Vísir - 14.07.1975, Blaðsíða 10
Vlsir. Mánudagur 14. júli 1975.
Vísir. Mánudagur 14. júli 1975.
BanauESHBi
................. • I
11
Fyrst í handknattleik -
síðust í hrossadómum
UMSK, sem stóð i
ströngu á landsmótinu.
En þar keppti hún i
hrossadómum og hand-
knattleik.
„Mér gekk nú ekki sem bezt i
hrossadómunum, þvi þar voru
búfræðingar. Enda ekki að sökum
að spyrja, ég hafnaði i neðsta
sæti.”
Sigurborg var I liði UMSK, sem
bar sigur úr býtum I handknatt-
íeikskeppni kvenna á landsmót-
inu, enda enginn aukvisi i þeirri
grein, — lék i unglingalandsliðinu
i vetur.
Þeirri keppni lauk þó ekki á-
takalaust, þvi að um miöjan
seinni hálfleik, þegar úrslitaleik-
urinn milli UMSK og UMFN stóð i
járnum, varð að bera helzta
markskorara UMFN af leikvelli
óvigan eftir samstuð. Eftir það
var lítil ógnun i leik UMFN og
UMSK-stúlkurnar unnu öruggan
sigur 11:7.
Sigurborg Daðadóttir i hrossadómunum, þar varð hún siðust, enda vifi
erfiða mótherja afi etja. Hún vann þafi upp i handknattieikskeppninni,
þvi þar var hún I sigurliði UMSK.
,,Ég geri ekki upp á
milli hrossanna og
handboltans,” sagði
Sigurborg Daðadóttir úr
„Viö unnuin ”. Bergþóra Benónýsdóttir HSÞ kemur fyrst I mark I 4x100
m boöhiaupi kvenna. Timi sveitarinnar var 51,4 sek.
Pönnukökurnar hennar
Höllu brögðuðust bezt
unnar og að sjálfsögðu hvernig I ingu og I vélsaumi og varö stiga- I um og gerði hann sér litið fyrir og
þetta bragðast.” hæsti einstaklingurinn I starfs- skaut tveimur kvenþátttakend-
Halla virðist geta gert ýmislegt iþróttum. unum aftur fyrir sig i þeirri
annað en baka pönnukökur, þvi Einn karlmaður var meðal keppni!...
hún varð fjórða i blómaskreyt- | keppenda i pönnukökubakstrin- | —BB
Enginn sló honum við
ó dróttarvélinni
„Ég hef ekki pönnukökur i
hverja máltlfi, þó ég baki þær
oft,” sagfii Halla Loftsdóttir, hús-
móöir úr Afialdal I S-Þingeyjar-
sýslu, sem sigrafii I pönnuköku-
bakstrinum.
„Mér virðist fara fram i
bakstrinum, þvi að á siðasta
landsmóti varð ég þriðja. Við fá-
um ákveðna uppskrift til að fara
eftir, en siðan megum við bæta
viö hana þvi, sem við viljum. Svo
er dæmt um framkvæmd vinn-
Æfinga-gallar
Allar stœrðir, verð
fró kr. 2.866.-
Póstsendum
,,Ég hef nú ckki fyrir atvinnu að
aka dráttarvél,” sagöi Vignir
Valtýsson frá Nesi I Fnjóskadal, I
S-Þingeyjarsýslu eftir að hafa
sigrað i dráttarvélaakstrinum,
sem varein af starfsiþróttunum á
landsmótinu.
Þetta var ekki I fyrsta skipti,
sem Vignir keppir á landsmóti.
Þetta var i fjórða skiptið, sem
hann keppir á landsmóti i drátt-
arvélarakstri, og hefur hann sigr-
að I öll skiptin.
„Ég starfa sem ýtustjóri á
sumrin,” sagði Vignir, „en ég
neita þvi ekki, að ég tek oft i
dráttarvélina heima, þegar með
þarf.
Prófið var fólgið i þvi að aka
um þar til gerða braut með vagn
aftan i, auk þess þurftum við að
fivara 10 spurningum um dráttar-
vélina.”
iFrá úrslitahlaupinu I 100 m hlaupi karla. Þar sigraði Magnús Jónasson HVl, þriöji frá vinstri, mjög óvænt, fékk timann
11,5 sek. Sá sem var sigurstranglegastur, Sigurður Jónsson HSK, annar frá vinstri, tognaði I upphafi hlaupsins og deiidi
):öðru til þriðja sætinu með bróður Magnúsar, Angantý á 11,6 sek.
