Vísir - 19.07.1975, Blaðsíða 9
Vlsir. Laugardagur 19. júli 1975.
9
EKKI SATT?
Stefán Guðjohnsen skrifar frá Brighton:
Á undanförnum
Evrópumótum hefur
Spánn ávallt verið ís-
landi auðvelt fórnar-
dýr, og þetta árið var
engin undantekning
þar frá. Komið hefur
fyrir, að þeir hafa snúið
frá okkur með rauða
tölu (minus), en i þetta
skipti sluppu þeir með
kringlótt núll.
Þetta má ekki skilja sem svo,
a& þeir hafi ekki barizt eins og
ljön. Ef einhver heldur það, þá
er hérna djörf slemma, sem
hinir kurteisu Spánverjar létu
okkur finna fyrir.
N gjafari/Allir á hættu.
4
¥
♦
4
98732
85
DG3
DG5
KG654
43
72
AK108
4 DIO
¥ 10762
♦ 1065
4 7432
4 Á
¥ ÁKDG9
♦ AK984
4 96
1 lokaða herberginu sögðu
menn á spilin af karlmannlegri
hreysti. Nefnilega þannig:
Norður Austur Suður Vestur
Taxte Hallur Escude Þórir
Vestur spilaði út laufadrottn-
ingu og sagnhafi átti um að
minnsta kosti þrjár spilaleiðir
að velja, sem blöstu við i fljótu
bragði. — Það hefði verið sama
hverja hann kaus. Allar hlutu að
leiða til vinnings, eins og spilið
lá, enda fór líka svo.
1 opna salnum létu Islending-
ar sér nægja hálfslemmu.
Sagnir gengu þar þannig:
Norður Austur Suöur Vestur
Stefán Bufill Simon Puig-Doria
P P 1* P
1G P 2¥ P
24 P 3 P
44 P 44 p
4¥ P 6¥ P
Skömmu seinna fékk svo Is-
land tækifæri til að jafna
slemmumetin, þegar Hallur og
Þórir náðu góðum loka-
samningi, sem Hallur vann svo
bæöi við borðið og i umræðunum
eftir á.
N gjafari/ Allir á hættu.
4 9753
¥ AKG94
♦ 752
4.2
4 D106 4 AKG42
V 6 ¥ 732
♦ K964 ♦ ÁG8
4 AD653 * K10
4 8
¥ D1085
♦ D103
4 G9874
1 opna salnum voru Spánverj-
ar ekki eins djarfir i þessu spili
og þeir höfðu verið i fyrri hálf-
leiknum. Sagnir voru þar:
*
Noröur Austur Suður Vestur
Stefán Taxte Simon Escude
P 14 P 24
P 24 p 3 4
P 44 P.h.
Suður spilaði hiarta, sem
norður vann, og hélt noröur
áfram með hjarta. Þetta gaf
sagnhafa stigandi þannig, að
hann gat trompað bæði hjörtun i
blindum án þess að hætta
nokkru til. Ef norður spilar
laufi, verður sagnhafi að fara
varlega til þess að ná tólf slög-
um, en það var verkefni Halls
tslenzka landsliðið I Brighton: t fremri röð frá vinstri: Hallur Sfmonarson, Rikharður Steinbergsson
fyrirliði, Stefán Guðjohnsen. 1 aftari röö f.v.: Slmon Sfmonarson, Jón Baldursson, Jakob R. Möiler.Þór-
ir Sigurðsson.
Sfmonarsonar i lokaða salnum.
Sagnir þar voru þannig:
Norður Austur Suður Vestur
Cabot Hallur Maso Þórir
P ÍG P 24
P 34 p 4G
P 5y P 64
Suöur spilaði hjarta hérna
lika, sem norður vann sömu-
leiðis, en skipti svo yfir i tromp.
Austur drap á eigin hendi og
trompaði hjarta i blindum.
Hann tók á trompdrottningu
blinds og spilaði sér heim á
laufakóng. Þegar hann spilaði
siðan öilum trompunum i botn,
þrengdist of mikið að suðri til
þess að hann gæti bæði varið
tigulinn og laufið. Hallur not-
færði sér það og vann sitt spil.
I eftirmálanum, sem um
spilið skapaðist, vildi einhver
benda austri á, að spilið væri ó-
vinnandi gegn laufútspili i upp-
hafi. Hallur gerði sér litið fyrir
og vann spilið samt fyrir við-
komandi. — ,,Ég tek bara á
laufatiuna heima og spila Ut öll-
um trompunum minum. Suður
verður þá að grýta frá sér öllum
hjörtunum eða gefa slag ella.
Þegar svo er komið, tek ég á
laufakóng og spila tigli yfir á
kóng i blindum til þess að hirða
tvo laufaslagi. Heima hjá mér
fleygi ég hjörtum og meira
hjarta, þegar ég spila siðasta
smálaufinu Ur blindum. Suður
fær þann slag á laufagosa og
veröur aðspila tigli frá drottn-
ingunni og hananU! ”Ofur einfalt,
ekki satt?
