Vísir - 26.08.1975, Blaðsíða 2
5
Visir. Þriðjudagur 26. ágúst 1975
VÍSBSm:
— Hvað segja Hafnfirðingar um
hit aveituna?
Inga Jónsdóttir, húsmóðir!
— Ég er mjög ánægð með hana
og bið bara spennt eftir þvi að
tengt verði. Það verður vonandi i
næsta mánuði.
Rakel Ingvarsdóttir, húsmóðir:
— Ég sé engar neikvæðar hliðar á
þvi að fá hitaveitu og tel mjög
mikilvægt, hvað kyndingar-
kostnaður lækkar.
Skúli Valtýsson, viðskipta-
fræðingur :
— Það er mjög gott, að hún skuli
vera að koma. Þetta er fyrst og
fremst mikill sparnaður fyrir
húseigendur. Inntaks-
kostnaðurinn um 110 þúsund á að
skila sér íljótt.
María Ingibergsdóttir, húsmóðir:
— Ég er afar feginn að fá hitar
veituna. Þetta eru mikil
viðbrigði, þegar maður hefur
aldrei notað hana áður.
Sigurbjörg Lárusdóttir, ganga-
stúlka:
— Það er stórfint fyrir okkur,
semekki höfum búið á hitaveitu-
svæði, að fá hana. Það verður
vonandi i næsta mánuði.
Íris Brynjólfsdóttir, húsmóðir:
— Aðalkosturinn er, hvað
kyndingarkostnaður fólks
lækkar. Ég sé enga ókosti við
hana, það hefur tekizt að minnka
fýluna, sem var hér áður fyrr.
„Erfitt að fó endanlegt
verð hjó íslendingunum"
— segir Bergþóra Sigfúsdóttir er
starfar við þýzka ferðaskrifstofu
„Inter-air er einn stærsti aðil-
inn í Þýzkalandi, sem býður upp
á tslandsferðir,” sagði Berg-
þóra Sigfúsdóttir, sem starfað
hefur við þessa ferðaskrifstofu i
2 1/2 ár. Áður en hún hóf störf
þar, vann hún um 5 ára skeið
hjá Flugfélagi islands i Frank-
furt. En I þeirri sömu borg er
Inter-air.
Bergþóra sagði, að þessj
skrifstofa væri litil á Þýzka-
landsmælikvarða. Hún byggir
þvl starfsemi sina, eins og allar
aðrar litlar ferðaskrifstofur, á
þvi að bjóða upp á eitthvað sér-
stakt. Eiginlega mætti segja, að
Inter-air væri mest i ævintýra-
ferðum. Nefna má staði eins og
Zambiu og Island, sem eru ofar-
lega á blaði.
Ferðalög Þjóðverja eru að
mörgu leyti frábrugðin Is-
lendinga. Þeir taka til dæmis
iðulega fri 2svar á ári. Þá eru
þeir gjarnan búnir að velta
vöngum I hálft ár yfir hvorri
ferð, sem farin er. Bergþóra
sagði þvi, að ein meginkrafan,
sem Þjóðverjar gerðu til skrif-
stofunnar, væri, að allar upp-
lýsingar lægju fyrir i nóvember
árið áður en ferðin er farin. Þeir
vildu geta hugsað um ferðina
yfir jólin.
Þá sagði hún, að þeir væru
sérstakirnáttúruunnendurog til
dæmis væri jarðfræðiáhugi
mjög almennur I Þýzkalandi.
Þeir læsu sér yfirleitt reiðinnar
ósköp til áður en lagt væri i
ferðirnar. „Er oft mjög gaman
að heyra hinar óliku spurning-
ar, sem bornar eru upp annars
vegar við pöntun og hins vegar,
þegar farmiðinn er afgreidd-
ur,” sagði Bergþóra.
Ferðaskrifstofufólk er mennt-
að til þeirra starfa i Þýzkalandi.
