Tíminn - 14.10.1966, Page 14

Tíminn - 14.10.1966, Page 14
14 TÍMINN Á VlÐAVANGI Pramhalr) <tl hls 3 verandi landsstjórnar, er höfuð borgin svo illa á vegi stödd, að hún getur ekki staðið í skil um við viðskiptamenn sína og verður að fresta framkvæmd- um, sem búið var að slá föstu að gerðar yrðu á þessu ári. Hún nær ekki inn gjaldfölln- um tekjum sínum með eðlileg um hraða. Hefur ekki eigið fé til aðkallandi rekstrarþarfa. Fær ekki heldur nauðsynleg lán til þess að bæta úr rekstr- arfjárskortinum.“ KOSYGIN iramnaia at bls. 1 í vegi fyrir sameiginlegar aðgerð ir. af hálfu kommúnista í Viet nam. Ræðan, sem flutt var í Svedl ovsk er talin ein sú hvassyrtasta, sem Kosygin hefur haldið varð andi afstöðu Kínverja til Vietnam deilunnar. Pólsku fulltrúarnir tóku ræð unni vel og af viðbrögðum þeirra má álykta að þeir styðja Sovét ríkin fullkomlega í gagnrýninni á Pekingleiðtogana. Afstaða Kína hefur verið al- varleg hindrun í baráttunni fyr ir friði í Vietnam. Þcssi afstaða hefur æ alvarlegri áhrif á hagsmuni vietnömsku þjóðarinnar og alheimskommún- ismans, sagði Kosygin. Sagði for sætisráðherrann. að Bresjnev hefði orðið sömu afstöðu var meðal annarra austur-evrópskra leiðtoga, á ferð hans um Júgó slavíu, Búlgaríu og Ungverja- land. Þá staðfesti Kosygin enn einu sinni, að norður-vietnamskir her menn fengju herþjálfun í Sovét ríkjunum, og veittu þau auk þess „sérstaka aðstoð" til þess að hægt væri að mæta hinni nýju árásarstefnu í Vietnam. Þá sagði forsætisráðherrann, að menningarbyltingin í Kína sýndi, að leiðtogarnir í Peking gengju stöðugt lengra í aðgerðum sínum til að kljúfa alheimshreyfingu kommúnismans. LANDHELGIN Framhald at bls. 1 stefnan væri hin sama og Ólafur Thors hefði lýst í nóvember 1959, að tryggja heilbrigðan grundvöll efnahagslífsins svo að framleiðsl- an aukist sem örast, atvinna hald- ist almenn og örugg, og lífskjör geti enn farið batnandi. ' Þá boðaði forsætisráðherra, að þessi mál myndu lögð fyrir þing- ið af hálfu stjórnarinnar: Frv. til laga um landhelgisgæzlu íslands, frv. til 1. um breyt- ingu á iögum um bann við botn- vörþuveiði í landhelgi, frv. til 1. um breytingu á áfengislögum, frv. til 1. um fávitastofnanir, frv. til 1. um breytingu á lögum um al- mannavarnir, frv. til 1. um skip- an prestakalla og prófastsdæma, frv. til 1. um Kristnisjóð, frv. til 1. um verðjöfnunargjald af veiðar færum. Frv. til laga um námslán og námsstyrki frv. til skólakostn- aðarlaga, frv. til 1. um afnám Við- tækjaverzlunar ríkisins, frv. til höfundarlaga, frv. til 1. um greiðsl ur til höfunda vegna útlána úr- bókasöfnum, frv. til 1. um breyt- ingu á útvarpslögum vegna ísl. sjónvarps, frv. til 1. um útflutn- ingsgjald af sjávarafurðum, þ. e. sams konar hlutdeild sjómanna- samtakanna og Landssambands ísl. útvegsmanna, frv. til laga um áframhald heimildar fyrir landan- ir erlendra veiðiskipa hér við land, frv. til laga um aðild verzlunar- fólks