Stefán
Þótt þannig sé vagninn minn væni,
ég vegina ck cins og fyrr._
Þótt gamali sé biliinn minn græni
er hann góður ef stendur hann kyrr.
Við vitum litið um hvað varnarliðið að-
hefst. Eitt vitum við þó; það hefur ekki
þurft að verja okkur fyrir einu né neinu
undanfarna áratugi. Eflaust er þetta lið
þó viðbúið hverju sem er, nema kannski
innrás, þvi ef ég man rétt er þvi bannað að
hafa önnur vopn um hönd en þau sem ill-
mögulegt er að drepa fólk með, en eru
ágæt til þess að skjóta með i mark.
Samkvæmt nýjustu fréttum kann þetta
þó að vera rangt.
Þá er ég kominn Ur sumarfriinu. Eins
og lög gera ráð fyrir er ég alveg dauðupp-
gefinn og verð trúlega viku eða svo að
jafna mig eftir þetta. Það hefur stundum
verið talað um islensku vegina i niðrandi
merkingu. Mér finnst alveg stórkostlega
skemmtilegt að aka um þá. Þeir eru harð-
ir eins og samgönguráðherra, sums
staðar eru glompur i þeim eins og i
stjórnarsamstarfinu og viða er hallinn á
þeim svipaður og viðskiptahallinn við Ut-
lönd. Þeir eru sem sagt alveg i samræmi
við allt annað hér á landi.
Afram vagninn ó veginum töltir.
Ég vik fyrir hverjum sem er.
í hurðum og hásingu skröltir
og hjartað skröltir i mér.
Okkar vaska varnarlið
vantar hvorki dug né kjark.
Þaö er ansi iðið við
aö æfa sig að skjóta i mark.
Vort eftirlit er ógnar slappt,
ekkert nema fálm og fum.
Ilér gætu eflaust allir haft
atómsprengju i vasanum.
Enn er farið að tala um hvort heppilegt
sé að hafa hunda i þéttbýli eða ekki. 1 af-
stöðu sinni til málsins skiptast menn i tvo
hópa, þá sem eru með þvi að hundahald sé
leyft og svo hina sem vilja banna það.
Fyrrnefndi hópurinn nefnir sig hundavini
og verður þá ekki að lita svo á að hinir séu
óvinir hundanna? Eða er málið kannski
ekki svona einfalt? Hvað svo sem þvi liður
finnst mér rétt að láta hundana sjálfa
ráða þessu.
Hundarækt er heilsubót,
hérna margir stund'ana.
Hér áður þótti ekki gott
ef einhver fór i hundana.
Þegar ég kom heim úr áðurnefndu
sumarleyfi beið min rúmlega
vikuskammtur af dagblöðum. Ég get ekki
sagt að ég hafi litið i blað þessa viku, þótt
ég hafi gert tilraun til að lesa Timann þar
sem hann var eina blaðið sem ég hafði
möguleika á að lita i. En hér heima biðu
min sem sagt um það bil 700 siður af les-
máli. Ég byrjaði á þvi að raða blöðunum i
dagaröð og fór siðan að fletta. Er
skemmst frá þvi að segja að ég gat lesið
mér til ánægju 7 siður af þessum 700.
Blöðin viröast mér viskurýr
og verjast allra frétta.
Um það að ég segi þeim öllum upp
er engum blöðum að fletta.
Enn er farið að tala um að fella gengi is-
lensku krónunnar. Getur þá farið svo að
gengi annarra falli um leið.
Stjórnin okkar finnst mér flott,
felldi hún niður söluskatt.
Ýmislegt hún gerir gott
en gengi hennar fellur hratt.
Aldrei þessu vant hefur veðrið verið
nokkuð gott undanfarna viku hér sunnan-
lands. Fólk hefur notið góða veðursins
með ýmsum hætti. Sumir hafa farið i sól-
bað, aðrir i sundbað og enn aðrir skroppið
til Spánar.
Sólin er komin upp
og farin að skina.
Hún skin á fina fólkiö
og tikina mlna
sem er að bryðja
hundakökuna sina.
Siðan hverfur
blessuð sólin undir
út við haf
og býður góðar stundir.
Það dimma tekur brátt
um grænar grundir.
I
En næsta dag fer sólin
aftur að skina.
Hún skín á fina fólkið
og tikina mina
sem heldur áfram
að bryðja kökuna sina.
Þá eru islendingar búnir að ákveða að
færa landhelgina út i 200 milur.
Er eiginkonan frétti um útfærsluna
— sem öllum hérlendis mun vera kunn—
hún bliðuhótin minnkaði til muna,
en inér hún var sem bátum Selvogsgrunn.
Hún talaöi um landhelgi og linu
sem lægi i stórum hring i kringum
sig.
og innan hennar ætlaði að halda sinu.
t annað herbergi hún færði mig.
Eg virtist þar með ekkert annað geta,
ef aftur vildi lita glaðan dag,
en fara eins og dóni að dæmi breta
uns dómur fellur þarna úti i Hag.
Ben. Ax.