Vísir - 11.06.1975, Page 5
Vísir. Miðvikudagur 11. júni 1975
5
QUN ÚTLÖND í MORGUN ÚTLÖND í MORGUN ÚTLÖND í MORGUN ÚTLÖND Umsjón: Oli Tynes
15 GÍSLAR LEYSTIR [
, r atlogu með
UR HALDI I KANADA ,t’srum 09
Lögreglan í New West-
minster í Kanada stormaði
i gær inn í fangelsi, þan
sem þrír lífstíðarfangari
höfðu haidið fimmtáni
manns í gíslingu síðan á
mánudag. Vegfarendur
heyrðu mikla skothríð og
fundu lykt af táragasi ogi
svo var öllu lokið.
Lögreglan hefur ekki viljað
gefa neinar upplýsingar um mál-
ið ennþá, nema hvað hún viður-
kennir að a.m.k. fjörir hefðu slas-
azt. Fréttamenn komust að þvi,
að tveir alvarlega særðir menn
voru fluttir á sjúkrahús i grennd-
inni og var annar þeirra einn af
föngunum þremur.
Fangarnir þrir kröfðust þess að
vera fluttir út á flugvöll og þaðan
til einhvers annars lands. Það var
meðan þeir héldu, að þeir væru á
lokastigi samninga við yfirvöld,
sem lögreglan réðst skyndilega tií
atlögu.
Wilson notar
sér styrkari
stöðu síno
eftir CBE
stórsigurinn
Flest stórfyrirtæki í
Bretlandi hafa fagnað því,
að Anthony Wedgwood
Benn hefur verið fluttur úr
embætti iðnaðarráðherra
yfir í orkumálaráðuneytið.
Vinstri sinnaðir stuðnings-
menn Benns eru ekki eins
ánægðir, en þar sem Benn
fær annað mikilvægt ráðu-
neyti, er búizt við, að þeir
sætti sig við það án alltof
mikilla mótmæla.
Sigurinn i kosningunum um
aðild að EBE hefur töluvert
styrkt Harold Wilson i sessi og
gerði honum m.a. kleift að gera
þessar breytingar á ráðuneyti
sinu. Benn hefur verið mjög um-
deildur iðnaðarráðherra og hafa
stjórnendur iðnfyrirtækja al-
mennt verið mjög óánægðir með
hann.
Hinn nýi iðnaðarráðherra, Eric
Varley, var eins og Benn á móti
áframhaldandi aðild að EBE,
þannig að stuðningsmenn þess
fyrrnefnda geta ekki haldið þvi
fram, að Wilson sé að reyna að
reka þá út i kuldann. Varley var
hins vegar miklu hæglátari en
Benn i baráttu sinni gegn EBE.
Wilson ætlaði einnig að flytja til
frú Judith Hart, sem hefur verið
yfir ýmsum þróunarmálum er-
lendis, en hún neitaði að taka við
öðru embætti og sagði af sér. Reg
Prentice tók við af henni en var
áður menntamálaráðherra.
Prentice er hægri sinnaður. Þetta
er stöðulækkun fyrir hann, en
vinstri menn vildu refsa honum
vegna skoðana um æskileika
samsteypustjórnar.
Vorið hefur verið fremur kalt I Bretlandi en f júnfbyrjun breyttist veðrið mjög til hins betra. Regn-
hiifarnar hafa ný breytt um hlutverk og Lundúnabúar nota þær til að skýla sér gegn sólinni.
N-KÓRCANSKAR FIUGVÉLAR
HÉLDU UNDAN S-KÓREÖNSKUM
Tvær noröur-kóreanskar
flugvélar hringsóluöu í gær
yf ir eynni Paeng Nyong-do
sem er í höndum Suður-
Kóreu. Þær flýðu, þegar
suður-kóreanskar orustu-
þotur komu á vettvang.
Suður-Kórea hefur harð-
lega mótmælt þessu broti á
vopnahléssamkomulaginu.
I orðsendingu stjórnarinnar
segir, að slikir atburðir hafi gerzt
oft að undanförnu. Hingað til hafi
ekki verið tekið hart á þvi, en það
verði gert hér eftir og beri Norð-
ur-Kórea þá ábyrgð á þvi,
hvernig fer.
Mikill striðsótti rikir i Suður-
Kóreu eftir að kommúnistar
unnu sigur sinn i Vietnam og
Kambódiu. Park Chung Hee, for-
seti, hefur notað sér það til aö
herða enn ógnarstjórn sina. Það
er orðið ekki miklu meira um
mannréttindi i Suður-Kóreu en
hjá bræðrum þeirra, kommúnist-
unum i Norður-Kóreu.
Hvíti
svanurinn
##
„Skibladnir", hinn „hvfti svanur” vatnsins Mjösa i Noregi hóf
siöastliðinn sunnudag hundruðustu og nltjándu sumarferðaáætlun
sina. Hann er þar með elzti hjólabátur.sem er i daglegri notkun i
heiminum i dag. Skibladnir fer eina ferð á dag: Eidsvoll-Minne-
sund-Hamar-Gjövik-Lillehammer og til baka til Eidsvoll.
Hópur táninga
í steininn á
Spáni fyrir að
halda fund
Spænska lögreglan hand-
tók í gær 39 táninga, sem
sakaðir voru um að hafa
haldið ólöglegan fund í
skóla sínum í Madrid.
Kennari var einnig hand-
tekinn og skólanum lokað.
Lögreglan segir, að
táningarnir séu Trotsky-
istar. Flestum þeirra var
fljótlega sleppt úr haldi.
Nokkrum var þó haldið
eftir og telur lögreglan þá
líklega leiðtogana.
A Spáni er bannað að halda
fundi fleiri en nitján manna,
nema með sérstöku leyfi. Yfir-
völd á Spáni virðast ætla að bæla
niður strax i upphafi og með
hörki’ hvers konar tilraunir til að
auka enn ólguna i Baskahéruðum
landsins.
Fjölmargir prestar hafa veriö
handteknir fyrir að fordæma að-
gerðir stjórnarinnar úr
predikunarstólum. Kalt er þvi
með kirkju og stjórnvöldum
þessa dagana, en kirkjan hefur
sem kunnugt er geysileg áhrif á
Spáni. Ferðamenn verða litiö
varir við þessi átök. Þeir sóla sig
áhyggjulausir á ströndunum.