Tíminn - 01.10.1966, Blaðsíða 14

Tíminn - 01.10.1966, Blaðsíða 14
LAUGARDAGUR 1. október 1966 14 TÍMINN DAUÐUR BÆR Framnal'd aí bis i eins nokkrir miðar seldir. Gamla bíó: Nóg til af mið- um — við höfum selt sem svai ar einum bekk. Það er sjón- varpið. Háskólabíó: Ósköp rólegt. Kannski selt á 4 bekki. Ef við sitjum til hálf tíu, þá kann ski lagast þetta. Laugarásbíó: Það er full forstofan hjá okkur. Við er- um ekkert hrædd við sjónvarp ið — þeir mega a.m.k. vanda sig betur en útvarpið, ef þeir ætla að taka frá okkur. Nýja bíó: Það er engin að- sókn. Við höfum sýnt þessa mynd i heilan mánuð fyrir fullu húsi, en nú bregður svo við, að það er selt á einn bekk niðri og einn uppi. Á skemmtistöðunum var að- sókn með aldræmasta móti um 10 leytið, en horfur á betri að- sókn undir miðnættið. SÍMVIRKJAR Framhald aí bls. 1. á morgun, eins og boðað, hafði verið. Aftur á móti þefur ekki verið rætt við starfsmenn í Gufunesi síðan þeir að undirlagi flug- og sima- málaráðherra, lögðu fram nokkrar tillögur, er orðið gætu viðræðugrundvöllur á milli deiluaðila. Flestir starfsmennirnir í Gufunesi, sem sagt hafa upp störfum, og hætta á næstu 6 dög- um, tyka laun eftir 11. og 12. launafl. en þeir starfa við flugöryggisþj. yfir Atlantshafið, auk þess sem Gufunes er fjarskipía miðstöð fslands. THE TIMES færi til að taka þátt í vexti og viðgangi þessara tveggja stóru blaða, væri stærsti atburð ur lífs hans. Brezka viðskiptamálaráðu- neytið skýrði frá því í dag, að það hafi beðið sérstaka neíni, sem hefur með einkarétt og einkaleyfi að gera að rannsaka kaup Thomson, lávarðar á hlutabréfunum, en samkvæmt lögum hefur stjórnin heimild til þess að láta slíka rannsókn fara fram með tilliti til hags muna almennings í sambandi við svona eigendaskipti. Thomson, lávarður sagði ennfremur, að hann myndi ekki sitja í aðalstjórn hins nýja útgáfufélags, en sonur hans Kenneth, yrði varaformaður stjórnarinnar. Kenneth Thom- son, sem er 43 ára að aldri er elzti sonur lávarðsins. Býr hann í Kanada og er forseti Thomson-blaðanna þar. Hinn nýi aðalritstjóri The Times, hefur verið tryggt al- gert frelsi og á hann að stjórna blaðinu aðeins í þágu hags- mun landsins, segir í tilkynn- ingu blaðstjórnar í dag. í hinni nýju blaðstjórn munu 11 manns eiga sæti, þrír, sem Thomson-fyrirtækin nefna til, tveir, sem Gavin Astor tilnefn- ir, tveir óháðir, landsþekktir menn, sem Thomson-stjótrnin býður fram og Gavin Aston sani þykkir og tvær sams konar per sónur, sem Gavin Astor býður fram, en Thomson-stjórnin féllst á. Auk þessara manna munu aðal ritstjóri blaðsins og aðalframkvæmdastjóri útgerð arfyrirtækisins eiga sæti í stjórninni. GREIÐSLUVANDRÆÐI Framhald af bls. 1. 