Vísir - 04.06.1975, Blaðsíða 3
Vlsir. Miðvikudagur 4. júni 1975
3
Griótveggur alls staðar fyrir...
— ef koma ó öldruðum fyrir ó spítala
,,Það er orðið alveg
útilokað að koma fleira
fólki inn, þótt heimilin
séu búin að vera”,
sagði Rannveig
Þórólfsdóttir, yfir-
hjúkrunarkona yfir
heimahjúkrun, er við
ræddum við hana um
aldraða sjúklinga.
Hún sagði, að stund-
um bjargaðist málið að
einhverju leyti, ef ann-
að hjónanna væri við
betri heilsu en hitt, en
svo væru allt i einu
komnir tveir sjúklingar
i staðinn fyrir einn.
Spitalarnir taka helzt ekki við
þessu fólki, vegna þess að þeir
geta þá ekki losnað við þaö
aftur. Ef þeir gera það, er sjúkl-
ingunum þrýst aftur heim við
fyrsta tækifæri. Engan veginn
er nóg, þótt sent sé frá heima-
hjúkrun til að huga að gamla
fólkinu einu sinni til tvisvar á
dag.
„Einn aðstandandi hefur
komizt i sumarfri tvisvar i 9 ár.
í eitt skipti i viku, i' annað skipti
12 vikur. Fólkið er neglt niður”,
sagði Rannveig. Hún sagði lika,
að væri einhver stofnun til, sem
gæti hvilt aðstandendur aldr-
aðra, væri það leið til úrbóta, en
eins og er, þá er alltaf rekizt á
grjótvegg.
—EVI-
VORU HÆTT
KOMNIR í
UMFERÐINNI
Hún Svana, sem er sjö ára,
fékk að fara færandi hendi með
móður sinni i Sædýrasafnið á
sunnudag.
Svana er dóttir Sæmundar
Lárussonar lögregluþjóns í Ar-
bænum. Hann var á vakt á
föstudaginn, þegar tilkynnt var,
að ekið hefði verið yfir andahóp
á Iteykjanesbrautinni, sem
liggur upp i Breiðholt.
Andamamma var þar á vappi
með unga sina, er blll kom aö-
vifandi og ók yfir móðurina og
einn ungann. Sjónarvottum
varð ekki um sel, er ökumaður
stakk af frá slysinu og kvöddu
til lögreglu.
Lögreglan kom á staöinn og
tók þá unga, er eftir voru, I fóst-
ur þar til á sunnudag, að Svana
hélt með þá i Sædýrasafnið i
Hafnarfirði.
—JB Ljósm. Bragi
NORÐURLANDA"
— Forseti þess hingað kominn og stuðningur á nœsta leiti — nœr öll
ASÍ-félög hafa boðað verkfall frá miðnœtti aðfaranótt 11. júní
Þéir segjast blöa eftir, að vinnuveitendur komi meö „útspii” — samningamenn ASÍ krunka saman. —
Ljósm. BG.
Vísismenn líta á samningafund
UNDIR VERNDARVÆNG
„ ALÞÝÐUS AM B AN DS
Framkvæmdastjóri Alþýöu-
sambands Norðurlandanna,
sem svo mætti kalla, Norðmað-
urinn Trælnes er hingað kominn
til að athuga stöðuna i samn-
ingamálum og hvað verkalýðs-
félög á öðrum Norðuriöndum
geta gert til stuðnings verka-
lýðsfélögum hér. Björn Jónsson,
forseti ASt, skýrði Visismönn-
um frá þessu rétt áöur en samn-
ingafundur hófst klukkan fimm
i gær. „Það er öruggt, að stuðn-
ingur kemur,” sagði Björn.
„Vinnuveitendur hafa ekki
talið kaupbreytingar koma til
greina. Þeir vilja ræða um visi-
tölubindingu i breyttu formi.
Við viljum ræða samtimis um
kaupkröfuna og visitölumálið.
Þeir segjast ekki samþykkja
nema mjög skerta visitölu.”
„Við höfum nú ekki gert nein-
ar kröfur til rikisvaldsins,”
sagði Björn um ASI-samning-
ana. „Það væri frekar, að
vinnuveitendur gerðu kröfur til
þess,” áleit hann, ,,ef til vill um
rýmkun i banka- og lánamál-
um.”
„Umræðugrundvöllurinn
hlýtur að vera okkar kröfur,”
sagði Björn Jónsson, en af um-
mælum hans mátti ráða, að erf-
itt væri fyrir deiluaðila að koma
sér saman um, hvaða þætti
skyldi taka fyrir.
Sáttanefndarmenn, nýskipað-
ir, voru mættir til fundarins og
rétt að byrja að kynna sér mál-
in. Fyrstan sáum við Jón Þor-
steinsson, fyrrum alþingis-
mann. Sáttanefndarmenn kváð-
ust ekkert hafa um stöðuna aö
segja á þessu stigi. Fimm menn
eru i sáttanefndinni, og Jón.Sig-
urðsson, forstööumaður þjóð-
hagsstofnunar, verður nefnd-
inni til ráðuneytis.
90% félaga i ASI í
verkfall eftir viku
Um 90% af hundraði verka-
lýðsfélaga innan ASÍ munu hafa
tilkynnt verkfall frá miðnætti
aðfaranótt hins 11. júni, eftir
viku. Frestur til að boða verk-
fall frá þeim tima rann út á mið-
nætti i nótt. Meðal félaga, sem
boða verkfallið, eru Iðja, Fram-
sókn, Dagsbrún, Hlif, Tré-
smiðafélag Reykjavikur,
Verzlunarmannafélag Reykja-
vlkur, Eining og Framtiðin, og
er þá fæst talið. Vel að merkja
er prentarafélagið ekki i þess-
um hópi. Verzlunarmannafélag
Reykjavikur mun taka upp
beinar samningaviðræður, róa
eitt á báti, og slita sig úr ASI-
viðræðunum.
—HH
A alvörutfmum veitir ekki af einhverju, sem léttir lund. Þeir skelltu
upp úr, Kristján Ragnarsson og Jón H. Bergs, þegar ljósmyndari
VIsis gleymdi sér I hita starfsins, féll i stiga fyrir fætur þessara
toppmanna atvinnurekenda Ilkt og Bandarlkjaforseti á dögunum —
og náði ágætri mynd. — Ljósm. BG.