Tíminn - 22.10.1966, Síða 3

Tíminn - 22.10.1966, Síða 3
3 LAUGAKHáíWR -28. dktSber 1966 liMmM MINNING iðu rattn. 'v' - > Ólafur Thordersen. Á VÍÐAVANGI EINAR GUÐSTEINSSON skrifstofustjóri Mjök eruan tregt tungu at hræra. Þessi orð Egils komu mér fyrst í huga, þá er ég hugðist minnast vinar mins og starfsfélaga, Einars Guðsteinssonar skrifstofustjóra við Fríhöfnina á Keflavíkurflugvelli, með örfáum kveðjuorðum. Hversu orðlausir og máttvana stöndum vér menmrnir gegn hin- um órannsakanlegu, og að okkur finnst, óréttlátu örlögum, er þau rífa upp með rótum fyrirvaralaust þá stofna, er oss þykja fegurstir og traustastir. Hver skilur það ranglæti, að ungur maður, er fram tíðin blasir við, skuli rifinn úr faðmi fjölskyldu sinnar, þá er líf- ið virðist rétt hafið. Eða er hér enn að sannast hið fornkveðna, að þeir sem guðirnir elska, deyja ungir. Einar Guðsteinsson, er í dag verður til moldar borinn frá Grindavíkurkirkju, var fæddur í Reykjavík hinn 29. marz 1935, og var þvi aðeins 31 árs gamall, er hann lézt. Foreldrar hans vom þau Guðsteinn Einarsson, hrepp- stjóri í Grindavík og kona hans Elsie Jónsdóttir. Þótt Einar fædd ist í Reykjavík, fluttist hann strax eftir fæðingu til Grindavíkur, enda bjuggu foreldrar hans þar, og taldi Einar sig ávallt Grind- Æskulýðsvika K.F.U.M. og K. Hin árlega æskulýðsvika KFUM og KFUK í Reykjavík, sem hald in er í húsi félaganna við Amt- mannastíg, hefst nú um helgina. Verða haldnar almennar sam- komur í félagshúsinu á hverju kvöldi komandi viku, og hefjast þær jafnan kl. 20.30. Ræðumenn eru yfirleitt margir á samkomu vikum þessum, bæði úr hópi þeirra yngri og eldri, og tala bæði leikmenn og prestar. Þá er mikil áherzla lögð á almennan söng, svo og kórsöng og einnsöng. Ung ar stúlkur leika undir almennan söng á gítara. Samkomur þessar hafa verið vel sóttar, og er ungu fólki sérstaklega boðið en allir eru velkomnir. Á fyrstu samkomu æskulýðsvik unnar að þessu sinni verður aðal ræðumaður, Jóhannes Ólafsson, læknir, sem starfað hefur fimm ár í Eþíópíu, en einnig segja Edda Gísladóttir og Ásgeir M. Jónsson nokkur orð. Æskulýðskór inn syngur. Samkoman hefst sunnudagskvöld kl. 8.30, og eru allir velkomnir sem fyrr segir. víking, þótt ekki væri hann fædd- ur þar. Aðeins nokkurra vikna gamall missti Einar móður sína. Mun hún hafa verið á svipuðum aldri og Einar nú, er hann lézt, svo að segja má, að tvisvar sé höggvig í sama knémnn. Þótt ekkert fái bætt missi um- önnunar og hlýju ástríkrar móður mun Einari þó hafa verið sem Ijósgeisli i myrkri harmsins, sér- stök ástúð föður og föðursystkina og hélzt sá kærleikur og um- hyggja ávallt. Ungur lagði Einar út á hina þyrnum stráðu rósabraut mennta- gyðjunnar. Lauk hann landsprófi frá héraðsskólanum á Núpi árið 1952. Hóf hann síðan nám við Menntaskóla Akureyrar, en hætti þar eftir einn vetur og settist í ISamvinnuskólann. Dirautskráðist Einar frá Samvinnuskólanum vor ið 1954. Veturinn 1954—55 nam Einar við verzlunarskóla í Bristol í Englandi og lauk þaðan prófi vorið 1955. Hóf hann þá að starfa hjá Sambandi islenzkra samvinnu- félaga, en í janúar 1956 var hann ráðinn bókhaldari við Kaupfélag Suður-Borgfirðinga. í september 1958 var Einar ráðinn sem skrif- stofu- og afgreiðslumaður við Frí- höfnina á Keflavíkurflugvelli, sem þá var að taka til starfa. í júní 1959 var hann ráðinn útsölustjóri Á.T.V.R. við Áfengisdeild Fríhafn arinnar, en er sú deild var sam- einuð öðrum rekstri stofnunarinn- ar í október 1960, var Einar skip- aður skrifstofustjóri og gegndi því starfi til dauðadags. Hinn 21. nóvember 1955 kvænt- ist Einar eftirlifandi konu sinni, Guðbjörgu Vagnsdóttur frá Pat- reksfirði. EigauSust