Vísir - 14.08.1975, Síða 16

Vísir - 14.08.1975, Síða 16
vísm Fimmtudagur 14. ágúst 1975 Óvarinn flugfloti: lœsa á nótt- unni — Við erum búnir að setja keðjur og lása og gera flugskýl- ið eins tryggt og okkur framast er unnt, sagði Gunnar Sigurðs- son, flugvallarstjúri, við Vísi i gær. Eins og menn muna varð milljónatjón á tveim litlum vél- um I flugskýli númer eitt um siðustu helgi, þegar óviðkom- andi maður labbaði þar inn, gangsetti vél og ók á aðra. — Þetta er ekki I fyrsta skipti, sem við reynum að læsa skýlinu, sagöi Gunnar. Gallinn er sá, að þarna ganga margir um og lásarnir hafa jafnan ver- ið brotnir upp. Það eru jafnvel flugvélaeigendi. • > sem standa fyrir þvi. — Við leigjum þetta skýli án ábyrgöar. Þeir sem eiga flug- vélar þarna inni bera sjálfir á- byrgð á þeim. Við viljum hins vegar auðvitað gera þaö sem i okkar valdi stendur til að hindra að þær séu skemmdar. t þessu skýli er oft aö finna um 80 prósent af einkaflugflota íslendinga, þegar vélarnar eru flestar. Menn telja það mestu mildi að ekki skyldi verða af mikið bál um helgina, þegar ó- fluglærður maður fór af stað þar I litilli flugvél. Þarna gæti þvi hæglega orðið geysilegt tjón, ef ekkert er gert til að stemma stigu við umferð óviðkomandi. — Við höfum oft stuggaö við mönnum, sem hafa verið að flækjast þarna um, sagði Ólafur Erlendsson, varðstjóri hjá slökkviliðinu á Reykjavikur- flugvelli. Við reynum að fylgj- ast með þeim sem þarna eru á ferli, ekki sizt á nóttunni. Það er heldur ekki sjaldan sem við lokum skýlinu og slökkvum þar ljós. — Viö erum hins vegar ekki meö neinar fastar eftirlitsferð- ir. Þaö er ekki I okkar verka- hring. Það er þvi alls ekki hægt að treysta á að vera okkar hér á flugvellinum sé afgerandi hindrun. —ÓT. Baráttan við náttúruöflin: W MULAKVISL ER EINS OG TVOFALT SOGIÐ — blaðamaður Vísis heimsœkir vegagerðamenn í erfiðum starfa austur á Mýrdalssandi Starfsfólk vatnamælinga mældi vatnið f Múlakvísl. Frá vinstri eru Eberg Ellefssen, Rannveig Rist og Sigurjón Rist. Þau eru hér að renna straummæli ofan f flauminn. Myndir: SHH Það virtistsvo sem ekki mikið um að vera austur við Múlakvisl i gær, þegar Vlsir bar þar að garði. Brúin var kirfilega lokuð I báða enda og fjöldi bfia I sand- inum austan brúar, nokkrir einnig sunnan megin og stór krani neðan við veginn. Ofan við brúna voru þrjár ýtur, ein að byrja að ryðja upp nýjum varn- argarði en hinar tvær verklaus- ar þá stundina — sennilega ver- ið að smyrja þær. En á þeim rúma klukkutima, sem staldrað var við eystra, ruddi ein ýta upp varnargarði, sem færöi flauminn undir miðja briina, og þegar Visir kvaddi, var brúarvinnuflokkur kominn á staðinn undir stjórn Jóns Val- mundssonar, tilbúinn að hef jast handa öðru sinni og koma oki undir brúna, svo unnt yrði að hleypa umferð á hana á ný. Jón Valmundsson sagöi, að þeir hefðu getað veitt straumn- um frá vestursporði brúarinnar, þar sem okið tók undan, á þriðjudagskvöldið. Þá var haf- izt handa að gera við, og unnið fraifi I myrkur. Siðan var hafður vörður viö brúna, en