Tíminn - 22.10.1966, Síða 2

Tíminn - 22.10.1966, Síða 2
LAUGARDAGUR 22. október 1966 TÍMtNN Eggert G. og Helgi Bergs rök- ræða um útvegsmáI í útvarpið Eggert Helgi Tómas Þetta form stjórnmálaumræðna er hið vinsælasta í erlendum út- varps- og sjónvarpsstöðvum, en hefur ekki verið reynt hér fyrr. Með þessum hætti ætti útvarpinu einnig að takast að tryggja þá óhlutdrægni í meðferð málefna, sem snerta stjórnmálabaráttuna í landinu, þar sem báðir þátttakend ur munu eiga sem jafnasta að- stöðu til að koma skoðunum sín um og athugasemdum á framfæri. Ef vel tekst til um þennan þátt IGÞ—Reykjavík, föstudag. Nýr þáttur hefur göngu sína í dagskrá útvarps ins n. a. mánudagskvöld. Nefnist hann „Á rök stólum" og verður stjórn hans í höndum Tómasar Karlssonar, ritstjórnarfulltrúa. í þessum þætti munu tveir menn með öndverðar skoðanir um ák leðið málefni rökræða og skiptast á skoðunum. Þeir, sem ríða á vaðið á mánudagskvöldið eru þeir Ekkert G. Þorsteinsson, siávarútvegsmálaráð herra, og Helgi Bergs, ritari Framsóknarflnkksins Munu umræður þeirra snúast um sjávarútvegsmál, sem eru efst á baugi í stjórnmálunum núna eins og kunngt er. gæti hann átt verulegan þátt í því að koma stjórnmálaumræðum hér á landi á menninngarlegri og málefnalegri grundvöll en verið hefur. Er ekki að efa, að mikið verður á hann hlustað. SKARÐSEOK TIL SÝNIS Um helgina verður Skarðs bók sýnd almenningi í Þjóðminjasafninu, verður bók’in til sýnis frá klukk- an 14 til 22. Myndir frá heimkomu Skarðsbókar og afhendingu hennar eru nú til sýnis í glugga afgreiðslu Tímans í Bankastræti 7. Ovíst hversumikið magn af olíu er enn í jarðveginum Skagfirðingar Haustmót Framsóknarmanna í Skagafirði verður í Bifröst Sauð ájrfcróki laugardaginn 29. þessa mánaðar og hefst stundvíslega kl. 9 síðdegis. Ræður flytja Ólafur Jóhannesson alþm. og frú Sigríð ur Thorlacius. Karlakórinn V:sir á Siglufirði skemmtir. Gautar leika og syngja fyrir dansi. EJ-Reykjavík, föstudag. Þeir, sem gengið hafa um höfn ina undanfarna daga, hafa veitt því eftirtekt, að unnið hefur ver- ið að „veiða“ upp úr höfninni svartolíu, sem dreifzt hafði um alla höfnina. Er áætlað, að búið sé að veiða upp yfir 20 tonn af olíu. Er með öllu óvíst, hvenær þessu verki verður lokið, en að því er unnið stöðugt þegar veður leyfir. Olían mun hafa komið úr olíu- leiðslu, sem Faxaverksmiðjan á og liggur út í Örfirisey. Ekki er vitað, hvenær leki kom að leiðsl- unni, en olían mun hafa tekið verulegan tíma að síast gegnum jarðveginn og út í höfnina. Má ætla, að verulegt olíumagn sé í jarðveginum, og Einar Thorodd- sen, hafnsögumaður, sagði í við- tali við blaðið í dag, að í stór- streymi losnaði um olíuna og hefði hún þá sézt renna út úr kantin- um og í sjóinn. Einnig sæti olían í bryggjustólpum og í hleðslum, og væri ómögulegt að segja til, hvenær hún yrði endanlega upp- rætt. Það er Loftorka h.f. sem unnið hefur við „olíuveiðina" og lét fyr irtækið í því skyni smíða sérstakt járnker, sem notað er við veiðarn- ar. 1 Starf þetta er nokkuð háð veðri og í dag var t.d. ekki hægt að vinna við olíuveiðina vegna veðurs ins. Sýningu Veturlsða að Ijúka Sýning Veturliða Gunnasrsonar listmálara í Listamannaskálanum hefur nú staðið yfir í viku og ver- ið mætavel sótt, ellefu myndir hafa selzt. En nú fer hver að verða síðastur að skoða sýninguna, að- eins tveir dagar eftir, henni lýk- ur á sunnudagskvöld. Sýningin er opin kl. 2—10 síðdegis. AÐALFUNDUR Aðalfundur Framherja, fé- lags launþega, verður haldinn 23. október kl. 2 að Tjarnar- götu 26. Fund arefni: 1. Venjuleg að _______ alfundarstörf. 2. Óðinn Rögnvaldsson ræðir um kjaramálin. 