þau hjónin sex börn, og eru þar af fimm á lífi, á aldrinum fjögurra til tólf ára, öll hin mannvænlegustu. Það var einkennileg tilviljun, að þau hjónin voru jafngömul upp á dag, bæði fædd 29. marz 1935, en þessi tilviljun virtist verða þeim sem samnefnari í hjónabandinu, svo samtaka og samhuga í hverju sem tekið var fyrir hendur. Bæði vom þau hjónin höfðingjar heim að sækja, og var því oft gest- kvæmt á hinu dásamlega heimili þeirra, enda mátti hver sem þar kom, fljótt finna, að hann var velkominn. Leiðir okkar Einars lágu fyrst saman, er hann hóf starf sitt við Fríhöfnina í september 1958, og tel ég mér mikið lán, að hafa mátt njóta þeirrar viðkynningar, þótt hún yrði alltof stutt. Reyndist Einar mér ekki aðeins- frábær starfsmaður og starfsfélagi, en einnig hinn tryggasti vinur. Með- al starfsfélaga sinna og vina var hann hvers manns hugljúfi, ávallt uppfullur af glettni og kátínu, og þekki ég engan mann jafn skap- góðan og Einar var. Það er ein- kennandi fyrir skapgerð Einars, að öll þau ár, er hann vann með okkur, gerði enginn okkar sér grein fyrir því, að hann gengi ekki heill til skógar. Það kom því eins og reiðarslag, er ég frétti, að hann hefði verið fluttur fárveikur á sjúkrahús laust eftir hádegi hinn 12. þ. m., einkum þar sem ég hafði aðeins klukkustund áður talað við hann í síma, kátan og hressan að vanda. Það var þvi langur næsti einn og hálfur sólarhringur fyrir ættingja og vini, meðan beðið var á milli vonar og ótta, og beizkur bikar að kyngja, sú fregn, að dauð inn hefði sigrað að kvöldi hins 13. Ég vil svo á þessari skilnaðar- stund færa þér, Einar, minn kæri vinur, mínar þakkir og okkar allra starfsfélaga þinna, fyrir yndislegar samverustundir, þú, sem reyndist tryggur vinur í mótlæti sem með- læti, það verður stórt skarð í hópnum okkar, sem aldrei verður unnt að fylla. Vor einasta huggun er minningin um góðan dreng, því „orðstírr deyr aldregi, hveim er sér góðan getr“. Ég vil svo að lokum votta öllum aðstandendum mína dýpstu samúð, svo og starfsfélaga minna og fjöl- j skyldu. Börnunum litlu og föðurn- ^um, systrunum og föðurbræðrun- I um, sem hann var sem einkason- ! ur. Og þig, Haddi mín, bið ég guð I I að styrkja og Messa f þessari erf- Þegar fregnin um andlát Einars Guðsteinssonar barst um flugstöð- ina á KefLavikurflu gvelli, setti alla hljóða. Engan hafði grunað að vegimir greindust svo fljótt og sízt að þessi glaði og hraustiegi maður væri á förum til hinnar ókunnu strandar. Þegar nálgast þá stund, er kveðja skal Einar hinztu kveðju, rifjast upp fjöl- margar minningar um þann góða dreng. Fátt verður hér nefnt, enda áttu þessar fáu línur aðeins að vera vottur þakklætis fyrir ágætt samstarf á liðnum árum. Það er eins og manni verði ljósara með hverjum degi, hversu skarðið er mikið og vandfyllt, sem varð við fráfall hans. Fríhöfnin á Kefla víkurflugvelli hefur frá því að hún var stofnuð notið hans góðu starfskrafta og átti það ríkan þátt í örum vexti hennar. Einar var mik ill náttúruskoðandi og tók mikið af myndum, þar sem hann fór. í því sambandi hafði hann aflað sér staðgóðrar þekkingar á ljósmynda vörum. Hann var einn þeirra manna, sem alltaf leita meiri þekk ingar og fylgjast af brennandi áhuga með nýjungum. Gott dæmi um það er að hann var nýkom- inn heim af ljósmyndavörusýn- ingu í Köln. En þótt ég sækti oft til hans góð ráð á ýmsum sviðum, verður hann mér þó alltaf minnisstæðast- ur vegna prúðmannlegrar tram- komu og góðvildar. Hann var einn þeirra fáu manna, sem láta sér aldrei um munn fara ljótt orð- bragð og öll þau ár, sem ég um- gekkst hann, sá ég hann aldrei skipta skapi. Slíkan mann væri gott að hitta