2.5% lakari. Eftirstöðvainnheimta er einnig lakari í ár en í fyrra. — Munar hvort tveggja þetta borgar sjóð 25—26 m kr. og má þegar fullyrða, að engir umtalsverðir greiðsluerfiðleikar væru nú hjá borgarsjóði, hefði hann þessa upp hæð til ráðstöfunar. Á sama liátt og innheimta lögboðinnna gjalda hefur gengið verr hafa og ýmsar aðrar kröfur borgarsjóðs t.d. á VERZLDNARSTARF Okkur vantar afgreiðslustúlku nú þegar. Upplýsingar hjá verzlunarstjóranum. Kjöt & Grænmeti SNORRABRAUT 56. STARFSMANNAHALD Skrifstofustúlka Fyrírtæki á Sauðárkróki óskar að ráða skrifstofu- stúlku- Vélritunarkunnátta nauðsynleg. Upplýsing- ar veittar á skrifstofu Félags íslenzkra iðnrekenda, Iðnaðarbankahúsinu. Maðurinn minn og faðir Friðrik Teitsson vélsmíðameistari andaðist í Landsspítalanum 29. september. Karítas Bergsdóttir Laufey Friðriksdóttir. hendur sumum nágrannasveitar félögunum, fengizt síður greidd- ar nú en áður. 2. Borgarsjóður hefur greitt 6— 7 m kr. í peningum aðeins á þessu ári vegna Bæjarútgerðarinr.ar, vegna ábyrgða, sem á borgarsjóð hafa fallið. Auk þessa eru fyrirsja anlegar milljónagreiðslur við árs- uppgjör vegna reksturs Bæjarút gerðarinnar á yfirstandandi ári. Ljóst er, að útgerð togara Bæjar- útgerðarinnar verður ekki haldið áfam að óbreyttum aðstæðum og verður úrslitum vandamála togar anna eigi frestað nema í nokkrar vikur eins og nú er komið. Eigi verður lengur undan því vikizt að taka ákvörðun um hvort togararn ir fái endurheimt fyrri veiðisvæði við landið, og samið verði um til svarandi áhöfn á íslenzkum togur um sem erlendum. 3. Fjárhagsáætlun yfrstand andi árs, er samin á grundvelli kaupgjalds og verðlags í nóvem- bermánuði 1965, og kemur því, fram á árinu óhjákvæmilegur kostnaðarauki borgarsjóðs vegna kaup- og verðlagshækkana, sem síð an hafa orðið. 4. Ekki hefur tekizt að fá auk- in rekstrarlán, hvorki til þess að vega upp á móti lélegri innheimtu nú í ár en í fyrra, né heldur til þess að brúa meira bil, sem verður allt til síðasta mánaðar árs ins, milli áfallins kostnaðar og innheimtra tekna með hækkandi fjárhagsáætlun frá ári til árs, þar sem tekjur koma svo seint inn á árinu, sem raun ber vitni. í þeim greiðsluerfiððleikum sem verið hafa, hefur verið lögð áherzla á, svo sem unnt hefur verið, að firra viðskiptaipenn borgar- sjóðs vandræðum, og þeir hafa sýnt skilning nú sem fyrr, er þakka ber. Þegar fullreynt var, að eigí var unnt að afla frekari rekstrar- lána, var dregið úr eða hægt á ýmsum framkvæmdum borgar- sjóðs, og má ætla, að eigi verði fjármagn fyrir hendi, a.m.k. ekki áður en veður spillast, til að frani- kvæma að fullu ákveðnar gatna- og gangstéttaframkvæmdir þessa árs, og mun það einkum koma nið ur á malbikunarframkvæmdum í Heimahverfi svo og gangstéttagerð en áherzla verður lögð á að láta þær framkvæmdir sitja fyrir á næsta ári. Jafnframt hefur lánsfjáröflun til framkvæmda ýmisssa borgar- fyrirtækja svo sem Hitaveitu geng ið verr en búizt var við, og þess vegna hefur ekki verið hafizt handa um lagningu hitaveitu í Ár- bæjarhverfið eða önnur ný hverfi og framkvæmdum við kyndistöð í Árbæjarhverfi hefur seinkað. Hins vegar mun annar nýi geymirinn •á Öskjuhlíð koma í gagnið, í inóvembermánuði næstkomandi og varastöðin við Elliðaár nýtast bet ur fyrir Hitaveituna á komandi vetri en sl. vetur. Ástæða er til að leiðrétta þann misskilning, sem komið hefur fram í blaðaskrifum, að framkvæmda- hraði hafi verið svo mikill fyrri j hluta ársins, og lán þá