að atvinnuleysistrygging- um. Ennfremur verður endur flutt frv. til laga um réttindi skip stjórnarmanna um samábyrgð ís lands á fiskiskipum, og frv. um bátaábyrgðarfélög, svo og frv. til breytinga á laxveiðilögum. Síðar á þinginu er að vænta frv. til nýrra heildarlaga um toll- heimtu og tolleftirlit frv. um stað greiðslu opinberra gjalda og frv. til laga um iistamannalaun. í athugun eru frv. um eftirlit með opinberum framkvæmdum frv. um embættisbústaði og frv. til nýrra bókhaldslaga, svo og end urskipulagning félagsheimila- sjóðs og íþróttasjóðs. Unnið er að endurskoðun hafn arlaga og málefna Skipaútgerðar ríkisins, og raforkulaga, ennfrem- ur að tillögum um öflun nýrra tekna fyrir vegasjóð, svo og breytingu á lögum um almanna tryggingar vegna fyrirhugaðs af náms rikisfrmfærslu sjúkra manna og örkumla, breytingu á orlofslög um, á lögum um rétt verkafólks til uppsagnarfrests og um rétt, þess og fastra starfsmanna til launa vegna sjúkdóms og slysa- forfalla og nýrri heildarendur- skoðun á lögum um opinbera aðstoð við íbúðabyggingair. Þá er unnið að samningu frv. til laga um jarðakaupasjóð rík- isins og hagræðingarsjóð land- búnaðarins. HALDA OLL P mji ' .• 'ij- 16 inu eiga bíóin og leikhúsin erfitt uppdráttar, og það er staðreynd, að jafn skemmtjlegt leikrit og Tveggja þjónn hefur ekki hlctið þá aðsókn, sem það á skilið. og svo virðist sem leikhússáhugi al- mennt hafi dofnað í bili. Þótt flestir fagni tjlkomu ís- lenzka sjónvarpsins, þá eru radd- ir á lofti um það, að 6 kvölda sjou varpsdagskrá sé ekki æsitileg, menn segjast gjarnan vilja eiga frí frá sjónvarpinu einu sinni í .miðri viku, en ekki verður sjón Ivarpað á fimmtudagskvöldum og einnig á laugardagskvöldum, þegar i dagskrá ríkisútvarpsins er með jskásta móti, og fóik vill blanda geði við kunningja i heimahúsum og á skemmtistöðum. Þá er það að frétta af sjón- varpsmálum ,að sérstök flugvél var send í hasti í vikunni ti! Vest mannaeyja og hafði hún innan- borðs nokkra tugi af sjonvarps- tækjum handa Eyjaskeggjum. Þá er von á sjónvarpsloftnetum með flugvélum erlendis frá, en flutn ingur á sjónvarpsvörum m°ð skip um þykir allt of hægfara. Erfiðlega gengur að ná sam- komulagi meðal ráðamanna um sjónvarpsiðgjaldið. Rætt hefur ver ið um 3 þúsund króna árgjald, og ef 14 þúsund tæki eru nú í notkun þá eru það 42 milljóna krórm árs tekjur. Útför föður míns, Guðlaugs Br- Jónssonar stórkaupmanns, verSur gerð frá Víkurkirkju, Mýrdal, laugardaginn 15. október, kl. 2 síðdegis. Þorgrímur Guðlaugsson, Þökkum innilega auðsýnda samúð við fráfall og útför eigin- manns mins, föður okkar .tengdaföður og afa Kristófers Jóhannesonar Finnmörk. Jónína Árnadóttir, börn, barnabörn og tengdabörn. RUSSAR Framhald af bls. 16. ara benzín en nú er flutt inn. Ef vlðskiptamálaráðuneytið leyfir inn flutning á sterkara benzíni, mundu öll benzínkaup íslendinga sjáif- krafa færast frá Rússum og til Vesturlanda. Nokkur