Vísir - 04.06.1975, Síða 2
2
Visir. Miðvikudagur 4. júni 1975
vísnt sm--
Hvað myndir þú gera, ef þú ættir
eitt ár eftir dlifað?
Sigurgeir V. Sigurgeirsson leigu-
bilstjdri: „Snúa mér að þvi, sem
er mér kærast, þ.e. fjölskyldu
minni og vinum.”
Ingibjiirg Eggertsddttir hús-
mdðir: ,,Guð minn góður, það veit
ég ekki. Ég mundi bara ganga á
milli og kveðja.”
Bjarni Bjarnason starfsmaður
Múlalundi: „Halda áfram eðli-
legu lifi.”
Jdna Benediktsdóttir nemi: „Ég
mundi fara til Isafjarðar og vera
þar i hálft ár. Siðan mundi ég
leika mér hérna i bænum.”
Rdsa Svavarsddttir nemi:
Djamma ofsalega.
Jökuli Jörgensen nemi: Ég
mundi hætta i skólanum. Siðan
mundi ég flýta mér að ljúka öllu
sem ég hef ætlað mér.
Rolf œtlar að draga
bindindismenn að landi
— þúsund krónur fyrir hugsjónina þótti mörgum of mikið
„Okkur fannst undir-
tektir geysilega já-
kvæðar. Hins vegar
runnu á menn tvær
grimur, þegar borga
átti 1000 kr. fyrir hug-
sjónina.”
Þetta sagði Ragnar Tómas-
son, einn af forgöngumönnum
söfnunarinnar fyrir Frjáls-
Iþróttasamband Islands, sem
fór af stað i vetur. Eins og menn
muna, ætlaði FRÍ að safna tóm-
um Winston sígarettupökkum
og umboðsmaður þeirra ætlaði
að borga 3 kr. fyrir hvern
pakka, sem safnaðist. Þetta
mæltist mjög illa fyrir og fóru
þá nokkrir velunnarar iþrótta-
hreyfingarinnar af stað með
söfnun, ef hætt væri við auglýs-
ingu á Winston.
Ragnar sagði, að viða hefði
verið talað við stofnanir og
fyrirtæki og hefði mönnum fund
izt það þjóðþrifamál að stoppa
fyrrnefnda pakkasöfnun, en
hverju sem um væri að kenna,
slæmu efnahagsástandi eða
öðru, hefðu aðeins safnazt tæpar
400 þús. krónur i Reykjavík og
nágrenni. „Ég býst ekki við, að
söfnunin utan af landi nái 500
þús. kr,” sagði Ragnar. Hann
bætti við, að FRÍ hefði samt
engu tapað, svo mislukkuð var
ákvörðunin um söfnun siga-
rettupakkanna, en búizt var við
Iupphafi,að sú söfnun hefði gef-
ið af sér 1.5 milljónir króna.
„Mér er mikil ánægja að þvi
að bæta við söfnunina því sem á
vantar upp i þá upphæð, sem
upphaflega var áætlað að kæmi
fyrir sigarettupakkana,” sagði
umboðsmaður Winston siga-
rettanna, Rolf Johansen, i
viðtali við Visi og hann bjóst við
að afhenda peningana með við-
eigandi viðhöfn.
—EVI—
f/
LESENDUR HAFA ORÐIÐ
LELCGT SJONVARP
BETRI BIOM YNDIR
II
na
Bfdkall skrifar:
„Það er nú orðið þannig, að
ódýrasta og eina skemmtunin,
sem maður getur veitt sér (utan
það að horfa á sjónvarp, sem er
hæpin skemmtun), er það að
fara I bió. Miðaverðið hefur að
visu hækkað talsvert eins og
annað, en ég sé ekki eftir þeim
50 krónum, sem ég borga auka-
lega fyrir nýjar og góðar mynd-
ir.
Bióin hafa náð sér algjörlega
á strik eftir að hafa misst niður
aðsókn vegna samkeppninnar
við sjónvarp. Nú er það frekar
orðið þannig, að menn flýja i bió
frá leiðinlegri sjónvarpsdag-
skrá. Aukin aðsókn hefur leitt til
þess, að bióin hafa treyst sér til
að fá hingað glænýjar myndir til
sýninga. Myndir, sem eru á
toppi vinsældalistanna erlendis
og kosta meira i innkaupi en
kannski eldri myndir.
Af þessu hefur leitt mjög
æskilega samkeppni á milli bió-
anna og það er farið að heyra til
undantekninga, að boðið sé upp
á gamlar lummur.
Ég vil fagna þessari þróun og
vona að aðrir þeir, sem eru
„matvandir” á biómyndir, láti
sig ekki vanta þegar bióin
leggja i mikinn kostnað og erfiði
við að fá hingað til sýninga nýj-
ar og góðar myndir.
Eitt er það — auk lélegrar
sjónvarpsdagskrár — sem
stuðlað hefur að þeim bata, sem
bióin hafa fengið. Það eru kvik-
myndagagnrýnendur dagblað-
anna. Þið á Visi hafið gert kvik-
myndunum góð skil i stuttum og
skilmerkilegum umsögnum,
sem almenningur á gott með að
skilja. Mogginn hefur lika vand-
ab vel til kvikmyndagagnrýni,
en verið oft á tiðum fullhátiðleg-
ur og farið meira út i tæknileg
atriði kvikmyndagerðarinnar
en hinn almenni biógestur getur
melt. Strákarnir á Mogganum
eiga þó þakkir skildar fyrir við-
leitni sina.
Afram með gagnrýnina og
góðu myndirnar.”
Tvöföld laun
G.E. hringdi:
„Er það réttlátt, að kennarar,
sem eru á launum allan ársins
hring, fái vinnu hjá borginni i
sumarleyfum sinum? Á meðan
eru bæði nemendur þeirra og
fjölmargir aðrir á atvinnuleys-
isskrá.
Maður getur nú ekki fengið
sig til að gráta með kennurun-
um yfir launum þeirra á meðan
þeirhafa tækifæri til að næla sér
i tvöföld laun hjá sama vinnu-
veitandanum.”
SPARIÐ
SPORIN!
Lesandi hringdi:
„Ég var að sjá í fjölmiðlum,
að forstjóri Grænmetisverzlun-
ar landbúnaðarins hygðist taka
sér ferð á hendur til ítaliu
þeirra erinda að kaupa handa
okkur kartöflur.
Má ég benda honum á það, að
aðrir heildsalar, sem flytja inn
viðkvæma vöru, nota telex.
Skyldi þeim hjá Grænmetis-
verzluninni ekki vera kunnugt
um þá tækninýjung? Hún spar-
ar bæði tima og fé. Allténd
mætti nota skeyti.
Og fyrst ég er á annað borð að
vekja máls á verzlun með græn-
meti vildi ég fá að varpa fram
einni hugmynd:
Er ekki ástæða til þess að Inn-
kaupastofnun rikisins bjóði út
innflutning á kartöflum eins og
svo mörgum öðrum vörum?”