Vísir - 15.07.1975, Síða 1
VISIR
65. árg.— Þriöjudagur 15.júH 1975 — 157. tbl.
Landhelgin:
Tilkynnt um útfœrsluna í dag
Gert er ráð fyrir, að I dag
verði tilkynnt, hvenær fiskveiði-
lögsaga tslands verði færð út i
200 sjómilur. Það mun ætlunin
að komast hjá þvi eins og frek-
ast verður unnt, að erlend riki
fái undanþágur til veiða innan
nýju landhelginnar.
Hins vegar er ljóst, að ræða
verður málið við ýmsar þjóðir,
sem telja sig eiga hagsmuna að
gæta á þessu svæði, og Bretar
hafa þegar íarið fram á viðræð-
ur.
Fundur Landhelgisnefndar
hófst kl. 10.30 i morgun og i
framhaldi af honum átti að
verða ríkisstjórnarfundur. Eftir
þann fund ætti ákvörðun um Ut-
færsludaginn að liggja fyrir, að
sögn Einars Ágústssonar, utan-
rikisráðherra.
—Ó.T.
m
■M|
Hvað getum
við gert til að
vernda Geysi?
- bls. 9.
Bridge
í Brighton
— íþróttir í opnu
Smiðaði sér
skútu og sigldi
r
til Islands
— bls. 3
Byggja stœrsta
dansgólf ú landinu
— baksíða
Hafnar-
fjarðar-
vegur
lokaður
í nótt
Hafnarfjarðarvegur
verður lokaður frá klukkan
hálfeitt I nótt til klukkan sex I
fyrramálið. Þá verður unnið
við að leggja hitaveitupipur I
gegnum veginn viö Arnar-
neslæk. Á meðan fer umferð
um Fifuhvammsveginn,
sandgryfjurnar og yfir á
Vifilsstaðaveg I Garða-
hreppi. —JB
Býst við að hœkkunin
sé lögieg
— segir Björn Jónsson
um mjólkurvörurnar
Hækkun á mjólkuraf-
urðum, sem boðuð hefur
verið, mun vera lögleg
og ekki brot á samning-
um, þvi að i samkomu-
laginu, sem gert var 13.
júní siðastliðinn, var þvi
aðeins lofað, að hækkun
sú, sem koma átti til
framkvæmda 1. júni,
kæmi ekki út i verðlagið
og kæmi ekki til fram-
kvæmda fyrr en 1:
september.
Hins vegar var engu lofað um,
hvað kynni að gerast eftir 1. júni,
og samkvæmt lögum geta fram-
leiðendur gert kröfu um hækkun,
þegar verðlagsbreyting verður
vegna hækkaðs vinnslu- og dreif-
ingarkostnaðar.
SU breyting varð við launa-
hækkanirnar 13. jUni siðastliðinn.
Verðlagsgrundvöllur landbUnað-
arins er jafnan endurskoðaður
reglulega 1. september, 1. desem-
ber, 1. marz og 1. júni ár hvert.
Auk þess má sem fyrr segir gera
breytingar, þegar almennar
efnahagsbreytingar verða.
— Ég býst við, að þótt þetta
beri einkennilega að, standist
þetta samkvæmt lagabókstöfum,
sagði Björn Jónsson, forseti Al-
þýðusambands Islands I morgun.
— Þetta kom okkur á óvart, við
höfðum reiknað með óbreyttu
verðlagi á landbUnaðarafurðum
til 1. september.
Mjólk mun hækka um 1 kr.
litrinn, smjör um 15 kr. kilóið,
ostur um 6—8 krónur kilóið og
skyr um 2 kr. kilóið. —ó.T.
Ljót umgengni
í skógarlundi:
TRÉN SÖGUÐ OG
ömurleg umgengni er I garði
þeim við Bústaðaveg, sem borg-
in tók við af Hákoni Guðmunds-
sj ni, fyrrum borgardómara.
Skógargróðurinn þar hefur ver-
it ilia leikinn, sagaður niður og
brotinn. — t húsnæði innan
garðsins hýsir borgin nú fólk,
sem er á hennar vegum.
A þremur stöðum i garðinum
er búið að saga niður falleg og
stæðileg grenitré, þannig að
sums staðar vantaði alveg efri
hluta þeirra. Fjölmargar reyni-
Þannig er umhorfs f lundinum græna viö Bústaðaveg: Trén hreinlega söguð og sum brotin. Ljósm.Bj. Bj.
