Vísir - 01.07.1975, Side 16
vísir
Þriðjudagur 1. júli 1975.
FERÐ ASKATTU Rl N N:
= „MIÐALDA
HEGNING FERÐAMANNA
— segir Waldemar Fast forseti alþjóðasamtaka Skólklúbba
„Ferðaskatturinn er miðalda-
hegning fyrir túrista. Og hann
er settur á rétt áður en aðal-
ferðamannatlmabilið hefst”,
sagði Waldemar Fast forseti
aiþjóðasamtaka Skálklúbba —
AISC. Hann var hér á ferð um
helgina, en Skáiklúbbar eru fé-
lagsskapur framámanna i
ferðamálum um ailan heim.
Fast hefur lengi rekið umfangs-
mikla ferðaskrifstofu i Ham-
borg og átt mikil samskipti við
islenzkar ferðaskrifstofur.
Waldemar Fast heldur þvi
fram, að ferðaskatturinn sé
mikil hindrun fyrir flugfélögin,
og ferðaskrifstofurnar. Af-
leiðingin væri sú, að margir,
bæði hópar og einstaklingar,
hættu við ferð til íslands, sem
aftur á móti hefði slæm áhrif á
hótelreksturinn og aðra þjón-
ustu varðandi ferðamenn.
„Skatturinn er allt of hár”,
heldur Waldemar Fast áfram.
„Það hefði verið sanngjarnt,
miðað við önnur lönd, að verðið
hefði verið I kringum 3$ (460
kr.) Það er engin sanngirni i
þvi, að flugfélögin séu þvinguð
til að innheimta ferðaskattinn
fyrir stjórnina.
Og hann endaði mál sitt með
þvi að segja, að til væru miklu
betri leiðir til að fá tekjur (ef
þær væru nauðsynlegar fyrir
efnahagsástand landsins), en að
koma á skatti sem þessum.
önnur lönd hafi sannað það
fyrir mörgum árum.
—EVI—
ANDAR
Golfleikurinn, sem fram fór úti
á Nesi á laugardaginn endaði i
hálfgerðum andaleik. Þrátt fyrir
vonzkuveður mætti fjöldi golf-
leikara til svokallaðrar tékk-
neskrar kristalkeppni.
Rokið var það mikið, að fjölda
andarunga bar á land utan frá
fjörunni og voru þeir að f júka um
allan golfvöllinn á meðan keppnin
stóð yfir. Golfleikararnir tóku
velferð unganna fram yfir golf-
spilið. Lögðu þeir því frá sér golf-
kylfur, söfnuðu saman ungunum
og komu þeim til síns heima, áður
en svartbakurinn næði i þá.
Þarna eru tveir Tékkar, sem
standa fyrir mótinu, að hlúa að
einum unganna. Þetta eru þeir
Joseph Rajchart verzlunarfull-
trúi og Magnús Magnússon, er
búið hefur hér á landi i fjölda ára.
Ljósm. Bj.Bj. —JB
66 HVALIR KOMNIR A LAND
og 3 á leiðinni í morgun
Uppsagnir á
Alþýðublaðinu
Alþýðublaðið hóf sumarfri sitt i
dag, en á slðasta vinnudegi fyrir
frl kvöddu útgefendur blaðsins
starfsfólk sitt með uppsagnar-
bréfum. U ppsa gnarf re stu r
flestra starfsmanna eru þrir mán-
uðir og er ráðgert, að blaðið komi
þar af leiðandi út I tvo mánuði
eftir sumarfri.
Utgefendur blaðsins höfðu áður
neitað þvl harölega, að Alþýðu-
blaðið væri aö hætta. Uppsagnir
starfsfólksins nú útskýra þeir á
þann veg, aö fyrir dyrum standi
breytingar á útgáfu blaðsins.
Breyting yfir í vikublað eða
mánaöarrit? Nei, þeirri hugmynd
hafa þeir visað á bug I blaðavið-
tölum.
—ÞJM
Seint
hœkka
sumir, en...
Athygli vekur, að Timinn hefur
hækkað áskriftarverð blaðsins til
jafns við hin dagblöðin. En Tim-
inn, eitt dagblaða, hélt áfram
með 600 króna áskriftarverð, þeg-
ar hin blöðin hækkuðu upp i 700
krónur I áskrift fyrir um þrem
mánuðum.
Þegar Timinn var orðinn ódýr-
ari I áskrift en önnur dagblöð, hóf
blaðið mikla áskrifendasöfnun.
Ber væntanlega að lita svo á, að
þeirri herferð sé nú lokið.
—ÞJM
Kominn á
1370 metra
Þorlákshafnarbúar fylgjast nú
spenntir með árangri borana
jarðborsins Jötuns við Þorláks-
hafnarveg.
í gærmorgun stóð borinn á 1370
metrum. Til stóð að mæla hitann,
en vegna bilunar var það ekki
hægt. Ekki lá þvi ljóst fyrir
hversu hitinn var mikill á þessu
dýpi.
Slðast er hitinn var mældur
reyndist hann vera 95 stig, en bor-
inn stóð þá á 800 metrum.
Jarðfræðingar telja mestar lík-
ur á að finna heitt vatn á bilinu
frá 1000 metrum til 2000 metra.
Verður þvi haldið áfram að bora,
að minnsta kosti 700 metra I við-
bót.
—JB
Mikill ferða-
mannastraum-
ur við Mývatn
„Ég er mjög ánægður með
feröamannastrauminn hér”,
sagði Arnþór Björnsson hótel-
stjóri i Reynihlíö við Mývatn I
viðtali við blaðið I gær.
