Vísir - 04.09.1975, Síða 16
vísir
Fimmtudagur 4. september 1975
Sleppt
úr haldi
Nú er lokið yfirheyrslum yfir
piltinum, sem setið hefur i gæzlu-
varðhaldi vegna smygls og sölu á
miklu magni af cannabis fíkni-
cfnum. Var piltinum sleppt úr
haldi i gærkvöldi, þar sem þáttur
hans í málinu var að fullu skýrð-
ur.
Viðurkenndi pilturinn sinn hlut
að innflutningi og dreifingu á þvi
fikniefnamagni, sem um ræðir,
en það var um 1.5 kiló af hassi og
um 2 kiló af marihúana.
Alls hafa nú átta menn játað
meginhlutdeild sina að innflutn-
ingi og dreifingu á fikniefnum
þessum, en allmargir aðrir hafa
flækzt imálið sem viðtakendur og
neytendur.
Rannsókn málsins er haldið
áfram.
— HV.
Hœsfiréttur
starfar ó ný
Hæstiréttur er nú að hefja störf
siná nv.eftirum tveggja mánaða
dómhlé. Stendur nú yfir undir-
búningur að störfum hans og er
meöal annars verið að lagfæra og
mála aðsetur dómaranna á þriðju
hæð hússins við Lindargötu.
Málflutningur i fyrsta málinu
eftir dóinhlé mun fara fram á
morgun.
— HV.
Hver fékk
einkaflugvél
í heilan dag?
t gær komu á Alþjóðlegu
vörusýninguna 2826 manns. Þá er
heildartala sýningargesta komin
upp i 49269. Þetta þýðir, að 50
þúsundasti gesturinn kemur á
sýninguna i dag, en sá eða sú fær
blómvönd.
Dregið var um einkaflugvél i
heilan dag i gær. Kom vinningur-
inn á númer 43459.
1 dag verður dregið um helgar-
ferð til Vestmannaeyja og hótel-
dvöl þar. Gildir þetta fyrir tvo.
— HE.
í stuttu
móli:
Félag islenzkra bif-
reiðaeigenda fer á
mánudag hina árlegu
skemmtiferð með vist-
fólk af Elliheimilinu
Grund. Farið verður til
Grindavikur. Félags-
menn FÍB, sem geta út-
vegað bila, eiga að hafa
samband við skrif-
stofuna.
★
Kunnur bandariskur listmálari
heldur fyrirlestur um myndlist i
Norræna húsinu i kvöld klukkan
20:30. Hann fjallar um myndlist
frá sjónarhóli málarans en ekki
listfræðingsins.
★
Dandsfundur Landssambands
islenzkra barnaverndarfélaga
hefst i Norræna húsinu á morgun.
Þar verður áhugamönnum gefinn
kostur á að hlýða á nokkur erindi
og taka þátt i umræðum um þau.
A fundinum verður m.a. fjallað
um hlutverk barnaverndar.
— sagði Auður Bjarnadóttir,
hin unga ballettdansmœr
„Ég kvíði dá-
lítið fyrir
að dansa á
móti Helga"
Enn fœkkar leigubílum
„Það eru anzi margir
leigubilstjórar, sem lagt hafa inn
leyfi sin og hætt akstri. Sennilega
um 60 á siðustu mánuðum, og
alltaf bætast fleiri við,” sagði
Olfur Markússon, framkvæmda-
stjóriFrama félags sjálfseignar-
bilstjóra, er við ræddum við
hann.
Reglugerð um takmörkun á
fjölda leigubila var sett árið 1956
og gilti fyrir 658 bila. 1 dag eru
706 með leyfi. Sagði Úlfur, að
miðað við allan einkabflafjöldann
væri þetta allt of há tala. „Ég
held, að nægil. væri að hafa 400
leigubila. Nýting hvers bils þyrfti
lika að vera allan sólarhringinn
eins og á öðrum Norðurlöndun-
um, þar sem leyfishafi hefur 1-2
menn til að aka með sér. Er þá
unnið á vöktum. Hann sagði að
reksturskostnaður hvers bils
hefði hækkað um 100% á rúmu
ari. Taxtar eru m.a. miðaðir við
rekstur benzinbils, en jafnvel
þeir, sem eru á diselbil, gefast
hreinlega upp, þvi að enginn
rekstragrundvöllur er fyrir
hendi. 35-40% væri „dauð
keyrsla” eða bið á stæðum, þar
sem bilarnir þyrftu þó að vera i
gangi að minnsta kosti á vetrar-
mánuðum. I athugun er hjá
ráðherra að fækka leyfishöfum
smám saman.
Úlfur sagði, að mikið væri
býsnast yfir þvi, að leigubil-
stjórar fengju tollaafslátt sem
væri þó minni en allir aðrir at-
vinnubilstjorarhefðu. Þeir borga
30% toll, en leigubilstjórar 40%
eða það sama og jeppaeigendur.
Aðrir bilaeigendur þurfa að borga
90% toll.
