Vísir - 01.07.1975, Side 5
Vlsir. Þriðjudagur 1. júli 1975.
5
MORGUN ÚTLÖND í MORGUN ÚTLÖND í MORGUN ÚTLÖND í MORGUN Umsjón: Óli Tynes
Skyndilega dró
hann upp byssu
og hóf skothrfð
Líbaninn, sem skotinn
var til bana ásamt tveim
mönnum úr gagnnjósna-
deild frönsku leyniþjón-
ustunnar síðastliðinn
föstudag, var foringi
nýrra hryðjuverkasam-
taka Araba, sem ekki
hafa áður séð dagsins
Ijós. Franska lögreglan
segir, að hann hafi stofn-
að samtök, sem kölluð
eru „Vopnuð barátta
Araba".
Fylgismenn foringjans i Bei-
rut i Libanon, hafa staðfest
þetta. Þriðji leyniþjónustumað-
urinn, sem særðist i skotbar-
daganum, hefur nú gefið
skýrslu um málið. Libaninn,
Michel Mourkabel, fylgdi
Frökkunum þrem tií ibúðar,
sem hann sagði einn samstarfs-
manna sinna hafa á leigu.
Þegar þangað kom stóð yfir
samkvæmi og þar hittu þeir
meðal annars fyrir Carlos þann,
sem nú er leitað um allt Frakk-
land. beir sögðu honum, að þeir
hefðu óyggjandi sannanir fyrir
þvi, að hann tilheyrði hryðju-
verkasamtökunum og að hann
væri handtekinn.
Carlos var i fyrstu hinn þægi-
legasti og virtist ætla að koma
með þeim. En skyndilega dró
hann upp byssu og hóf skothrið á
leyniþjónustumennina. Tveir
féllu dauðir, en sá þriðji særðist
sem fyrr segir.
Hann kveðst hafa séð, að
þegar þeir leyniþjónustumenn-
irnir lágu allir i valnum, hafi
Carlos skotið Mourkabel til
bana.
Dularfullur
fjöldaflótti
um hóbjartan
sunnudaginn
Vandræöaleg þögn ríkir
um flótta 99 fyrrverandi
starfsmanna portúgölsku
öryggislögreglunnar, sem
flýðu úr nýjasta fangelsi
landsins siðastliöinn
sunnudag. Þeir gengu út úr
fangeisinu um hábjartan
dag og 69 þeirra leika enn
lausum hala.
Oryggislögrsglan var leyst upp
'og fjölmargir starfsmenn hennar
fangelsaðir fyrir ýmis afbrot,
fyrir nokkru. Um 150 hermenn
leita flóttamannanna i grennd við
fangelsið og óbreyttir borgarar
aðstoða þá. Jafnframt eru ætt-
ingjar margra fanganna á ferð-
inni i von um að finna þá á undan
hernum.
Fangelsið, sem þessir menn
voru i, er sagt hið öruggasta i
Portúgal, og telja ýmsir, að eitt-
hvað sé gruggugt við rekstur
þess, fyrst svona fjöldaflótti var
mögulegur að degi til. Ýmsir
þeirra, sem hafa náðst aftur.
höfðu sin eigin persónuskilriki á
sér, en þau áttu að vera i gæzlu
yfirmanns fangelsisins. Surnir
þeirra höfðu lika á sér peninga.
*S?'VS34 Í • ' ' •’
Hryllingsmyndin
„Jav/s", sem á íslenzku
mætti kalla „hákarls-
kjaftur", hefur slegið öll
fyrri aðsóknarmet í
Bandarikjunum. Myndin
fjallar um risastóran há-
karl, sem tekur upp á
þeim ósóma að fara að
gæða sér á baðstrandar-
gestum litils þorps í
Bandarík junum.
Fyrirmenn staðarins
óttast, að ferðamenn
hætti að koma þangað, ef
þetta vitnast, og upphefst
mikið samvizkustrið auk
stríðs við ófétið. Myndin
er sýnd i kvikmyndahús-
um um öll Bandaríkin og
á fyrstu vikunni komu 14
milljónir dollara í að-
gangseyri, eða 2 milljónir
á dag. Fyrra metið átti
„Guðfaðirinn", en það
var aðeins ein lítil milljón
á dag.
2 flugstjórar vöruðu
við fleiri lendingum
Tvær flugvélar tilkynntu
um mikil vindaskil á Kenn-
edyf lugvelli, nokkrum
mínútum áður en Eastern
Airlines þotan fórst þar
með 112 manns síðastliðinn
þriðjudag. önnur þeirra
lenti að vísu, en flugstjór-
inn ráðlagði, að umferð-
inni yrði beint á aðra
braut. Hin sneri frá til ann-
ars flugvallar.
Segulbandsspólur úr flugturn-
inum hafa sannað, að um tveim
minútum áður en Eastern þotan
fórst, var henni tilkynnt um þetta.
Óþekkt rödd svaraði „okaý” en
turninn fékk ekkert frekara svar
við beiðni um, að Eastern þotan
staðfesti móttöku.
Vindaskil myndast, þegar tveir
loftstraumar liggja i gagnstæða
átt. Þá geta orðið geysisnöggar
og snarpar breytingar á vindátt.
Þetta veðrafyrirbrigði er ekki
óalgengt i þrumuveðrum. Þrum-
ur og eldingar voru, þegar þotan
fórst.
Kommar hrella
Kommúnistar i Laos
hafa yfirtekið enn eina af
byggingum, sem heyra
undir bandaríska sendi-
ráðið þar í landi. Þeir hafa
ennfremur takmarkað enn
meira athafnafrelsi þeirra
22 Bandarikjamanna, sem
þar eru eftir. Áður en
kommúnistar tóku völdin,
voru um þúsund starfs-
menn á vegum sendiráðs-
ins og ýmissa menningar-
og hjálparstofnana.
Talsmaður sendiráðsins sagði,
að þeir væru orðnir mjög þreyttir
á ofsóknum undanfarnar vikur,
en óttuðust þó ekki beinlinis um
öryggi sitt.
Kommúnistar hafa einnig hafið
ofsóknir á hendur fyrirtækjum i
Laos, sem hafa skipt við banda-
risk fyrirtæki. Eru stjórnendur
þeirra og starfsmenn auðmýktir
á ýmsan hátt.
Talsmaður stúdentasamtaka i
Laos sagði fréttamönnum. að slit-
ið yrði stjórnmálasambandi við
Bandarikin, nema þau greiddu
striðsskaðabætur.
Kvennaráðstefnu að Ijúka
Kvennaráðstefnunni í
Mexíkó er nú að Ijúka.
Meðal þeirra sem heim-
sóttu hana var Margo St.
James, formaður samtaka
götudrósa í San Fransisco.
Hún kom þangað til að fá
aðstoð í baráttu við lög-
regluna sem hún segir of-
sækja sig og starfssystur
sínar.