um nóttina breytti áin sér þannig, að straumurinn kom meira austan að og þvert á nýja varnargarð- inn. Ýturnar höfð ekki við, og garðurinnrofnaði á ný. Þar með skall straumurinn aftur á vest- ursporðinum. Jón taldi, að ef þeir fengju vinnufrið á árbotninum, myndu þeir gera við brúna til bráða- birgða, þannig að unnt yrði að hleypa á hana að minnsta kosti allri léttari umferð. Það var á sunnudaginn, sem Múlakvisl tók að renna af mikl- um þunga austan frá. Þá urðu straumamót við vestursporð brúarinnar, sem tóku undan vestasta okið. Mikil lægð er komin i brúna þar sem okið vantar, en er þó fært gangandi fólki. Bilarnir, sem i gær stóðu austan brúar, voru bilar sem yfirgefnir höfðu verið þar, unz hægt yrðiað aka þeim festur yf- ir. Sigurjón Rist var ásamt tveimur aðstoðarmönnum sin- um austur við Múlakvisl i gær að mæla rennsli árinnar. Sam- kvæmt upplýsingum hans var vatnsmagnið þá 187 tenings- metrar á sekúndu, og Sigurjón sagði að það væri hátt sumar- rennsli, en þó ekki óvenjulegt. Mikið væri nú f öllum jökulám. Eftir hlutfalli hefði rennslið þá veriö um 240 teningsmetrar á sekúndu á sunnudaginn, þegar brúin bilaði. Til samanburðar gat hann þess, að það væri álíka og tvöfallt rennsli Sogsins. Brúin á Múlakvisl var gerð haustið 1955 og þá um veturinn, eftir að eldri brúna, sem var uppi við Selfjall, hafði tekið af i hlaupi úr Mýrdalsjökli, sem kom 25. júni 1955. Þá komst rennsli árinnar i 2500 tenings- metra á sekúndu. Múlakvisl hefur lengi verið erfið I umgengni, en til skamms tima skall hún á vesturbakkan um skammt neðan brúarinnar, þegar hún kom austan að eins og hún gerði nú. En nýlega var gerður garður upp frá eystri brúarsporðinum, sem leiddi til þess, að straumamótin urðu nú þar sem raun bar vitni. Sigurjón Ristbenti á, að fyrir ofan brýrn- ar á Skeiðarársandi hefði verið gert lón, þar sem straumarnir ná aö brotna áður en þeir koma að brúnum, og renna undir þær miðjar. Þetta hefur ekki enn verið gert við Múlakvisl, og er hún þvi enn um hrið til alls vis. Nokkrir erlendir ferðamenn komu að Múlakvisl, meðan Vis- ir staldraði þar við. Þeir, sem ferðuðust á puttunum, örkuðu ó- hikað yfir brúna og hurfu austur I súldina, en þeir sem voru á bil- um tóku þessum farartálma vel, og sögðust ætla að fara aftur til Vikur — „and have a good time.” —SHH Fjárveitingar til leikhússins fara eftir fjárhagsgetu Borgarstjóri svarar Albert Bygging nýja borgarleikhúss- ins var á ný tekin fyrir á fundi borgarráðs I morgun. Reiknað var með, að samþykkt yrði að vísa teikningunum til byggingar- nefndar, sem kanna mun þær frá tæknilegu sjonarmiði. A fundi borgarráös I morgun Iét borgarstjórinn I Reykjavlk, Birg- ir Isleifur Gunnarsson, gera sér- staka bókun I framhaldi af bókun Alberts Guömundssonar á sama fundi. Skýrt var frá fyrirhugaðri bókun Alberts i VIsi I gær. Borgarstjóri tekur fram I bókun sinni, að bygging borgarleikhúss sé framtiðarverkefni, sem vafa- laust muni taka langan tima að fullljuka. Fjárveitingar til verk- efnisins muni fara eftir fjárhags- getu