Vísir - 17.09.1975, Page 1
VISIR
65. árg. — Miðvikudagur 17. september 1975 — 211. tbl.
ROTTUBYGGD VIÐ TJÖRNINA?
Mjög mikib er af rottu við
Tjömina i Reykjavík og virðist
hiin vera i nokkuð mikilli Ut-
breiðslu þar. Heldur hún sig
aðallega i bakkanum við litlu
bryggjuna Lækjargötumegin,
en er einnig mikið i króknum við
Iðnó og i bakkanum vestur með
tjörninni.
Einnig hefur orðið mikið vart
við rottur umhverfis hUsið
nUmer 11 við Tjarnargötu, þar
sem almenningssalerni eru
starfrækt.
Það voru lögreglumenn, sem
urðu varir við þessa rottubyggð
i gær, þegar þeir voru að leita að
mink við Tjörnina. I viðtali við
Vísi í morgun sagði einn þeirra
að rotturnar væru stórar og sæl-
legar, enda hefðu þær mikið og
gott æti á þessum slóðum.
— HV
nýjar valdaþjóðir.
— Sigvaldi Hjáim-
arsson skrifar um
erlend málefni —
sjá bls. 6-7
Colby veifaði
eiturörvabyssu
— bls. 5
MINKUR LEGGST Á - sjá
ENDUR VIÐ TJÖRNINA baksíðu
Á Óðal eftir leikinn
Þeir brugðu sér i nýja diskotekið I óðali I gær, Valsmenn og
Celtic-hetjurnar. Þangað fóru þeir eftir leikinn og virtust
skemmta sér prýðilega. Háð var „diskótek-keppni”, þar sem
ýmsir spreyttu sig á þvf aö leika plötusnúð. Það var enginn I
vafa um, hver yrði sigurvegarinn. Það var Hermann Gunnars-
son, enda ekki óvanur að koma fram. A þessari mynd er
Jóhannes Eðvaldsson og Paul Wilson, útherji Celtic, að ræöa við
Ijóshærða frauku. Sjá blaðsiðu 12 og frásögn af leiknum I iþrótta-
opnu.
Bak við
klaustur
murana
— VÍSIR heim-
sœkir klaustur
Karmelsystra í
Hafnarfirði
— Grein og
myndir bls. 8-9
KRAFLA
ÓÞÖRF?
Byggðalinan eða
Kröfluvirkjun gætu hvor
um sig leyst orkuvanda-
mál Norðlendinga eins
og nú standa sakir, að
sögn Knúts Otterstedt,
framkvæmdastjóra
Laxárvirkjunar. önnur
hvor framkvæmdin er
þvi óþörf. Þessa dagana
er hinsvegar verið að
fjárfesta milljarða
króna i að vinna sam-
timis að þessum verk-
efnum.
Ekki nóg um það, heldur er ver-
ið að byggja Kröflu með tveim
vélum, þegar orkuspár sýna að
árið 1980 verður enn ónotuð mikil
orka af framleiðslugetu EINNAR
vélar. Þá liggja ekki fyrir neinir
hagkvæmnis- eða arðsemisút-
reikningar, sem hægt er að ganga
að, vegna þessara stórkostlegu
framkvæmda, að sögn Knúts
Otterstedt.
Aætlaður kostnaður við
Byggðalfnuna er um 1400 milljón-
ir króna, en við Kröfluvirkjun um
6000 milljónir.
— Það rikir alger ringulreið i
þessum málum, sagði Knútur
Otterstedt.
— ÓT.
Það hefur verið mikið að gera hjá krökkunum I Vestmannaeyjum siðustu vikur. Þau hafa átt annrikt
við aðbjarga lunda pysjunni, lundaunganum, sem fiýgur I átt til bæjarljósanna á kvöldin. Þegar pysjan
kemur harkalega niöur nær hún ekki flugi á ný. Krakkarnir safna fuglunum saman i kassa, fara sfðan
að morgni út á Eiði eða Hamar og sleppa fuglinum þar. Þessa fallegu mynd tók Guðmundur Sigfússon,
ljósmyndari VIsis I Eyjum, og fallega stúlkan hcitir Lovisa Jónsdóttir og er sjö ára. —Sjá 7. siðu.