3. Önnur mál. Mætið vel og stundvíslega. Stjórnin. Fjársöfnun til heimilis fyrir taugaveikluð börn FB-Reykjavík, föstudag. Hinn árlegi fjáröflunardagur Barnaverndarfélags Reykjavík ur er á morgun, laugardag. Verður þá selt merki félagsins og barna- bókin Sólhvörf. Bæði bók og merki verða afhent í öllum barna skólum Reykjavíkur og Kópavogs og er þess að vænta, að sem allra flest börn komi í skólana og fái bækur og merki til sölu, en eins og fram hefur komið í fréttum áður, rennur allur ágóði af söl- unni til byggingar heimilis fyrir taugaveikluð börri. í heimilissjóðnum fyrir tauga- veikluð börn eru nú 1 milljón 360 þúsund krónur, en í gær var einmitt afhent 160 þúsund króna framlag, 100 þús. kr. ágóði af merkja- og bókarsölunni á síðasta ári og 60 þúsund krónur, sem konur í Barnaverndarfélaginu, söfnuðu með því að selja servíett ur, sem þær fengu að flytja inn tollfrjálsar. Heimilissjóðurinn var stofnaður fyrir fimm árum, og er markmið hans að hrinda í fram- kvæhid byggingu heimilis fyrir taugaveikluð börn, en það heimili þyrfti að vera sem næst einhverju stóru sjúkrahúsi, þannig, að börn in geti notið þar þeirra lækninga, sem þörf kann^ að vera á, vegna einhverra líkamlegra sjúkdóma, er þau þjást af. Sótt hefur verið um lóð undir heimilið en ekkert svar hef ur fengizt við þeirri umsókn enn- þá. Gerð hefur verið kostnaðar- áætlun, en þar sem hún er nú orðin eins eða tveggja ára gömul standast tölur hennar ekki leng- ur, að því er dr. Matthías Jónas- son, formaður sjóðsins sagði á blaðamannafundi. Ráðgert er að byggja heimilið í tveimur áföngum. Fyrsti yrði þá byggt hús, sem rúmaði 12—15 börn og allt það, sem til þarf til þess að reka heimili, fyrir helm ingi fleiri börn, en síðari áfang- inn yrði húsrými fyrir 15 börn. Bókin Sólhvörf kostar nú 40 krónur, en merkið er selt á aðeins 10 kr. Tilkynning frá SUF vegna 11. sambanáshings SUF Eins og áður hefur verið auglýst verður 11. þing Sambands ungra Framsóknarmanna haldið ' Tjarnarbúð i Reykjavík dag- ana 28. til 30. okt. n. k. Samkvæmt 14. gr. laga SUF kýs hvert sambandsfélag einn fulltrúa á þingið, og síðan einn fyrir hverja 20 félagsmenn. Fulltrúatala miðast við síðustu félagsmanna- skýrslu til sambandsstjórnar. Sambandsráðsmenn eru ejálf- kjörnir á þingið. Stjórn SUF vill hérmeð beina þvi til stiórna sambandsfélaganna um allt land að senda félagsmannatal lil stjórnar SUF og tilkynna kjör fulltrúa á sambandsþingið hið fyrsta. FJOLSKYLDUFARGJOLDIN GANGA I GILDi 1. NÓV. Hinn 1. nóvem-ber n.k. ganga í gildi sérstök fjölskyldufargjöld á flugleiðum milli íslands og Norð- urlanda og gilda þau til 31. marz 1967. Þetta er annar veturinn, sem þessi hagstæðu fargjöld eru í gildi, en þeim var komið á fyrir frumkvæði Flugfélags íslands og fékk félagið þau samþykkt á ráð stefnu Alþjóðasambands flugfé- laga, IATA, sem haldin var í Aþ- enu árið 1964. Fjölskyldufargjöldin til Norður landa eru háð svipuðum reglum og þau fjölskyldufargjöld ,sem gilda á flugleiðum Flugfélags ís- lands innan lands, en samkvæmt þeim greiðir forsvarsmaður fjöl- skyldu fullt fargjald en aðrir fjöl skylduliðar, (maki og börn upp að 26 ára aldri) aðeins hálft gjald. Kvikmyndasýning Varðbergs og SVS í Nýja bíó í dag kl. 2 Kvikmyndasýning fyrir almenn ing verður í Nýja bíói í dag, laug ardag 22. okt., kl. 2 e.h. á vegum Varðbergs og Samtaka um vest- ræna samvinnu (SVS). Þar verða m.a. sýndar tvær mjög athyglisverðar litmyndir, önnur um Atlantshafið, hin um Tyrkland. Öllum er heimill ókeypis að- gangur að sýningunni meðan hús- rúm leyfir. Opnar sýningu í Bogasal / kvöld GB-Reykjavík, föstudag. Hásselby-höll í Svíþjóð fyrir Guðmunda Andrésdóttir list- röskum tveim árum, og í fyrra málari opnar sýningu í Boga- sýndi hún ásamt fjörum ís- sal Þjóðminjasafnsins á laugar lenzkum málurum öðrum í dag kl. sex síðdegis og verður sýningin síðan opin daglega kl. 2—10 e.h. til annars sunnu- Svea Gallery í Stokkhólmi, og keypti þá sænska fræðslumála ráðuneytið eina mynd eftir dagskvölds. Á sýningunni eru hana, og aðra eftir Þorvald 17 olíumyndir og 4 vatnslita- Skúlason. Einnig voru myndir myndir. Listakonan hefur ekki hennar á íslenzku farandsýn efnt til sérsýningar hér heima ingunni vestan hafs í fyrra og í nokkur ár, en myndir hennar seldust þá tvær af mynd- hafa síðustu þrjú árin verið á um hennar. Af öðrum samsýn mörgum samsýningum'~erlendis. ingum eriendis, sem hún hefur Hún var eii} af þeim fyrstu ís- tekið þátt í, má nefna sýning lenzku listmálurum, sem áttu ar í Róm og París og Norður myndir á málverkasýningu í landasýninguna í Þrándheimi. Guðmunda Andrésdóttir listmálarj í Bogasal. \

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.