Vel heppnað Lands-
mót UMFl á Akranesi
— En í fyrsta sinn í langan tíma sigraði annað ungmennafélag
en Skarphéðinn í sfigakeppni landsmótsins
„Mér virðist landsmótið hafa tekizt
framaröllum vonum,” sagði Sigurður
Geirdal úr landsmótsnefnd, eftir
Landsmót UMFÍ á Akranesi um helg-
ina.
„Veðrið hefur verið mjög gott alla
dagana, sól og hlýindi, og það haft sitt
að segja. Okkur telst til að um 15 þús-
und manns hafi komið á landsmótið,
og þar af voru yfir 1000 keppendur. Á
siðasta landsmóti, sem fram fór á
Sauðárkróki, voru keppendurnir rúm-
lega sex hundruð svo sjá má að það
hefur orðið mikil aukning á. Auk þess
voru nú erlendir sýningarhópar á
landsmóti i fyrsta skipti.
Mótið sjálft hefur farið mjög vel
fram og allar timasetningar stóðust
þar til siðasta daginn, þegar fram-
lengja varð úrslitaleik i knattspyrnu,
að timasetningin riðlaðist hjá okkur.”
Mörg landsmótsmet voru sett á
þessu 15. landsmóti UMFl á Akranesi.
Stigahæstu einstaklingarnir i frjálsum
iþróttum voru þeir Karl West Fredrik-
sen UMSK og Sigurður Jónsson HSK.
Af kvenfólkinu varð Hólmfriður Er-
lendsdóttir UMSE stigahæst.
Beztu afrekin, samkvæmt stigatölu
unnu Hreinn Halldórsson HSS i kúlu-
varpi, kastaði 17.71 m, og Kristin
Bjömsdóttir UMSK i hástökki, stökk
1.57 m . 1 frjálsum iþróttum hlaut
UMSK flest stig 131,5 stig. Stigahæstu
einstaklingarnir voru Elinborg
Gunnarsdóttir HSK og þeir Guðjón
Guðmundsson USK og Þorsteinn
Hjartarson HSK. En beztu afrekin
unnu þau Elinborg og Guðjón.
I knattleikjunum var mikil barátta.
1 knattspyrnu sigraði UMF'K (Ung-
mennafélag Keflavikur) lið UMSK
(Ungmennasamband Kjalarnesþings)
1-0 i úrslitaleik. Lið Keflvikinga var
skipað mörgum þekktum knatt-
spyrnumönnum og það sama má segja
um lið UMSK, þvi þar er allt 2. deild-
arlið Breiðabliks. Eina mark leiksins
skoraði Steinar Jóhannsson, en hann
var iðinn við að skora mörk á lands-
mótinu.
1 handknattleikskeppni kvenna gekk
betur hjá UMSK þvi stúlkurnar sigr-
uðu i þeirri grein eftir harða keppni við
UMFN. Piltarnir úr Njarðvikunum
voru hins vegar sterkastir i körfu-
knattleiknum, unnu HSK i úrslita-
leiknum.
Þingeyingarnir voru beztir i starfs-
iþróttum og glimu og fengu langflest
stig i þessum greinum 73:61.
Skák var meðal keppnisgreina á
landsmótinu og þar sigraði sveit
UMSK, en sveit HSK varð i öðru sæti.
Mikií og jöfn barátta var um hvaða
héraðssamband fengi flest stigin og
voru þau úrslit ekki á hreinu fyrr en
eftir siðustu greinarnar og munurinn
aðeins 3.5 stig á fyrsta og öðru sætinu.
Það kom strax i ljós á fyrsta degi
landsmótsins að sveit UMSK (Ung-
mennasamband Kjalarnesþings) ætl-
aði sér stóran hlut á þessu móti, enda
með iangflesta keppendur eða 184.
HSK (Héraðssambandið Skarþhéð-
inn) sem unnið hafði stigakeppni
landsmótsins i 8 skipti i röð, byrjaði
samt vörnina mjög vel, og leiddi i
stigakeppninni allt fram á siðasta
keppnisdag.
En þá áttu frjálsíþróttamenn UMSK
mjög góðan dag, auk þess fengust dýr-
mæt stig i handknattleik og knatt-
spyrnu. Þetta réði úrslitum i stiga-
keppninni. UMSK fékk 284,5 stig en
HSK 281 stig. t 3. sæti kom svo HSÞ
með 156,5 stig, 4. USK 128 stig, 5.
UMSB 92,5 stig, 6. UMSE 76.0 stig, 7.
