Vísir - 26.08.1975, Side 1
vísm
65. árg. — Þriðjudagur 26. ágúst 1975 —192. tbl.
Iðntœkni lumar ó
einu upptökunni
ó skókeinvíginu
— baksíða
íslendingar tóku
þótt íheimsmeist-
arakeppni í flugi
— baksíða
Kaupið
varð
6,6 af
hundraði
ó eftir
Byggingarvisitalan hækkaði
um 45,7 af hundraði siðustu tólf
mánuði fram til 1. júli. Verðbólg-
an var annars, það er hækkun á
visitölu framfærslukostnaðar,
47,6% fram til 1. mai, en kaup-
taxtar launþega hækkuðu um 39,1
af hundraði fram til 1. júli. Þetta
er miðað við hækkun, sem varð á
12mánaða timabili. Af þessu sést,
að hækkun kauptaxta launþega,
það er að segja verkafólks og
iðnaðarmanna i þessu dæmi, hef-
ur orðið 6,6 af hundraði minni en
hækkun á byggingarvisitölunni.
Kaupgreiðsluvisitalan hækkaði
um 47,27% siðustu tólf mánuði
fram til 1. júni. Visitala neyzlu-
vöruverðlagsins eins hækkaði um
46,3 af hundraði siðustu tólf mán-
uði fram til 1. mai siðastliðins.
—HH
Lögreglan
náði „stór-
laxi"
Yfirvöld i Senegal hafa
framselt Bandarikjunum
mann, sem grunaður er um að
stjórna hring fikniefnasmygl-
ara.Biðahans ákærur fyrir að
hafa skipulagt smygl á 150
kilóum heróins frá Frakklandi
til Bandarlkjanna á árunum
1968-’71.
Hefur borið vel i veiði hjá
fiknicfnalögreglunni undan-
farna mánuði. Annar stórlax
náðist i siðasta mánuði og
heilu farmarnir af fikniefnum
verið gerðir upptækir.
—Sjá bls.5
METAÐSÓKN AÐ
VÖRUSÝNINGUNNE
— dregið í
happdrœttinu
Nú hafa 16.752 manns sótt
Alþjóða vörusýninguna inni i
Laugardal. í gær sóttu um
2.779 manns sýninguna og frá
opnun hennar hefur hver dag-
ur fyrir sig slegið metaðsókn
siðan farið var að halda sýn-
ingar sem þessar.
1 gær var dregið um ferð
með Akraborginni fyrir vinn-
ingshafa og 15 gesti hans
ásamt kaffi á Hótel Akranesi.
Vinningurinn kom upp á núm-
er 18686.
1 kvöld verður dregið um
dvöl á Hótel Húsavik yfir eina
helgi, hvenær sem vinnings-
hafa þóknast. Og gildir þetta
b.oð fyrir vinningshafa og einn
gest hans.
—HE
Sprengt í
laxastiga
hyl við nýjan
í Yti*S-l nviivv'i
I bIIAII Húnavatnssýslu:
Lax, sem fannst við Ytri-
Laxá í Húnavatnssýslu í
gærdag, ber þess merki, að
sprengt hafi verið f einum
hyl árinnar.
Sýslumaðurinn á Blönduósi
Hafnfirðingar cru flestirólmir af kætiþessa dagana við tilhugsunina um hitaveituna, sem væntanleg er
i næsta mánuði. Þessir strákar eru engin undantekning, enda þótt þeir séu ekkert að spá i heita vatnið
cða oliuskort. Strákarnir vilja bara, að hann haldist þurr, svo að billimi, sem pabbi hans Hjartar smið-
aði, geti komiðað fullum notum. Þeir fara ekki einu sinni fram á sól. Strákarnir heita, talið frá vinstri:
Þorfinnur, Hjörtur, Þórður og Róbert, en þeir tveir eru bræður. Það er Björn, sem er „bílstjórinn”.
k ÉV
Ml: 1» -,*
P 1 * ;
Jfll ! !
Ivl
fékk af þvi fregnir á sunnudaginn,
að sézt hefði þar i bænum lax,
sem var með sprungin og blóöug
innyfli og greinilegt var að hefði
verið veiddur með sprengingu.
í framhaldi af þessu var farið
að kanna, hvort vart yrði um-
merkja eftir sprengingu við ein-
hverja laxveiðiána i Húnavatns-
sýslunni.
Menn úr veiðifélaginu Hæng
sem einkum eru eigendur landa,
erliggja að Ytri-Laxá, komu svo i
gær að dauðum laxi við ána.sem
greinilega hafði orðið fórnarlamb
sprengingar.
Ekki sáust nein spjöll á landi
eða mannvirkjum, en þess má
geta, að i umræddri á er viða-
mikill laxastigi, sem fullgerður
var i sumar til að auka laxagengd
i ánni. Laxastiginn er rétt viö hyl-
inn, sem sprengt var i.
Jón ísberg sýslumaður sagði,
að rannsókn á málinu væri rétt að
hefjast og ekki lægi ljóst fyrir
hversu viðamikið laxadráp hefði
þarna átt sér stað.
Jón isberg gat þess, að um 30 ár
væru liðin siðan svipaö mál komst
upp i sýslunni og hefði þá einnig
verið um að ræða sprengingu i
Ytri-Laxá.
JB
VERÐUR
LEIKARI
OG RÁÐU-
NAUTUR
í SÆNSKA
SJÓN-
VARPINU
— baksíða
„ísland á að vera
aflögufcert með hey"
- Búnaðarmálastjóri bjartsýnn
— Við getum verið
aflögufærir með hey og
ættum þar af leiðandi
að geta flutt það út,
sagði Halldór Pálsson
búnaðarmálastjóri i
viðtali við Visi i gær.
— Það sem bændurna vantar
eru góðar geymslur, sem hýst
geta tvöfalt það magn, sem búið
sjálft nýtir. ísland er gott hey-
framleiðsluland ogef við getum
fullnýtt þau tún, sem nú eru
fyrir hendi, ættum við að geta
útvegað okkur fasta markaði
erlendis, sagði Halldór.
Halldór sagði, að sveiflur i
heyframleiðslu nú væru of mikl-
ar. 1 slæmu árferði væri skortur
og I góðæri yrði að geyma hey
úti við og það skemmdist.
Um siðustu helgi voru fluttir
út 38 hestar af góðu heyi til Fær-
eyja með Smyrli, Visir spurði
búnaðarmálastjóra, hvort hann
teldi eðlilegt, að hey væri flutt út
á sama tima og illa horfði með
hey sunnanlands.
— Þetta er nú ekki stórvægi-
legt magn, sem þarna hefur
verið flutt út. Auk þess er ég
nokkuð bjartsýnn á, að rætist úr
ótiðinni sunnanlands og hey-
magn i það minnsta verði jafnt
og áður, sagði Halldór.
— Þeir tveir þurrviðrisdagar,
sem komu um daginn, hjálpuðu
bændum sunnanlands mikið,
einkum þeim er undir það voru
búnir að hirða heyið. Gamlir
menn herma einnig, að eftir
höfuðdag verði góður þurrkur,
er sumarið hefur verið vot-
viðrasamt. Höfuðdagur er 29.
ágúst og nokkrir þurrir dagar i
september geta leitt af sér
mikið og gott hey, sagði
Halldór.
— Ég tel þvi óþarfa að fyllast
svartsýni strax. sagði Halldór
Pálsson, búnaðarmálastjóri að
lokum. —jb