Vísir - 04.06.1975, Page 1
vism
65. árg. — Miðvikudagur 4. júnl 1975 —123. tbi.
TVEGGJA
DAGA
BIÐ
— baksíða
ÞEIR
MEGA
EKKI
VIÐ
AÐ
TAPA
STIGI
— A-Þjóðverjar
mœttir til
landsleiksins
- íþróttir i OPNU
•
Ráðherra skrifar
leiðsögubók
um BÁKNIÐ
Innsíða á bls. 7.
Tóbakslausa söfnunin:
Rolf býðst til að
draga sígarettu-
óvini að landi
bls. 2
Eldurinn bjó um
sig í trésmíða-
verk-
stœði í
nótt
BAKSIÐA
SAMNINGAR í DAG?
- samningamenn ríkisverksmiðjanna bjartsýnir eftir nœturfund
„Engar myndatökur
hér. Þetta er viðkvæmt
augnablik,” sagði Guð-
jón Jónsson, formaður
J árn iðnaðarmanna,
þegar ljósmyndari Visis
fór fram á að mega
smella einni mynd af
fulltrúum rikisins, sem
voru rétt um það bil að
hefja lokaðan fund með
Loga Einarssyni, sátta-
semjara, klukkan niu i
morgun. Haildór
Björnsson, — Dagsbrún
kom þó i gættina von
bráðar og gaf leyfi til
myndatöku af ,,hinu við-
kvæma augnabliki”.
Frammi á gangi stóðu fulltrúar
starfsmanna ríkisverksmiðj-
anna. Þeir virtust léttir í lund
þrátt fyrir að fundurinn hafi stað-
ið nær óslitið frá þvi klukkan fjög-
ur f gærdag. „Nei, við erum ekki
orðnir syfjaðir ennþá. Það væri
lfka til litils að reyna að sofna.
Það væri áreiðanlega ýmislegt,
sem héldi fyrir manni vöku,”
sögðu þeir.
„Samningar verða áreiðanlega
undirritaðir i kvöld,” sögðu þeir
og horfðu á dyrnar, sem Logi var
nýbúinn að loka á eftir sér og
„rikinu”. Einstaka maður þorði
jafnvel að gera sér vonir um að
samningar tækjust fyrir klukkan
fjögur i dag.
Nú opnuðust dyrnar góðu
skyndilega og fulltrúar rikisins
komu út af hinum þýðingarmikla
fundi. Þeir á ganginum horfðu
spenntir á þá og biðu eftir að
heyra niðurstöður þessa stutta
fundar. Hún lét ekki á sér standa:
„Matarhlé til klukkan tiu.”
Tilkynningunni var vel tekið og
gangurinn tæmdist á örskammri
stundu.
—ÞJM
Fulltrúar starfsmanna rikisverksmiðjanna voru léttir I lund þegar Vlsir heimsótti þá á samningafund-
inn I morgun.
Hanoi vill
eðlilega
sambúð við
Bondaríkin
— bls. 5
•
íslendingarnir
í Marokkó
sleppa senn
úr haldi
— baksíða
Verkfall boðað....verkfall boðað....Starfsstúlka Vinnuveitenda-
sambandsins hafði ekki við að taka við bréfum frá verkalýðsfélög-
unum, þar sem boðað er verkfall eftir viku. — Ljósm. BG
,Þeir skilja betur,
hvað í kröfum þeirra
# | ■ ## — segir Jón H. Bergs, formaður
I C15T Vinnuveitendasambandsins
„Ég held, að viðsemjendur
okkar hafi nú gert sér betri
grein en áður fyrir þvi, að kröf-
ur þeirra fela I sér kjarabætur,
sem ekki hafi verið tiigangur
þeirra að fá,” sagði Jón H.
Bergs, formaður Vinnuveit-
endasainbandsins, i viðtali við
Visismenn.
Vissir útreikningar voru i
gangi I fyrradag, og þeir voru
skoðaðir á fundinum i gær. Jón
H. Bergs taldi að ASt-menn
skildu betur en áður, hvað i
rauninni fælist i kröfum þeirra
og hversu f jarri lagi væri að bú-
ast við, að atvinnureksturinn
gæti undir þeim staðið.
Kristján Ragnarsson, for-
maður Landssambands is-
lenzkra útvegsmanna, var hress
I bragði, þegar hann kom á
fundinn i gær. „Það er bezt, að
formaðurinn svari,” sagði
Kristján.
Vinnuveitendur halda sam-
bandsstjórnarfund, 40 manna, á
morgun klukkan hálf fjögur.
Þar verða samningamálin og
verkfallsboðanirnar að sjálf-
sögðu efst á blaði.
—HH
LITIÐ INN Á SAMNINGAFUND ASÍ - SJÁ BLS. 3.
„EF ÞEIR LEIKA MARKTÆKUM LEIK/#
„Vinnuveitendur eiga að leika
næsta leik,” sagði Björn Þór-
hallsson, formaður Landssam-
bands verzlunarmanna, I þvi að
hann gekk inn I fundarsalinn I
husi vinnuveitendasambandsins
um fimmleytiö I gær. Þeir hafa
lengi dregið að leika og tafið
málin, var skoöun Björns. „Ef
vinnuveitendur leika marktæk-
um leik, getur viðhorfið breytzt
býsna skjótt,” sagði hann.
„Annars blasir vist ekkert viö
nema verkföll.”
—HH