aftur, þótt síðar verði. Ástvinum Einars Guðsteins sonar votta ég fyllstu samúð mína. Vonandi verður minningin um þennan æðrulausa og góða dreng þeim nokkur huggun í raunum þeirra. Sigfús Kristjánsson. Leikfélag Kópavogs endur- sýnir um þesar mundir hinn vJnsœla gamanieik Óboðinn gestur eftir Svein Halidórs- son. Vegna nýrra verkefna verða aðeins örfáar sýningar á leikritinu til viðbótar. Þeir, sem hafa hug á að sjá sýn inguna, ættu þvr ek«i að láta það dragast. Næsta sýn ing er á mánudag 24. októ ber. Myndin er af Auði Jóns dóttur og Júlíusi Kolbeins i hlutverkum sínum. Brauðhúsið Laugavegi 126. Smurt brauð Snittur Cocktailsnittur, Brauðtertur Sími 24631. HÚSBYGGJENDUR Smíðum svefnherergis- og eldhúsinnréttingar SÍMI 32-2-52. Jón Eysteinsson, lögfræðingur. Lögfræðiskrifstofa Laugavegi 11, sími 21916- Eru það falsanir? Morgunblaðið segir í leiðara í gær, að það séu hreinar fals anir hjá Tímanum að halda því fram, að fjárlögin séu mestu verðbólgufjárlög, sem þjóðinni hafi verið sýnd og geri beinlínis ráð fyrir stór- vexti verðbólgunnar á næsta ári, þar sem ríkið ætli sér að taka 8—900 milljónum meira í skatta og gjöld af landsfólk inu en á yfirstandandi ári. Það vefst hins vefiar fyrir Morgun- blaðinu að leiða rök að því, að þetta séu fálsanir, og hefur blaðið ekki annað fram að færa en að ekki sé gert ráð fyrir neinum nýjum sköttum, en cinmitt það sýnir bezt, að fjárlögin gera beinlínis ráff fyrir bullandi verðbólguvexti, þar sem 8—900 milljónir króna eiga að nást í ríkiskass- ann á sömu skattstofnum og áð ur. Bakdyr lóðaúthlutun- arinnar opnaðar Fyrr á árum hafði íhaldið lóðaúthlutunina í borginni al- gert heimilismálog úthlutaði án allra auglýsinga. Þetta sætti ætíð mikilli gagnrýni minni- hlutans, og Ioks fyrir þremur árum þóttist íhaldið ætla að sjá að sér og varð við kröfum minnihlutans um að láfa lóðaút hlutun fara fram að loknum auglýsingum eftir umsóknum og mati á þeim. Þetta hélt íhaldið nokkurnvefiin í tvö ár, og var augljóslega meiri sann girnisbragur á úthlutuninni þá en áður. Á s. 1. vori var enn auglýst eftir umsóknum um lóðir og allmikil úthlutun fór fram að því loknu, en auðvitað var langt frá því að unnt væri að fullnægja umsóknum. Svo bregður allt í einu svo við á fundi borgarstjórnar s. 1. fimmtudag, að í fundargerð um bæjarráðs koma fram all margar úthlutanir lóða án þess að auglýst hafi verið, og má gerla sjá, að það er verið að hygla ýmsum „valinkunnum" mönnum, enda höfðu ekki nema tveir þeiiTa, sem nú fá lóðir ekki sótt um þær i vo'. Þetta var auðvitað gagnrýnt harðlega á borgarstjórnarfund- inum og spurt, hvort íhaldið ætlaði nú að hætta við það að auglýsa lóðaúthlutunina. Full- trúi íhaldsins kvað svo ekki vera, auglýst yrði áfram eins konar aðalúthlutun Ióða, en fráleitt væri að úthluta hverj um einasta „lóðarskika", eins og hann sagði, eftir auglýsing um. Var þetta eins konar yfir lýsing um það, að hafa skyldi tvenns konar hátt á úthlutun inni, annars vegar auglýsa eft ir umsóknum og úthluta al- menningi eftir þeim, en síðan an aðra úthlutun fyrir betri menn án auglýsinga. Virðist auðsætt, að vildarmenn og oela börn íhaldsins uni ekki þröng um stakki úthlutunar fyrir opn um tjöldum, og því hafi nano sprunfiið, og nú eigi að koma á gamla laginu samhliða aft ur, og hafa tvenns konar loffa úthlutun, almúgaúthlutun og síðan á eftir vinaúthlutun al ýmsum „lóðaskikum" bakdvra megin. Þar sem aðeins tveir þeirra. sem nú fengu hina völdu „lóða skika“ höfðu sótt um lóðir j vor, spyrja menn hvort tóða þörf þeirra hafi allt í cinu orð ið svona brýn, eða hvort þeir Framhald á bls. 12.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.