Vísir - 21.06.1975, Blaðsíða 15
Visir. Laugardagur 21. júnl 1975.
15
VINSÆLDALISTAR
England:
„GERA ÞAÐ SEM
w
1. ( 1) Whispering grass. Windsor davies/Don Estella.
2. ( 2) Three steps to heaven. Showaddywaddy.
3. ( 5) I’m not in love. 10. c.c.
4. ( 4) The proud one. Osmonds.
5. ( 6) Sing baby sing. Stylistics.
6. (10) Listen to what the man said. Wings.
7. (17) The Hustle. Van McCoy.
8. ( 8) The way we where. Gladys Knight & The Pips.
9. ( 7) Send in the clowns. Judy Collins.
10. ( 3) Stand by your man. Tammy Wynette.
Enski listinn er litiö merkilegur núna, nema þá aö athyglisvert
er, hversu vel lO.c.c. gengur meö lagiö sitt (tekiö af nýja albúm-
inu „The Orginal Sountrack”), þvi aö þetta lag er fjarri þvi aö
vera danslag og alls ekki sykursætt eins og svo mörg lög á þeim
enska. Country-lög viröast vera aö slá 1 gegn hjá Bretanum núna
eins og sjá má á laginu hennar Tammy.
Varla liöa meira en tvær vikur áöur en Wings ná fyrsta sæti meö
sitt lag, tekiöaf nýja albúminu „Venus & Mars”.
Ameríka:
1. ( 3) When will I be loved. Linda Ronstadt.
2. (11) Love will keep us together. Captain & Tennille.
3. ( 4) Love wont let me wait. Major Harris.
4. ( 7) Wildfire. Michael Murphey.
5. ( 1) Thank god I’m a country boy. John Denver.
6. (10) I’m not lisa. Jessie Colter.
7. ( 2) Sister Golden háð*. America.
8. ( 8) Listen to what the man said. Wings.
9. (19) The Hustle. Van McCoy.
10. (15) Take me in your arms, (rock me). Dobbie Brothers.
Þessi listi lýsir sér bezt sjálfur, en athyglisvert er, hve lögum
nr. 9-10 og 2 gengur vel upp listann. Michael Murphey er þekktari
hér fyrir lagiö sitt. Medicine Man, sem er öllu fjörugra en Wild-
fire, en bæöi lögin eru af sama albúminu.
Nú, og hann Paul McCartney þarf vart aö kvarta, Wings eru hátt
skrifuö á báöum listum.
Og svona upp á grin má nefna, aö vinsælasta lagiö I Belgiu er
„Fox on the run”, meö SWEET.
1 Hollandi er „Girls” meö MOMENTS AND WHATNAUTS?? I
fyrsta sæti, en þaö lag var kynnt hér á landi fyrir skömmu.
Og rúsinan i pylsuendanum, vinsælasta lagiö i HONG KONG
„Only Yesterday” meö CARPENTERS.
vera systir Hallbjargar Bjarna-
dóttur, sem tróð upp hér á landi
á strlösárunum sem reviusöng-
kona m.m.
Þó að hún Steinunn sé kannski
ekki á sokkabandsárunum leng-
ur, þá syngur hún þetta bara
þokkalega. Bakraddirnar koma
einnig ansi vel út.
3. „Tætum og tryllum”.
Þarna þykist ég kannast við
rödd „besta vinar mins”,
Björgvins Halldórssonar.
Þetta er hressilegt rokk-lag,
og Björgvin syngur aö vanda „i
finu formi”.
A milli söngkafla Björgvins
koma hressilegir „klapp-kafl-
ar”, sem ég þykist vita, að hafi
skapað stemningu á diskóteki
einu hér i bæ, og gefur það vis-
bendingu um frekari vinsældir
lagsins siðar.
4. „She broke my heart”.
Þarna er „Long” John Baldry
einn á ferð með góðri aðstoð
Kobba við pianóið.
