Tíminn - 14.10.1966, Page 1
Auglýsing í Tímanum
kemur daglega fyrir augu
80—100 þúsund lesenda.
TK—Reykjavík, fimmtudag. — Eysteinn Jónson, formaður Framsóknarflokksins, flutti ræðu á Alþingi í
dag í tilefni tilkynningar forsætisráðherra um óbreytta stefnu í efnahagsmálum. Eysteinn sagði m.a.:
„Verðbólgan verður ekki Iæknuð nema með nýjum jákvæðum aðferðum, þar sem meginkjaminn er sá,
að auka framkvæmdaafl þjóðarinnar með nýjum starfsaðferðum og nýjum tækjum. En þetta kostar mikl-
ar framkvæmdir í mörgum greinum, sem ekki komast í verk, ef leið lánsfjárhafta, skipulagsleysis og
forustuleysis ei farin áfram. Það verður að finna aðferðir til þess, að það sitji fyrir, sem nauðsynlegast
er til að komast úr sjálfheldunni, og þess vegna verður stefnan að byggjast á nánu samstarfi ríkis-
valdsins og annarra þjóðfélagsafla. Ekkert minna dugir en að menn geri sér grein fyrir því, að alls-
herjarúttekt verður að fara fram á þjóðarbúskap okkar og hreinskilið og undandráttarlaust mat á þ'a.
Brandt til A-Berlínar!
NTB-Berlín fimmtudag.
Fréttin um, að WiIIy Brandt,
borgarstjóri Vestur-Berlínar
Iiefði lieimsótt Austur-Berlín
n dag, kom eins og þruma úr
heiðskíru lofti.
Var ekki um annað rætt í Vest
ur-Berlín í dag en hver til-
gangur fararinnar hefði verið.
Er þetta í fyrsta sinni, sem
Brandt kemur til Austur-Berl
ínar frá því múrinn var reistur
árið 1961.
Talsmaður borgarstjórnarinn
ar í Vestur-Berlín sagði við
fréttamenn í dag, að ekki yrðu'
gefnar neinar nákvæmar upp-
lýsingar um heimsóknina, fyrr
en borgarstjórinn hefði rætt
við stjórnina í Bonn og full-
trúa setuliðanna.
Brandt, sem einnig er aðal-
foringi stjórnarandstöðunnar í
Vestur-Þýzkalandi, og kona
hans dvöldu í fimm klukku-
stundir austan múrsins og
snæddu þau m. a. hádegisverð
með sovézka ambassadomum,
Pjotr Abrassimov.
Blöð í Vestur-Berlin skýra
öll sérstaklega frá því, að bif
reið borgarstjórans hafi farið
viðstöðulaust gegnum hliðið
við Charlie-stöðina og án þess
að austur-þýzkir verðir fram
kvæmdu sitt venjulega eftirlit.
Brandt sagði sjálfur eftir
heimsóknina, að samtal hans
og sovézka ambassadorsins hafi
verið mjög gagnlegt og hafi
þeir rætt fjöld mála af mikilli
hreinskilni, einnig ýmis at-
riði er varða Berlín.
Framhald á bls. 15
hvernig horfir og hvað framundan er að óbreyttri stefnu og því næst
verður að snúa inn á nýja leið, því að á rangri leig erum við. Það
sýnir reynslan ótvírætt.“
Eysteinn Jónsson harmaði í
upphafi máls síns að forsætisráð-
herrann skyldi ekki hafa gert við-
hlítandi grein fyrir því uggvæn-
lega ástandi, sem nú ríkti í efna-
hagsmálum þjóðarinnar, þrátt fyr
ir þær hagstæðu aðstæður _sem ríkt
hefðu að ýmsu leyti. Óbreyttri
stefnu væri ekki hægt að halda
því að hún leiddi í hreinan ófarn-
að og menn yrðu að breygja sig
fyrir þeirri staðreynd. Grundvallar
atvinnuvegir landsmanna riðuðu
nú, til falls. Togaraútgerð er að
hverfa úr landinu, útgerð smærri
báta er lömuð og dregst saman,
hröðum skrefum, og nú liggur
nærri, að frystihúsin sé að reka
í strand. Margar greinar iðnaðar
framleiðslu eru að leggjast niður
og mörg iðnfyrirtæki eru að hætta
rekstri og við þetta bætast erfið-
leikar í útflutningsverzluninni.
Reksturslánaskortur grefur undan
fyrirtækjunum og óðaverðbólgan
sverfur að landbúnaðinum. Nær
engir kjarasamningar eru í gildi
í landinu og launkerfi ríkisins
er að komast í upplausn og nú er
lagt á borð fyrir okkur fjárlaga-
frumvarp, sem þýðir hækkun fjár
laga um 900 milljónir þegar upp
verður staðið, en það litla, sem fer
af þessari hækkun í verklegar
framkvæmdir fer í afborganir að
mestu og vexti af því, sem þegar
er búið að gera og framlögin til
framkvæmda fara lækkandi ár frá
ári.
