Tíminn - 01.09.1966, Side 2
FIMMTUDAGUR 1. september 1966
2
tIminn
IÐNSYNSNGIN
1 anddyri sýningarhallarinnar er deild I — Málmiðnaður og flutningatæki
fjölbreytta framleiSslu. Myndin sýnir stúkuna h|á Blikksmiðjunni Sörla.
og sýna þar alls 19 fyrirtæki
(Ljósmynd. Tíminn Bj.Bj.)
VIÐSKIPTINIFULLUM
GANGIÁIÐNSÝNINGUNNI
SJReykjavík, miðvikudag.
Kaupmenn og kaupfélags-
stjórar utan af landi, m.a. frá
Vestmannaeyjum, Akranesi,
Akureyri, Borgarnesi og Siglu
rirði komu í viðskiptaerindum
á iðnsýninguna í dag og var
vitað um talsvert mikil verzl-
unarviðskipti. Annars voru
fyrstu viðskiptin gerð um leið
og sýningin var opnuð er boðs
gestur pantaði varning hjá fyr
fyrirtækinu Kísill.
í dag kom allmargt manna til
að skoða sýninguna, m.a. þýzki ráð
herrann Höcherl, sem var í fylgd
með Gylfa Þ. Gíslasyni, ráðherra.
í kvöld var búizt við mikilli að-
sókn, þar sem vitað var, að hin ó-
vænta marsvínaganga „stal sen-
unni“ frá Iðnsýningunni i gær-
kvöldi, og fjöldi fólks, sem var á
leið í sýningahöllina komst aldrei
á áfangastað.
Yfirleitt er mikil ánægja ríkj-
andi meðal fólks með sýninguna.
Það hefur verið reiknað út, að
það tekur um 4 klukkustundir að
skoða sýninguna, ef stanzað er 2
mínútur fyrir framan hvem bás.
Það er því ærin ástæða til að
benda fólki á að gefa sér nægan
tíma til að skoða sýninguna.
SVIFFLUGFFLAGIÐ FEKK
30 TOG ÍAFMÆUSGJÖF
listflugvél í eigu Félags atvinnuflugmanna á að draga svifflugurnar
áJ-Reykjavík, miðvikudaS.
Nýlega hélt Svifflugfélag fs
(ands hátíðlegt 30 ára afmæli
lélagsins með kaffisamsæti í Silf
rtunglinu. Allmargt gesta var þar
imankomið til að fagna þessum
imamótum.
Agnar Kofoed Hansen flutti fé
'agsmönnum kveðju af segul
- andsspólu, en hann gat ekki ver
:ð viðstaddur hófið, þar sem hann
r erlendis í opinberum erinda
erðum. Agnar minntist á stofn
í■■Ind félagsins, sem haldinn
ar í gömlu Bárunni, og sagði,
..ð félagið væri samofið heildar-
mynd íslenzkra flugmála. Þá kvað
Agnar það löngu viðurkennt,
að svifflug væri ómetanlegur
skóli fyrir verðandi flug-
menn og svifflugið frábær
íþrótt og heillandi. Hann hvatti
að lokum svifflugmenn að láta
öryggið sitja í fyrirrúmi, eins og
þeir hefðu ætíð gert, enda mikil
gifta fýlgt félaginu árum saman.
Baldvin Jónsson, lögfræðing-
ur, flutti kveðjur frá Flugmála
félagi fslands. Hann ræddi m.a.
um, að til mála kæmi að skylda
atvinnuflugmenn til að taka emn
ig svifflugpróf, a.m.k. væri það
viðurkennt, að þeir, sem hefðu
tekið svifflugpróf, hefðu meiri
þekkingu á skýjafari og vind
um en aðrir, og gæti slík þekk
ing oft komið sér vel í starfi
atvinnuflugmanna.
