Tíminn - 10.09.1966, Blaðsíða 14
14
TÍMINN
LAUGARDAGUR 10.
september 1966
Ný kennslubók
í starfsfræði
Stanfsfræði. Leiðbeiningar um
' stSSn'ra’L, nefnist ný kennsln-
böfc^em RíkisútgSfa námsbóka
r befm- nýlega gefið út Höfundar
esa Krfetlna. ffi^amsson, sáifræð
, ingBBWJgtStefán <SWur Jónnsson
) námssSóii
B®3ntíer einkum æilnð memend
tnnSaingHngaog gagnfræðaskól
nm cg 6ðm <nngu fólki, sem ekki
| hefnr valið sér lífsstarf, en vill
i fræðast mn hlna ýmsu þætti at-
' vimmHfsins.
Starfsfræðin greinist í nokkra
aðalhluta, Fyrst er stutt yfirlit
um atvinnuþrónn, einkum hér á
landi. Því næst eru upplýsingar um
starfshópa og störf, sem völ er
á, og í framhaldi þess hent á ýms
ar leiðir, sem unnt er að fara, til
að búa sig undir störfin, þ. e. náms
leiðir.
Þá er kafli um atvinnulífið
og aðstæður á vinnustað, ætlaðnr
til að gefa nemanda hagnýtar
upplýsingar um margt það, sem
hann þarf að vita, þ^gar komið,
erút í atvinnulífið.
Loks er síðasta hluta bókar
innar ætlað að hjálpa nem
anda við sjálft starfsvalið, kenna
honum að meta eigin hæfni, áþuga
og aðrar aðstæður, er 'máli
skipta, kenna honum að velja.
Samtímis Starfsfræðinni, hefur
verið gefið út sérstakt verkefna-
hefti. Er það einkum ætlað nem
endum við sjálfskönnun með
val lífsstarfs í huga.
Bókin, sem er 96 blaðsíður, er
með nokkrum skýringarmyndum
Prentun annaðist Prentsmiðja
Hafnarfjarðar h.f.
Gestur nr. 25.000
KT—Reykjavík, föstudag.
í kvöld kom gestur númer 25.
000 á Iðnsýninguna í sýningarhöll
inni í Laugardal. Var honum afhent
ur að gjöf vandaður stóll, fram
leiddur hjá Gamla Kompaníinu að
verðmæti um 12 þúsund krónur.
Gesturinn var Ólafur Jónsson,
Trúlofunar-
hringar
afgreiddir
samdægurs
Sendum om íllt land.
H A L L D Ó R .
Skólavörðusttg 2.
verkamaður, Bræðraborgarstíg 13
í Reykjavík. Kona hans, Lilja Sig
uðardóttir, var með honum á sýn
ingunni.
Aðsókn að sýningunn var ágæt
í dag. Sóttu hana um 5 þúsund
manns.
BORTEN
Framhald af bls. 1.
undan ökutækjum ferlegur, svo að
byrgði sýn hið næsta.
Klukkan fimmtán mínútur yfir
eitt var komið að Húsmæðraskól-
anum á Varmalandi, og tók Ás-
BOLHOLTI 6.
(Hús BelgjagenSc'frinnar;
ÞAKKARÁVÖRP “
Þakka innilega auðsýnda vinsemd í tilefni af sjötugs-
afmæli mínu þann 6. þessa mánaðar.
Gestur Oddleifsson.
HlglnmaSur minn
Hendrik Ottósson
fréltamaSur,
andaðist 9. þ. m. í Landsspítalanum.
Fyrir hönd vandamanna.
Henný Ottóson.
Útfðr móður okkar og tengdamóður,
Ragnhildar Thoroddsen
verður gerð frá Dómkirkjunni, þriðjudaginn 13. september n. k.
kl. 13.30. Blóm og kransar afbeðnir.
Þeim sem vildu minnast hinnar látnu er bent á minningarsjóð
Pálma Hannessonar rektors.
Minningarspjöld fáanleg hjá Bókaverzlun Braga Brvnjólfssonar og
í Menntaskólanum í Reykjavik.
