Tíminn - 10.09.1966, Blaðsíða 16
Sil.
’OS. tbl. — Laugardagur 10. september 1966 — 50. árg.
Prestafélag Austurlands:
YSIR VANÞÚKNUN
ÆSINGASKRIFUM
um einn prest þjóðkirkjunnar
MAÐUR LÉZT AF VÖLDUM ÁREKSTURS
KT—Reykjavík, föstudag.
Fyrir nokkrum dögum varð það
slys á Sauðárkróki, að jeppabifreið
rann stjórnlaust á vörubifreið og
gekk hornið á vörubifreiðinni inn
í jeppann. í framsæti jeppabifreið
arinnar sat maður á áttræðisaldri
og meiddist hann talsvert. Var
hann þegar lagður á sjúkrahús,
Prestafélag Austurlands hélt
aðalfund sinn 27. ágúst síðast-
liðinn. Á fundinum var sam-
þykkt eftirfarandi tillaga varð
andi hið svokallaða Möðru
vallamál: „Aðalfundur Prestafé
STRÍÐIÐ SÝNT
Á SUNNUDAGINN
Fyrsta sýning Þjóðleikhúss
ins á nýbyrjuðu leikári verður
á sunnudagskvöldið. Verður þá
sýnt leikritið „Ó, þetta er indælt
stríð“, sem byrjað var að sýna
á liðnu vori við geysi vinsældir.
Hér er um að ræða mjög skemmti
lega sýningu og mjög sérstæða
sem byggð er á ýmsum skop-
færðum atburðum úr stríðinu
1914—18. Leikstjóri er Kevin
Palmer, og þykir sýningin liafa
tekizt afburða vel og luku
leikgagnrýnendur upp einum
munni um, að leikstjórn Palm
evs væri viðburöur í leiklist
arlífi höfuðborgarinnar.
lags Austurlands haldinn að
Eiðum laugardaginn 27. áSúst
196G, lýsir vanþóknun sinni á
þeim æsingaskrifum um einn af
prestum þjóðkirkjunnar, sem
hirzt hafa í blöðum að undan
förnu, og telur siík skrif aðcins
geta orðið kirkjunni til vansæmd
ar og tjóns."
Átta prestar voru mættir á
fundinum og kom þessi einarða
afstaða þeirra fram nokkrum
dögum áður en mál þetta var felll
niður af ákæruvaldsins hálfu, sem
ekki sá ástæðu til frekari aðgerða. í
Ilefur verið skýrt frá þeim mála I
lokum hér í blaðinu.
Aðalfundurinn hófst mcð helgi-
stund í Eiðakirkju. í skýrslu sinni
Fremhald á bls. 15.
þar sem hann lézt tveimur dögum
síðar. Fengust þessar upplýsingar
hjá Halldóri Jónssyni, fulltrúa
bæjarfógeta.
Er blaðið leitaði nánari upplýs
inga um málið hjá Gunnari Þórð
arsyni, yfirlögregluþjóni, vildi
hann ekkert um málið segja.
Kveðjukoss
Myndin jr tekin, er unn
usti Margrétár Danaprins-
essu, Henri de Laborde de
Monpezat, varð að yfirgefa
sína heittelskuðu og hverfa
til starfa sinna við franska
sendiráðið í Lundúnum. Að
öðruleyti þarfnast myndin
ekki skýringar.
: ■.
y *>. ,4 '• *, , V
í
FÆR NÚ MJÓLK í PLASTPOKUM
Mjólk sett í plastpoka f Mjólkurbúi iplóamanna. Vélin, sem notuð er til
þess heitir Prepac. (Tímamynd H/)
HZ-Reykjavík, föstudag.