Gengur námið ekki ósvipað fyr-
ir sig og iðnnám á Islandi. Fólk
fer yfirleitt i þetta að loknum
grunnskóla og stundar þá nám
og vinnu jöfnum höndum i 3 ár.
íslandsferðir
Bergþóra sagði, að áhugi fyrir
Islandsferðum hefði aldrei verið
meiri en i sumar. Og jafnframt
væri það öllu fjölbreyttari hóp-
ur, sem hingað kæmi. Þetta
heföi meira verið eldra fólk,
sem hefði haft peninga jafn-
framt miklum áhuga á óspilltri
náttúru. Með tilkomu leiguflugs
hefði reynzt unnt að lækka verð-
ið og væri nú mikið af ungu fólki
I ferðunum.
Yfirleitt virtist svo sem fólk
félli fyrir Islandi eða þvi likaði
það alls ekki. Það fólk, sem tæki
ástfóstri við landið, færi fleiri
ferðir.
Bergþóra er hér stödd til að
undirbúa prógramm næsta árs.
„Verst af öllu er, að ekkert
ákveðið verð er hægt að fá upp
úr íslendingunum,” sagði hún.
„En Þjóðverjar vilja fá að vita,
hvað þeir eiga að borga og neita
að greiða meira siðar, ef þess
þarf.” Reyndar væri það ekkert
skritið, þótt Þjóðverjarnir
gerðu kröfur, þvi að ferðir hing-
að væru mjög dýrar. 18 daga
ferð með fullu fæði kostar um
200 þúsund krónur. Fyrir þessa
sömu upphæð mætti komast i
3ja vikna ferð til Indlands, Cey-
lon og fleiri landa við Indlands-
haf.
Bergþóra Sigfúsdóttir
„Við heyrum alltaf frá þeim
óánægðu og sumir ómaka si'g til
þess eins að hrósa okkur,” var
svar Bergþóru við þvi', hvernig
Þjóðverjar tjáðu sig um ferðim-
ar.
— BÁ
SAS gefur Bak-
húsinu meðmteli
Eitt það nýjasta fyrir
ferðamenn og innfædda
i Kaupmannahöfn er
matstaðurinn
„Baghuset”, segir í
nýútkomnu hefti af
Scanorama, blaði SAS.
Eigandi Bakhússins er
enginn annar en Þor-
steinn Viggósson, sá
sem á Pussycat og
Bonaparte þar í sömu
borg.
Bakhúsið opnaði Þorsteinn
fyrir um ári, segir Scanorama,
og hafa vinsældir þess farið
jafnt og þétt vaxandi siðan. Það
er fyrir aftan Gothersgade 13,
skammt frá Kóngsins Nýja-
torgi. Þangað liggur þröngt port
frá götunni, og athyglisverð
annexia er barinn Mayblómið,
segir blaðið ennfremur.
Þetta er litill matsölustaður,
laus við tónlist og skær Ijós, og
stemmningin er mild.
Innrétting ber öll keim af
sjávarútgerð og meira að
baghuset
('back building”)
COPENHAGEN
Sjggfpw Gothersgade 13
Delicious food in
Holberg Theatre’s
(steak house) old backstage building
segja hanga sjóstigvél ofan úr
röftunum. Engu að siður vitnar
Scanorama i eigandann, sem
segir, að 80% þeirra, sem komi
að snæða hjá honum, vilji steik
og aftur steik. — En húsið er
litið og vissara að panta fyrir-
fram, ef maður vill fá borð,
segja þeir hjá SAS. — SHH.
LESENDUR HAFA ORÐIÐ
Fóar konur hafa þolað píslarvœtti
— vegna baráttu sinnar fyrir auknu mannfrelsi
Edvarð T. Jónsson, Skipholti
30, skrifar:
„Hve oft liturðu á klukkuna?
var spurt i utvarpinu kl.
hálfátta á miðvikudagskvöld.
Hvað er timinn? var spurt.