Texti lagsins kemur hálf-
einkennilega fyrir eyru til að
byrja með sökum einfaldleika
sins, en hann venst furðu fljótt,
þar eð lagið gripur.
Þetta er rólegt lag, söngur
Baldrys er góður, og saxófónn-
inn i laginu kemur þrælvel út.
- ................. —1 ' ■■■ »
5. „Giv mig et billede”.
Þetta lag lýsir fullkomlega ekta
islensku sveitaballi, billinn ekur
i hlað, allir þjóta inn á ballið,
hljómsveitin spilar gamlan
slagara, glös og flöskur glymja,
stúlkur verða þess áskynja að
blandan hefur verið of sterk,
smá-ælur má greina, og siðan er
tryllt af stað á ný.
Lagið er hið gamalkunna
„Letter” og frasinn „give me a
ticket for an airplane” fær heit-
ið „giv mig et billede for en
flyvemaskine”.
Fyndinn kafli, ekki of langur
og ekki of stuttur.
6. „t bláum skugga”.
Þarna sýna Stuðmenn fram á
þrælgóða röddun, i lagi sem
tileinkað er grastegupd þeirri,
sem yfirleitt ekki er notuö til
beitar?
Þetta er með betri lögum plöt-
unnar.þó að erfitt sé að gera upp
á milli þeirra.
Og þá snúum við plötunni við.
7. „Fljúgðu”.
Hressilegur rokkari, þar sem
Chris á góðan sólókafla á gitarn
um, og i lok lagsins má heyra
góðan bassaleik Tómasar
Tómassonar, en hann er eins og
Kobbi búsettur i London og
hefur bassaleik að atvinnu.
Tómas var áður félagi Kobba i
Rifsberja. Eftir að hafa heyrt I
Tómasi á plötu þessari má full-
yrða að betri bassaleikari is-
lenskur finnist vart hér á landi.
8. „Söngur dýranna i Týról”.
Persónulega finnst mér þetta
besta lag plötunnar.
Imyndunarafl i hámarki, rödd-
un þrælgóð og hljóðfæraleikur
til fyrirmyndar.
Þetta lag nær tökum á hverj-
um sem er og þvi pottþétt til
mikilla vinsælda.
9. „Á Spáni”.
Einnig þetta lag er liklegt til
vinsælda, bæði er það fyndið, og
frasinn „shortu og fáðu kond-
ara” sem gengur i gegnum lag-
ið, nær tökum á mannskapnurn.
Eflaust er það Kobbi, sem sýnir
listir sinar á pianóinu.
PETUR VILDI"
Mál málanna i poppheiminum
hérlendis að undanförnu hefur
tvimælalaust verið úrsögn Pét-
urs (eða kannski réttara sagt
„spark”) úr Pelican. Margur
hefur sagt „nú er Peiican búin
að vera”, og sumir kannski
„það var mikið”. Ekki skal
lagður dómur á meðlimi Peli-
can, en það er vitað mál, að Pét-
ur var aðaldriffjöður hljóm-
sveitarinnar á sinum tima, og á
ég þar við framkvæmdahliðina
fyrir tið Ómars Valdimarsson-
ar, hins frækna framkvæmda-
stjóra. ómar stendur örugglega
fyrir slnu, svo spurningin er
tónlistarleg breyting Pelican
við komu Herberts. Til að fá
svar við þessari spurningu brá
ég mér i Klúbbinn hérna á
mánudaginn, en þar lék Pelican
á efstu hæð.
Eftir tveggja kiukkustunda
hlustun komst ég að eftirfarandi
niðurstöðu.
Pelican er að gera nákvæm-
lega það, sem Pétur vildi að hún
geröi, þ.e. spilaði hressilegri
dansmúsik. Þetta gerði hljóm-
sveitin lika allhressilega og
náði þannig betur til þess
aldurshóps, er stundar staö
þennan, en áður. Lögin voru
flest af þeirri tegund tónlistar,
sem kallast „country-rokk”, og
áberandi lög frá hljómsveitum
eins og t.d. Steely Dan.