„Farþegar hagnast á þvi, að
leigubill sé sem ódýrastur, þvi að
tekið er mið af verði bils, þegar
taxti er reiknaður út,” sagði
Úlfur, og hann bætti við, að vissu-
lega ætti almenningur heimtingu
á samgöngum allan sólar-
hringinn. Vonandi þyrftu stjórn-
völd ekki að gripa til þess ráðs að
greiða með leigubilum margar
milljónir eins og með Strætis-
vögnum Reykjavikur. -EVl-
Sólin
sigraði
þokuna
Nýtt íbúðarhverfi
á Kjalarnesi
„Það hefur verið skipulagt
ibúðarhverfi hér á Kjalarnesi
fyrir 150 fbúðir,” sagði Bjarni
Þorvarðarson, oddviti Kjalar-
neshrepps.
Hverfið er nánar tiltekið á
vegmótum Vesturlandsvegar og
Arnarholtsvegar i Hofslandi og
liggur að sjó. Það er skipulags-
stjóri rikisins, sem hefur séð um
skipulagið og verklegar mæl-
ingar voru gerðar á verkfræði-
stofu Sigurðar Thoroddsen. Enn
á þó eftir að auglýsa skipulagið
og samþykkja það i félagsmála-
ráðuneytinu.
Flestar eru lóðirnar undir
einbýlishús og eru þær 700-1000
fermetrar. Það eru sjávarlóð-
irnar sem eru stærstar. Nokkur
raðhús eru einnig með. Bjami
sagði, að allt væru þetta leigu-
lóðir en vart yrði gatnagerðar-
gjaldið mikið undir 1 milljón
króna á einbýlishúsinu, miðað
við núverandi verðlag.
Þó nokkrir eru þegar búnir að
sækja um lóð, en ætlunin er að
úthluta 40 lóðum undir einbýlis-
hús og 10-20 lóðum undir raðhús
i haust. Ætti að verða hægt að
byrja- á byggingaframkvæmd-
um i vor.
Reiknað er með rafhitun i
húsin, en rannsóknir á hvort
heitt vatn sé að finna i nágrenn-
inu eru á algjöru frumstigi, eftir
þvf sem Orkumálastofnun
greindi frá.
Bjami sagði, að það tæki um
það bil 20 minútur að aka til
höfuðborgarinnar. Vegurinn er
steyptur nema um 5 km og er
búizt við, að sú vegalengd verði
steypt á árinu 1977, eða um það
leyti, sem fyrstu ibúar flyttu i
hús sin. _ EVl.
— Ballettflokkurinn er
mjög þakklátur Helga
fyrir að vilja koma og
dansa með okkur, sagði
Auður Bjarnadóttir
sem mun dansa á móti
Helga Tómassyni i
Coppeliu.
Auður er aðeins sextán ára
gömul og þetta er hennar fyrsta
stóra belletthlutverk. Sagði hún,
i viðtali við Visi, að æfingar á
Coppeliu hefðu hafizt þann 5.
ágúst, að sumarleyfi loknu, og
hefði verið æft af fullum krafti
siðan. En aðaláhyggjuefnið er,
að við Helgi höfum aðeins þrjá
daga til að æfa saman fyrir
fyrstu sýninguna. Þetta er
vandamál, þvi að ég hef lært
eina dansútsetningu
(koreografiu) en Helgi aðra.
Þetta þýðir, að ég verð að læra
ýmislegt úr hans dansút-
setningu og hann verður einnig
að fara inn i þá, sem hér er
dönsuð, sagði Auður. Einnig
skiptir máli atriði eins og stærð
mótdansarans, til þess að hægt
sé að ná samstillingu i dansi.
Ég kviði dálitið fyrir að dansa
við Helga, en ég veit, að þetta
verður stórkostleg reynsla,
einnig verður þetta mjög lær-
dómsrikt, fyrir mig. Þetta gæti
einnig hjálpað mér að komast i
skóla erlendis, þegar þar að
kemur, en ég ætla að vera hér
heima eins lengi og mér likar
hér,sagði Auður. Ennúer verið
að ráða nýjan ballettmeistara
við Þjóðleikhúsið.
Við hittum einnig Bessa
Bjarnason, sem fer með hlut-
verk dr. Coppeliusar, og spurð-
um hann, hvort hann kviði lika
fyrir að dansa með Helga Þá
hló Bessi og sagðist hafa dansað
áður með Helga, en það var i
leikritinu Sumar i Tyrol, sem
var sýnt fyrir mörgum árum, en
þá var Helgi skósveinn minn
sagði Bessi.
Fyrsta sýningin á Coppeliu
verður 12. október, en sú siðasta
15. október. Forsala aðgöngu-
miða hefst á morgun og eiga
styrktarmenn dansflokksins
forkaupsrétt að miðum á fyrstu
sýningu, fyrstu tvo dagana,
sem salan fer fram. -HE
Þokan sem grúföi yfir Reykja-
vik þegar menn stauluðust á fæt-
ur i morgunsárið, stóð áreiöan-
lega litið að baki þokunni þegar
hún verður hvað svörtust i
Lundúnum.
Henni virtist veðurlagið frekar
hráslagalegt stúlkunni sem Bragi
myndaði á leið i vinnu i morgun.
En hún þurfti ekki að biða nema
örstutta stund.
Sólskin og heiður himinn sigr-
uðu dimma þokuna áður en varði.
Veðurspáin lofar lika góðu i allan
dag. Norðan gola og léttskýjað og
hitinn 5 til 12 stig boðaði veður-
stofan i morgun. — EA