Vísir


Vísir - 14.08.1975, Qupperneq 2

Vísir - 14.08.1975, Qupperneq 2
Visir. Fimmtudaf'ur 14. ágúst 197S ■IMW MHHI. imvw Hvaða áhrif hefur sólar- leysið á þig? Anna Björg Jónsdóttir, kennari: , „Engin, ég hef ekki oröið vör við neina skapbreytingu.” Margrét Gunnlaugsdóttir, nemi: betta veður hefur engin áhrif á mig. Þó þótti mér stundum leiðin- legt aö vinna i unglingavinnunni, þegar veðrið var sem leiðinleg- ast. Guömundur Guómundsson, bankastarfsmaður: „Mér finnst ég verða niðurdreginn og latur I þessum sifellda dumbungi”. Maggi Jóhannsdóttir: „Ég er glaölynd að eðlisfari og hugsa með mér, að ekki þýði að kljást við veðurguðina, en annars erum við búin aö vera fyrir norðan i sól- inni þar að undanförnu. Bjarni Pálmason, bifreiðastjóri: „Ég hef sól i hjarta og sól i sinni, þaö bjargar öllu”. Anna óskarsdóttir, húsmóðir: „Svo lengi sem veðrið er hlýtt og vindurinn blæs ekki mjög mikið, þá hefur þetta veðurfar litil áhrif á mig”. LESENDUR HAFA ORÐIÐ Síldin fœrði mér heilsuna Maga- sjúk- lingar! # # Ragnar Alfreðsson hafði sam- band við blaðiö: — Þannig er, að ég hef verið magasjúklingur um nokkurt skeið. Ég er með skeifugarnar- sár og of háar sýrur. Á morgn- ana hef ég ælt lifur og lungum ## og verið með sárindi i maga alla daga. Þetta hefur verið mjög erfiður timi. Svo var það fyrir tilviljun, að ég fékk mér marineraða sild og tók þá eftir þvi, að hún gerði mér gott og fór vel I maga. Ég fór að borða meira af slíkri sild og borða nú orðið eitt til tvö flök á dag. Og ég skrökva engu um það, að ég er orðinn allt annar maður á eftir. Sildarátið hefur látið öll fornu einkennin hverfa. Ég hef einnig reynt að drekka vökvann af slldinni, en það hefur ekki haft eins góð áhrif. Mér þótti rétt að skýra frá þessari reynslu minni, ef það gæti hjálpað einhverjum öðrum, sem á við sama vanda- mál að striða og ég.” Að hlaupa 800 metra þegar bíllinn bilar? Vegfarandi og útvarpshlustandi hafði samband við biaðið: „Ég hjó eftir þvi i umferðar- þættinum hjá Árna Þór Ey- mundssyni um daginn og ég hef raunar heyrt hann minnast á þaö áður, að ef blll minn bilar úti á þjóðvegi, sé hollt ráð að koma fyrir litlum endurskins- merkjum 100 metrum fyrir framan og aftan hann. Jafn- framt hafi Umferðarráð gert samþykkt um að mæla með þvi, að slik endurskinsmerki sé að finna I öllum bilum. En ég segi nú fyrir mitt leyti, ekki ætla ég að fara að hlaupa 800metra i hvert sinn, sem bill- inn minn bilar. 400 metra sam- tals þegar billinn bilar og aðra 400 metra þegar búið er að gera við.Eru þetta núekki einum of langar vegalengdir? Mig lang- aði nú bara að skjóta þessu að fólki.” Alþjóðarundiskriftasöfnun: 200 mílna lögsagan að- eins nýtt af íslendingum 8350-8361 skrifar: „Tvennt er það, sem brotizt hefur um i huga minum nú und- anfariö, eru það að visu óskyld mál, en þar sem ég tek mig nú til að skrifa, ætla ég eins og smiðurinn sagöi, að kljúfa tvo raftana i einn, og láta eitt bréf nægja um bæði málin. Vil ég þá fyrst minnast á það málið, sem mestu skiptir fyrir lif þjóðarinnar, bæði i nútið, og ekki siður um ókomna framtið, en það eru 200 milurnar, sem öll þjóðin stendur einhuga að. Ég mun ekki vera eini tslend- ingurinn um þá skoðun, að þvi miður verði vart of mikillar undanlátssemi i ræðum og riti landsfeðranna, gagnvart öðrum þjóðum, og þá einkum þeirra, sem sýnt hafa mestan