Að sögn Arnþórs eru flestir
gestir hans útlendingar, aðallega
Þjóðverjar og Skandinavar, og
margir þeirra koma ár eftir ár að
Mývatni.
Hann sagði, að sizt væri minna
um ferðamenn nú en í fyrra og
mikið væri bókað á hótelinu.
Sumarið var I seinna lagi á ferð
hjá þeim fyrir norðan, eins og hér
á Suðurlandi, en nú er allt orðið
fagurgrænt við Mývatn. Hefur
gróður tekið sérlega vel við sér
undanfarið vegna hlýinda og góðs
veöurs. —EVI—
Það hefur verið nóg aö gera i
Hvalstööinni i Hvalfirði eftir að
veiði hófst. I morgun þegar við
höfðum samband þangað voru 66
hvalir komnir á land. Einn hval-
Ilátt i sex hundruð búvisinda-
menn frá öllum Norðurlöndunum
liófu i morgun ráðstefnu I Reykja-
vlk. Stendur hún I fjóra daga og
mun ellefu undirdeildir fjalla um
málefni búskapar og skila áliti i
lok ráðstefnunnar.
A morgun fara allir þátttakend-
ur ráðstefnunnar i ferðir upp i
Borgarfjörð og um Suðurlands-
undirlendi til að kynna sér búskap
þar.
Aðalefni þessarar fimmtándu
Til sólarlanda í
„Ferðin gekk alveg ljómandi
vel og var öllum til gagns og
ánægju”, sagði Tómas Helgason
yfirlæknir á Kleppi, en tæplega 20
sjúkiingar fóru þaðan I hálfs
mánaðar dvöl á Spáni á dögun-
um.
Ekki vildi Tómas spá neinu um
áframhaldandi ferðir til sólar-
landa, en sagði, aö þarna væri
bátur var á leið I land með þrjá
hvali I viðbót.
Veiðin i sumar hefur þvi verið
góð. Vertiö hófst nokkru seinna
nú en i fyrra. I fyrra var byrjað 2.
ráðstefnu norrænna búvisinda-
manna eru umræður um nýtingu
gras- og gróffóðurs. Verða niður-
stöður ráðstefnunnar notaðar til
áframhaldandi rannsókna og
leiðbeiningastarfsemi á Norður-
löndunum fimm.
Setning ráðstefnunnar fór fram
i Háskólabiói klukkan tiu i morg-
un, en að setningu lokinni tóku
undirdeildimar strax til starfa,
en húsnæöi Háskólans er nýtt til
fundarhaldanna. —ÞJM
endurhœfingu
veriðað gefa sjúklingum tækifæri
á að lifa normal lifi, sem væri
þáttur i endurhæfingu þeirra.
Hópurinn fór i gegnum feröa-
skrifstofur hér og bjó á hótelum á
Spáni.
1 fyrra fóru sjúklingar af Kleppi
til Færeyja, en þá var það öðru-
visi en nú þvi að sjúklingar komu
hingað til lands i stað þeirra er
fóru. —EVI—
júni en nú 15. júni. A sama tima i
fyrra voru 95 hvalir komnir á
land.
Hvalbátarnir sækja hvalinn út i
160-170 milur. Er hann mest
veiddur suðvestur og vestur af
Reykjanesi. Norskur eftirlits-
maöur er nú i Hvalfirði, en eftir-
litsmaður er þar venjulega á
Nokkuð harkaleg biiveita varö
við Ytrafell i Hrafnagiishreppi i
Eyjafjarðarsýslu laust fyrir
klukkan 11 i gærkvöldi.
Þrlr farþegar og ökumaður
meðan á vertið stendur.
Af þeim 66 hvölum, sem komn-
ir eru á land núna, eru 61 lang-
reyður, 3 búrhvalir og 2 sand-
reyðar.
— Samkvæmt ákvörðun
alþjóðaráðstefnu, sem nýlega var
haldin, má aðeins veiða 275 hvali
hér. _ea
voru i bilnum. Allir voru fluttir i
sjúkrahúsið á Akureyri til rann-
sóknar. Enginn er talinn hafa
hlotið alvarlega áverka.
—JB
RAÐSTEFNA UM
GRASNÝTINGU
— norrœnir búvísindamenn þinga i Reykjavík
SLÆM BILVELTA FYRIR NORÐAN
BLAÐAMENN OG
ÚTGEFENDUR
SÖMDU í NÓTT
Samninganefndir blaðamanna
og útgefenda voru skyndilega
boðaðar á fund hjá sáttasem jara i
gærkvöldi. Var setzt við samn-
ingaborðiö klukkan tlu I gær-
kvöldi og ekki staðið upp fyrr en
klukkan átta i morgun — eftir
undirritun nýrra kjarasamninga.
Eru kjarabæturnar þær sömu
og ASI samdi um fyrir sitt fólk,
en blaðaútgefendur lýstu sig
reiöubúna strax I upphafi samn-
ingaviðræðna að veita blaöa-
mönnum þessar kjarabætur.
Eina hliðaratriðið, sem tekur
breytingum i þessum samning-
um, snertir handritalesara og
prófarkalesara.
Blaðamenn halda félagsfund
um samningana á Nausti klukkan
hálffjögur I dag. Útgefendur
munu einnig halda fund uir
samningana i dag, en hvar o{
hvenær það yröi, var ekki vitað
þegar Vísir fór I prentun.
Blöðunum virðist þá vera borg
ið og útkoma þeirra tryggð fram
til áramóta, en samningarnii
gilda fram til þess tima. —ÞJM