verðmunur er á sterku og veiku benzíni og mun mismun- urinn á 87 oktan benzíni og 93 eða 95 eins og kom til mála að kaupa hjá Rússum, vera rúmir 12 aurar á lítra í innkaupi, miðað við skráð heimsmarkaðsverð, en innkaups- verðið til fslands er um 21 af hundraði fyrir neðan hið skráða verð. Þökkum innilega auðsýnda samúð við fráfall og jarðarför föður okkar, tengdaföður og afa, Guðjóns Eyjólfssonar Hulda Guðjónsdóttir, Ingvar Guðjónsson, Fjóla Halldórsdóttir, Sigríður Guðjónsdóttir, Hörður Steinþórson, Ágústa Guðjónsdóttir, Skarphéðinn Kristjánson, og barnaböm. Þökkum innilega öllum þeim, sem auðsýndu okkur samúð og vinarhug við andlát og jarðarför Jóhönnu Jóhannnsdóttur Baldursheimi, Skagaströnd. Sigurjón Jóhannsson, börn, barnabörn og tengdabörn. Útför Árna Jónsonar bónda, Alviðru, Ölfusi, hefst með húskveðju að heimili hans laugardaginn 15. október kl. 12. Athöfnin í Kotstrandarkirkju hefst kl. 3.30. Margrét Árnadóttir, Magnús Jóhannesson. OÐLINGUR NÁÐIST Á FLOT FB-Reykjavik, fimmtudag. Klukkan 15:50 í dag náði varð- skipið Albert Vestmannaeyja- bátnum Öðlingi á flot, en eins og fram kom í fréttum í dag, strand- aði skipið fyrir neðan bæinn Hvol í Mýrdal í fyrrinótt. Albert fylgdi Öðlingi til Vestmannaeyja í dag. Umsóknarfrestur útrunninn Umsóknarfresti um prófessors emætti i lögfræði við Háskóla ís- lands lauk 10. þ.m. Umsækjendur um embættið eru: Lúðvík Ingv- arson, fyrrv. sýslumaður, og Þór Vilhjálmsson, borgardómari. Menntamálaráðuneytið, 12. obtóber 1966. HÖGNI JÓNSSON, Lögfræði- og fasteignastofa SkólavörSustig 16, sími 13036, heima 17739. OKUMENN Látið athuga rafkerfið í bílnum. Ný mælitæki. RAFSTILLING, SuSurlandsbraut 64, sími 32385 (bak viS Verzlunina Álfabrekku). NITTO JAPÖNSKU NITTO HJÓLBARDARNIR I floshjm staorðum fyrirliggjandi f Tollvörugeymslu. FUÓT AFGREIÐSLA. DRANGAFELL H.F, Skipholti 35 — Sfmi 30 360 KJÖRDÆMISÞING Á AUSTURLANDI Kjördæmisþing Framsóknarmanna á Austurlandi verður haldið dag- ana 29. og 30. okt, næstkomandi i félagsheimilinu að Iðavölluni, og hefst það kl. 14. Dagskrá: Venjuleg aðalfundarstörf. FÖSTUDAGUR 14. október 1966 Uridgestone HJÓLBARÐAR Síaukin sala BRIDGESTONE sannar gæðin. Veitir aukið öryggi í akstri. BRIDGESTONE ávallt fyrirliggjandi. GÓÐ ÞJÓNUSTA — Verzlun og viSgerðir. Sími 17-9-84. Gúmmíbarðinn h.f, Brautarholti 8. TREFJAPLAST PLASTSTEYPA Húseigendur! Fylgizt með tímanum. Ef svalirnar eða þakið þarf endurnýjunar við, eða ef þér eruð að L>Y99ja, þá látið okkur ann- ast um lagningu trefja- plasts eða plaststeypu á þök, svalir, gólf og veggj á húsum yðar, og þér þurfið ekki að hafa áhyggjur af því í framtíðinni. Þorsteinn Gíslason, málarameistari, sími 17-0-47. TRÚLOFUNARHRINGAR Fljót afgreiðsla. Sendum gegn póstkröfu. Guðm. Þorsteinsson, gullsmiður, Bankastræti 12. Jón Grétar Sigurðsson héraðsdómslögmaður, Austurstræti 6, sími 18783.

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.