Vísir - 12.08.1975, Blaðsíða 7
Visir. Þriöjudagur 12. ágúst 1975
7
cyflenningarmál
Ekkert t\\ að
kvefast út af
Paul Kersey (Charles Bronson) reynir aö draga aö sér athygli
árásarmannanna til þess eins aö geta skotiö þá niður meö köldu
hlóði, ef þeir gerast of næ-rgönguHr.
HASKÓLABÍÓ
„Death Wish” ♦♦
Leikstjóri: Michael Winner
Aðalleikendur: Charles Bron-
son, Hope Lange og Vincent
Gardenia.
Vonbrigði var það eina, sem
myndin „Death Wish” skildi
eftir hjá mér. Eftir mikið umtal
og töluvert af hrósi erlendis átti
maður von á einhverri opinber-
un.
í myndinni „Death Wish”
hafa leikstjórinn Michael
Winner og leikarinn Charles
Bronson enn einu sinni tekið
höndum saman. Aður hafa þeir
meðal annars gert myndirnar
„The Mechanic” og „Stone
Killer”, sem er ári eldri en
þessi. 1 báðum myndunum leik-
KVIKMYNDIR
Umsjón: Jón
Björgvinsson
ur Bronson steinrunninn
drápara eins og nöfnin reyndar
bera með sér.
Þegar Michael Winner tekur
sig til upp á eigin spýtur hefur
hann náð öllu meiri árangri eins
og myndirnar „The Night-
comers” með Marlon Brando og
„Scorpio” með Burt Lancaster
og Alain Delon bera með sér.
Báðar voru þær myndir sýndar
hér um siðustu áramót.
Myndin „Death Wish” hefur
einkum vakið athygli fyrir boð-
skapinn, sem hún setur fram og
leik Charles Bronson, sem er
hér örlitið þýðari en vanalega.
Boðskapur myndarinnar og
efni er spurningin um, hvort of-
beldi megi stöðva með ofbeldi.
Myndin gerist i New York borg.
Afbrotamenn hrella varnar-
laust fólk á götum úti. Á heimil-
um sinum er fólk ekki heldur ó-
hult. Ráðizt er inn á heimili
arkitektsins Paul Kersey
(Charles Bronson) og konu hans
og dóttur misþyrmt. Afleið-
ingarnar eru þær, að Kersey,
sem verið hefur andvigur öllu
ofbeldi til þessa, ákveður að
gripa sjálfur til hrottalegra að-
gerða gegn afbrotamönnum
borgarinnar.
En það er langt frá þvi, að hér
kveði við nýjan tón. Sagan um
lögreglumanninn, sem gafst
upp á þvi að brjóta glæpamenn
á bak aftur með löglegum að-
gerðum og tekur að vinna sam-
kvæmt eigin ofbeldislögum, hef-
ur verið vinsæl meðal kvik-
myndahöfunda að undan-
förnu. „Dirty Harry” og
„Magnum Force” heyra til
slikra mynda og jafnframt er
efni áðurnefndrar „Stone
Killer” af svipuðum toga.
Efnisrásin i myndinni „Death
Wish” er óvenju grófgerð og til-
gangur atriða, sem eru að
undirbúa jarðveginn fyrir það
sem koma skal,falla ekki nógu
vel inn i heildarmyndina til að
skapa tilætluð áhrif.
Þannig hefur hið friðsæla at-
riði i opnun myndarinnar, þar
sem Paul Kersey er sýndur með
elskandi konu sinni, augljóslega
þann tilgang, að réttlæta sökn-
uðinn, þegar kona hans deyr
skömmu siðar.
Þá er jafnframt allt gert til
að hella yfir áhorfandann tölum
og staðreyndum um ofbeldis-
verk i New York. Slik lögmál
auglýsingakvikmynda eiga
vart heima hér.
Þá er i myndinni að finna of
margar endurtekningar, sem
koma i veg fyrir að spennan nái
sér nokkru sinni verulega á
strik.
Þegar sakamálamynd er tek-
in að vetri til i New York hugs-
ar maður sjálfkrafa til mynd-
arinnar „The French
Connection”. Með þvi að bjóða
upp á svipuö atriði og þar sáust
á nokkrum stöðum, til dæmis
atriðið i neðanjarðarlestinni,
býður leikstjórinn til frekari
samlikingar.
Winner tekst ekki að leiða á-
horfandann jafn nálægt veru-
leikanum og leikstjóra „The
French Connection”. Þótt
drepandi kuldi hafi t.d.
verið i New York, er kvik-
myndatakan fór fram
skynjar áhorfandinn hann mjög
takmarkað. Aftur á móti lá við,
að áhorfendurnir kvefuðust við
að horfa á kuldaatriðin i
„French Connection”.
Vissir vankantar koma þó
ekki i veg fyrir, að kvikmyndin
veiti þokkalega kvöldskemmt-
un. Leikstjórn Michael Winner
hefur gjarnan verið trygging
fyrir þvi. Kvikmyndahúsið vill
hins vegar sem minnst úr þvi
gera, að hann hafi átt nokkurn
hlut að máli og getur hvorki
leikstjóra né raunverulegs
nafns myndarinnar i auglýsingu
sinni. „Auga fyrir auga” heitir
sú mynd i auglýsingunni, sem
umtal hefur hlotið erlendis
undir nafninu „Death Wish”.
