Vísir - 19.07.1975, Qupperneq 1
VÍSIR
65. árg. — Laugardagur 19. jiili 1975 —161. tbl.
Stórkaupmenn og
Verzlunarráð mót-
mœla 12% vöru-
gjaldinu
— baksíða
HEIMA- Smábátaeigendur
TILBÚNAR fá aðstöðu við
SAGNIR — ísland náði einu Gelgjutanga
- baksíða — bls. 3
ðkumœlar í leigubíla fyrir 8 farþega og fœrri:
Ríkið œtlar að fá 34 millj-
ónir frá 300 leigubílstjórum
— á ári, segir formaður Frama
r
HUM IR AÐ BERJA OG BANGA
Fallega heldur hiín á hamrinum, hnátan sú arna, hreinræktaður Týrari i Eyjum. Hún er að banga
saman danspallinn stóra, sem þau ætla að dansa á um næstu helgi á þjóðhátiðinni á Breiðabakka, og þá
verður mikið um dýrðir. Þá sleppir hún trúlega hamrinum og stlgur dansinn af elju á handaverkum sin-
um. Ljósm. Guðm. Sigfússon.
„Þetta er hreinn dauði
fyrir okkur, og ég trúi
þvi ekki fyrr en ég tek á,
að þessi reglugerð verði
nokkurn tima látin
koma til framkvæmda,”
sagði úlfur Markússon
framkvæmdastjóri Bif-
reiðastjórafélagsins
Frama, um tilkynningu
fjármálaráðuneytisins,
þar sem tilkynnt er að
ökumælar skuli settir i
disilknúna leigubila.
1 tilkynningunni er kveðið svo
á, að frá og með 25. september
næstkomandi skuli ökumælar
vera I disilknúnum leigubilum,
sem taki átta farþega eða færri og
beri að greiða þungaskatt af bll-
um þessum i samræmi við öku-
mælana. Hingað til hefur aðeins
fast gjald verið greitt af þessum
bilum árlega.
Clfur sagði, að þetta væri
reiðarslag fyrir þá leigubílstjóra,
sem hafa notað disilknúna bila. 1
nýlegum útreikningi félagsins
kom fram, að á þriggja ára bili er
það 4003 krónum minna, sem
rikið fær i sinn hlut af meðaldisil-
leigubil en meðalstærð af bensin-
bil, miðað við núverandi fyrir-
komulag. Sé hins vegar miðað við
ódýrasta fáanlegan disilbil og
ódýrasta fáanlegan bensinbil, fær
rikið 14-16 þúsund krónum meira
fyrir bensinbilinn. Hér er miðað
við 45 þúsund kilómetra árs-
akstur.
Hlutfall launa hefur
lækkað
Úlfur vakti athygli á þvi, að
þegar um leigubila er að ræða,
fæst aðeins um 55% aksturs
þeirra greiddur. Hitt fer i svo-
kallaðan dauðan akstur, gabb og
fleira, sem ekki kemur til tekna.
Verði tekið upp kilómetragjald
fyrir akstur disilbilanna, þýðir
það að þeir geta með engu móti
borið sig.
Hann sagði að verðgrundvöllur
leigubila hefði verið reiknaður út
samkvæmt upplýsingum Hag-
stofunnar 15. marz 1974. Þá var
heiidartala á rekstri leigubils
1.308.436,00 krónur, en þar af voru
laun bilstjórans 636.434,00 krónur,
eöa 48,64%. 9. april i ár var
heildartalan orðin 1.988.159,00
krónur og laun leigubilstjórans
756.337.00 krónur, eða 38.04%. Þá
var siðasta gengisfelling ekki
komin inn i taxtann. Hann benti
einnig á, að leigubilstjórar væru
mjög hnuggnir yfir þvi, hve hár
taxti þeirra væri orðinn, og
myndu fagna hverri þeirri aðgerð
stjórnvalda, sem yrði til að unnt
yrði að lækka taxtann. „Það má
nánast segja, að nú orðið taki
menn tæpast leigubila nema i
neyðartilfelli eða svo út úr
drukknir, að þeir viti ekki hvað
þeir eru að gera,” sagði Úlfur.
Leigubflar 10%
bila i þessum
stærðarflokki
Hann benti á, að óréttlátt væri
að leggjast svona'á leigubilstjóra
undir þvi yfirskini, að verið væri
að jafna aðstöðu manna. Disil-
knúnir leigubilar eru nú um 300,
eðaum 10% af disilknúnum bilum
I þessum stærðarflokki, en hin
90% sleppa þó við ökumæla og þar
með kilómetragjald af akstri.
Hann benti einnig á, að bændur,
sem eiga disiljeppa, þyrftu aðeins
að borga hálft fastagjaldið. „En
þessir 300 leigubilstjórar eiga að
borga 34 milljónir á ári,” sagði
Úlfur, og taldi heppilegra að
herða ögn á þungaskattinum og
leggja hann á alla. Með þvi móti
næðist sama tala með verulega
minni skattlagningu á hvern bil
og án þess kostnaðar, sem öku-
mælarnir hafa I för með sér.
Leigubilstjórar hafa mótmælt
þessum skatti og rætt við fjár-
málaráðherra um málið. Úlfur
taldi, að ráðherra hefði ekki
fengið réttar upplýsingar um það
— „heldur er engu likara en hann
hafi fengið þær frá einhverjum,
sem hefur sérStakan fjandskap
við stéttina.” Ráðherra hafði tek-
ið máli þeirra vel og lofað að
endurskoða það og afnema reglu-
gerðina, ef leigubilstjórar færu
þar með rett mál.
—SHH
„Það er hugmyndin,
sem svífur
spontant
ó mig/'
— seglr Alfreð Flóki
i viðtali á bls. 7