borgarinnar hverju sinni. Framkvæmdaáætlun veröur samin á grundvelli teikninganna, sem nú liggja fyrir, segir borgar- stjóri I bókun sinni. Sú áætlun verður lögð fyrir borgarráð til samþykktar. Þvi liggur ekkert fyrir um það nú, að bygging borgarleikhúss verði til að draga úr framkvæmdum við stofnanir aldraðra. Hins vegar eigi timabundnir fjárhagserfið- leikar ekki að stöðva þá undir- búningsvinnu, sem nú er I gangi. Borgarstjóri lýsir þvi yfir I bók- un sinni, að hann telji eðlílegt, að á hverjum tima sé unnið að bygg- ingu einnar menningarmiðstöðv- ar. Nú, þegar byggingu Kjarvals- staða sé lokið, sé nýtt borgarleik- hús verðugt verkefni. í vor var gerð stofnskrá um byggingu borgarleikhúss milli borgarinnar og leikfélagsins. Húsið verður reist I sameiningu, en leikfélagið mun sjá um rekst- urinn. Eignir leikfélagsins, sem renna munu til nýbyggingarinn- ar, nema nú um 40 milljónum, þannig að ljóst er, að borgin sjálf mun standa straum af meiri hluta þessa milljarðar sem taliö er, að borgarleikhúsið komi til með að kosta — i það minnsta. Kvartmílu- klúbburinn bíður eftir landsvœði Að byggja veg ætti ekki að vera mjög kostnaðarsamt fyrir- tæki. Vegurinn þarf aðeins að vera um 700 metra langur. Um 400 m til að spyrna á og svo 300 m til aö geta stöðvaö sig. Flestir eiga 8 cylindra amerlska bíla, þótt nokkrir evrópska og eins eru mótorhjóla- og skellinööru- eigendur með I spilinu. Ekkert er til fyrirstöðu að stilla upp stórum amerlskum- og Trabantbil. Þá fær Trabantinn aðeins forskot og getur allt eins sigraö. Björn fræddi okkur á þvi, að keppnin tæki aðeins um 20 sek- „ÞEIR AKA EINS OG ENGLAR EFTIR KVARTMÍLUKEPPNI" úndur og hættan á óhöppum væri hverfandi litil. Aöur, þegar slik keppni var haldin, komu hópar fólks til aö fylgjast með, þótt ekkert væri auglýst. Þess má geta, að svona keppni er ein- hver vinsælasta Iþrótt i Banda- rikjunum. „Eftir aö hafa tekið þátt I kvartmilukeppni, hafa menn staöiö sig aö þvi að aka eins og englar i bænum, þvi við keppn- ina fá þeir einmitt útrás,” sagði Bjöm. „Þetta er eins og að eiga hest og geta hvergi riðið út,” sagði Bjöm Emilsson, varaformaður hins nýstofnaða Kvartmilu- klúbbs, en þeir hafa sótt um land hjá borgarráði innan Reykjavikursvæðisins, þar sem þeir geti reynt bila sina. Þar hafa þeir fengið frekar jákvæð- ar undirtektir, en biöa enn eftir svari. Fyrr hafa þeir reynt bil- ana á Keflavlkurveginum, i Kollafiröinum og viö Hólsá rétt hjá Geithálsi. Akveðið hefur verið að keppa ekki á bilum sin- um fyrr en leyfi hefur fengizt fyrir landsvæði. „Það er stórkostleg tilfinning, þegar maður ýtir á bensingjöf- ina og finnur öll þessi hestöfl leysast úrlæðingi,” sagði Bjöm, en keppnin er i þvi fólgin, að tveim bilum er stillt upp hlið við hliö og þegar ljósmerki er gefið, er rokið af stað og sá, sem er á undan að ná kvartmilunni vinn- ur. 1 klúbbnum eru um 200 með- limir, allt upp i 37 ára gamlir. Þaö þarf varla að taka það fram, að auðvitað er kvenfólkið Uka með. —EVX—

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.