Herbert „filar” sig greinilega
i þessari grúppu, enda hafa þeir
flestir leikið saman áður, sbr.
Astarkveðju. Þeir félagarnir
náðu ágætis sambandi við fólk-
ið, þ.e. þá, sem sættu sig við
styrkleikann, en hann var oft
fyrir ofan hámarkið.
Þetta fann ég nú ekki fyrr en
ég hafði sleppt pennanum og
reyndi að segja nokkur orö við
kunningja mina. Um nýliðann
Herbert er það helzt aö segja, aö
söngvari er hann góður og gefur
Pétri ekkert eftir hvað liflega
sviðsframkomu snertir (það lif-
leg var hún, að hann afrekaði
það a.m.k. einu sinni að slita
mikrófóninn úr sambandi vegna
ákafra búkhreyfinga).
Um aöra meðlimi er litlu aö
bæta við fyrri ummæli, það er
vitað mál, að þeir eru allir með
færustu hljóðfæraleikurum
landsins, hver á sinu sviði.
Nú er aðeins ein stór spurning
eftir.
Hvað verður um Ameriku-
draum Péiican???
ÖRP.
10. „Gefðu okkur grið”.
Þetta lag er i beinu framhaldi
af „A Spáni” þvi að það fjallar
um eymingja túrista, sem lenda
i klónum á Francó og hans
privatlöggum. Lagið einkennist
aðallega af góðum pianóleik, en
er kannski i þyngra lagi, miðað
við önnur lög plötunnar. Þarna
má svo aftur heyra gitarsóló frá
Chris, þó i styttra lagi.
11. „Andafundurinn mikli”.
Þetta lag á ekkert erindi á þessa
plötu. Þab samlagast ómögu-
lega öðrum lögum albúmsins
og er eflaust ekkert annað en
persónulegt „flipp” eins með-
meðlima Stuðmanna, sem betra
væri geymt annars staðar.
12. „Sumar á Sýrlandi”.
Bráðfallegt lag, dreymandi, og
fjarlægt. Eins og með nokkur
önnurlög albúmsins er þetta lag
mjög fallega raddað, og má
þannig setja lög eins og þetta,
„Söng dýranna” og „I bláum
skugga”, sér á pall. „Sumar á
Sýrlandi” er þó hið rólegasta af
þessum þremur og litill skyld-
leiki með þvi og lögum eins og
„Á stoppistöðinni” t.d.
Eftir þetta lag kemur löng
þögn, og margur álitur eflaust,
að platan sé búin, en svo er ekki.
Nú vaknar pilturinn af draumi
sinum, og dagur ris á ný.
Siðasta lagið er tileinkað deg-
inum, sem nú er fjær, og degin-
um, sem nú litur okkur nær.
Þetta lag er ólikt öðrum lög-
um plötunnar, enda eingöngu
raddað (ein rödd) með smá
pinaóleik, en gott er það.
Ekki ætla ég að hafa fleiri orð
um þessa plötu að þessu sinni,
enda nærri ómögulegt að lýsa
tónlist nákvæmlega með orðum.
Ég get bara mælt með þessari
plötu.
Örp.
Það mœta alllr á Hótel Sögu
(Súlnasal) annað kvöld.
HVERS VEGNA?
1. Kynntur verður fulltrúi íslands á Miss Young
International fegurðarsamkeppninni í ár.
2. Gestir kjósa fulltrúa íslands á Miss Scandinavia
fegurðarsamkeppnina.
3. KARON (samt. sýningafólks) sýna
sumartízkuna '75 frá verzl. Evu.
4. INGIMAR EYDAL kemur frá Akureyri
og leikur fyrir dansi.
5. Hið frábœra tríó SPILVERK ÞJOÐANNA kemur fram.
ÞESS VEGNA!
Húsið opnað kl. 20 og dansinn dunar til kl. 01,00.
IKIúbbur 32.