Tveir menn veltu vöngum yfir
þessari spurningu, stjarn-
fræðingur og heimspekingur. Sá
fyrri sagði, að það væri ekki
beinlinis vitað með vissu, hvað
timinn væri. Hinn siðari
svaraði, að timinn væri ráðgáta.
Sfðan var leikið lag með Spike
Jones og þættinum var lokið.
Þetta var allt heldur sérkenni-
leg fyndni.
Fyrir nokkru sendi ég út-
varpinu stutt erindi um
persnesku skáldkonuna Tahirih,
sem fyrst kvenna i Islam
varpaði blæjunni og var myrt af
stjórnvöldum i Teheran á
öldinni sem leið. Sök hennar var
sú að hafa opinskátt kennt jafn-
rétti karla og kvenna og aðhyllzt
þess konar siðgæði og mann-
réttindi, sem nú eru undirstaða
þjóðskipulags á Vesturlöndum.
Þessu erindi var hafnað af dag-
skrárstjóra og siðar útvarps-
ráði. Ástæðurnar eru þessar: a)
I erindinu er m.a. fjallað um
morð, og morð er ekki heppilegt
útvarpsefni, b) sem innlegg i
umræðu um kvenréttindamál er
efnið of fjarlægt til að falla þar
inn, c) fáar konur hafa þolað
pislarvætti vegna baráttu
sinnar fyrir auknu mannfrelsi,
d) fræða þyrfti menn miklu
meira um menningarlegar for-
sendur til að frásögnin kæmist
til skila. (Boði minu um að
takast á hendur slika fræðslu
var einnig synjað). Fram skal
tekið, að þessir fjórir liðir eru
teknir næstum orðrétt úr sam-
tali við dagskrárstjóra og bréfi
frá honum.
Að erindinu skyldi hafnað var
auðvitað dálitið leiðinlegt fyrir
mig, þvi að ég hafði lagt i það
nokkra vinnu, en þegar öllu er á
botninn hvolft, kemur það varla
að sök. Ég mun að sjálfsögðu
ekki gera aðra tilraun i bráð til
að skrifa fyrir útvarp,án þess að
mér detti i hug að útvarpið
harmi það neitt sérstaklega.
Mér leikur á hinn bóginn nokkur
forvitni á að vita, hvort útvarpið
bregzt oft á þennan hátt við
menningarviðleitni hlustenda
sinna. Þátturinn um klukkuna
er ekki bezta dæmið — aðeins
það nærtækasta — um
metnaðarleysið, sem i vaxandi
mæli skin út úr útvarpsdag-
Baldvin Jónsson hjá DAS
skrifar:
„I lesendabréfi nýverið var
fundið að framkvæmd útdráttar
I Happdrætti DASr talað um,
að tromlan væri ekki rétt
hönnuð, að sum númer yzt i
tromlunni yrðu alltaf út undan
o.s.frv. Þessum aðfinnslum vis-
um við algerlega á bug. Bréf-
ritari fékk að vera við seinasta
útdrátt i happdrætti okkar, en
sat þar aðeins skamma stund,
sem þó nægði honum til að
kveða upp sinn sleggjudóm.
Staðreyndin er sú, að útdrættir
fara fram undir eftiriiti og
skránni, er litill metnaðurhelzt
oft i hendur við tómlega lifs-
skoðun. Slik meinsemc1 er þvi
miður nokkuð seingrædd, en
sjaldan ólæknandi.”
fyrirsögn opinbers happdrættis-
ráðs, tromlunni er snúið öðru
hvoru svo rösklega, að öll
númerin losna frá miðásnum og
blandast siðan kirfilega saman,
þegar tromlan stöðvast, og
stúlkan, sem dregur, fer ekki
bara með hendina i miðju
tromlunnar, heldur einnig út til
beggja hliða á vixl.
Við fullyrðum þvi og stöndum
við, að MIÐI ER MöGULEIKI
og það stundum allt að 20 millj.
króna möguleiki, eins og i
desember og april n.k. er húsin
verða dregin út.”
„Miði er möguleiki
i
- hvar sem númerið er í tromlunni", segir DAS