í langan tíma hefur staðið mik-
111 styrr um mjólkurumbúðir. Hér
á íslandi var bæði brúsamjólk og
flöskuinjólk fram til ársins 1959,
en þá um haustið tók Mjólkur-
samsalan upp mjólkurhyrnurnar,
sem enn eru notaðar. Jafnhliða
var selt töluvcrt magn af flösku-
mjólk og mjólk í lausu máli, þar
sem hyrnumjólkin var nokkru dýr-
ari. Var mikið ritað og rætt um
þessar hyrnur, því að auðvitað
sættu þær gagnrýni eins og flest-
ar nýungar. Töldu þeir, sem dval-
izt hafa erlendis, að kassaumbúðir
væru hentugri á allan liátt. Mjólk-
ursamlagið á Akureyri tók upp
10 lítra kassaumbúðir fyrir rúmu
ári. Þessir kassar hafa gefizt vel
og eini ókosturinn við þær er sá,
að þeir þykja of stórir á minni
heimilum. Mjólkursamsalan í
Reykjavík hyggst á næsta ári taka
í notkun tveggja lítra kassaumbúð-
ir, en það er álit sérfróðra manna,
að þær séu beztu og hentugustu
mjólkurumbúðir fyrir stóran mark
að. Á þessu ári hafa verið tekn-
ar í notkun mjólkurpokaumbúð-
ir á þrem stöðum, Egilstöðum,
Sauðárkróki og Selfossi, en þar
KJÖRDÆMISÞING!
VESTURLANDS-
KIÖRDÆMI
Kjördæmisþing Framsóknar-
manna í Vesturlandskjördæmi
verður haldið að Laugum I Dala
sýslu í dag laugardag og
hefst kl. 16. Fulltrúar eru beðnir
að mæta vel og stundvíslega.
hófst slík pökkun í fyrri viku.
Mjólkursamlagið á Blönduósi á
einnig í pöntun slíkra pökkunar-
vél, en þessar fjórar pökkunarvél-
ar eru franskar af PREPAC gerð.
í gær skrapp fréttamaður Tím-
ans austur fyrir fjall til þess að
skoða pökkunarvélina í Mjólkur-
búi Fjóamanna og spjalla við Grét
ar Símonarson, mjólkurbússtjóra
um þessar vélar.
Með í förinni var tæknimaður
frá SÍS, því að stilling pökkunar-
vélarinnar var ekki rétt. Tókst
tæknimanninum á 5 mínútum að
koma vélinni í lag og gat fram-
leiðsla haldið áfram af fullum
krafti á nýjan leik. Prepac vélin,
sem er frönsk eins og fyrr seglr,
tekur mjög lítið gólfrými aðeins 1
ferm. og getur hún fyllt og pakk-
að 1500 lítra á klukkustund. Unnt
er að stilla vélina, þannig, að hún
pakki hvaða vökva sem er, jafn-
vel gosdrykkjum, í þeim stærðum
sem óskað er, allt frá desilítra upp
í lýá lítra. Er magnið stillt með
einum hnapp á vélinni en annars
eru önnur stillingartæki sjálfvirk
og stjórna þeim transistorar. Um
búðirnar koma erlendis frá í rúll
um og vélin sjálf brýtur þær og
límir. Aðeins einn mann þarf til
Framhald á bls. 14
HENDRIK OTTÓSSON
FRÉTTAMAÐUR LÁTINN
FB—Reykjavík, föstudag
Hendrik Ottósson fréttamaður
Ríkisútvarpsins andaðist á Lands
spítalanum í Reykjavík í dag.
Hendrik var fæddur 8. október
1897 í Vesturbænum í Reykjavík.
Foreldrar hans voru hjónin Otto
N. Þorláksson skipstjóri og Caro-
line E. R. Siemsen. Stúdent varð
Hendrik frá Menntaskólanum í
Reykjavík árið 1918 og cand.
phil frá Háskólanum árið 1920.
Síðan las hann málvísindi við há-
skólann í Kaupmannahöfn, en
stundaði laganám hér við Háskól
ann frá 1920 til 1925.. Hann las
málvísindi við Lundúnaháskóla
árið 1933 en guðfræði við Háskóla
íslands 1936—38. Hendrik stofnaði
Fremhald á bls. 15.