Bárður Daníelson flutti' féiag-
inu kveðjur fyrir hönd Félags
atvinnuflugmanna. Hann sagði. að
félag sitt myndi senn fá flugvéi,
sem notuð yrði til listflugs, og,
hefði verið samþykkt í félaginu
að gefa Svifflugfélagi íslands 30
tog í afmælisgjöf, og myndi
Svifflugfélagið ráða því, avort
Framhald á bls. 15
Sjónvarpsmálið í Eyjum:
Munnlegur málflutningur í
lögbannsmálinu á föstudag
EJ—Reykjavík, miðvikudag.
f dag var sjónvarpsmálinu í Eyj-
um frestað enn, að þessu sinni til
föstudags, að því er Jón Óskarsson
fulltrúl bæjarfógeta Vestmanna-
eyja, tjáði blaðinu í dag.
Jón sagði, að báðum málunum
hefði verið frestað. Lögbannsmálið
var tckið fyrir í dag, oig lagði
Bragi Björnsson, lögfræðingur,
fulltrúi sjónvarpsáhugamanna
fram greinargerð í málinu. Var á
kveðið, að munnlegur málflutning
ur yrði. fluttur í málinu á föstu
daginn.
Hitt málið — krafa Landsímans
um, að sjónvarpsendurvarpsstöðin
verði fjarlægð af lóð þeirri, sem
Landsíminn hefur á leigu í Eyj
um, var einnig frestað til föstu-
dags til þess að hægt verði að afla
frekari gagna í málinu.
82 ÁRA KONA VARÐ FYRIR
BIFREIÐ OG STÚRSLASAÐIST
HZ-Reykjavík, miðvikudag.
Laust fyrir klukkan sex í
kvöld vað alvarlegt umferðarslys
á Hringbrautinni á móts við hús
nr. 35. Gömul kona, 82 ára, varð
fyrir bifreið, sem var á leið vest
ur Hringbraut og skall við
höggið í götuna. Lenti hún síð
an undir bifreiðinni, sem að lík-
indum fór með annað framhjólið
yfir fætur konunnar. Nokkrir nær
staddir menn hlupu til og lyftu
bifreiðinni ofan af konunni.
Sjúkrabifreið flutti hina stór-
slösuðu konu á Slysavarðstof-
una og við rannsókn kom í ljós,
að hún hafði hlotið áverka á
höfði, viðbeinsbrotnað, rifbrotn
að og hlotið aðra áverka, en
samt ekki fótbrotnað. Hún var
flutt í Landakotsspítalann í kvöld,
þar sem hún liggur þungt haldin.
Mynd þessi var tekin er vestur-
þýzki landbúnaðarmálaráðherr-
ann, Hermann Höcherl, kom
til Keflavíkurflugvallar og er
hann á miðri myndinni að
þakka einni af aðalflugfreyj
um Loftleiða, Erlu Olöfu 01-
afsdóttur, fyrir góða flugferð.
Efst í stiganum er Magnús V.
Magnússon, sendiherra íslands í V
Þýzkalandi.
HÖCHERL TIL
EYJA í DAG
EJ-Reykjavík, miðvikudag.
Landbúnaðarráðherra Vestur-
Þýzkalands, Hermann Höcherl,
sem kom hingað til lands seint
í gærkvöldi, átti í dag fundi
með ýmsum ráðherrum, og skoð
aði m.a. Iðnsýninguna 1966-
Ráðherrann kom til Keflavík-
ur kl. 23.15 í gærkvöldi, og
tók Ingólfur Jónsson, land-
búnaðarráðherra á móti honum.
í morgun átti Höcherl fund
með Ingólfi Jónssyni. Emil
Jónssyni og Gylfa Þ Gísla
syni. Hádeigsverð snæddi hann
hjá forseta íslands, Ásgeiri
Asgeirssyni.
Fór ráðherrann með við-
skiptamálaráðherra í ferð á
nokkra staði í borginni. og
heimsótti m. a. Iðnsýninguna.
Á morgun er áætlað, að ráð
herrann fari til Vestmannaeyja
og skoði þar fiskiðjuver,
en síðdegis þann dag mun
hann skoða Áburðarverksm.
í Gufunesi. Á föstudag fer
hann til Þingvalla, Sogsins og
Mjólkurbús Flóamanna. Þann
dag verður haldinn blaðamanna
fundur með ráðherranum, en
hann heldur utan daginn eftir.