Ingibjörg Ýr Pálmadóttir, Indriði Gísuton,
Péfur Jökull Pálmason, Hrafnhildur t^iftrursdóttir,
Skúli Jón Pálmason, Edda Magnúsdóttlr,
Pálmi Ragnar Pálmason, Ágústa Guðmundssdóttlr.
geir Pétursson sýslumaður og frú
hans þar á móti gestum. Einnig
voru þar komnir til móts við
hina norsku gesti séra Einar
Guðnason í Reykholti og Vilhjálm-
ur Einarsson, skólastjóri, og konur
þeirra.
Þarna var boðið til ljúffengs há-
degisverðar sem forstöðukona skól
ans, Steinunn Ingimundardóttir
ammðist Veðrið var blítt, og
norski forsætisráðherrann virtist
ekki kæra sig um að sitja lengur
undír Iborðum, en brýn þörf gerð-
ist Meðan aðrir gestir fengu sér
kaffi snaraðist hann út einn síns
liðs, og lét lítið bera á, svo að
jafnvel blaðamenn misstu af hon-
um. Hann hljóp með kvikmynda-
vél sína niður að gróðurhúsunum,
hitti þar starfsfólk og hafði skoð-
að allt og kvikmyndað, þegar aðr-
ir gestir fóru í skoðunarferð um
staðinn.
Norsku forsætisráðherrahjónin
gáfu húsmæðraskólanum á Varma-
landi fagra og stóra myndabók —
Norge í dag, natur, kultur og nær
ingsliv, og á hana ritaði Per
Borten: Takk for all gjæstevenn-
skap.
Per Borten hafði orð á því við
tíðindamann blaðsins, að honum
hefði þótt fjallasýnin undrafögur
og héraðið fagurt. Þetta hefði ver-
ið hin lærdómsríkasta morgunferð.
En hann sagði, að sér fyndist
langt milli bæja, lengra en hann
hefði búizt við. Hann skoðaði
svepparæktina með athygli og
spurði starfsfólkið margs, og einn-
ig þóttu honum vínberin falleg og
góð, en bæði sveppa og vínberja,
sem ræktað var á staðnum var
neytt við hádegisverðinn. Norska
forsætisráðherrafrúin, Magnhild
Borten, kvaðst aldrei hafa bragð-
að eins góð vínber og þau, sem
lesin voru handa henni þarna í
gróðurhúsinu á Varmalandi.
Heimskringla og Snorralaug.
Upp úr klukkan þrjú var ekið
að Reykholti. Eiríksjökull kom æ
meira í fangið á leiðinni, ægibjart-
ur sem fyrr. í Reykholti var blæja-
logn, sumarhlýja og glatt sólskin
og staðurinn fagur.
Per Borten heilsaði þar fyrst
upp á Snorra og kvikmyndaði
hann í bak og fyrir. Síðan var
gengið að Snorralaug undir leið-
sögn skólastjórans og séra Einars,
og Per Borten lét kvikmyndavél-
ina suða þindarlítið. Þegar menn
höfðu skipað sér um Snorralaug,
flutti séra Einar stutt erindi, lýsti
gerð laugarinnar og göngunum,
sagði frá því, hvernig Snorri hefði
gengið frá bæ sínum með heima-
mönnum og gestum, sem stundum
voru rithöfundarnir frændur hans.
Síðan hefðu þeir setið í lauginni
og ræðzt við, hugsað og ræðzt við
um það, sem síðar var skrifað.
Lítill vafi væri á því, sagði séra
Eínar, að í þessari laug hefði oft
verið hugsað um norrænu sögu,
og þar hefðu fæðzt hugsanir og
setningar, sem við hefðum síðar
kynnzt í Heimskringlu. Sannleik-
urinn væri raunar sá, að Odda-
skólinn hefði raunar flutzt með
Snorra að Reykholti.
Þegar hér var komið gekk Ás-
geir Pétursson sýslumáður fram og
afhenti norska forsætisráðherran-
um að gjöf þarna á laugabarm-
inum íslenzka skrautútgáfu af
Heimskringlu.
Eftir þetta gengu menn um
staðinn og í kirkju og kirkjugarð,
og séra Einar sagði gestum marg-
an fróðleik. Loks bauð hann
mönnum að ganga í bæinn og
þiggja hressingu hjá sér og konu
sinni, frú Önnu Bjarnadóttur, og
var dvalizt þar við spjall nokkra
stund.