fengin, sem j greiða hafi þurft með útsvarstekj um síðustu vikurnar, að komið hafi niður á fjárhag borgarsjóðs nú. Engin rekstrarlán hafa verið tekin á þessu árin, sem falla í gjalddaga fyrr en í desember, og framkvæmdahraði hefur verið eðli legur að undanteknum þeim ráð- stöfunum, sem gerðar hafa verið síðustu vikurnar til að draga úr greiðslum úr borgarsjóði þar til síðast á árinu. Stjórnednum Reykjavíkurborg ar og flestum Reykvíkingum er ljóst. að takmarka verður rekstr arkostnað og framkvæmdir borgar innar við gjaldgetu borgarbúa. - Verkefni sem æskilegt væri að leysa, blasa hvarvetna við og kröf ur borgarbúa til borgarfélags síns eru því miklar, en hljóta að tak- markast við það, sem menn greiða í samieginlegan sjóð. Borgarstjórn in vill að sínu leyti fullnægja þeim kröfum, sem borgarbúar gera með því að verja sem hagkvæm- ast þeim fjármunum, sem gjald- geta borgarbúa leyfir. Geir Hallgrímsson. BÍL STOLFf HVERAGEROI HZ-Reykjavík, föstudag. f morgun var tilkynnt til lög- reglunnar á Selfossi, að bifreið úr Hveragerði hefði verið stolið um nóttina. Fannst bifreiðin, skömmu síðar við afleggjarann að Litla-Saurbæ og höfðu þjófarn- ir stolið úr bifreiðinni útvarpi og varadekki. Var haft samband við lögregluna í Hafnarfirði og hún beðin að hafa uppi á bifreið- úr Keflavík, þar sem grunur lék á því, að menn úr henni hefðu átt hlut að máli. Hafnarfjarðarlögreglan hefur í dag reynt að hafa uppi á áður- nefndum bíl og um fjögurleytið fréttist til hans í Grindavík. Fór lögreglan til Grindavíkur og kom til Hafnarfjarðar aftur um sjö- leytið í kvöld. Fannst bæði út- varpið og varadekkið í bífreið- inni, og tók lögreglan hvort tveggja í sína vörzlu. Einnig voru mennirnir tveir, sem í bifreiðinni voru, settir í vörzlu lögreglunn ar. Verða þeir yfirheyrðir á morg un. Tvö bifreiðaslys HZ-reykjavík, föstudag. Tvö bifreiðaslys urðu síðdegis í dag í Reykjavík. Kona varð fyr ir bifreið á gatnamótum Vita- stígs og Hverfisgötu og hlaut áverka á fæti. Hitt slysið varö um fimmleytið á Hringbrautinni skammt frá Bræðraborgarstíg, 7, ára telpa, Anna Steinunn Ólafsd., Sólvallagötu 39, hljóp á sendi- ferðabifreið og skall í götuna. Var hún flutt á Slysavarðstofuna og við frumrannsókn var ekki vitað, hvort flytja yrði hana á spítala en hún var með töluverða ávekra á höfði. NITTO JAPÖNSKU NITTO! HJÓLBARDARNIR i flashjm stærðum fyrirliggjandi i Tollvörugeymslu. FUÓT AFGREIÐSLA. DRANGAFELL H.F. Skipholti 35 — Sírr.i 30 360 SERVÍETTU- PRENTUN SÍMI 32-101. V'élahreingernina Vanlr menn. Prífaleg, fljótleg, vönduS vinna. Þ R I F — sfmar 41957 og 33049. TREF.IAPLAST PLASTSTEYPA Húseigendurl Fylgizt me8 tímanum. Et svalirnar eða þakið þarf endurnýjunar við- e5a ef þér ertrð að öyggja, þá látiS okkur ann- ast um lagningu trefja- plasts eSa plaststeypu á þðk, svalir, gólf og veggl é núsum ySar, og þér burfiS ekkt aS hafa áhyggjur af þvt í framtíSinnl. Þorsteinn Gíslason, málarameistarl, simi 17-0-47. TRÉSMIÐJAN, Holtsgötu 37, framleiSir eldhúss- og svefnherbergisinnréftingar.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.