Svo er forsætisráðherrann að
tala um stöðvun. Sýnist mönnum
þó allt stefna í annað en stöðvun
og skiptir þar engu máli, þótt ríkis
stjórnin hyggist reyna að leyna
vexti verðbólgunnar í nokkra mán
uði eða fram yfir kosningarnar
líkt og gert var með „stöðvunar-
stefnunni" 1959. Eftir kosning-
arnar fór lokið af katlinum og upp
úr sauð.
LANDHELGIN 0PNUÐ?
Bjarni: Bændur ein aðalorsök verðbólgu
TK-Reykjavík, fimmtudag. t
í „tilkynningu ríkisstjórnarinn-;
ar,“ sem forsætisráðherra flutti á
Alþingi í dag sagði hann m.a.:
„Þá þarf og skjótlega að taka
Dr. Bjarni Benediktsson
! ákvörðun um, hvort gera eiSi með
I I
rýmkun veiðiheimilda innan I
fiskveiðilögsögunnar, ráðstafan
ir til öflunar efnivöru til hrað-
frystihúsanna, og þar með létta
undir með útgerð minni báta og
togaranna, jafnframt því, sem
gerðar verði nauðsynlegar breyt
ingar til að draga úr reksturs-
kostnaði þeirra." f ræðu, sem for-
sætisráðherra flutti síðar í um-
ræðum um tilkynninguna, sagði
hann, að ríkisstjórnin vissi full-
vel að margir smærri bátarnir
björguðu sér með fiskveiðum í
landhelgi, en þetta væri látið á-
tölulaust og séð í gegnum
fingur vegna erfiðleika út-
gerðarinnar. Við verðum að
taka ákvörðun um það, hvort
við eigum að opna landhelgina
meira. Vciðitakmörkun togar-
anna og bátanna er ein meginor-
sök erfiðleika útgerðarinnar,
ásamt verðfallinu á útflutningsvör
um og þessi veiðileyfatakmörkun
veldur hráefnaskorti frystihús-
anna og erfiðleikum þeirra.
| Þá sagði Bjarni, er hann svaraði
Iræðu Eystein Jónssonar, að bænd
um væri lítill greiði gerður með
því að telja þeim trú um, að erfið-
leikar þeirra og landbúnaðarins,
stafi að verðbólgunni. Sanni nær
Kosygin um Kínverja í gær:
NTB-Moskvu, fimmtudag.
Aleksej KosySin, forsætisráð-
herra Sovétríkjanna, réðist í dag
harkalega á Kína í ræðu, sem
hann flutti í tilefni af heimsókn
Gomulka, leiðtoga pólskra komm
únista.
væri að segja, að bændur og land-
búnaðurinn væri ein af meginor-
sökum verðbólgunnar.
í tilkynningu ríkisstjórnar-
innar, boðaði forsætisráðherra
óbreytta stjórnarstefnu. Megin-
Framhald á bls. 14.
Ásakaði Kosygin Kínverja fyr-
ir að standa í vegi fyrir jákvæð
um aðgerðum í Vietnamdeilunni
og hefðu leiðtogarnir í Peking
gert bandarískum heimsvaldasinn
um stóran greiða með því að koma
Framhald á bls. 14.
Undirstaðan að grotna niður.
Ástandið í útvegi og fiskiðnaði
er svo hættulegt, að það hlýtur að
verða meginverkefni þessa þings
að leysa það vandamál. Við get-
um ekki látið undirstöðu efnahags
lífs okkar grotna þannig niður. Og
þetta er að gerast á sama tíma
og verið er að hleypa erlendum
atvinnurekstri inn í landið. Kann
ski á að rýma þannig til fyrir hon-
um, en ég vil ekki trúa því, að það
sé stefna allra þingmanna stjórnar
flokkanna.
Málflutningur ríkisstjórnar-
innar hefur verið sá, að aðeins eitt
sé nauðsynlegt, og það sé að halda
niðri kaupgjaldi og verði á land
únaðarvörum og ef það takist, sé
búið að stöðva verðbólguna. Kaup-
máttur launa fyrir venjulegan
vinnudag hefur ekki aukizt sem
neinu nemur, ef þá nokkuð síðan
1959, miðað við framfærslukostn-
aðinn og húsnæðiskostnað nýrra
ibúða, en á þescu tímabili hafa
þjóðartekjurnar vaxið gífurlega.
Ennfremur sagði Eysteinn:
Kjarni vandamálsins, sem íslenzka
þjóðin stendur frammi fyrir í
efnahagsmálum er annars vegar sá
að finna leiðir til að koma þýð-
ingarmestu verkefnunum í fram-
kvæmd, með því framkvæmdaafli,
sem þjóðin ræður yfir. Hins veg-
ar að leysa úr þeirri þraut, að
Fi-amhald á bls. 7.
Alvarleg hindrun
friðar / Vietnam