HSH 64 stig, 8. UMFN 51 stig, 9. UMFK
42 stig, 10. UMSS 32 stig, 11. UIA 31
stig, 12. HSS 30,5 stig, 13. HVl 29 stig,
14. UNÞ 16 stig, 15. UV 14 stig, 16. USU
12 stig, 17. USVS 11 stig og 18. USAH
með 9 stig. Tvö héraðssambönd kom-
ust ekki á blað i stigakeppninni, Ung-
mennasamband Vestur-Húnvetninga
og Ungmennafélag Grindavikur.
—BB
t úrslitaleiknum I knattspyrnunni fengu Kefivikingar óvænta heimsókn. En
þá kom sóknarprestur Akurnesinga, séra Björn Jónsson, I fuilum skrúða inn á
völlinn I hálfleik. Hann var þó ekki að leggja þeim lifsreglurnar, heldur að
spjalla við fyrrverandi sóknarbörn sin, þvi séra Björn starfaði I mörg ár I
Keflavik, áður en hann gerðist sóknarprestur á Akranesi.
Byrjunar-
hœðin var
of hó...
„Þcssi útbúnaður er ekki gerð-
ur fyrir svo lágar stangarstökks-
hæðir eins og byrjað er á hér,”
sögðu þeir Þorvaldur Jónasson og
Stefán Jónsson, sem voru starfs-
menn við stangarstökkskeppnina.
„Þessi útbúnaður er gerður
fyrir 3.40, sem lágmarkshæö, en
hér var byrjunarhæðin 2.80 m svo
að við urðum að vera með alls
konar tilfæringar — þvingur og
annan útbúnað tii afi geta stiilt
þeirri hæð upp.” Allir komust svo
yfir byrjunarhæðina nema einn,
en „aðeins” þrir komust yfir
3.40.” —BB
„Við höldum þessu
í f jölskyldunni"
Sœnsk leirvara
Fró
Sumarleg og falleg
matar- og kaffistell
— sagði langstökksmeistarinn úr síðasta móti, sem nú lét
bróður sínum eftir að vinna
Guöjón Guömundsson
TEG:FOCUS
Allir hlutir seldir í stykkjatali,
til að safna upp í stell,
upplífgandi í sumarbústaðinn
Sendum í póstkröfu um land allt
Laugav. 22 - Hafnarst. 1 ■ Bankast. 11 - Reykjavik
BUSAHOLD
Símor
// 12527
U/% 19801
GLERVORUR
„Við reynum að lialda
þessu i fjölskyldunni,”
„Nú er ég
hœttur"
— sagði Guðjón
Guðmundsson sundkappi
fró Akranesi, sem var
einn jafnbezti
sundmaður mótsins
sagði Guðmundur
Jónsson frá Selfossi, eft-
ir að bróðir hans, Sig-
urður Jónsson, hafði
sigrað i iangstökks-
keppninni og sett nýtt
landsmótsmet 7.01 m.
Guðmundur, sem sigraöi i
greininni á siðasta landsmóti á
Sauðárkróki, meiddist illa á hér-
aðsmóti Skarphéðins rétt fyrir
mótið og varð þvi að vera áhorf-
andi að þessu sinni.
„Auðvitað er maöur svekktur
að geta ekki keppt, en maður
verður að taka þvi. Ég hleyp hér
um á öðrum fætinum og reyni að
hvetja mitt fólk, það er það eina,
sem ég get gert þessa stundina.”
—BB
,,Nú er ég ákveðinn i að hætta
allri sundkeppni,” sagði Guðjón
Guðinundsson, eftir sundmótið.
„Ég ætlaði að vera hættur fyrir
iöngu, en var dreginn I að keppa á
landsmótinu. Ég hef æft svona,
þegar ég hef mátt vera að, cn nú
læt ég staðar numið. Ég hef fyrir
fjölskyldu að sjá og hef þvl ekki
þann tima aflögu, sem þarf til æf-
inga.”
Guðjón, sem aðeins er 23 ára,
hefur um árabil verið einn af
beztu sundmönnum landsins og
sýndi það á mótinu, að hann er
ekki dauður úr öllum æðum, þvi
hann varð stigahæsti einstakling-
urinn i sundinu ásamt Þorsteini
Hjartarsyni HSK, báðir hlutu 17
stig af 18 möguiegum. —BB
Bræðurnir Sigurður og Guðmundur Jónssynir frá Selfossi. Siguröur
sigraði i langstökkinu og 400 m hlaupinu og varð stigahæstur I frjáls-
iþróttum ásamt Karli West Fredriksen.
—BB