig standi á með
pössun á börnunun. Aðallega
hleypur amma hennar undir
bagga i þeim efnum. öll fjöl-
skyldan hjálpar raunar til þess
að ungi maðurinn geti menntað
sig, „en það fer eitthvað eftir
efnum og ástæðum i framtið-
inni, hvort lagt verður út i langt
nám eða stutt.”
Ég klýf þetta nú enn.
„Ég klýf þetta nú enn”, sagði
Steinunn Karlsd.. „Ég er svo
heppin að eiga ibúð við Gnoðar-
vog og hér eru ekki miklar af-
borganir. Ég er búin að eiga
ibúðina i 6 ár. Bróðir minn hefur
hjálpað mér og oft höfum við
lika borðað hjá pabba og
mömmu.”
Steinunn er með tvö börn á
slnu framfæri. „Nei, guð hjálpi
þér. Ég á ekki bil. Það kostar nú
sitt. Ég nota strætisvagnana.
Það er oft löng biðin sérstaklega
á vetrum, þegar ég hef verið að
fara með strákinn minn á
bamaheimilið.”
Lízt ekkert á að
fara í verkfall
„Mér lizt ekkert á það að ætla
sér i verkfall þann 11. júni. Pá
verða ekki einu sinni atvinnu-
leysisbætur”, segir einn, sem
hefur verið atvinnulaus siðan i
febrúai,,Ég á von á vinnu núna,
svo að þetta fer að lagast hjá
mér”, segir hann. Hann á konu
og 3 ung börn, þau leigja uppi i
Breiðholti á rúmar 8 þúsund
krónur á mánuði. Frúin vinnur
við skúringar, svo að það bjarg-
ar málunum.
„Við vorum svo bjartsýn að
festa kaup á ibúð á árunum ’70-
’71, en hún fór undir hamarinn.
Nei við töpuðum svo sem engum
peningum.”
Hverjar eru svo atvinnu-
leysisbæturnar. Jórunn Isleifs-
dóttir hjá Ráðningarstofu
Reykjavikurborgar I Hafnar
búðum upplýsti okkur um þær.
Sigurbjörg óskarsdóttir ásamt
tveimur af börnum sinum.
Þær eru 80% af lægsta taxta
Dagsbrúnar. Einhleypur fær
1396 kr. á dag. Fyrirvinna fær
1596 kr. og 130 kr. fyrir hvert
barn. Ekki er þó greitt fyrir
fleiri en þrjú börn. Greitt er fyr-
ir 5 daga vikunnar.
Sýna þarf fram á að unnið hafi
verið 1032 klst á s.l. 12 mánuð-
um. Helminginn af þeim tima ef
um 1/2 dags vinnu er að ræða.
Eiginmaður eða eiginkona má
ekki hafa haft ýfir 890 þús. i
tekjur s.l. 12 mánuði. A hverjum
degi verður að koma og stimpla
sig til þess að geta fengið
greiddar bæturnar. — EVI —
Eyðilagði tvo bíla,
skemmdi garð og braut
niður steinvegg
Ungur og ölvaður maður I Vest-
mannaeyjum eyðilagði á sunnu-
dagsmorguninn tvo bila, rótaði
upp garðinum hjá eiganda annars
þeirra og braut auk þess niður
steinvegg á sama stað.
Piltur þessi hafði verið að
skemmta sér um nóttina og þá
meðal annars ekið um I bil með
þrem kunningjum sinum. Klukk-
an 10 á sunnudagsmorguninn,
þótti honum, sem hann væri sjálf-
ur orðinn ökufær. Hann tók þvi
bilinn, sem var i eigu kunningja
hans, traustataki og ók af stað.
Eftir stutt hringsól um götur
bæjarins ók hann harkalega utan
i bil, er stóð við Heiðarveg en lét
sér það ekki nægja heldur hélt
sem leið lá inn i garð eiganda þess
bils og spændi þar allt upp á bil
sinum. ökuferðinni iauk maður-
inn svo með þvi að aka niður
steinvegg á lóðamörkunum og
gafst þá farartæki hans upp.