Þótt forráðamenn Háskóla-
biós fylgist takmarkað með i
kvikmyndaheiminum mega
þeir ekki ganga út frá þvi sem
visu, að hið sama gildi um gesti
þeirra.
Saga um ítalska fjölskyldu
STJÖRNUBÍÓ
„Mafia” -K-K
Leikstjóri: Leopoido Torre Nils-
son
Aðalieikendur: Alfredo Aicon,
Thelma Biral og José Salvin.
Þrjár italskar kvikmyndir eru
á tjöldum kvikmyndahúsanna
þessa dagana. Tvær myndanna
eiga fátt skylt við italska
kvikmyndagerð og þvi freistast
maður til að halda að sömu sögu
sé að segja um þá þriðju,
myndina „Mafia” i Stjörnubió,
sem unnin er af ítölum en dreift
af Columbia.
í stað þess að gera ofbeldis-
verk að aðalboðskap sinum,
reyna höfundar myndarinnar að
draga upp sanna mynd af
Mafiuforingjanum Don Chicho
og fjölskyldu hans i bænum
Rosario i Argentinu i kringum
1930.
Ofbeldisverk eru aðeins bak-
grunnur myndarinnar. I for-
grunni er ástarsaga ungs og
framagjarns Itala og ungrar
stúlku, dóttur Don Chiho.
Gegnum samband þeirra kynn-
umst yið jafnframt lifsskoðun
og háttum italsk föður og ættar-
höfðingja, Don Chicho, saman-
ber upphafsatriði myndarinnar,
er sýnir konu hans og dóttur
færa hann I fötin sem auðmjúkir
þjónar.
Likt og i efnisuppbyggingu
sumra tslendingasaenanna og
jafnframt leikrita Shakespeare
fylgjumst við með þvi, hvernig
framagirni unga mannsins
dregur hann niður i svaðið og
loks i sjálfan dauðann.
Um leið og ungi maðurinn,
Luciano Benoti, leikinn af
Alfredo Alcon, óhlýðnast
skipunum yfirmanns sins i
Mafiunni og flekar siðan dóttur
hans skynjar áhorfandinn að
stoðir italska samfélagsins
hrikta og aðeins ein endalok biði
Benoti.
Umgjörð myndarinnar er
vönduð og leikur þýður. Myndin
„Mafia” er kvikmynd sem kom
mér á óvart og bauð upp á
meira en ég reiknaði með fyrir-
fram.
Sköburstarinn flytur Luciano
(Alfredo Alcon) slæm tiðindi.
Mundi sóma sér
vel á þrjú-bíó
TÓNABIÓ
„Með lausa skrúfu”
(Providence and Hurricane
Kid)
Leikstjóri: Giulio Petroni
Aðalhlutverk: Tomas Milian og
Gregg Palmer
Slangur af misjafnlega skop-
legum hugmyndum er kjarninn,
sem höfundar „Með lausa
skrúfu” spunnu kvikmynd sina
utan um.
Siöan Trinity bræður litu
dagsljósið hefur linan verið sú i
„spaghetti vestrunum” að
reyna að gera þá gamansama,
bófana góða inn við beinið og
aðalsöguhetjurnar eins
ókúrekalegar og hugsast getur.
Auk þess er ofbeldi og kynlifi
stungið ofan i skúffu og eru þvi
þarna yfirleitt komnar ágætis
þrjú-bióa-kvikmyndir.
Italarnir riða helzt ekki um á
hestbaki likt og aðrir kúrekar
nú orðið. Trinity lætur sinn hest
draga sig áfram á börum og
hetjan okkar I þessari mynd,
Providence, lætur fjögur villt
hross draga sig áfram i hús-
vagni með öllum þægindum og
óþægindum. Providence
(Tomas Milian) leitar uppi
sakamenn, sem fé hefur verið
sett til höfuðs. Honum er eink-
um annt um hinn ruddalega
Hurricane Kid (Gregg Palmer),
Þetta er hetjan okkar
Providence i fullum
skrúða.
sem hann lætur setja inn fyrir
fúlgur fjár og hjálpar svo að
flýja sitt á hvað.
Þarna eru þvi mættar litla og
granna tipan og sú stóra og feita
likt og i Trinity flokknum. Ekki
vil ég fortaka, að þessi Pro-
vidence mynd sé annað hvort
upphafiö eða endirinn af flokki
mynda um sömu kappana, þótt
sú, sem nú er sýnd, sé sú fyrsta,
sem hingað berst. „
Efnið er einfalt, kimnin ristir
ekki djúpt og leikurinn er slæm-
ur. Itölunum er þetta ljóst. En
þeim er einnig ljóst, að alltaf
kemur viss hópur manna til að
lita á þessa framleiðslu, lika hér
á landi.
EOH
ismmaagaffiffgagB