Er leggja átti af stað til Akra
ness lét Borten sérstaka ósk
í ljós um að fá að ganga um
skólabygginguna í Reykholti, og
var það auðsótt mál. Vilhjálmur
skólastjóri gekk með gestunum
um skólann, og létu þeir í ljósi
hrifningu af sundlauginni.
Að lokinni ferð um skólabygging
una var stigið í bílana sem biðu
á hlaðinu, og var ekið rakleiðis til
Akraness, þar sem lögregluyfir
völd staðarins tóku á móti hópnum
í útjarðri bæjarins og lögreglu-
þjónar stóðu heiðursvörð á bryggj
unni, en forvitnir áhorfendur hóp
uðust niður á bryggju til að sjá
hvað væri á seiði, þegar þrír lög
reglubílar með blikkandi rauð ljós
óku þangað, klukkan rúmlega hálf
átta.
Um borð í Óðni var sezt að
borðum, á meðan skipið tók stefn
una út á Faxafóa. Forsætisráðherr
arnir sátu úti í horni borðsalarins
stjórnborðsmegin, og virtust þeir
hafa meiri áhuga á samræðum en
mat og drykk. Pétur Sigurðsson
forstjóri Landhelgisgæzlunnar
sýndi norska forsætisráðherranum
skipið hátt og lágt og þurfti sá
síðarnefndi margs að spyrja um
skipið og Landhelgisgæzluna á
meðan, eins og reyndar allstaðar
þar sem komið var við i dag —
því Per Borten virðist vera sér
staklega fróðleiksfús maður.
Til Reykjavíkur var komið um
klukkan níu, eftir ánægjulega sjó
ferð og góðar veitingar um borð.
Þar með var lokið dagskrá heim
sóknarinnar í dag, og eins og
fyrsta dag heimsóknarinnar hófst
þessi dagur með ferð í Sundlaug
Vesturbæjar, því Borten hjónin
segjast vera árrisul — jafnvel
þótt þau gangi seint til náða.
GEGN VARNARBANDALAGI
Framhald af bls. 1.
varnarbandalag myndi æxlast er
það ljóst að það myndi starfa und-
ir verndarvæng öflugs vestræns
vaínarbandalags.
Slíkar aðgerðir myndu skjóta
loku fyrir sænskt hlutleysi, sem
byggir á sögulegum grunni, og
væri í andstöðu við hagsmunamál
Finna.
Hins vegar er Isvestia hliðholl
hreinu skandinavísku samstarfi
um hlutleysi „norðursins“ og er
sammála Svíum, að hernaðarlegt
hlutleysi veiti meiri vernd en
hernararbandalög. Segir blaðið, að
því sé ekki að neita, að hin hlut
lausu lönd boði minni hættu fyrir
hernaðarlöndin en þau, sem aðil
ar séu að hernaðarbandalögum.
Er endurtekið að Sovétríkin séu
reiðubúin til að tryggja hlutley^
ríkja Skandinavíu, svo fremi að
vesturveldin séu á sömu skoðunar.
í greininni er því haldið fram,
að Norðmenn og Danir vísi á bug
fregum um atómvopnalaust belti
af ótta við, að það mundi valda
RÉTTIR í NÁGRENNI BORGARINNAR
KT-Reykjavík, föstudag.
Vegna hinna fjölmörgu Reyk-
víkinga, sem áhuga hafa á að vera
við réttir á þessu hausti þykir rétt
að birta hér á eftír lista yfir rpt.tir
í nágrenni höfuðstaðariins. Nokkr
ar þeirra hafa verið nefndar áður
í blaðinu, en i þeirri upptalningu
var dagsetning á einum réttunum
ekki rétt.
Sunnudagur 18. sept. Fossvalla-
rétt.
Mánudagur 19. sept. Húsmúla-
rétt, Kaldárrétt, Þingvallarétt og
Nesjavallarétt.
Þriðjudagur 20. sept. Ilafravaatns
rétt og Kjósarrétt.
Miðvikudagur 21. sept. Kolla-
fjarðarrétt og Selvogsrétt.