Maðurinn hljóp á brott frá
skemmdunum, en eftir nokkra
leit tókst lögreglunni að hafa uppi
á honum og kom þá i ljós að hann
var töluvert slasaður.
Garðurinn mun mikið skemmd-
ur og annar ef ekki báðir bilarnir
gjörónýtir eftir ævintýrið.
— JB
Ég meiddi mig ekkert!
Það er mikill skelfingarsvip-
ur, sem lýsir af andliti þessa
krakka, sem komst i hann held-
ur of krappan I gær. Hann lenti
á hjólinu sinu fyrir bil I Foss-
voginum ,um klukkan sjö i gær-
kvöldi, en þóttist engan skaða
hafa beðið af.
Sjúkrabfll og lögreglubfll með
blikkandi ljós allt var þetta svo
skelfandi, að barnið missti
kjarkinn og vildi losna frá öllum
málum sem fyrst. Lögreglunni
tókst þó að sannfæra það um að
réttara væri að fara I bfltúr i
hjartabilnum svona til að heilsa
upp á læknana og láta þá ganga
úr skugga um að allt væri I lagi.
— JB. Ljósm. Bragi.
Getum þurft að fella fé vegna áburðarskortsins
Bændur á Suðurlandi hafa nú
þungar áhyggjur af áburðar-
skorti og óttast að þurfa að fella
búfénað, ef verkfallið leysist
ekki bráðlega og þeir fá áburð.
Einn bóndi, sem Vlsir hafði
samband við, hafði jafnvcl orð á
þvi að bregða búi, ef svo færi, að
hann fengi ekki áburð fyrr en
um seinan.
Hjá Búnaðarfélagi Islands
fengum við þær upplýsingar að
áður en verkfallið hófst hafi
verið búið að senda töluvert af
áburði á hafnir úti á landi. Þeir
bændur, sem fái áburð sinn I
gegnum kaupfélögin, séu þvi
ekki svo illa staddir, en hinum
sem hafa sjálfir séð um innkaup
og þá einkum á Suðurlandi, sé
nú mikill vandi á höndum.
Margir þeirra hafa alls engan
áburð fengið. Þeir sem tókst að
ná sér I eitthvað fyrir verkfall,
eru þegar byrjaðir að bera á, en
hinir veröa bara aö biða.
Vlsir hafði i' gær samband við
nokkra bændur i Arnessýslu.
Einn þeirra var Auðunn Gests-
son á Kálfhóli: — Ég hef ekki
fengið einn einsta poka af
áburði ennþá og útlitið er ekki
glæsilegt. Þetta hefur ekki gert
svo mikið til að undanförnu, þvi
tiðarfariðhefur verið þannig, en
nú hefur orðið breyting á og
brýn nauðsyn að byrja sem
fyrst.
— Þeir sem voru svo heppnir
að ná I áburð eru þegar byrjaðir
að bera á túnin fyrir beitina. Ég
segi ekki, að þetta sé neyðar-
ástand ennþá, en ef það dregst
eitthvað fram i júnl að áburður
fáist, þá er útlitið svart. Ef það
fer svo, að ég verði að fella gripi
vegna fóðurskorts, þá held ég að
ég bara hætti þessu. Ég veit um
marga, sem eru eins staddir og
ég, hafa engan áburö fengiö. Við
getum ekkert annað en beöið og
vonað.
Magnús Guðmundsson á
Blesastöðum var búinn að fá
um helminginn af þeim áburði,
sem hann þarf fyrir sumarið: —
Ég er þegar byrjaður að bera á
fyrir fénaðinn og er ekkert sér-
lega illa staddur miðað við
suma aðra. Ég veit að margir
héma I kringum mig eru búnir.
aö fá eitthvað smávegis en aðrir
hafa ekkert fengið. Nú fer að
liggja á með þetta þvi það þarf
helzt að bera búið að bera á um
miðjan júnimánuð. Við verðum
bara að vona að þetta leysist
fyrir þann tima, annars eru þeir
illa staddir bændurnir, sem eng-
an áburð hafa fengið. — ÓT