ágang og frekju i okkar garð, bæði með hervaldi og efnahagsþvingun- um, og á ég þar við Breta og Þjóðverja, eins og flestir munu skilja. Á undanförnum árum hafa farið fram undirskriftasafnanir um mörg og óskyld mál, en að minum dómi hafa þau ölí verið litils virði I samanburði viö þetta llfshagsmunamál okkar tslendinga, sem segja má, að á- kvarði tilveru okkar um alla framtið. Þess vegna vil ég nú skora á einhverja menn, sem mark er tekið á, að þeir beiti sér fyrir al- þjóðarundirskriftasöfnun j þá átt, að 200 milna lögsagan verði eingöngu nýttaf tslendingum og engar undanþágur veittar öðr- um þjóðum. Gæti sá nafnalisti orðið mikilvægur styrkur þeim, sem með völdin fara, og jafn- framt aðvörun um minnkandi vinsældir þeirra meðal almenn- ings, ef hann yrði virtur að vett- ugi, enda vænti ég þess, að nöfn- in yrðu ennþá fleiri en þegar „Varið land” var á ferðinni. Ferðabók Eggerts og Bjarna: ERLENDIR KAUPA Á 6.500-ÍSLENZKIR Á 25.000 KRÓNUR Hitt málið snýr að bókaútgáfu okkar. I tilefni af 1100 ára af- mæli tslandsbyggðar réðst bókaútgáfan örn og örlygur i það stórvirki að géfa út Ferða- bók Eggerts og Bjarna i skraut- útgáfu, rúmlega 100 eintök prentuð á svokallaðan forn- prentpappir, sem ég, fávis les- andi og bókavinur, kann ekki skil á bvers virði er, en hvert eintak kostaði kr. 25.000,-, siðan komu 1500 eintök, prentuð á að visu allgóðan myndapappir, og kostuðu þau litlar 15.000,- krón- ur hvert. Vegna manns, sem ég þekkti, var ég svo stálheppinn að eignast eitt eintak af ódýru útgáfunni og þóttist hafa himin höndum tekin, einkum er ég las i blöðum, að erlendir bókagagn- rýnendur væru undrandi á þvi, hvernig hægt væri að stilla verði jafnvandaðrarútgáfu i slikt hóf. Alþjóðaökuskírteinið ekki tekið gilt í útlöndum — aðeins það íslenzka tslendijigur i Luxemborg skrifar. „Mig langar til að koma eftir- farandi á framfæri til allra þeirra tslendinga, sem hyggja á ferðalög til annarra landa með bilinn sinn eða ætla að leigja sér bilaleigubil erlendis. Þessi alþjóðaökuskirteini, sem F.t.B. selur heima og út- heimtir mikla snúninga að fá — fyrir utan kostn^ið, eru ekki tek- in til greina og eru einskisvirði. Þetta gildir alls staðar, þar sem ég hef komið — bæði i Evrópu og Ameriku. Það eina, sem t.d. bilaleigur taka gilt er islenzka skirteinið og sömuleiðis lögreglan og landamæraverðirnir. Ég hitti mann hér i Luxem- burg um daginn, sem varð að biða 2 daga eftir þvi að fá sitt venjulega skirteini sent að heiman, af þvi að alþjóðaskir- teinið var ekki tekið gilt. Ég vona, að þessi ábending komi til með að spara mörgum landanum tima og snúninga.” En Adam var ekki lengi i paradis. Nú fyrir skömmu sá ég og heyrði i islenzkum fjöl- miðlum, að útgáfufyrirtækið hefði gert enn betur, hafði það nú fengið þekkta mál- vísindamenn (trúlega ekki út- gjaldalaust) til þess að þýða 'bókina á enska tungu, gefið hana út á FORN- PRENTAPAPPtR og boðið er- lendum kaupendum fyrir kr. 6.500,- svo að tæpast held ég, að um stórfellt tap hafi verið að ræða á Islenzku útgáfunni, en hér sannast vist hið fornkveðna, að sitt hvort er að heita Jón eða séra Jón, og finnst mér, að það annars ágæta útgáfufyrirtæki hefði máttsjá sóma sinn i þvi að okra ekki meira á sinum tryggu islenzku viðskiptavinum én á erlendum vonarpeningi.”

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.