Fimmtudagur 22. sept. Ölfus-
rétt.
ringulreið í fyriræCiunum NATO.
Segir höfundur greinarinnar, að
atómvopnalaust belti myndi ekki
breyta neinum styrkleikahlutföll
um, heldur aðeins styrkja það
ástand sem fyrir er.
Að lokum segir greinarhöfund
ur, að tími sé til kominn, að mað
ur losi sig við þær röngu hug
myndir, að öryggi fólksins hvíli
aðeins í höndum stórveldanna.
Lætur hann grein sinni lokið
með því að hvetja til þess, að köll
uð verði saman evrópsk ráðstefna
um öryggi þess meginlands.
BLYSFÖR
Framhald af bts. 1.
Öflugur lögregluvörður stóð
umhverfis torgið til að koma í
veg fyrir hugsanlegar óspektir af
hálfu Vietcong. En á meðan fólkið
tók þátt í hátíðahöldunum dundu
sprengjurnar í næsta nágrenni í
úthverfum borgarinnar áttu her
menn stjórnarinnar í hörðum bar
dögum við Vietcong. Á sama tíma
berast fréttir af því, að munkarnir
200 haldi áfram hungurverkfalli
sínu og muni því ekki lokið fyrr
en að loknum kosningum á sunnu
dagskvöld.
Vietcong og munkahreyfingin
hafa hvatt fólk til að taka ekki
þátt í kosningunum, en að öðrum
kosti mætti búast við alls konar
hryðjuverkum.
Allir bandarískir hermenn hafa
mátt kenna á útgöngubanni vegna
kosninganna, að undanskildum
tveim hersveitum, sem hefur vei
ið falið að aðstoða þær suður-
vietnömsku á kosningadaginn.
MJÓLKURPOKAR
Framnald al ois 16.
þess að taka á móti pokunum úr
vélinni og annan til þess að taka
flutningaplastkassa frá vélinni, en
10 pokar komast í hvern kassa.
Kössunum má stafla á fyrirferðar-
lítinn hátt. Fyllsta hreinlætis er
gætt áður en pökkun er hafin og
vélin dauðhreinsuð.
Kostir þess að pakka mjólk í
slíkar plastpokaumbúðir eru marg
víslegir. Umbúðirnar eru úr lit-
uðu plasti þannig að ljós kemst
ekki að mjólkinni og kemu í veg
fyrir svokallað sólarbragð. Umbúð
irnar eru það sterkar að fullvax-
inn karlmaður getur staðið á
mjólkurpoka, án þess að hann
springi. Einn kosturinn við pok-
ana er hversu vel þeir rúmast í
ísskáp.
Kostur pokanna fram yfir hyrn-
urnar er m.a. hversu auðvelt er
að koma þeim fyrir kattarnef, en
hyrnunum er erfitt að eyða og
þær taka mikið pláss í ruslaföt-
unum. Sérstakar plastkönnur má
kaupa til þess að hafa pokana í
þegar hellt er«úr þeim og eru
könnurnar ódýrar.
Grétar Símonarson, mjólkurbús
stjóri, sagði að allar aðrar mjólk-
urumbúðir yrðu lagðar niður þeg
ar pökkunin kæmist í fullan gang
og bjóst hann við að það yrði í
t ’g.Flöskurnar kvaðst hann ætla að
gefa húsfreyjunúm undir saft, það
væri hvort sem er ekkert hægt
að gera við þær. Einnig kvaðst
hann hætta að flytja hyrnur úr
Reykjavík á Suðurlandsundirlend-
ið. Hann sagði, að nálægt 6000
lítr. væru seldir dag hvern á Suð-
urlandsundirlendi frá Þorlákshöfn
til Víkur í Mýrdal. Hann kvaðst
binda miklar vonir við þessa Pre-
pac vél og sagði að þetta væri
framtíðin fyrir fámenna staði.
Kostnaðurinn v.ið íJVkunina á
piastumbúðunum væn mun minni
en á hyrnunum.
Góð reynsla hefur fengizt á
Prepac-vélunum, þær eru til dæm
is í notkun í 15 löndum og eru
samt aðeins 3 ár síðan þær komu
á markaðinn. Samband ísl. sam-
vinnufélaga hefur umboð fyrir
þær hér á landi.