Tíminn - 01.10.1966, Blaðsíða 1
223. tbl. — Laugardagur 1. október 1966 — 50. árg.
Þetta er dauður
bœr - sjónvarpið
byrjaði í gær!
BYDUR KOMMUM STJORN -
z' r
HEFUR OTRU A ÞJOÐSTJORN
Ummæli forsætisráðherra í sjónvarpsviðtali í gærkvöltli
herra, þau orð, að hann mundi
fagna þvi, ef Alþýðubandalagið
vildi slást í fylgd með stjórnar-
flokkunum, og þar sem þetta var
svar við spurningu um það, hvort
nokkrar ráðagerðir væru uppi um
að bæta Alþýðubandalaginu í rík-
isstjórnina, varð þetta varla skil-
ið á annan veg en þann, að for-
sætisráðherra væri með þessum
orðum að bjóða kommúnistum
í stjórn með sér. Hins vegar kvaðst
forsætisráðherra hafa ótrú á þjóð-
stjórn og taldi ekki líklegt að
hún mundi koma sér saman um
lausn mála.
Forsætisráðherra sagði, að þjóð-
in hefði valið sér stjórnarstefnu
og stjórnarflokka í kosningunum
1963, og ef Alþýðubandalagið vildi
fallast á þá stefnu væri sér sönn
ánægja að því, ef það vildi slást
í fylgdina eins og hann orðaði það.
Spurningu um það, hvort hann
teldi koma til mála áð mynda þjóð
stjórn eftir kosningar um ráð-
stafanir til þess að hafa hemil
á verðbólgunni, svaraði hann á
þá lund, hann teldi vart þær að-
stæður fyrir hendi, þó að slíkar
ástæður gætu að vísu skapazt.
Hann hefði þó fremur ótrú á þjóð
stjórn og taldi ekki líklegt, að all-
ir flokkarnir gætu komið sér sam-
an um nauðsynlegar ráðstafanir til
langframa.
Þá vakti það einnig nokkra at-
hygli í viðtali þessu, að forsætis-
ráðherra lýsti yfir, að hann teldi
að reynslan hefði sýnt okkur og
sannað, að ekki hæfði að beita
lögþvingunarhótunum í kjaradeil-
um og einnig að hann teldi geng-
islækkun enga lausn fyrir atvinnu
vegina til mótvægis við kauphækk
anir. Virðist augljóst, að hann
byggi nú þetta álit á reynslunni
af hefndargengisfellingunni sum-
arið 1961 og þvingunarfrumvarp-
inu haustið 1963, og hefur hann
þá vonandi ekki til einskis rekið
sig á.
Heildarútgjöld samkv. fjárhags-
áætlun 1965, námu 685.7 miUj.
kr. og gerir því fjárhagsáætiunin
nú ráð fyrir 22.8% útgjaldahækk-
unv
Útsvör og aðstöðugjald eru sam
tals áætluð nú 669.5 m. kr. en
voru áætluð á síðasta ári 533.6 m
króna. Hækkun um 25.5%. Lagt
var á nú í ár að frádreginni skatt
vísitölu og 5% afslætti í staö 4%
í fyrra.
Rétt er, að það komi skýrt fram,
að útsvör og aðstöðugjald eru í
ár um 80% af heildartekjum borg
arsjóðs.
Segja má almennt, að útgjöld
borgarsjóðs falli í gjalddaga jafnt
allt árið og þá ekki sízt sumarmán
uðina, hvað framkvæmdakostnað
snertir. Hins vegar hafa tekjur
borgarsjóðs innheimzt mun síðar
eins og sjá má af því, að helm-
ingur útsvars- og aðstöðugjalds-
'Þa.'ö var ekki fjölmenni á skrifstofu borgargjaldkerans síðdegis i gærdag.
(Tímamynd KJ)
íslenzkt sjónvarp í fyrsta
skipti — Reykvísk fjölskylda
fyigist með dagskránni í gær-
kvöldi. (Tímamynd GE).
Geir Hallgrímsson borgarstjóri lýsir yfir í úívarpinu í gærkvöldi:
Greiðsluvandræði borg-
arinnar aldrei verið meiri
SJ — HZ-Reykjavík, föstudag.
Það fór eins og margan grun
aði að fyrsta sjónvarpssending
in mundi draga að séj óskipta
athygli borgarbúa. Á tíunda
tímanum var svo til vonlaust
að ná í leigubl, því að bíl-
stjórarnir flestir sátu heima að
horfa á sjónvarpið. Á gotum
bæjarins var miklu færra fólk
en venja er til. á föstudögum,
það fólk, sem einkum var á
ferli, voru táningar, sem ef
til vill hafa engan áhuga á ís
lenzku sjónvarpi.
Þegar Tíminn hafði sam-
band við bióin, í Reykjavik,
Kópavogi og Hafnarfirði, feng
ust þessi svör:
Stjörnubíó: Ekki nokkur að-
sókri, hæsta lagi selt á 2 bekki.
Tónabíó: Þetta er dauður
bær. Höfum selt um 80 miða.
Kópavogsbíó: Ekkert að gera
seldir 20—30 miðar.
Reykjavík, mánudag.
Vegna umtals og blaðaskrifa að
undanförnu hefur Geir Hallgríms
son, borgarstjóri, gert grein fyrir
fjármálum Reykjavíkurborgar í
alllangri grcin, sem lesin var i
útvarpinu í kvöld og send blöð-
um til birtingar. Greinin fer hér
á eftir:
Skv. fjárhagsáætlun yfirstand-
iandi árs nema heildarútgjöld
borgarsjóðs til reksturs og fram-
kvæmda 842 millj. kr. og er þá
búið að draga frá hluta ríkissjóðs
og annarra aðila í ýmsuin rekstrar
og framkvæmdakostnaði, en borg
arsjóður verður raunar að leggja
að nokkru leyti þann hluta út í
peningum, þar til ársuppgjör fer
fram.
tekna hefur innheimzt á þrem síð
ustu mánuðum, ársins, og þar af
fjórðungur þeirra í desembermán.
Borgarsjóður hefur því oftast átt
í nokkrum greiðsluerfiðieik-
um síðla sumars, og í byrjun
vetrar.
Ástæðurnar til þess, að þeir erf
iðleikar, eru meiri nú í ár en áður,
eru einkum þær, sem nú skal
greina:
1. Samkvæmt upplýsingum úr
bókum Gjaldheimtunnar Reykja-
vík var innheimta útsvara og að-
stöðugjalda miðað við 20. sept.
42.1% í fyrra en 39.6% nú, eða
Framhald á bls. 14.
Bæjarbíó: Vísir var að
hringja í okkur! Það eru að-
Framhald á bls. 14.
Reykjavík, föstudag. í sjónvarpsviðtaiinu í kvöld hafði
Það vakti töluverða athygli, að Bjarni Benediktsson, forsætisráð-
Samið í Land-
símahúsinu, en
ekki í Gufunesi
KJ-Reykjavík, föstudag.
í kvöld tókst samkomulag
við símritara á ritsímastöð-
inni en hins vegar
hefur ekki verið rætt
við starfsmennina í loft-
skeytastöðinni í Gufunesi
og hætta sumir þeirra þeg
ar í nótt, en aðrir um fjöru-
tíu talsins á næstu 6 döS-
um.
Starfsmenn ritsímans
munu hafa fengið framgengt
kröfum þeim er þeir settu
fram, og kemur því ekki til
að þeir leggi niður vinnu
Framhald á bls. 14