BROTIN
hrislur höfðu hlotið sömu örlög.
Sums staðar hafði ekki verið
haft fyrir þvi að saga hrislurnar
i sundur heldur höfðu þær verið
brotnar niður á groddalegan
hátt.
Búið var að safna hinum
föllnu trjám i þrjár hrúgur. Að
sögn fólks i nágrenninu höfðu
krakkarnir notað trén til að
mynda eins konar virki.
Umgengnin i garðinum að
öðru leyti var ekki i sem beztu
lagi. Viða var bUið að rista gróf-
lega i trjábörk trjánna, svo
myndaðist opið sár. Einnig var
alls konar drasl á við og dreif
um garðinn.
Blaðamaður Visis hafði sam-
band við fyrri eiganda hUssins
og garðsins i kring, sem var Há-
kon Guðmundsson fyrrverandi
borgardómari.
Sagði Hákon, að hann hefði
keypt hUsið og garðinn af séra
Sigurði Einarssyni I Holti árið
1940. Þá hefðu þau hjónin byrjað
að rækta þessi tré, sem þar
standa, og væru þvi trén um 35
ára gömul.
Árið 1971 seldi Hákon
Reykjavíkurborg hUsið og
landið. Sagði Hákon, að við
kaupin hefði verið talað um að
borgin héldi garðinum við. Há-
kon hefur nU dregið sig Ut Ur
skarkala bæjarlifsins og stund-
ar bUskap rétt fyrir utan Sel-
foss. Sagði Hákon að sér fyndist
þessi atburður hörmulegur til
afspurnar og borginni til
skammar. —HE
Rannsókn Bessastaðaórvirkjunar hraðað ....
LÖGÐU f SÉRSTAKAN KOSTNAÐ
TIL AÐ NÝTA SUMARTÍMANN
Kilóvattstund ó
Austurlandi með
dísilkeyrslu kr. 10,
vatnsvirkjun kr. 2.50
Samkvæmt upplýsingum frá
Rafmagnsveitum rikisins kost-
ar kilówattstund á Austurlandi
með disilkeyrslu nú 10 krónur,
en frá vatnsvirkjun 2.50 kr.
Þessi gifurlegi verðmismunur
hefur orðið til þess, að ákveðið
hefur veriö að hraða rannsókn-
um á Bessastaðaárvirkjun eins
og frekast má verða. Vegna
þessara framkvæmda hefur
iðnaðarráðuneytið tekið lán að
upphæð kr. 150 milljónir. Til
þess að nýta stuttan tima á há-
lendinu hefur þurft að leggja i
allkostnaðarsamar aðgerðir til
að koma bækistöð upp á Fljóts-
dalsheiði, áður en rannsókna- og
mælingamenn komu þangað.
Vegna erfiðleika við að kom-
ast á rannsóknarstað var valinn
sá kostur að láta iðnaðarmenn,
sem unnu að uppsetningu skál-
ans, vinna 18 tima á sólarhring.
Var I þessu sambandi gerður
sérstakur kjarasamningur við
mennina, sem fól i sér að greiða
'þeim 14 tima viðbót við unna
tima. Með þessu var komizt hjá
að greiða þeim næturvinnu all-
an timann vegna langs vinnu-
dags. Má segja, að aðstaðan sé
enn ekki komin i viðunanlegt
horf, jafnvel þótt menn séu þeg-
ar farnir að hafast þar við.
Við rannsóknir og mælingar
vinna nU 15 manns, auk 5
manns, sem starfa við jarðbor-
anir. Rannsóknir á heiðinni eru
aðallega fólgnar i jarðvegs-
könnunum og bergmálsmæling-
um á botni væntanlegs miðlun-
arlóns. Einnig er verið að mæla
Ut fyrir stiflugörðum. Þær jarð-
boranir, sem fara fram, eru til
að kanna jarðlög i fyrirhuguð-
um göngum frá Grimsárlóni að
virkjunarstað, en fallhæð þarna
verður 580 m. Niðurstöður þær,
sem nU liggja fyrir um virkjun-
ina, benda til, að hUn sé mjög
hagkvæm, en endanleg ákvörð-
un um virkjunina verður ekki
tekin fyrr en i haust.
— Sjá bréf frá rafmagnsveitu-
stjóra á bls. 2. BA/EVI